Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 18
OPIN HÚS SUNNUDAGINN 22. ÁGÚST Í BLÁSKÓGABYGGÐ ÍBÚÐARHÚS TIL SÖLU Bjarkarbraut 20, Reykholti, Biskupstungum Um er að ræða 100,6 fm einbýlishús, byggt úr timbri árið 2001. Eignin telur m.a. þrjú herbergi, stofu og eldhús. Verð 11,8 m. Freydís sýnir húsið frá kl. 15:00-17:00 Hrísholt 11, „Hvesta“, Laugarvatni Um er að ræða 129,9 fm einbýlishús, byggt úr timbri árið 1991. Eignin telur m.a. þrjú svefnherbergi, stóra stofu og eldhús. Verð 12,6 m. Lilja Dóra sýnir húsið frá kl. 16:00-18:00 ÍBÚÐARHÚSIN VERÐA EINUNGIS TIL SÝNIS Á MORGUN, SUNNUDAG Dalbraut 6, Laugarvatni Áhaldahús Laugarvatns. Um er að ræða ca 283 fm holsteinshús sem er byggt 1938. Lóðin er 1.800 fm. Til greina kemur að selja lóðina eina sér til byggingaraðila sem hefur áform um nýtingu á lóðinni sem fellur að gild- andi skipulagi. Valdimar sýnir húsið milli kl. 16:00 og 18:00. Fjöldi annarra eigna á öllu Suðurlandi! Miðholt 5, Reykholti, Biskupstungum Um er að ræða 117,1 fm einbýlishús, byggt úr timbri árið 1974. Eignin telur m.a. þrjú herbergi, stofu, hol og eldhús. Verð 11,1 m. Þórunn sýnir húsið frá kl. 15:00-17:00 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi í síma 480 2900 eða á www.log.is Sigurður Sigurjónsson hrl. og Ólafur Björnson hrl. Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Skemmtiferðaskip í Grundarfjarðarhöfn eru tiltölulega nýtt fyrirbrigði hér. Komum þeirra hefur þó farið fjölgandi eftir að Stóra- bryggja, eins og Grundfirðingar kalla brygg- una en hjá Vita- og hafnamálastjórn er nefnd Norðurgarður, var lengd um 100 metra fyrir tveim árum. Í fyrra voru skipin 6 en í ár verða þau 13. Tvö þau síðustu leggjast að bryggju hvort sínum megin við þessa helgi. Fyrir Grundfirðingum er það því tiltölulega nýleg sjón að sjá ferðalanga af margvíslegu þjóðerni á rölti um bæinn.    Þorpsgangan eða Village walking heitir fyrirbærið sem þær stöllur Johanna og Shel- agh hafa boðið ferðamönnum upp á nokkur undanfarin ár. Það þurfti nefnilega konur frá Suður-Afríku til þess að átta sig á því að hér í Grundarfirði væri ýmislegt markvert að sjá enda hefur alltaf verið sagt að glöggt sé gestsaugað. Þessar ágætu konur sjá nú um að skipuleggja móttöku skemmtiferðaskip- anna frá komu til brottfarar og þó obbi ferðalanganna fari í fyrirfram ákveðnar rútuferðir um Snæfellsnes er alltaf þó nokk- ur fjöldi sem verður eftir. Þeim stöllum hef- ur tekist að fá heimamenn til þess að taka brosandi þátt í móttöku ferðalanganna og konur í upphlut og tónlistarfólk taka á móti skipunum og kveðja með viðhöfn.    Það er fleira sem telst til nýjunga í Grund- arfirði. Um þessar mundir stendur yfir bygging Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og senn líður að því að rúmlega 100 nemendur af öllu Snæfellsnesi setjist þar á skólabekk. Iðnaðarmenn eru á þönum þessa dagana við að gera þennan stóra draum að veruleika. Það er ýmislegt sem er nýtt á Íslandi við þennan skóla. Til að byrja með er þetta í fyrsta sinn sem framhalds- skóli er hannaður út frá hugmyndum um hvernig skólastarf eigi að fara fram í hús- næðinu. Erlendur ráðgjafi stjórnaði hug- myndafræðilegri vinnu hjá hópi fólks þar sem nemendur, kennarar, foreldrar, bæj- arstjórnarmenn, ráðuneytismenn og fleiri fagaðilar lögðu hugmyndir sínar í púkk til að móta skólastarf. Arkitektarnir tóku síðan við og hönnuðu húsnæði utan um það. Þegar nemendur mæta svo til leiks nk. föstudag verður nógu mikið tilbúið til þess að hægt sé að byrja en húsnæðið verður væntanlega fullbúið um áramótin. Úr bæjarlífinu GRUNDARFJÖRÐUR EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON FRÉTTARITARA ÚtgerðarfyrirtækiðEskja hf. styrktinýlega tvo lög- regluþjóna úr Fjarða- byggð, þá Steinar Gunn- arsson og Þórhall Árnason, til að sækja námskeið í rannsóknum fíkniefnamála. Námskeiðið er haldið er í lögregluskólanum Instit- ute of Police Technology and Management of North Florida í Banda- ríkjunum. Skólinn býður upp á margs konar námskeið í löggæslustörfum þar sem farið er yfir þau atriði sem upp geta komið við rann- sókn erfiðra mála. Eskja segir á heimasíðu sinni, www.eskja.is, að fyrirtækið telji mikilvægt að styðja við slíkt for- varnastarf, enda séu fíkni- efni stöðugt vaxandi vandamál í þjóðfélaginu. Eskja styrkir lögregluþjóna Dagný Dögg Sveins-dóttir, þriggjaára, og tíkin Kata voru í boltaleik í Grasa- garðinum í Reykjavík fyrr í vikunni. Mikil að- sókn hefur verið í Grasa- garðinn að undanförnu og mikið um að fjöl- skyldufólk mæti og njóti góða veðursins. Garð- urinn varð 43 ára á mið- vikudaginn og um næstu helgi verður uppskeruhá- tíð í garðinum, þar sem teknar verða upp krydd- jurtir, grænmeti og ber og fólki sagt frá því hvernig best er að rækta þessar plöntur og nota til matargerðar. Margir hafa lagt leið sína á kaffi- húsið í Grasagarðinum í sumar og allar plöntur í garðinum hafa verið í miklum blóma. Morgunblaðið/Eggert Brugðið á leik Landsmót hagyrð-inga verður hald-ið í kvöld í Félags- heimilinu Hvoli Hvolsvelli. Heiðursgestur verður Snorri Jónsson í Vestmannaeyjum og flyt- ur hann ræðu kvöldsins. Hagyrðingar af Suður- landi kynna sín héruð, Ið- unnarfélagar kveða, mótsgestir flytja vísur, fjöldasöngur og dans við harmóníkuleik Aðalsteins Ísfjörð. Auðvitað eru allir vísnavinir velkomnir. Vil- hjálmur Hjálmarsson frá Brekku orti á síðasta landsmóti: Hata skaltu helvíte og halda þig frá satane, að þeim gamla gjöra spé guðs svo hafnir í ríke. Best mun reynast bindinde á brennivíne og tóbake, en berðu þig eftir björginne sem best þú mátt hjá kvenfólke. Landsmót í kvöld pebl@mbl.is Reykir | Sædís Lind Másdóttir, 8 ára, fékk um daginn að halda á einu af graskerjunum sem vaxið hafa í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi í sumar. Faðir Sædísar, Már Guðmundsson, er starfsmaður Garðyrkjuskólans og hefur hann sér til gamans ræktað nokkur grasker í einu af gróðurhúsum skólans í sumar. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, því fjölmörg stór og falleg grasker hafa orðið til eftir sáningu í vor. Grasker er margbreytilegur hópur af einærum tegundum sem mynda stór og sérkennileg aldin. Aldinin eru misstór, vega allt frá 500 g upp í 30 kg og eru í mörgum litum, t.d. græn, rjómagul, gul, appelsínugul, rauð og blágræn. Aldin eru borðuð soðin, annaðhvort strax eftir tínslu eða eftir geymslu. Glæsilegt grasker Blómarós SAMNINGUR hefur verið gerður við Gámaþjónustu Austurlands um dýpkun innsiglingarinnar í Hornarfjarðarós. Verk- ið var boðið út í sumar, en ekki bárust til- boð og var í kjölfarið leitað beint til aðila. Grafa á níu metra djúpa og 70 metra breiða rennu í hrygg sem myndast hefur á grynn- ingunum utan við ósinn, um 300 metra utan og austan Hvanneyjar. Dælingar hefjast fljótlega, en áætlað er að ljúka verkinu í septemberlok. Þá er nú unnið að niðursetningu stálþils við Kross- eyjarbryggju. Innsiglingin í Hornafjarð- arós dýpkuð HAFNARFJARÐARBÆR og Hópbílar hf. undirrituðu fyrr í mánuðinum samning um akstur fatlaðra í Hafnarfirði en bærinn hafði óskað eftir tilboðum í verkið. Hópbíl- ar áttu lægsta tilboðið í verkið en sjö aðilar sendu inn tilboð. Vegna verkefnisins hafa Hópbílar keypt þrjá nýja bíla sem hefur verið breytt með öryggi fatlaðra farþega í huga. Hópbílar hf. sjá um akstur fatlaðra ♦♦♦ BÆKLINGI með tillögum að deiliskipu- lagi og breytingu á aðalskipulagi Seltjarn- arness hefur verið dreift í öll hús í bænum til kynningar. Bæklingurinn er veglegur, um þrjátíu blaðsíður, og er tillögunum þar lýst í máli og myndum auk þess sem geisla- diskur fylgir með þar sem sjá má mynd- band og kyrrmyndir af hinu nýja skipulagi. Tillögurnar má einnig finna á heimasíðu bæjarins og geta íbúar skilað athugasemd- um við tillöguna fyrir 3. september nk. Í formála bæklingsins segir að útgáfunni sé ætlað að gera íbúum Seltjarnarness sem auðveldast fyrir að kynna sér og taka af- stöðu til skipulagstillagnanna. Skipulagstillögum dreift í öll hús
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.