Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 23
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 23
Keflavík | Tvær vatnslagnir sprungu
í Keflavík í fyrradag, önnur við
Vatnsnestorg og hin á Hrannargötu.
Í síðarnefnda tilfellinu varð talsvert
vatnsflóð úr og malbik á Hrannar-
götu skemmdist nokkuð, að sögn
Sigurður Ólafssonar, verkstjóra hjá
Hitaveitu Suðurnesja.
Starfsmenn verktakafyrirtækis-
ins Nesprýði hafa að undanförnu
verið að vinna við breytingar á
Vatnsnestorginu og meðal annars
tekið vatnslagnir út fyrir torgið.
Þegar vatni var hleypt aftur á
lagnir á torginu um hádegið í fyrra-
dag gaf sig samsetning í gamalli lögn
þannig að hún hrökk þar sem hún
var hvað þynnst og flæddi nokkuð af
vatni út í skurð sem grafinn hafði
verið. Skurðurinn fylltist þó ekki og
jarðvegurinn drakk talsvert af vatn-
inu í sig.
Malbikið bólgnaði upp
Vatnslögnin í Hrannargötu fór
einnig í sundur síðdegis í fyrradag
en lögnin þar er orðin gömul og fúin,
segir Sigurður og að því hafi hún far-
ið í sundur. Vatnsflóðið rann undir
malbik götunnar sem bólgnaði upp
þannig að nokkrar skemmdir hlutust
af. Starfsmenn Hitaveitunnar náðu
að skrúfa fyrir vatnið fljótlega eftir
að lögnin fór í sundur og verktakar
mokuðu yfir í gær og sléttu undir-
malbik.
Talsvert af vatni lak upp á götuna
og flaut yfir hana um tíma en stutt er
í höfnina frá Hrannargötu og vatnið
rann niður í sjóinn án þess að valda
truflunum. Vatnleysið í kringum
Vatnsnestorgið kom hins vegar
nokkuð illa við ýmsan atvinnurekst-
ur sem þar er til húsa en tvö hótel,
tvær hárgreiðslustofur, matvöru-
verslun og tannlæknastofa eru við
torgið og urðu öll þessi hús vatnslaus
þegar lögnin fór í sundur.
Stefnt er að því að framkvæmdum
við Vatnsnestorg ljúki fyrir Ljósa-
nótt sem verður haldin fyrstu
helgina í september.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Talsvert vatnsflóð varð á gatnamótum Hrannargötu og Víkurbrautar í
Keflavík í fyrradag eftir að vatnslögn fór í sundur.
Tvær vatnslagnir í
sundur í Keflavík
SUÐURNES
Keflavík | Sundlaug Keflavíkur lok-
ar mánudaginn 30. ágúst nk. í nokkr-
ar vikur meðan viðhald og viðgerðir
á lauginni standa yfir. Jón Jóhanns-
son, forstöðumaður laugarinnar,
segist vonast til þess að viðgerðum
ljúki á þremur vikum en viðgerðar-
tíminn ráðist af veðri og vindum.
Hann tekur þó fram að sundgestir
á Reykjanesi þurfi ekki að örvænta
þar sem Reykjanesbær hefur samið
um að korthafar í sundlauginni í
Keflavík geti notað kort sitt í sund-
laugunum í Grindavík, Vogum,
Garðinum og Sandgerði meðan á
viðgerðunum stendur.
Í viðgerðunum verður skipt um
klæðningu, bárujárn og pappa á þaki
sundlaugarinnar auk þess sem flís-
arnar á sundlaugarbökkunum verða
fjarlægðar og í staðinn lagt flotefni.
Flísarnar eru að mestu skemmdar,
segir Jón.
Þakviðgerðirnar einar munu
kosta um þrettán milljónir og er það
nokkuð yfir kostnaðaráætlun, að
sögn Jóns en Hjalti Guðmundsson
sér um verkið. Þrjú tilboð bárust í
verkið.
Sundlaugin er allajafna mikið sótt
og sérstaklega vinsæl í sumar í góða
veðrinu. Talsverð aukning ferða-
manna hefur verið í sumar og segir
Jón aukinn fjölda erlendra sund-
laugagesta haldast í hendur við al-
menna fjölgun ferðamanna á
Reykjanesinu að undanförnu.
Ákveðið var að bíða með viðgerðir
eins langt fram á haustið og hægt
var til að þurfa ekki að loka lauginni
á háannatíma. Jón segir að m.a hafi
verið tekið tillit til þess að Ólympíu-
farar af Suðurnesjum fengju
æfingaaðstöðu og auk þess hafi verið
mikið af sundmótum í í lauginni í
sumar og vor.
Morgunblaðið/Oddgeir Karlsson
Gera þarf við þak og bakka sundlaugarinnar í Keflavík.
Sundlaug Keflavík-
ur lokað vegna við-
halds og viðgerða