Morgunblaðið - 21.08.2004, Qupperneq 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÉG HUGSA AÐ
ÉG KLÓRI JÓN
ÉG ÆTLA AÐ FARA ÚT Í BÚÐ
AÐ KAUPA ÍS FYRIR OKKUR
EF EINHVERJUM DETTUR Í HUG AÐ
KLÓRA JÓN ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA
FISKABÚR?
AF HVERJU
VARSTU AÐ
KAUPA
FISKABÚR?
ÞVÍ ÞAÐ
ER STJÖRNU-
MERKIÐ
MITT.
FISKABÚRIÐ!
FISKARNIR
HVAÐ? EKKERT!
STÓRIR BRÆÐUR
VITA ALDREI UM HVAÐ
ÞEIR ERU AÐ TALA
ÉG ER
KOMINN
MEÐ NIÐUR-
STÖÐURNAR
ÚR NÝRRI
KÖNNUN
MEIRIHÁTTAR GÓÐU FRÉTTIRNAR ERU
ÞÆR AÐ FLEST ALLIR Á
HEIMILINU ÞEKKJA ÞIG SEM
PABBA. ALLIR SEX ÁRA
KRAKKARNIR
ÞEKKTU
ÞIG UNDIR
NAFNINU,
PABBI
ÞVÍ MIÐUR MÁ REKJA
ÞESSA ÞEKKINGU MANNA Á
ÞESSUM TITLI ÞÍNUM TIL ÞESS
AÐ ÞÚ STJÓRNAR ÖLLU MEÐ
HARÐRI HENDI OG ORÐRÓMUR
HEFUR KOMIST Á KREIK AÐ
RÁÐGERT SÉ AÐ KJÓSA
MÖMMU SEM NÝJAN PABBA
VISSIR
ÞÚ
EITTHVAÐ
UM
ÞETTA?
FYRSTA VERK
MITT SEM PABBI
ER AÐ LÁTA ÞIG
ELDA!
BÍDDU!
ÞETTA
BREYTIR
ÖLLU!
© DARGAUD
Bubbi og Billi
VILTU VERA KYRR BILLI! HVAÐ
ER AÐ?
ÉG GET EKKI
MÆLT BILLA!
VOFF!
ER
HANN
VEIKUR?
ÞAÐ ER EINMITT
MÁLIÐ. ÉG VEIT
ÞAÐ EKKI!
ÉG SKAL PRÓFA!
HVAÐ MEÐ
HITAMÆLINN? ÉG
ÞARF HANN
EKKI!
KOMDU HINGAÐ
GÓÐI BILLI,
KOMDU
JÆJA
HANN ER Í
GÓÐU FORMI
HVERNIG
VEISTU ÞAÐ?
EINFALT!
ÞEGAR HANN ER Í
GÓÐU FORMI ÞÁ
SÉ ÉG MIG Í
NEBBANUM Á
HONUM
ÆI!
Dagbók
Í dag er laugardagur 21. ágúst, 234. dagur ársins 2004
Hárið er ekki bestisöngleikur sem
saminn hefur verið.
Ekki er söguþráð-
urinn upp á marga
fiska en lögin eru góð
og hafa sýnt að þau
standast vel tímans
tönn.
Því vakti það
nokkra furðu Vík-
verja hvernig gagn-
rýnendur nálguðust
nýjustu uppfærsluna
sem nú er til sýninga
í Austurbæ. Flestir ef
ekki allir þrír gagn-
rýnendur dagblað-
anna gerðu sjálft verkið og andúð
sína á því að meginefni umsagn-
arinnar og það á kostnað sjálfrar
uppfærslunnar.
Víkverji fór á Hárið á dögunum
og skemmti sér hreint konunglega,
rétt eins og á uppfærslunni í Gamla
Bíói fyrir áratug. Reyndar var út-
setning á tónlistinni Víkverja lítt að
skapi, fullrafmögnuð og kuldaleg.
En frammistaða leikara og dans-
ara, sviðsmynd og búningar voru
hreint afbragð og unun á að horfa.
Sýningin er og á fyrst og síðast að
vera skemmtun, stundargaman,
nokkuð sem gagnrýnendur virðast
hafa misskilið – vísvitandi eður ei.
Þá er óþolandi þegar gagnrýn-
endur tapa sér svo í einhverjum
neikvæðum þáttum að þeir virðast
gleyma því algjörlega að geta þess
sem vel tókst.
Gagnrýnendur eru
góðra gjalda verðir
og þarft innlegg í um-
ræðuna en Víkverji
vonar að neikvæð um-
mæli þeirra í þessu
tilfelli hafi ekki orðið
til þess að letja þá
sem fyrir voru áhuga-
samir um að sjá Hár-
ið. Sjáið sýninguna og
dæmið fyrir ykkur
sjálf!
x x x
Allt fór í háaloftvegna umhverf-
ismengunarinnar sem Gunnars
majónesdollan við hringveginn ná-
lægt Hellu átti að vera. Hún var
fjarlægð á endanum eftir mikinn
þrýsting frá öllum, nema Gunnari.
Víkverji veit þó um ennþá alvar-
legri umhverfismengun. Þessa
flennistóru og forljótu mynd af
Idol-genginu á gamla símahúsinu
sem æpir á gesti og gangandi við
Austurvöll. Hvernig dettur borg-
aryfirvöldum í hug að leyfa slík um-
hverfisspjöll á helgasta reit mið-
borgarinnar. Hvar er
sýslumaðurinn núna? Eina leiðin til
að leiða þetta ferlíki hjá sér er bara
að sjá það sem hluta af ljós-
myndasýningunni frábæru sem
stendur yfir á Austurvelli. Eina
sem vantar er smellinn texti frá
Unni Jökuls.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Djassarar | Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á Menning-
arnótt. Unnendur djasstónlistar eru þar ekki undanskildir því á Póstbarnum
leikur djasstríóið Póstberarnir frá kl. 22 húsgangara og þekktar djass-
blöðrur. Tríóið skipa þeir Andrés Þ. Guðlaugsson á gítar, Eyjólfur Þorleifs-
son á saxófón og Ólafur Stolzenwald á kontrabassa.
Þess má geta að djasstónlist verður leikin síðsumars og á haustmánuðum á
Póstbarnum.
Beðið eftir Menningarnótt
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Mig langar, að þeir uppörvist í hjörtum sínum, samein-
ist í kærleika og öðlist gjörvalla auðlegð þeirrar sannfæringar og skiln-
ings, sem veitir þekkinguna á leyndardómi Guðs, Kristi.
(Kól. 2, 2.)