Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 55
með eitthvað splunkunýtt. Ég veit hann fær sendar kynningarplötur til dæmis frá breskum óháðum út- gáfum,“ segir Árni en önnur góð blogg eru til dæmis Mystical Beast og Music (for robots). Warner spilar með Grein í New York Times í vikunni fjallaði einmitt um að plötufyrirtækið Warner hefði sent bloggurum tónlist með rokksveitinni Secret Machines með ósk um birtingu. Árni segir að þetta beri því vitni að stóru útgáfu- fyrirtækin séu farin að taka eftir tón- listarbloggurunum. Árni segir að bloggið hans geti virkað vel samhliða útvarpsþættinum og hann ætlar að halda áfram. „En ég hugsa samt að ég mundi leggja meiri vinnu í bloggið ef ég hætti með þátt- inn, bara til að koma þessu frá mér en þetta er hvatning til að fylgjast vel með tónlist, bæði þátturinn og blogg- ið,“ segir Árni sem líkt og aðrir bloggarar leggur metnað í að koma einhverju nýju að á síðunni sinni. Hann segir aðspurður að ástæðan fyrir því að fólk sé að blogga með þessum hætti, sé vissulega ástin á tónlistinni. „Þetta snýst líka um bar- áttuna gegn kerfinu, það er allavega ástæðan fyrir að Kanarnir eru í þessu. Þeir geta ekki hlustað á tón- listina annars staðar,“ segir hann og bætir við að sumir bloggarar séu plötusnúðar og kynni sjálfan sig inn á milli. Einskær áhugi á tónlist virðist þó vera helsti drifkrafturinn og stendur eitthvað á þessa leið á Music (for ro- bots): „Við elskum tónlist og styðjum vel gerða tónlist og viljum styðja við listamennina með því að kaupa verk þeirra (og birtum bara það sem við eigum). Á þessari síðu viljum við að- eins deila góðri tónlist með öðrum … Við hvetjum alla til að kaupa þessa tónlist og mæta á tónleika með lista- mönnunum.“ ingarun@mbl.is syrdurrjomi.blogspot.com music.for-robots.com newflux.blogspot.com mysticalbeast.blogspot.com mp3blogs.org MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 55 Ef þú ert árrisul(l) þá erunokkrir tímar í það að mið-bær Reykjavíkur breytist í eitt allsherjar gallerí með þátttöku hundraða borgarbúa, hvort sem eru sprenglærðir listamenn eða fólk eins og ég og þú. Þessi við- burður heitir Menning- arnótt og hefur verið haldinn hér í höfuðborginni síðastliðin átta ár. Ef þú ákvaðst hins vegar að sofa út mæli ég eindregið með því að þú drífir þig niðreftir núna og hendir þér af fullum krafti í menning- arneysluna.    Ég verð að segja að mér finnstþessi menningarnótt algjör snilld. Það er, bókstaflega, allt að gerast þennan dag og maður finnur það í loftinu. Það eru einhver gleði- og sköpunarmólekúl sem dynja þægilega á manni þegar maður stikar um stræti og torg miðbæj- arins. Því að þennan dag er eins og mörkin þurrkist út á milli þeirra sem eru listamenn (eða a.m.k. telja sig vera það) og þeirra sem eru það ekki (en vita kannski ekki að þeir eru listamenn). Skápalistamenn fá hreinlega ekki betra tækifæri til að tjalda því til sem þeir búa yfir, í al- gleymi taumlausrar list- og menn- ingariðkunar sem er að finna að því er virðist á hverju horni og í hverju skoti einmitt þennan dag. Þetta er sannkölluð listahátíð. Viðburðirnir eru það margir og það ólíkir reyndar að manni finnst næstum eins og manni beri skylda til að leggja hönd á plóg. Og þeir eru margir sem hlýða því kalli og það er það sem gerir upplifunina svona sérstaka. Hin rómantíska og furðu lífseiga hugmynd um að allir Íslendingar séu skáld verður nán- ast að veruleika þennan dag.    En hina gullvægu setningu,gakktu hægt um gleðinnar dyr, þarf sérstaklega að heiðra í dag og þá sérstaklega í kvöld. Síð- asta menningarnótt, eins vel og hún gekk nú framan af, endaði að sjálf- sögðu með ósköpum því að svo virð- ist sem Íslendingar og áfengi eigi sjaldnast leið saman (og það er að- allega vegna þess að við þurfum að standa í röðum í ríkisreknum áfengisútsölum og verðum svo æst þegar við komum höndum yfir „fjársjóðinn“ að við sturtum því öllu niður í einu. Hvenær mun siðmennt- uðum drykkjuháttum, eins og tíðk- ast t.d. á meginlandi Evrópu, skola hingað?). Reynum að forðast fanga- klefana í þetta skiptið og umfaðma lífsins list á sama hátt og aðrar list- greinar þennan hátíðisdag/nótt. Já, og gleðilega Menningarnótt! AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is 100.000 manna listagallerí ’ Þennan dag ereins og mörkin þurrkist út á milli þeirra sem eru lista- menn (eða a.m.k. telja sig vera það) og þeirra sem eru það ekki (en vita kannski ekki að þeir eru listamenn). ‘ www .regnboginn.is Hverfisgötu  551 9000 Nýr og betri Yfir 40 þúsund gestir Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Mjáumst í bíó! Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Myrkraöflin eru með okkur! Mögnuð ævintýra-spennumynd! Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. T o p p myndin á íslandi Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Sýnd kl. 2 og 4. m/ísl.tali. Mjáumst í bíó! www.laugarasbio.is T o p p myndin á íslandi Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta, latasta og feitasta kött í heimi! Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Umtalaðasta mynd ársins sem vann Gullpálmann í Cannes. Myndin sem allir verða að sjá til að geta verið með í umræðunni. Ó.H.T Rás2 S.K., Skonrokk „Drepfyndin“ Ó.Ö.H. DV „Myndir á borð við þessar segja meira en þúsund orð.“ HJ. MBL Í Stepford er eitthvað undarlegt á seyði Frábær gamanmynd með toppleikurum Kr. 500 „ ...mynd þar sem áhorfendur skella ærlega upp úr og jafnvel hneggja af hlátri.“ Kvikmyndir.com S.K., Skonrokk CHRISTOPHER WALKEN BETTE MIDLER FATHE HILL CLENN CLOSE NICOLE KINDMAN MATTHEW BRODERICK Þetta var ekki hennar heimur.. en dansinn sameinaði þau! Sjóðheit og seiðandi skemmtun! Jazz og myndlist Veri› velkomin á vinnustofu Péturs Gauts, á horni Njálsgötu og Snorrabrautar. Opi› er frá kl.17:00 - 22:00. Um Kl.20:00 mun jazz-dívan Kristjana Stefánsdóttir og tríó hennar leika af fingrum fram. A› sjálfsög›u ver›a n‡ verk eftir gestgjafann á veggjunum. Allir velkomnir. Menningarnótt 2004 Opi› hús á vinnustofu Péturs Gauts
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.