Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 49
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 49 MIRALE Grensásvegi 8 sími: 517 1020 Opið: mán.- föstud.11-18 laugard. 11-15 Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst. Afmælisþakkir Öllum ykkur, sem glödduð mig og sýnduð mér sóma á áttræðisafmæli mínu 13. ágúst sl., þakka ég og bið virktar í bráð og lengd. Guðmundur Benediktsson. DKNY DKNY JEANS IKKS GERARD DAREL CUSTO VENT COUVERT PAUL & JOE NICOLE FARHI SELLER ÚTSÖLULOK Í DAG EINNIG NÝJAR VÖRU KOMNAR ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR OPIÐ TIL KL. 18:00 laugavegi 91 s.562 0625 Kannanir sem gerðar hafa verið á Norð-urlöndum sýna að í fyrirtækjum,stofnunum og skólum er hýst mikiðmagn af ólöglegri tónlist, kvikmynd- um og öðru sambærilegu efni sem sótt hefur ver- ið á Netinu. Í Danmörku hýsa t.d. 46% skóla og fyrirtækja ólöglegt efni af þessu tagi. Samtök myndrétthafa á Íslandi, Samtónn og Framleið- endafélagið hafa nú gefið út bækling sem heitir „Höfundaréttur og tölvuöryggismál í fyr- irtækjum, skólum og stofnunum“, ritið er gefið út í 3000 eintökum og Morgunblaðið spurði Gunnar Guðmundsson, lögmann, stjórnarmann og fram- kvæmdastjóra Samtóns, hvað hér væri á ferð. „Þessum bæklingi er ætlað að uppfræða stjórnendur í skólum, fyrirtækjum og stofnunum um þetta vandamál. Benda viðkomandi á tilvist ólögmæts efnis og að veirur og tölvuinnbrot geti valdið hruni tölvukerfa við notkun skráarskipta- forrita og í það minnsta hægt á allri vinnslu þeirra með tilheyrandi minni framleiðni. Einnig er fjallað um lagalega áhættu sem fylgir ólög- mætri notkun, s.s. skaðabótakröfum og refsivið- urlögum.“ Er vitað um stærðargráðu þessa hér á landi? „Það hafa ekki verið gerðar sambærilegar kannanir hér á landi og erlendis, en miðað við tölvu- og netnotkun Íslendinga þá má reikna með að vandamálið sé síst minna en í nágrannalönd- unum og þar er það umtalsvert.“ Hvað er vitað um þekkingu stjórnenda á vandamálinu innan eigin veggja? „Það er áreiðanlega mismunandi hvað menn vita, en við vitum dæmi þess að stórir ólöglegir gagnabankar viðgangast í tölvukerfum stórra fyrirtækja og stofnana án vitundar stjórnenda og því viljum við uppfræða þá þannig að þeir geti tekið á vandanum.“ Þið hljótið þá að gera ráð fyrir talsverðum ár- angri? „Vissulega. Svona herferðir hafa verið erlendis og þær hafa skilað miklu.“ Munið þið fylgja þessum bæklingi eftir? „Það er ætlunin að gera það, við höfum sent bæklinginn út til 2500 aðila, m.a. allra skóla og stærri fyrirtækja og munum í kjölfarið fara á þessa staði, a.m.k. eins marga og við komumst yf- ir, og fylgja eftir erindinu.“ Hvað ef menn taka ekki við sér og hreinsa til, geta þeir átt von á lögsókn í kjölfarið? „Ef mönnum er ljóst að það ríkir þetta ófremd- arástand í tölvukerfum þeirra og þeir kjósa að gera ekkert til að stemma stigu við því, þá geta þeir vissulega átt von á því að þeir verði fyrr eða síðar látnir svara til saka fyrir það.“ Bæklingur | Tekið á ólöglegum kvikmynda- og tónlistarskrám Vandamálið er hér til staðar  Gunnar Guðmunds- son héraðsdóms- lögmaður varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972 og lögmaður frá Háskóla Íslands árið 1977. Hann varð síðan héraðs- dómslögmaður frá Há- skóla Íslands árið 1980. Hann er lögmaður, stjórnarmaður og fram- kvæmdastjóri Samtóns (SFH og STEF) sem eru sameiginleg samtök rétthafa í tónlist, enda hefur hann sérhæft sig í höfundarrétt- armálum. BSÍ í Kópavogi? ÉG vil koma á framfæri fyrirspurn til þess er málið varðar hvað sé málið með alla vörubílana og rúturnar sem leggja á planið fyrir utan verslunarmiðstöðina í Engihjalla. Þessi ferlíki eru að koma hér með þvílíkum látum á nóttunni (allt til 3 á nóttunni) og svo er þessum risum startað fyrir kl. 6.30 á morgnana og þanið eins og bílstjórar eigi lífið að leysa og vélin látin ganga í langan tíma áður en lagt er af stað! Ég er búin að hafa samband við lög- regluna sem lofar að aðgæta málið en ekkert gerist. Á ég sem íbúi við Efstahjalla ekki rétt á mínum svefntíma um nætur sem og börnin mín? Er ekki nóg að maður nái ekki að festa svefn fyrr en seint og um síðir vegna barsins sem er opinn í húsi verslunarmiðstöðvarinnar langt fram eftir nóttu, heldur þurfi maður að búa við þennan hávaða líka? Ég bara spyr: Er einhver í stjórn Kópavogsbæjar með svör á reiðum höndum handa ósáttum íbúa? Ragnheiður Edda Viðarsdóttir. Viltu taka Dimmalimm að þér? VIÐ leitum að góðu fólki sem vill taka að sér 10 vikna kettling. Hún er ljúf og kassavön. Allar upplýsingar veitir Sig- urjón í síma 844 4212. Páfagaukur í óskilum GRÆNN og gulur gári er í óskilum hjá Orkuveitunni, Bæjarhálsi. Upplýs- ingar í síma 617 7132. Páfagaukur í óskilum LJÓSGRÁ og hvít gárakerling fannst í Lindarsmára í Kópavogi sl. fimmtu- dag. Upplýsingar í síma 895 5170. Kettlingur týndur í Hafnarfirði LÍTILL 3ja mánaða kettlingur, læða, svört með hvítan kraga, týndist frá Víðivangi 5 í Hafnarfirði sl. þriðjudag. Þetta var í fyrsta sinn sem hún fór út og hefur hún ekki ratað aftur heim. Þeir sem vita um kettlinginn vinsam- lega hafi samband í síma 698 4876, 565 3467 eða hringi í Kattholt. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 a6 5. Rc3 b5 6. c5 Bf5 7. Re5 h5 8. Db3 Rg4 9. Rxg4 hxg4 10. a4 Rd7 11. Ra2 Dc8 12. Rb4 Db7 13. Da2 Hc8 14. axb5 axb5 15. Da6 Dxa6 16. Hxa6 Rb8 17. Ha8 Kd7 Fyrir skömmu var haldin lands- keppni milli Rússa og Kínverja sem fram fór í Moskvu. Alexey Dreev (2690) hafði hvítt gegn Hua Ni (2593). 18. e4! Bxe4 19. Bf4 e5 20. Bxe5 Be7 21. Be2! Ke6 22. Hxb8 Hxb8 23. Bxb8 Hxb8 24. Bxg4+ f5 25. Rxc6 Ha8 26. Bd1 Ha2 27. f3 Bb1 28. Kd2 Bg5+ 29. Kc3 Bc1 30. Bc2 og svartur gafst upp enda maður að falla útbyrðis. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. ELÍSABET Jökulsdóttir stendur fyrir Tilfinningatorgi í kvöld. Torgið verður staðsett í Víkurkirkjugarði, sem stundum er nefndur Fóg- etagarðurinn og er á horni Að- alstrætis og Kirkjustrætis, og geta menningarnæt- urgestir borið til- finningar sínar á torg í bók- staflegum skiln- ingi – hvort sem þær eru góðar eða slæmar. „Það hef- ur þótt vafanum undirorpið að bera tilfinningar sínar á torg hing- að til. Menn hafa átt að gera það bakvið hurð jafnvel, ef þeir þá gera það yfirleitt,“ segir El- ísabet, sem segist vona að þarna leys- ist einhverjar tilfinningar úr læðingi, sem síðan gætu skilað sér út í sam- félagið. „Það gæti jafnvel orðið svo að tilfinningatorg yrði varanlegur hluti af Reykjavík. Það væri í raun nóg að eitt torg héti það, og þar þyrfti ekki að reisa neinar styttur eða neitt.“ Hugmyndin var upphaflega lögð fram í hugmyndasamkeppni Lands- bankans, þar sem hún vann til verð- launa sem fallegasta hugmyndin. El- ísabet segir það mikið gleðiefni hve vel hugmyndinni hefur verið tekið meðal fólks, og hafa margir þjóð- þekktir einstaklingar boðað þátttöku sína í Tilfinningatorginu í dag. „Eva María Jónsdóttir ætlar að ríða á vaðið um klukkan hálftólf, Þröstur Leó Gunnarsson ætlar að selja sínar til- finningar og Helga Braga ætlar að vera drottning tilfinninganna, meðal annars.“ Farin verður skrúðganga frá horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis að Tilfinningatorginu kl. 20 í kvöld, þar sem 7–14 ára börn og unglingar velja sér tilfinningu og mála hana á spjald. „Þetta verður kröfuganga tilfinning- anna, og er lifandi listaverk eftir Har- ald Jónsson myndlistarmann. Þetta er enn eitt dæmið um frjósemina sem hefur orðið til í kring um þessa hug- mynd.“ Að sögn Elísabetar eru allir vel- komnir á Tilfinningatorgið, það sé alls ekki einungis fyrir þekkta ein- staklinga með fyrirfram ákveðnar hugmyndir. „Maður má koma og vera rosalega einlægur og tala beint út frá hjartanu, en svo má líka klæða þetta í einhvern búning og taka þetta allt á djókinu.“ Tilfinningatorgið verður opið milli kl. 11 og 23. Tólf tímar af tilfinningum Morgunblaðið/Sverrir Tilfinningatorg verður sett upp í Víkurkirkjugarði í dag, þar sem all- ar tilfinningar eiga rétt á að heyrast. Elísabet Jökulsdóttir AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.