Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ 14.00–18.00 Opið hús. Myndlistasýning á verkum eftir Georg Guðna. Einnig verða til sýnis gamlar ljósmyndir af Vatnsmýrinni frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að ógleymdu umhverfislistaverkinu eftir Ólaf Elíasson. 14.00–14.30 Vísindagaldrar: Siggi efnafræðingur sýnir börnunum skemmtilega „vísindagaldra“. 15.00–15.40 Tónleikar með Eivöru Pálsdóttur og Bill Bourne. 16.00–16.30 Vísindagaldrar: Siggi efnafræðingur sýnir börnunum skemmtilega „vísindagaldra“. 17.00–18.00 Tónleikar með Eivöru Pálsdóttur og Bill Bourne. Gyrðir Elíasson les úr ljóðum sínum. Íslensk erfðagreining býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Menningarnótt, í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Sturlugötu 8 í Vatnsmýrinni. Vísindamenn verða á sveimi til að svara spurningum gesta og sýna húsið. Við höfuðstöðvar Íslenskrar erfðagreiningar eru næg bílastæði og aðeins um 10 mínútna gangur í Hljómskálagarðinn og miðbæ Reykjavíkur. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á www.decode.is. Íslensk erfðagreining á Menningarnótt Vatnsmýrin Þrátt fyrir fullyrðing-ar formanns Fram-sóknarflokksins, Halldórs Ásgrímssonar, í Morgunblaðinu í gær, um að brotthvarf Sivjar Frið- leifsdóttur úr ríkisstjórn muni „ekki valda ólgu“ í flokknum, er ljóst að ákvörðun þingflokksins um að Siv víki er umdeild. Margir flokksmenn eru óánægðir. Jafnréttisnefnd Framsóknarflokksins fundaði í gær vegna máls- ins, hópur 40 framsóknar- kvenna ætlar að hittast og ræða málið í dag (og hafa boðið Siv og Jónínu Bjart- marz á fundinn) og á mið- vikudag er fundur hjá Landssambandi framsóknar- kvenna og má gera ráð fyrir að brotthvarf Sivjar beri á góma þar. Þá virðist ungt fólk í Framsókn heldur ekki sátt við þetta útspil þingflokksins með formanninn í broddi fylkingar, ef marka má pist- il formanns Sambands ungra fram- sóknarmanna á vefsvæði sam- bandsins þar sem hann veltir því fyrir sér hvort flokkurinn ætli virkilega að „byrja veturinn á því að slá einn öflugasta talsmann flokksins og framtíðarleiðtoga af“. Á málþingi sem Landssamband framsóknarkvenna hélt í maí sl. var samþykkt, einróma, ályktun um að sambandið gerði þá kröfu að konum yrði ekki fækkað í ráð- herraliði flokksins. Nú hefur komið í ljós að þingflokkurinn gengur ekki að þessari kröfu. Blaðaauglýs- ing 40 kvenna úr Framsóknar- flokknum, sem birtist á dögunum, þar sem þingmenn flokksins voru hvattir til að virða jafnréttislög flokksins, vakti athygli. „Við skipan í trúnaðarstöður innan flokksins sem og við val á framboðslista hans skal leitast við að hlutur hvors kyns verði ekki minni en 40%,“ segir í grein 12.8 í lögum Framsóknarflokksins. Það er einkum þessi grein sem rætt hefur verið um undanfarna daga og vakið hefur spurningar um kynja- kvóta í stjórnmálum. „Kynjakvóti er tæki eða aðferð sem víða hefur verið stuðst við til að rétta hlut kvenna gagnvart körl- um í stjórnmálum, einkum á Norð- urlöndum,“ segir á Vísindavef Há- skóla Íslands. Á sama vef, nánar tiltekið í svari Rósu Erlingsdóttur stjórnmálafræðings við spurning- unni „Hvað er kynjakvóti og hver eru markmið hans?“ greinir frá röksemdum stjórnmálafræðings- ins Anne Phillips. Sú telur þau rök að konur séu fyrirmyndir og að þær hafi aðra sýn á stjórnmál en karlar meðal þeirra sem nothæf eru til stuðnings kynjakvótum. Umræðan um kynjakvóta í stjórnmálum og á öðrum sviðum þjóðlífs hefur komið upp hérlendis öðru hverju, helst í samhengi við skipan í stöður á vegum hins op- inbera. Tvær raddir eru jafnan hæstar. Önnur sú sem segir að kynjakvótar eigi aldrei rétt á sér, hæfni einstaklings skipti máli en ekki kyn. Hin sem telur það rétt- lætanlegt að kyn hafi áhrif á val í tilteknar stöður því rétta þurfi hlut kvenna í valdastöðum. Auðvitað eru þeir svo til sem taka afstöðu þarna á milli. Ummæli Dagnýjar umdeild Í kjölfar auglýsingar framsókn- arkvenna tók Dagný Jónsdóttir að sér að ljá rödd sína þeirri skoðun að kynferði skipti ekki máli. Á pistli á vef sínum, www.xb.is/dagny segir hún: „Ég tilheyri þessum hópi kvenna og karla sem vilja velja ein- stakling hverju sinni sem hentar best í það hlutverk sem velja á í. Það er minn skilningur á nútíma jafnréttisbaráttu.“ Ummælin hafa fallið í grýttan jarðveg, innan flokks sem utan. Í pistli á Hrifla.is, sem er vefur framsóknarfélaganna í Reykjavík, segir Kolbrún Ólafsdóttir Dagnýju hafi beitt þeirri aðferð fyrir þing- kosningar 2003 að benda á skort á ungu fólki á þingi. „Hún minntist ekkert á það að hún væri hæfasti einstaklingurinn til þess að verma 3ja sætið á framboðslista í Norð- austurkjördæmi.“ Og þessi sýn Dagnýjar hefur einnig verið gagnrýnd frá hægri væng stjórnmálanna, þaðan sem stuðnings við hana hefði helst verið að vænta. Í pistli á vef Landssam- bands sjálfstæðiskvenna segir Helga Guðrún Jónasdóttir: „Eig- um við ekki, í stað þess að taka þátt í svona þvættingi að horfast ein- faldlega í augu við, að konur gjalda kynferðisins iðulega, ólíkt körlun- um.“ Og hún telur það miður að margir telji það „nútímalegt inn- legg“ í umræðuna að konur eigi ekki að komast til áhrifa fyrir það eitt að vera konur. „Ég veit ekki um nokkurn sem stutt hefur konu út á það eitt að hún er kona.“ Þá bendir hún á að trúi fólk því að hæfasti einstaklingurinn verði allt- af ofan á, þá sé erfitt að útskýra af hverju kynjamunur blasir hvar- vetna við í þjóðfélaginu. „Skyldi það vera bara ein af þessum sjálf- gefnu staðreyndum að karlarnir hafa alltaf eitthvað til brunns að bera, en konurnar bara stundum,“ spyr Helga Guðrún. Hvor röddin sem verður hávær- ari að lokum innan Framsóknar- flokksins, sú sem mælir 40% kynja- kvóta bót eða sú sem leggst gegn honum, þá er ljóst að málinu er ekki lokið. Fréttaskýring | Engin ólga? Misvinsælir kynjakvótar Kynjakvótar í stjórnmálum eru norræn aðferð til að tryggja framgang kvenna Ekki virðast allir á eitt sáttir um það hvort kynferði skipti máli í stjórnmálum. Ekki allir framsóknarmenn sammála lögum flokksins  Þegar kynjakvóta í stjórn- málum ber á góma skiptist fólk jafnan í tvær fylkingar eftir því hvort það telur þá eiga rétt á sér eða alls ekki. Ef marka má yf- irlýsingar framsóknarkarla og -kvenna síðustu daga eru bæði viðhorf gjaldgeng innan flokks- ins, þrátt fyrir að lög hans kveði á um að hafa beri 40% kvóta á hvort kynið til hliðsjónar þegar valið er í áhrifastöður. eyrun@mbl.is Það hefur löngum þótt gulli betra þar sem mikið er skorið að hafa góðan brýnara. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.