Morgunblaðið - 21.08.2004, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
segist furða sig á þeim fullyrðingum
Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur,
fomanns skipulags- og bygginga-
nefndar Reykjavíkur, að megintil-
gangur tvöföldunar Hallsvegar sé
ekki sérstaklega til að þjónusta nýja
byggð í Úlfarsfelli. Þá segir Elísabet
Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka
Grafarvogs, fullyrðingar Árna Þórs
Sigurðssonar um að ekki sé áætlað
að leggja Hallsveg lengra en að Vík-
urvegi, í algjöru ósamræmi við hið
samþykkta aðalskipulag Reykjavík-
urborgar frá 1997, þar sem greini-
lega sé gert ráð fyrir Hallsvegi alla
leið að Vesturlandsvegi.
Guðlaugur Þór segir málflutning
Steinunnar Valdísar sérkennilegan.
„Það er gert ráð fyrir fjögurra ak-
reina Hallsvegi gegnum Grafarvog-
inn sem umferðartengingu við Úlf-
arsfell gegnum Sundabraut. Það var
kynnt þannig fyrir okkur í skipulags-
nefndinni og hefur einnig verið
kynnt þannig fyrir fulltrúum okkar í
samgöngunefnd. Við gerðum at-
hugasemdir við þetta á þeim fundum
en því var í engu svarað af R-listan-
um enda var enginn að deila um að
það væri fyrirætlunin,“ segir Guð-
laugur og bendir á bókanir frá fundi
skipulags- og bygginganefndar 16.
júní sl.
Þjónar fyrst og fremst
Úlfarsfellshverfi
Að sögn Guðlaugs er augljóst að
Hallsvegurinn kemur fyrst og
fremst til með að þjóna nýja Úlfars-
fellshverfinu, enda sé þar um að
ræða tuttugu þúsund manna byggð.
„Og það er forsendan fyrir henni að
umferðartengingin verði í gegnum
Hallsveginn og það er gert ráð fyrir
að hann verði á fjórum akreinum,“
segir Guðlaugur og bendir á að fram-
tíðarbyggðin, sem gert er ráð fyrir í
Úlfarsfelli og þar í kring, muni auka
mjög álag á gatnakerfið og muni Ár-
túnsbrekkan ekki valda því. Þess
vegna þurfi í því samhengi Hallsveg-
inn til að beina þeirri umferð á
Sundabraut. Þetta sé hins vegar
óráð, betra sé að byggja á Geldinga-
nesi, Gufunesi og að Keldum. Guð-
laugur segir að þær fullyrðingar að
tvöföldun Hallsvegar sé ekki vegna
byggðarinnar í Úlfarsfelli, séu hrein-
asti útúrsnúningur. Hægt sé að tala
um sannkallað skipulagsslys, ef af
þeim framkvæmdum verður.
„Grafarvogshverfið verður ekki
sama góða barnvæna hverfið ef það
kemur fjórföld hraðbraut þar í gegn.
Við ættum að læra af reynslunni af
Hringbrautinni og hugsa um um-
ferðartengingar í tæka tíð. Það ligg-
ur alveg fyrir að þessi lausn, sem
hefur verið kynnt í skipulagsnefnd,
er algjörlega óásættanleg. Þessi
hraðbraut veldur Grafarvogshverfi
miklum skaða.“
Guðlaugur segir einnig furðulegt
hvernig R-listinn reyni að firra sig
ábyrgð í stórum málum og vísi
ábyrgðinni á aðra. „Formaður skipu-
lags- og bygginganefndar segir það
verða ákvörðun Vegagerðarinnar að
fjórfalda Hallsveg. Vegagerðin tek-
ur ekki ákvarðanir um það hvort og
hvenær Hallsvegurinn verður tvö-
faldaður, það er okkar að ákveða
það, skipulagsvaldið er hjá okkur. Að
R-listinn afhendi Vegagerðinni vald í
skipulagsmálum borgarinnar er
vægast sagt frétt.“
Virðingarleysi gagnvart íbúum
Elísabet Gísladóttir, formaður
Íbúasamtaka Grafarvogs, segir gæta
mikils virðingarleysis í málflutningi
R-listans gagnvart Íbúasamtökun-
um. „Þau tala alltaf um einhvern
misskilning af okkar hálfu, en það er
ekki um neinn misskilning að ræða,
við erum með aðalskipulagið fyrir
framan okkur og erum búin að vera
að fylgjast með þessum málum í
mörg ár og eyða í það mörgum millj-
ónum,“ segir Elísabet. „Árni Þór tal-
ar um framtíð Hallsvegar blómum
skreytta, að hann eigi bara að liggja
að Víkurvegi og verði með fullt af
ljósum og hringtorgum, en það er
ekki gert ráð fyrir neinu slíku í að-
alskipulaginu. Þar er gert ráð fyrir
að hann verði aðalstofnæð frá Vest-
urlandsvegi að Sundabraut. Hann
mun kljúfa í sundur hverfið okkar og
setja hávaðann upp úr öllu valdi.“
Guðlaugur Þór mótmælir fullyrðingum Steinunnar Valdísar um Hallsveg
Tvöfaldur Hallsvegur for-
senda byggðar í Úlfarsfelli
TALSVERÐUR reykur myndaðist
þegar eldur kviknaði í rusli við vest-
urgafl Smáralindar síðdegis í gær.
Eldurinn dó fljótlega út, enda eng-
inn almennilegur eldsmatur í veggn-
um, samkvæmt upplýsingum frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Eldurinn kviknaði þegar verið var
að svíða gróður við vegginn með
gaslampa. Loginn kveikti í rusli sem
hafði safnast saman undir klæðn-
ingu og gaus upp talsverður reykur.
Slökkviliðinu bárust nokkrar til-
kynningar frá áhyggjufullum veg-
farendum enda sást reykurinn víða.
Eldurinn var kulnaður þegar
slökkviliðið kom á staðinn. Ekki
þurfti að rífa klæðningu frá veggn-
um og ekki var þörf á að rýma versl-
unarmiðstöðina.
Eldur í rusli
við Smáralind
BLÁTT áfram, forvarnaverkefni
Ungmennafélags Íslands, gegn
kynferðislegu ofbeldi á börnum á
Íslandi, er að fara af stað með fjár-
öflun um helgina. Fjáröflunin felst í
því að á næstu tveimur vikum verða
seldar litlar gular endur. Með önd-
inni er númeraður happdrættis-
miði. Þann 4. september er mætt
með endurnar í Andafjör í Elliðaár-
dal þar sem þær eru lagðar í ána og
þær keppa svo í sundi niður árnar.
Þær fyrstu í mark fá vinninga.
Ýmsir vinningar eru í boði en fyrsti
vinningur er utanlandsferð fyrir
tvo í boði Úrvals Útsýnar.
Hægt verður að kaupa endur á
Menningarnótt Reykjavíkur á
Laugavegi við verslun Máls og
menningar og í Lækjargötu við
verslunina Iðu. Eftir næstu helgi
verður hægt að kaupa endur og
miða í Body Shop búðum, Pizza Hut
veitingastöðum og í þjónustumið-
stöð Ungmennafélags Íslands í
Fellsmúla 26.
Afla fjár til
forvarnaverkefnis
HEIMASTJÓRNARHÁTÍÐ alþýð-
unnar verður haldin á Ísafirði í dag.
Tilefnið er að hundrað ára af-
mæli heima-
stjórnar lands-
manna. Um leið
komi íbúar
Ísafjarðarbæjar
og nágranna-
byggða saman og
fagni sameigin-
lega áföngum í
sjálfstæðis- og
réttindabaráttu
almennings á liðinni öld og minnist
hlutar Vestfirðinga í menningar-
og félagslífi landsins. Heiðurs-
gestur hátíðarinnar verður Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Dagskráin er fjórskipt. Í fyrsta
lagi verður kyndilhlaup í samvinnu
við íþrótta- og ungmennafélög á
svæðinu. Í öðru lagi verður hátíðar-
dagskrá á Silfurtorgi um kvöldið
þar sem fram koma vestfirskir
listamenn. Þá flytur forseti Íslands
ávarp. Í þriðja lagi verður vegleg
lokasýningu á Pollinum á Ísafirði.
Loks í fjórða lagi verður haldin
Vestfirsk heimildarmyndahátíð.
Heimastjórnarhátíð
á Ísafirði
ALÞJÓÐLEGI meistarinn Stefán
Kristjánsson sigraði stórmeistara-
flokk First Saturdays-mótsins í
Búdapest í Ungverjalandi sl. mið-
vikudag.
Stefán fékk 7 vinninga í 10 skák-
um og var aðeins hálfum vinningi
frá því að tryggja sér sinn fyrsta
áfanga að stórmeistaratitli. Guð-
mundur Kjartansson sigraði enska
FIDE-meistarann, Nathan Alfred, í
12. og næstsíðustu umferð AM-
flokks. Davíð Kjartansson gerði
jafntefli við Færeyinginn Rogvi
Rasmussen og Dagur og Guðmund-
ur eru í 4.–6. sæti með 7 vinninga.
Stefán Kristjánsson
sigraði
FYRSTI stjórnarfundur nýrrar
stjórnar Heimdallar var haldinn á
fimmtudagskvöld. Á fundinum var
ákveðið að leggja fram í byrjun sept-
ember ítarlega starfsáætlun fyrir
haustið og veturinn fram að jólum. Í
henni verður að sögn stjórnarmanna
lögð áhersla á málefni ungs fólks og
Reykvíkinga, að starfið sé sem opn-
ast og aðgengilegast öllu ungu sjálf-
stæðisfólki í Reykjavík, að hafa náið
samstarf við sjálfstæðisfólk í fram-
haldsskólum og háskólum. Þá verði
farið til unga fólksins þar sem það er
og með málefni sem á því brenna.
Lögð verður áhersla á fræðslu, um-
ræður, tengsl og samræður við
kjörna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
auk skemmtana í bland við alvöru
stjórnmálanna.
Þá boðar stjórnin að einu sinni í
mánuði verði auglýstir opnir stjórn-
arfundir þar sem félagar í Heimdalli
verða boðnir velkomnir með mál-
frelsi og tillögurétt. Þá verði allar
málefna- og starfsnefndir opnar og
allir fundir þeirra auglýstir opnir fé-
lagsmönnum.
Á fundinum var Drífa Kristín Sig-
urðardóttir, laganemi við Háskóla
Íslands, kjörin varaformaður, gjald-
keri var kosinn Ýmir Örn Finnboga-
son, viðskiptafræðingur og rekstrar-
stjóri Rammagerðarinnar, ritari var
kosin Ásta Lára Jónsdóttir, nem-
andi í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti, markaðsstjóri hjá nemenda-
félagi F.B. og leiðbeinandi í Jafn-
ingjafræðslunni og vefritstjóri
Tómas Hafliðason, meistaranemi í
verkfræði, og framkvæmdastjóri
Kælivéla ehf.
Ný stjórn Heimdallar tekur til starfa í kjölfar aðalfundar félagsins
Leggja
áherslu á
málefni
ungs fólks
Ný stjórn Heimdallar á sínum fyrsta fundi þar sem samþykkt var að teygja sig betur til ungs fólks.
ÞESSI köttur, sem er til heimilis
að Hálsi í Kjós, hefur örugglega
góðan skammt af fyrirsætugenum
í sínu genamengi. Þegar hann kom
auga á ljósmyndara Morgunblaðs-
ins og stóra linsuna á myndavél-
inni lagðist hann makindalega í
mölina og teygði skanka sína í all-
ar áttir.
Dýr sem menn hafa leikið við
hvern sinn fingur í góðviðrinu síð-
ustu daga. Þessi kisi virtist í það
minnsta hinn ánægðasti þar sem
hann flatmagaði í sólinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrirsætukisa í Hvalfirði
JAFNRÉTTISNEFND Framsókn-
arflokksins harmar þá niðurstöðu
þingflokks Framsóknarflokksins að
aðeins ein framsóknarkona taki sæti
í ráðherraliði Framsóknarflokksins,
er formaður flokksins Halldór Ás-
grímsson tekur við forsæti ríkis-
stjórnar Íslands.
Í ályktun nefndarinnar er það
harmað að konum í ríkisstjórn fækki
nú í 20% úr 50% árið 2000. Þá segir
nefndin augljóst að þingflokkurinn
hafi ekki haft jafnréttisáætlun
flokksins að leiðarljósi. Þá brjóti
samþykkt þingflokksins einnig í
bága við grein 12.8 í lögum flokksins
þar sem segir að við skipan í trún-
aðarstöður innan flokksins, sem og
við val á framboðslista hans skuli
leitast við að hlutur hvors kyns verði
ekki minni en 40%.
Bryndís Bjarnason, formaður
jafnréttisnefndarinnar, segir konur
innan flokksins mjög slegnar yfir út-
komunni. „Í rauninni er þetta skref
aftur á bak í jafnréttismálum fyrir
Framsóknarflokkinn. Við ætlum þó
ekki að láta beygja okkur, heldur
vera sterkar og halda ótrauðar
áfram og berjast á friðsamlegan hátt
til að koma jafnréttismálum í sinn
rétta sess,“ segir Bryndís, sem telur
að um óheillaþróun sé að ræða. „Það
hefur verið bakslag í jafnréttisþróun
innan flokksins síðustu misseri. Við
þurfum að snúa við blaðinu og koma
þessu aftur í fyrra horf. Við þurfum
kannski að fara í naflaskoðun og
skoða hvað hefur komið fyrir hjá
okkur, hvort við höfum sofið á verð-
inum, því konum hefur líka fækkað í
öðrum stofnunum innan flokksins.“
Bryndís segir hafa gengið mjög
vel á tímabili en nú hafi komið nokk-
ur lægð í gang jafnréttismála innan
flokksins. „Við teljum að kannski
finnist mönnum að nú séu konur
búnar að fá nóg og þurfi ekki meira.“
Brotthvarf Sivjar
gegn flokkslögum