Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 41                                !!!" #"$%#$& &  ' "(" #"$%#$& Dagana 27. og 28. ágúst n.k. munu sérfróðir menn frá okkur verða á Íslandi í leit að efni á næstu uppboð. Leitað er eftir frímerkjum, gömlum umslögum og póstkortum, heilum söfnum og lagerum svo og gömlum seðlum og mynt. Þeir verða til viðtals á Hótel Loftleiðum föstudaginn 27. ágúst kl. 14:00-18:00 og eftir nánara samkomulagi á laugardaginn - geta líka komið í heimahús. Nánari upplýsingar veitir Össur Kristinsson í síma 5554991 eða 6984991 eftir kl. 17:00 á daginn. FRÍMERKI-UMSLÖG-SEÐLAR-MYNT Sérfræðilegt mat án nokkurra skuldbindinga Auglýsing Kristnihátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 12 frá 28. febrúar 2001, var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt: - að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn; - að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum. Starfstími sjóðsins er til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 m. kr. fyrir hvert starfsár. Stjórn Kristnihátíðarsjóðs auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða styrkir veittir til tveggja sviða: menningar- og trúararfs og fornleifarannsókna. Á árinu 2004 verður 55% af úthlutunarfé sjóðsins veitt til fornleifarannsókna en 45% til menningar- og trúararfs. Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum á síðastliðnu starfsári hans þurfa að sækja um á ný, óski þeir eftir áframhald- andi stuðningi Kristnihátíðarsjóðs. Menningar- og trúararfur Sjóðurinn veitir styrki til að efla þekkingu og vitund um menningar- og trúararf þjóðarinnar. Einkum verður litið til margvíslegra verkefna er tengjast almenningsfræðslu, umræðum og rannsóknum og skulu verkefnin m.a. a. miðla fróðleik um siðferðis- og trúarhugmyndir sem mótað hafa þjóðina, t.d. með gerð fræðslu- og námsefnis; b. stuðla að umræðum um lífsgildi þjóðarinnar, siðferði og framtíðarsýn, t.d. fyrir tilstilli mennta- og menningarstofnana eða fjölmiðla; og c. efla rannsóknir á menningar- og trúararfi íslensks samfélags. Sjóðurinn veitir að öðru jöfnu ekki lengur en í þrjú ár til einstakra verkefna. Fornleifarannsóknir Sjóðurinn veitir styrki til fornleifarannsókna, bæði uppgraftar og skráningar fornleifa, auk kynningar á niðurstöð- um rannsókna. Stjórn sjóðsins leggur áherslu á að árangur rannsóknanna verði aðgengilegur almenningi (plaköt, margmiðlunarefni, sýning muna og jafnvel rústa). Einkum verður litið til rannsóknarverkefna er varða a. mikilvæga sögustaði þjóðarinnar, m.a. Þingvelli, Skálholt og Hóla í Hjaltadal; b. aðra staði tengda sögu kristni á Íslandi, m.a. klaustur og kirkjustaði; c. aðra mikilvæga sögustaði, s.s. verslunarstaði, miðaldabæi og þingstaði. Sjóðurinn mun leitast við að styðja þau verkefni sem hlutu styrk við síðustu úthlutun, enda uppfylli þau kröfur um framvindu og árangur. Einnig verður tekið tillit til samvinnu umsækjenda við innlendar og erlendar rannsókn- arstofnanir eða fræðimenn og áhersla verður lögð á þjálfun og handleiðslu ungra vísindamanna á sviði fornleifa- fræði á Íslandi. Umsóknir Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Miðað er við að verkefnin, sem styrkt eru við næstu úthlutun, verði unnin á árinu 2005. Umsóknir skulu taka til eins árs í senn en Kristnihátíðarsjóður mun styrkja verkefni sem unnin eru á starfstíma sjóðsins og á árinu 2006. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið. Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu forsætisráðuneytis (www.raduneyti.is, sjá forsætisráðuneyti, Kristnihátíðarsjóður). Enn fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, (sími 545 8400, netfang postur@for.stjr.is). Umsóknarfrestur er til 17. september 2004 og verður úthlutað úr sjóðnum hinn 1. desember 2004. Umsóknir til Kristnihátíðarsjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík. Stjórn Kristnihátíðarsjóðs, 21. ágúst 2004. ÞAÐ hamlar starfsemi Rík- isútvarpsins að stjórnvöld hafa ekki mótað stefnu í málefnum stofnunarinnar. Stjórnvöldum ber að marka ákveðna stefnu í mál- efnum Ríkisútvarps- ins. En hins vegar er stundum sem allt snúist eingöngu um að hætt verði að inn- heimta afnotagjöld og að til þess að þau hverfi, megi jafnvel selja ríkisútvarpið. Það vill líka gjarnan gleymast að í lönd- unum í kringum okk- ur er alls staðar rek- ið öflugt ríkisútvarp og þykir sjálfsagt og eðlilegt. Samtökin Hollvinir Ríkisútvarpsins vilja snúa vörn í sókn og efla Ríkisútvarpið til að gegna því hlut- verki sem það hefur skv. núgildandi lög- um og tryggja því þann sess að það verði áfram rík- isútvarp í almannaeign og horn- steinn menningar og lýðræðis í landinu. Ástæðan fyrir tilurð sam- takanna var m.a. andstaða við hugmyndir um að gera Rík- isútvarpið að hlutafélagi en sam- tökin eru þó þverpólitísk. Lýðræði og menning Eitt mikilvægasta hlutverk Rík- isútvarpsins er í þágu lýðræðisins, enda ber Ríkisútvarpinu sam- kvæmt lögum að gæta óhlut- drægni, vernda skoðanafrelsi og halda uppi fjölbreyttum við- horfum. Ríkisútvarpið er eina út- varpsstöðin sem hefur þetta lög- bundna hlutverk og því er brýnt að standa vörð um það. Fjölmiðlar í einkaeigu hafa engum slíkum skyldum að gegna og geta því hunsað lýðræðislega umræðu. Hagsmunir eigenda einkastöðva geta ráðið því hverjir fá að tjá sig og einkastöðvar geta að sjálfsögðu birt efni að eigin geðþótta. Ríkisútvarpið hefur einnig mjög mikilvægu hlutverki að gegna varðandi menningu og hefur hing- að til verið sú stofnun sem sinnt hefur menningaruppeldi og menn- ingararfi þjóðarinnar hvað best. Óhætt er að fullyrða, að enginn ljósvakafjölmiðill stendur Rík- isútvarpinu framar hvað varðar fjölþætta og vandaða dag- skrárgerð þar sem dagskrárgerð- arfólk hefur unnið af miklum metnaði gegnum tíðina og mótað vinnubrögð sem eru til fyr- irmyndar. Einkavæðing hefði það líklega í för með sér að þetta vandaða efni hyrfi að mestu, vegna þess að það er ekki nógu ,,markaðsvænt“ í augum eigenda á frjálsum mark- aði. Markmið einkareksturs er og verður ávallt eitt: Að skila eigend- unum fjárhagslegum hagnaði. Hætt er við að þá megi hug- myndir um lýðræðislega umræðu og ,,dýrt“ menningarefni víkja. Rök fyrir hlutafélagi? Hvergi hafa heyrst gild rök fyrir því að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag. Þó hefur heyrst að það yrði til að liðka fyrir rekstr- inum ef Ríkisútvarpið yrði hlutafélag í eigu ríkisins. Stofnunin er nú þegar í samkeppni. Hvað er því til fyr- irstöðu að stofnun sé breytt þannig að hún bregðist skjótt við samkeppni þó svo að hún sé ekki gerð að hlutafélagi? Verði stofnuninni breytt í hlutafélag er hins vegar unnt að selja það hlutafélag og víst er að tilgangur margra hluta- félagasinna er sá einn að selja stofnunina. Það er óhætt að segja að fordæmin séu slæm ef um er að ræða hlutafélag í eigu ríkisins, því hingað til hafa slík hlutafélög undantekningarlaust verið seld. Minnsta vísbending í þá átt er að mati okkar sem stöndum að Hollvinasamtökum RÚV beinlínis hættuleg fyrir íslenska menningu, fyrir öryggi landsmanna og ekki síst fyrir fjölmiðla landsins með tilliti til ríkjandi samþjöppunar í þeim geira. Lýðræðisþróun í land- inu er hætta búin ef frjálst Rík- isútvarp verður lagt af sem stofn- un í eigu þjóðarinnar allrar. Stjórn Hollvinasamtakanna hef- ur frá því í apríl ítrekað óskað eft- ir fundi með menntamálaráðherra, Þorgerði K. Gunnarsdóttur, til að ræða hennar afstöðu til Rík- isútvarpsins, en hún hefur enn ekki séð sér fært að hitta fulltrúa stjórnarinnar að máli. Málþing í sjónvarpssal Stjórn Samtaka Hollvina Rík- isútvarpsins ætlaði að halda mál- þing sl. vor um framtíðarhlutverk Ríkisútvarpsins. Fulltrúar stjórn- ar áttu þá góðan fund með út- varpsstjóra, Markúsi Erni Ant- onssyni, þar sem ákveðið var að slíkt málþing yrði haldið í sjón- varpssal í haust. Málþing, sem öll- um gefst tækifæri til að fylgjast með í sjónvarpi, verður vonandi til að efla umræðuna um hlutverk Ríkisútvarpsins sem menningar- miðils þjóðarinnar í framtíðinni. Hollvinasamtök Ríkisútvarpsins Margrét K. Sverrisdóttir skrifar um Ríkisútvarpið Margrét Sverrisdóttir ’Hvergi hafaheyrst gild rök fyrir því að breyta Ríkis- útvarpinu í hlutafélag.‘ Höfundur er formaður Hollvina- samtaka Ríkisútvarpsins. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jón Steinsson: „Það er engin tilviljun að hlutabréfamarkaður- inn í Bandaríkjunum er öflugri en hlutabréfamarkaðir annarra landa.“ Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af markmiðum með stofnun þjón- ustumiðstöðva er bætt aðgengi í þjónustu borgaranna.“ Jónas Gunnar Einarsson: „Áhrifalaus og mikill meirihluti jarðarbúa, svokallaður almenn- ingur þjóðanna, unir jafnan mis- jafnlega þolinmóður við sitt.“ Jakob Björnsson: „Mörg rök hníga að því að raforka úr vatns- orku til álframleiðslu verði í framtíðinni fyrst og fremst unn- in í tiltölulega fámennum, en vatnsorkuauðugum, löndum …“ Tryggvi Felixson: „Mikil ábyrgð hvílir því á þeim sem taka ákvörðun um að spilla þess- um mikilvægu verðmætum fyrir meinta hagsæld vegna frekari álbræðslu.“ Stefán Örn Stefánsson: „Ég hvet alla Seltirninga til að kynna sér ítarlega fyrirliggjandi skipu- lagstillögu bæjaryfirvalda ...“ Gunnar Finnsson: „Hins vegar er ljóst að núverandi kerfi hefur runnið sitt skeið og grundvall- arbreytinga er þörf …“ Á mbl.is Aðsendar greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.