Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 22
MINNSTAÐUR 22 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Enski boltinn Sérstök umfjöllun um enska boltann verður alla laugardaga í vetur í íþróttablaði Morgunblaðsins. Skjóttu á úrslitin! Á vefnum getur þú tekið þátt í getraunaleik og unnið til verðlauna. Á finnur þú einnig allt um enska boltann á einum stað l staðan l umferðir l dagskrá útsendinga l úrslit Selfoss | „Það er alveg á hreinu að ég fæ kraft og innblástur frá sjónum sem sést á því að það eru farnar að birtast hafmeyjar í verkunum hjá mér og fólk sem stendur í fjöru- borði,“ segir Elínborg Kjart- ansdóttir listakona á Stokkseyri sem hefur tekið sér listamanns- nafnið Ella Rósinkrans til að nota á listsýningum sínum erlendis en það sækir hún í eftirnafn úr föðurætt sinni. Hún mun frumsýna á Menning- arnótt sérstæða listmuni, gler- listakúlur og skúlptúra, sem eru nýjustu verk hennar og hún er að undirbúa að fara með á tvær sýn- ingar í Danmörku í nóvember og desember og til Ástralíu en þangað hefur henni verið boðið sem lista- manni til að hanna skúlptúra fyrir skrifstofur. Nú eru verk Elínborgar til sölu í hennar eigin sýningarsal á Stokkseyri og í galleríinu Focus Point í Notthingham í Englandi. Hún segist njóta mikillar vel- vildar margra aðila og nefnir sér- staklega Atlantsskip sem munu flytja verk hennar til Danmerkur á sýningarnar í Nord Atlantic-húsinu í Kaupmannahöfn og í jólahúsinu í Tívolí. Sýningarsalur var fiskmóttaka Elínborg er með sýningarsal og vinnustofu í Lista- og menningar- húsinu á Stokkseyri en aðstaðan sem hún nýtir var áður fiskmóttaka í hraðfrystihúsi Stokkseyrar. Nú er þarna bjartur og skemmtilegur sýn- ingarsalur sem enn er í mótun og fellur vel að umhverfinu. Fram- undan húsinu er síbreytileg fjaran sem verkar heillandi á hvern sem þarna fer um. „Það var í janúar í fyrra að ég fór á sýningu hjá Elfari hér í húsinu og Björn Ingi, eigandi þess, bauð mér þennan hluta og ég sló til. Þetta hef- ur fengið ótrúlega góðar viðtökur. Það koma hingað margir til að skoða þessa listmuni mína og er yndislegt að vera hérna og hér kem ég miklu í verk,“ segir Elínborg sem hefur verið starfandi listakona í 15 ár og unnið listaverk í málm og gler. Hún starfaði í Santiago í Chile í 8 ár og fékkst þá við hönnun á skart- gripum úr málmi og við að vinna skúlptúra. Glervinnslu lærði hún í Chile en fór fyrir alvöru að fást við að vinna úr því efni þegar hún kom heim til Íslands fyrir 5 árum. Hún kveðst vera einfari í listinni og er af- kastamikil en meðan hún var er- lendis var hún með umfangsmikla listmunagerð og sölu. Hún sýndi verk sín meðal annars í Birmingham Nec í Englandi þar sem hún komst í kynni við OASIS- verslunarkeðjuna. Um tíma seldi hún listmuni til 30 verslana og var með 7 manns í vinnu á listmuna- verkstæði sínu. Síðan söðlaði hún um og kom heim fyrir 5 árum, vinn- ur ein og blandar nú saman gleri og málmum í listsköpun sinni. Listin er heillandi „Kúlurnar eru veggverk og geta verið með eða án ramma. Án ramma eru þær festar beint á vegg og hægt að setja í þær lýsingu en þær þurfa þess ekki með. Kúlurnar eru unnar með glerbræðslu og ég nota mikið alls kyns verur í myndunum, bæði í gleri og málmi. Það má segja að þessar verur og málmurinn einkenni þessi verk hjá mér,“ segir Elínborg. Hún sagði gaman að segja frá því að fyrstu kúlurnar hefði ungt par feng- ið og stúlkan hefði verið ófrísk. „Kannski má segja að þetta séu frjó- semiskúlur,“ sagði Elínborg bros- andi. Kúlurnar verða frumsýndar á Menningarnótt í Reykjavík að Aust- urstræti 8. Hún sagði verkin á Menningarnótt verða til sölu með uppboðssniði þannig að almenn- ingur gæti ákveðið verðmætið. „Ég hlakka til að fylgjast með hvernig það kemur út,“ sagði Elínborg. „Verurnar í verkunum hafa alltaf fylgt mér í gegnum öll mín verk. Þetta eru fagnandi og ástfangnar verur sem taka á móti lífinu með ljósi og ást. Ætli þetta séu ekki ein- hverjar góðar árur eða vernd- arverur sem fylgja mér. Þær fara vel með mig og þetta er visst tján- ingarform hjá mér. Það er heillandi að vinna við listina og setja mýktina sem fylgir þessum verum inn í þessi hörðu efni, glerið og málminn. Svo er Fjöruborðið hér við hliðina og maður er hér í nálægð við fleiri listamenn og svo margt annað sem styður við starfsemina og gefur afl. Mér líður mjög vel hérna,“ segir listakonan Ella Rósinkrans á Stokkseyri. Elínborg Kjartansdóttir, listakona á Stokkseyri Ég fæ kraft og innblástur frá fjörunni og sjónum Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ella Rósinkrans listakona með eitt kúlulistaverka sinna í sýningarsalnum á Stokkseyri. Á gólfinu eru fleiri verk sem bíða flutnings á Menningarnótt og á sýninguna í Kaupmannahöfn í nóvember og desember. Hveragerði | „Grænni skógar I“ er yfirskrift á skógræktarnámi á veg- um Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi, sem ætlað er öllum fróð- leiksfúsum skógarbændum á Suð- urlandi, sem vilja ná hámarks- árangri í skógrækt. Námið samanstendur af sautján námskeiðum þar sem þrettán eru skyldunámskeið og a.m.k. tvö val- námskeið. Fyrstu námskeiðin verða kennd nú í haust og þau síðustu vorið 2007. Fyrsti hópur Grænni skóga á Suðurlandi útskrifaðist frá skól- anum í vor eftir skemmtilegt nám og hópur skógarbænda á Norður- landi lýkur náminu 2005. Þá er 26 manna hópur hjá Hér- aðsskógum og Austurlandsskógum að hefja þetta nám í haust. Hvert námskeið er í tvo daga í senn og þá yfirleitt frá kl. 16 til 19 á föstudegi og frá kl. 10 til 17 á laugardegi. Reynt verður að koma við verklegri kennslu og vettvangsferðum eins og passar hverju sinni. Flest nám- skeiðin verða haldin í Garðyrkju- skólanum, önnur víðsvegar um Suð- urland. Garðyrkjuskólinn sér um framkvæmd námsins en þeir aðilar sem koma að náminu auk skólans eru Skógrækt ríkisins, Land- græðsla ríkisins, Suðurlandsskógar og Félag skógarbænda á Suður- landi. Þeir sem ljúka 80% af nám- skeiðunum 12 fá námið metið til eininga hjá Garðyrkjuskólanum. Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar um námið á heimasíðu skólans. Grænni skógar í Garðyrkjuskólanum TENGLAR .............................................. www.reykir.is Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Útskriftarhópur Grænni skóga á Suðurlandi, sem lauk sínu námi í vor frá skólanum, ásamt skólameistara og endurmenntunarstjóra skólans. ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.