Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 39
HIN nýtilkomna aðild tíu nýrra
ríkja að samningnum um evrópskt
efnahagssvæði (EES) og Evrópu-
sambandinu (ESB), sem gekk í gildi
hinn 1. maí á þessu ári
boðaði breytingar.
Lauk þar með langri
og strangri lotu samn-
inga og viðræðna, sem
staðið höfðu allt frá því
ákveðið var á leiðtoga-
fundi ESB í júní, árið
1993, að opna fyrir
möguleika á aðild
þeirra ríkja sem loks
fengu aðildina við-
urkennda að ESB og
EES. Hið fyrra átti sér
stað í Kaupmannahöfn
og gekk síðan eftir, einum tíu árum
síðar. Þá í desembermánuði, árið
2002, var tímasetning stækkunar
ESB ákveðin, sem gerðist á leiðtoga-
fundi ESB, en hann var aftur hald-
inn í Kaupmannahöfn (sbr. „Frá
Kaupmannahöfn til Kaupmanna-
hafnar“). Hér skal raunar stiklað
mjög á stóru.
Grein 128 af EES-samningnum
Hér er látið í veðri vaka, að grein 128
af samningunum um
EES hafi leitt til að-
ildar tíu nýrra ríkja að
EES, sem er í fullu
samræmi við skuld-
bindingar ESB, og
eins samsvarandi
skuldbindingar af
hálfu Íslands, Noregs
og Liechtenstein. Ekki
skal grein 128 sér-
staklega rakin, en vís-
að er til heimildar.
Engin vandkvæði
urðu vegna þessarar
greinar 128 af samningnum um EES
í fullnustu mála. Stækkun EES og
ESB um tíu ríki Mið-, Austur-, Suð-
ur- og Suðaustur-Evrópu gerðust
samhliða hinn 1. maí síðastliðinn.
Breski fræðimaðurinn, Heather
Grabbe, hefur komið fram með hug-
mynd, sem á ensku kallast „institut-
ional complimentarities“, sem á ís-
lensku mætti kalla „samverkun
stofnanaþátta“! Eistland, Lettland
og Litháen, eru afar góð dæmi um
„samverkun stofnanaþátta“, þar sem
tekist hefur að ná fram aðild þeirra
að ESB og EES, auk aðildar þeirra
þriggja að Norður-Atlantshafs-
bandalaginu (NATO).
Þau fengu öll þrjú fulla aðild að
NATO í byrjun apríl þessa árs. Hér-
umbil einum mánuði síðar, fengu þau
fulla aðild að ESB, sem jafnframt fól
í sér samhliða stækkun EES um
Eystrasaltsríkin þrjú en alls tíu ríki,
samanber umfjöllun um grein 128
EES-samningsins að framan.
Hvað verður af „samverkun
stofnanaþátta“ í framtíðinni?
Hinn sænski Carl Bildt hefur látið þá
skoðun í ljós, að skortur á „sam-
verkun stofnanaþátta“ á meðal
Norðurlandaríkjanna fimm, hafi illt
eitt í för með sér. Hið sama má segja
um stöðu Tyrklands, sem er aðild-
arríki NATO, en utan samningsins
um EES, og stendur fyrir utan ESB.
En ef vikið er aftur að Eystrasalts-
ríkjunum þremur, sem hér hafa ver-
ið nefnd til sögunnar, hefur tekist
allvel við það, að tryggja „sam-
verkun stofnanaþátta“ hvað þau
áhrærir. Hið eina, sem hugsanlega
gerir það að verkum, að þau eru ekki
búin að uppfylla „ideal“-„samverkun
stofnanaþátta“ er sú staðreynd, að
þau standa enn utan við Norð-
urlandaráðið. Ekki skal vikið frekari
orðum að þeim fimm ríkjum, sem að-
ild eiga að Norðurlandaráðinu, en
vísað enn og aftur til orða Carl Bildt
um þau efni, sem hér hefur verið vís-
að til í textanum.
Til að lýsa í hnotskurn hversu mik-
ilvæg „samverkun stofnanaþátta“ er,
skal rakin saga eins eða allra Eystra-
saltsríkjanna þriggja, það er, Eist-
lands, Lettlands og Litháen: Hvað
stjórnmál áhrærði fékk ríkið fyrst
aðild að Evrópuráðinu og Öryggis-
og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE).
Áður getur um það, að ríkin þrjú
fengu aðild að NATO, og strax í kjöl-
farið aðild að ESB. Hvað efnahags-
málum viðvíkur fékk eitt hinna
þriggja Eystrasaltsríkja fyrst aðild
að Efnahags- og framfarastofnun
Evrópu (OECD), þvínæst fékk það
aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni
(WTO), og loks aðild að ESB, en það
var að undangenginni aðild Eystra-
saltsríkisins að NATO, eins og áður
hefur verið lýst hér að ofan. Full að-
ild að ESB fól jafnhliða það í sér, að
ríki fékk aðild að samningnum um
EES, en slíkt er einmitt kjarni „sam-
verkunar stofnanaþátta“ fyrir ríki
eins og Ísland, og raunar gildir hið
sama fyrir öll ríki í gervallri Evrópu.
Heimild: EES. Meginmál EES-
samningsins og fleira efni er honum
tengist. Með aths. e. B.F. (Háskóla-
útg., 1997). IX. Hluti. Alm. ákvæði og
lokaákvæði. Bls. 71, gr. 128, nr. 1 og
nr. 2.
Samningurinn um EES
gengur til austurs/suðurs
Kjartan Emil Sigurðsson
skrifar um EES ’Full aðild að ESBfól jafnhliða það í sér,
að ríki fékk aðild að
samningnum um EES,
en slíkt er einmitt
kjarni „samverkunar
stofnanaþátta“ fyrir
ríki eins og Ísland, og
raunar gildir hið
sama fyrir öll ríki
í gervallri Evrópu. ‘
Kjartan Emil Sigurðsson
Höfundur er stjórnmála-
og þjóðhagfræðingur.
Evrópusambandið í Austurvegi III
Í DAG er menningarnótt í
Reykjavík í níunda sinn. Frá morgni
til kvölds geta Reykvíkingar og
gestir þeirra notið yfir 200 stórra og
smárra viðburða sem
spanna allt litróf
menningar og lista.
Einsog fegrun Aust-
urvallar, ylströndin í
Nauthólsvík, Fjöl-
skyldu- og hús-
dýragarðurinn í Laug-
ardal, fjölbreytt
útivistarsvæði og
hjóla- og göngustíga-
stígar og fjölmargt
annað var stofnað til
menningarnætur til að
gera borgina skemmti-
legri. Það hefur tekist.
Menningarnótt hefur
sannarlega vaxið og
dafnað. Ástæðan er
fyrst og fremst hug-
myndaauðgi og fram-
takssemi fyrirtækja,
listafólks og ein-
staklinga sem taka höndum saman í
miðborginni ár hvert.
Fyrir þremur árum varð gríðarleg
umræða í kjölfar menningarnætur
um að vinsældir hennar væru orðnar
vandamál. Ill-leysanlegir umferð-
arhnútar höfðu þá myndast eftir að
flugveldasýningu lauk. Þá höfðu
70.000 manns komið saman í mið-
borginni. Í kjölfarið gerði lögreglan
átak í umferðarstjórn og 85.000
manns mættu með þolinmæðina
meðferðis árið eftir. Umferðin gekk
vel en örfáir ofbeldisseggir urðu
miðpunktur umræðunnar ásamt
álaginu á slysavarðstofunni. Það var
einsog á gamlárskvöld. Enn var
spurt hvort menningarnótt væri
sprungin.
Lærum sífellt af reynslunni
Í fyrra var reynt að læra af reynsl-
unni. Dagskránni var dreift um
stærra svæði en áður, hún var fyrr á
ferðinni og endapunktur settur með
glæsilegri flugeldasýningu Orku-
veitunnar. Allt var gert til að undir-
strika að menningarnótt væri fjöl-
skylduhátíð. Til að gera ýtrustu
öryggisráðstafanir var viðbragðs-
miðstöðin í Stigahlíð nýtt og full-
mönnuð ásamt því að löggæsla og
viðbragðsaðilar voru sýnilegri en áð-
ur. Um 100.000 eru talin hafa tekið
þátt í menningarnótt í fyrra. Þótt
þetta hafi líklega verið mesti mann-
söfnuður Íslandssögunnar höfðu
læknar slysadeildar minna að gera
en um venjulega helgi.
Þrátt fyrir að vel hafi tekist til er
ljóst að stórverkefni sem þetta
heppnast ekki nema allir leggist á
eitt. Höfuðborgarstofa,
sem ber ábyrgð á fram-
kvæmd menning-
arnætur fyrir hönd
Reykjavíkurborgar,
hefur átt því láni að
fagna að búa yfir hæfu
starfsfólki og frábærum
samstarfsaðilum sem
annast viðbúnað, lög-
gæslu og önnur örygg-
ismál í borginni. Til að
standa vörð um farsæla
menningarnótt skiptir
þó mestu að Reykvík-
ingar og gestir þeirra
gangi hægt um gleðinn-
ar dyr og hver beri
ábyrgð á sér og sínum.
Í því efni er sérstaklega
horft til unglinga og
foreldra þeirra.
Saman á menningarnótt
Enginn vill hverfa aftur til ástands-
ins sem ríkti í miðborginni áður en
borgaryfirvöld, lögregla og for-
eldrar tóku höndum saman um að
stöðva unglingadrykkju á almanna-
færi. Miðborgin hafði verið mið-
punktur hennar helgi eftir helgi um
áratuga skeið. Það var stöðvað með
samhentu átaki fyrir um fimm árum.
Sérstaka árvekni þarf þó til að vinna
gegn því að menningarnótt taki við
verslunarmannahelgi eða próflokum
sem miðpunktur unglingadrykkju.
Því hefur Höfuðborgarstofa tekið
höndum saman við forvarnarnefnd
borgarinnar og SAMAN-hópinn
svokallaða um að leggja áherslu á
ábyrgð foreldra á börnum sínum á
menningarnótt ekki síður en aðra
daga. SAMAN-hópurinn er sam-
starf frjálsra félagasamtaka, for-
eldra og annarra sem vita að sam-
veran með fjölskyldu er besta
forvörn unglingsáranna. Menning-
arnótt er einmitt farsælust þegar
hún er hátíð allrar fjölskyldunnar.
Saman stuðla gestir menning-
arnætur áfram að því að menning-
arnótt verði eitt fallegasta blómið í
borgarlífinu. Gleðilega menning-
arnótt!
Gleðilega
menningarnótt!
Dagur B. Eggertsson skrifar
um menningarnótt
Dagur B. Eggertsson
’Menningar-nótt hefur sann-
arlega vaxið og
dafnað. ‘
Höfundur er borgarfulltrúi og
stjórnarformaður Höfuðborgarstofu.
Á MENNINGARNÓTT hvet ég
fólk til að kynna sér nýmæli á sviði
menningar og lista:
Framtak til að gera almenningi
kleift að nálgast og njóta samtíma-
listar á eigin forsendum. Borg-
arbókasafnið hefur opnað ,,Artótek
Listmunahlöðu“ í Gróf-
arhúsinu þar sem fólk
getur komið, valið sér
eitt af nær 400 lista-
verkum eftir 130 lista-
menn og leigt um
skemmri eða lengri
tíma. Minnstu verkin
kosta í leigu 1.000
krónur á mánuði,
stærstu 10 þúsund.
Festi maður ást á verk-
inu getur leigan gengið
upp í kaup. Ég hvet
alla til að koma við í
Artótekinu á menningarnótt og
skoða. Þar er opið frá kl. 13–21. Eða
fara inn á artotek.is og velja sér
verk. Ég þakka samtökum lista-
manna samstarfið við að koma þessu
á og listamönnum metnaðinn sem
þeir sýna.
Vaxtalaus lán til
að kaupa listaverk
Það er auðveldara og ódýrara að
kaupa myndlist í Reykjavík í dag en
ísskáp eða sjónvarp á raðgreiðslum!
Menningarmálanefnd hefur fengið
KB banka, galleríin í borginni og
listamenn til að sameinast um að
veita vaxtalaus lán til kaupa á verk-
um eftir samtímalistamenn. Kaup-
andi getur farið inn í öll helstu gall-
erí borgarinnar og gert samning um
lán til allt að 36 mánaða, allt upp í
600 þúsund krónur, til að kaupa
listaverk. Hvar bjóðast betri kjör?
Vextirnir eru niðurgreiddir af fram-
lagi borgarinnar, KB banka, og með
afslætti gallerís og listamanns.
Hagnaður listamanna
og gallería felst í því að
fá staðgreiðslu frá
bankanum, og vonandi
miklu meiri verslun.
Bankinn sér um um-
sýslu lána, borgin legg-
ur fram fé með honum
svo viðskipti geti orðið
markverð fyrir hinn illa
stadda myndlist-
armarkað. Lágmarks-
upphæð til kaupa er 36
þúsund, með aðeins
10% útborgun, svo nú
má segja að myndlistarkaup séu á
hvers manns færi.
List fyrir alla!
Við opnunarhátíð Artóteks minntist
ég gamallar „menningaryfirlýs-
ingar“ frá litlum leikhópi í Banda-
ríkjunum, sem mér áskotnaðist eitt
sinn sem námsmaður erlendis. Dró
hana upp og kynnti, og vildi gera að
stefnuyfirlýsingu vegna þessara
tveggja þátta til að efla myndlist-
armarkaðinn. Yfirlýsingin getur eins
vel átt við Menningarnótt alla. Hún
er svona:
Of lengi hefur fólk haldið að listin
sé forréttindi stofnana og hinna ríku.
Listin er ekki bisness! Hún tilheyrir
ekki bönkum og fínum fjárfestum.
List er fæða. Maður etur hana ekki,
en hún nærir mann. Listin verður að
vera ódýr og aðgengileg öllum. Hún
þarf að vera alls staðar vegna þess
að hún er kjarni tilverunnar.
Listin linar þjáningar.
Listin vekur sofandi.
Listin syngur hallelúja.
Listin er fyrir eldhús!
LISTIN ER EINS OG GOTT
BRAUÐ!
Listin er eins og græn tré.
Listin er eins og hvít ský á bláum
himni.
Listin er ódýr!
HÚRRA!
Stærsta og skemmtilegasta útihá-
tíð landsmanna fer fram í miðborg
Reykjavíkur í dag. Húrra fyrir því.
100 þúsund gestir fylla miðbæinn af
lífi, menningarstofnanir, félög, hóp-
ar, fyrirtæki og alls konar venjulegt
og óvenjulegt fólk fyllist fítonskrafti
og slær til. Sem formaður menning-
armálanefndar vil ég óska öllum
þeim sem standa að hátíðinni og
undirbúa hana til hamingju. Dag-
skráin er glæsileg. Gleðilega menn-
ingarnótt, allir landsmenn!
Húrra fyrir menningarnótt
Stefán Jón Hafstein
fjallar um menningarnótt ’Listin verður að vera ódýr og aðgengileg
öllum. ‘
Stefán Jón Hafstein
Höfundur er formaður menningar-
málanefndar Reykjavíkur.