Morgunblaðið - 21.08.2004, Page 51
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 51
LISTAHAPP
Allir gestir fá ókeypis
happdrættismiða. Dregið verður
á 30 mínútna fresti, alls 17
sinnum. Dregið verður þangað
til vinningar ganga út.
Vinningar eru grafíkverk eftir
Kristján Davíðsson, Tryggva
Ólafsson og Línu Rut Wilberg.
Um 2000 verk eftir fleiri en
200 listamenn til sýnis og
sölu í galleríinu. Hressing í
boði fyrir börn og fullorðna
Vökum af list í Galleríi Fold
Verið velkomin að sjá, spjalla og njóta
Fyrir börnin
Í Baksalnum verður teiknisamkeppni fyrir börn yngri en
12 ára. Börnin teikna og mála að eigin list.
Verðlaun verða veitt fyrir bestu verkin í
hverjum aldursflokki.
Listaskot: Friðrik Tryggvason ljósmyndari
tekur ljósmyndir af börnum yngri en
11 ára í boði Gallerís Foldar.
Myndirnar eru prentaðar út á staðnum.
Ásgrímur
Jónsson
Einstakur viðburður
Sýning í Rauðu stofunni á vatnslitamyndum
og teikningum frá 1908 til 1909 eftir Ásgrím
Jónsson sem aldrei hafa verið sýndar áður
Paper-mâché
Lína Rut
og kisurnar
Kynning á nýjum skúlptúrum
Línu Rutar í Ljósfold
Skapað af list kl. 15.00-22.30
Sönglist kl. 15.40 og 20.40
EINS OG ÞEIM ER
EINUM LAGIÐ
Siiri Graupner
kl. 15.00-18.00
formþæfing
Soffía
Sæmundsdóttir
kl. 15.00-18.00
olíumálun
Björk
Bjarkadóttir
kl. 16.30-19.30
akrýlmálun
Elín G.
Jóhannsdóttir
kl. 19.00-22.00
akrýlmálun
Kynning á nýjum
olíuverkum eftir
Gunnellu, Guðrúnu
Elínu Ólafsdóttur.
Listakonan verður á
staðnum til að ræða
um list sína
kl. 19.30-21.00
Guðbjörg
Káradóttir
kl. 18.00-21.00
leirrennsla
Sara Vilbergsdóttir
kl. 19.30-22.30
pappamassa-skúlptúr
Guðbjörn Guðbjörnsson
óperusöngvari syngur nokkur
létt lög við undirleik
Guðbjargar Sigurjónsdóttur
og Arnar Arasonar
Rauðarárstíg 14-16,
sími 551 0400,
www.myndlist.is
fold@myndlist.is
OPIÐ
TIL KL. 23.00!
Gunnella
Við kynnum vaxtalausu lánin til listaverkakaupa
NÝ OG nýleg verk eru í fyrirrúmi á vetrardag-
skrá Leikfélags Akureyrar, sem nú liggur fyr-
ir. Til stendur að setja upp fjórar sýningar á
vegum leikfélagsins sjálfs, en jafnframt munu
fjórar gestasýningar sækja Akureyringa heim.
„Hlutverk okkar er að bjóða upp á sem
besta og mesta leiklist á Akureyri. Það verður
fyrst og fremst gert með því að setja upp eigin
sýningar, en svo kryddum við dagskrána með
fjórum gestasýningum,“ segir Magnús Geir
Þórðarson, sem er nýráðinn leikhússtjóri bæj-
arins.
Edda Heiðrún leikstýrir
Fyrsta sýningin sem leikfélagið setur upp á
eigin vegum í vetur er Svik, hið kunna leikrit
Harolds Pinter. „Þetta er meistaralega skrifað
verk eftir eitt af fremstu nútímaleikskáld-
unum. Þetta er verk sem er reglulega á fjölum
leikhúsa um allan heim og var nýlega sett upp í
London þar sem það gekk lengi vel fyrir fullu
húsi. Þarna höfum við dúndurlið leikara í leik-
stjórn Eddu Heiðrúnar Bachmann. Þetta er
frumraun hennar í leikstjórastólnum, þar sem
gríðarleg reynsla hennar sem leikkona kemur
til með að nýtast mjög vel,“ segir Magnús
Geir.
Verkið verður frumsýnt á Akureyri 23. sept-
ember og sýnt í fimm vikur, en þá heldur sýn-
ingin suður til Reykjavíkur og fær þá sama-
stað í Borgarleikhúsinu. „Það er hluti af
breyttum áherslum í sýningahaldinu almennt,
að sýna þétt í þennan afmarkaða tíma, fimm
vikur. Við höfum ákveðið nákvæmlega tímabil-
ið sem hver sýning verður í boði og fólk verður
því að tryggja sér miða í tíma, annars missir
það af henni,“ segir Magnús Geir. Þessi háttur
verður hafður á um allar sýningar Leikfélags
Akureyrar í vetur, nema jólasýninguna sem
verður sýnd í sjö vikur.
Önnur leiksýning vetrarins samanstendur af
tveimur stuttum leikritum, skrifuðum með
fimmtíu ára millibili. Yngra verkið sem um
ræðir er Ausa Steinberg eftir Lee Hall, höfund
Billy Elliot og Eldað með Elvis, hins vegar eru
það fimmtíu ára gamlir Stólarnir eftir Eugene
Ionesco. „Leikritin kallast mjög skemmtilega
á og styrkja hvort annað, þrátt fyrir að vera á
margan hátt ólík. Sýningin verður þannig upp-
byggð að annað verkið verður fyrir hlé, hitt
eftir hlé. Þarna er velt upp stórum spurn-
ingum um lífið og tilveruna af leiftrandi húmor
þó að undirtónninn sé alvarlegur,“ útskýrir
Magnús Geir, en það er María Reyndal sem
situr í leikstjórastólnum.
Leitað að Óliver
Jólasýning Leikfélags Akureyrar verður
söngleikurinn Óliver! í leikstjórn Magnúsar
Geirs sjálfs. Um þessar mundir stendur yfir
leit að Óliver sjálfum og fleiri krökkum í sýn-
inguna, og leikstjórinn fæst ekki til að greina
frá hver fer með hlutverk hins illræmda Fag-
ins. „Þetta er einn af stóru söngleikjunum,
sem er settur reglulega upp um allan heim.
Saga Dickens er auðvitað sígild,“ segir Magn-
ús Geir. „Sýningin er með stærri uppsetn-
ingum Leikfélags Akureyrar frá upphafi, með-
al annars verður tónlistin flutt af fimmtán
manna hljómsveit Sinfóníuhljómsveitar Norð-
urlands, enda er tónlistin í þessum söngleik
svo vel þekkt og skemmtileg. Við vonumst til
að það verði ekki bara Akureyringar sem
flykkist á sýninguna, heldur streymi aðrir
landsmenn líka í leikhúsferðir norður.“
Eftir jólin frumsýnir leikfélagið glænýtt
leikrit, Pakkið á móti, í leikstjórn Agnars Jóns
Egilssonar. „Leikritið er svívirðilega fyndið,“
segir Magnús Geir en bætir við að verkið sé
ennfremur mjög djarft og pólitískt. „Það
fjallar um lítinn kall sem vill bara lifa róleg-
heitalífi í eigin heimi, en skyndilega ræðst um-
heimurinn inn á heimilið. Hann flækist inn í
stóru málin sem maður horfir á í fréttum og
finnst svo fjarlæg. Heimsmál verða þarna að
einkamálum. Þetta er spennandi verk sem
vann fyrstu verðlaun á leiklistarhátíðinni í Ed-
inborg í fyrra.“
Gestasýningar
Fjórar gestasýningar munu í vetur heim-
sækja Leikfélag Akureyrar, Brim eftir Jón
Atla Jónasson, söngleikurinn Hárið, ný sýning
á vegum Þjóðleikhússins sem nefnist Kodda-
maðurinn og Deafening Silence, sem er dans-
leikhús frá Hollandi. „Ég vil að Leikfélag Ak-
ureyrar verði mun meiri þátttakandi í
leikhúslífi landsins og þjóðanna og einangrist
ekki. Þetta er ein leið til þess, að bjóða til Ak-
ureyrar erlendri gestasýningu og þessum ís-
lensku sýningum, sem allar eru mjög spenn-
andi. Í framtíðinni vona ég að erlendir
leikhúsmenn starfi með okkur í auknum
mæli,“ segir Magnús Geir.
Í vetur stendur ennfremur til að vera með
leiklestra, þar sem meðal annars verða lesin
ný íslensk verk og Ladybird eftir Vassily
Sigarev. „Þarna sjáum við vettvang til þess að
prófa verk sem við erum að hugsa um fyrir
næsta leikár. Áhorfendum gefst tækifæri til að
heyra verkin lesin og segja sína skoðun, og að-
stoða okkur þannig við verkefnavalið.“
Svonefndir máttarstólpar styrkja Leikfélag
Akureyrar fjárhagslega um rúmlega tíu millj-
ónir króna í vetur. „Atvinnulífið er að koma inn
í starfsemina með stórauknum hætti, og þess
vegna er dagskráin eins viðamikil og raun ber
vitni,“ segir Magnús Geir.
Ungt fólk í fyrirrúmi
Það er ofarlega á stefnuskrá Leikfélags Ak-
ureyrar að ná til ungs fólks og nýrra leik-
húsgesta, og verður beitt til þess ýmsum
brögðum, að sögn Magnúsar Geirs. „Ég vona
auðvitað fyrst og fremst að verkefnavalið veki
áhuga þeirra. En síðan er það nú svo að ungt
fólk hefur oft minna milli handanna, og þess
vegna bjóðum við því árskort í leikhúsið á nið-
urgreiddu verði í samstarfi við Landsbankann.
Á þessum kjörum er bíóverð á leikhúsmiðum,“
segir hann og bætir við að verðið vegi einna
þyngst þegar skoðað er hvers vegna ungt fólk
sæki lítið í leikhús. Öllum gagnfræðaskóla-
nemendum á Eyjafjarðarsvæðinu verður boðið
í leikhús í vetur af Landsbankanum, og þeim
stendur jafnframt til boða að taka leiklist sem
valgrein í skólanum í samvinnu við Leikfélag
Akureyrar.
Áhorfendaleikhús
Að mati Magnúsar Geirs þarf Leikfélag Ak-
ureyrar að þjóna stórum hópi, enda eina at-
vinnuleikhúsið á svæðinu. „Við getum því ekki
einskorðað okkur við eitthvað eitt, en þó ákvað
ég að einbeita kröftunum að nútímaverkum í
stað klassíkurinnar, eins skemmtileg og hún
getur verið. Ég vil að leikhúsið tali til áhorf-
enda og skipti þá máli, enda er þetta áhorf-
endaleikhús, að vissu leyti alþýðuleikhús, sem
þarf að höfða til margra. Ég vil gjarnan ná
meira gegnumstreymi, að fleiri komi að þessu
leikhúsi þrátt fyrir landfræðilega einangrun
þess. Starfsemi þess þarf nefnilega alls ekki að
vera það. En fyrst og fremst þarf allt sem fer á
fjalirnar að vera gott og spennandi,“ segir
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri á
Akureyri.
Morgunblaðið/ÞÖK
„Ég vil … að fleiri komi að þessu leikhúsi þrátt fyrir landfræðilega einangrun þess. Starfsemi
þess þarf nefnilega alls ekki að vera það. En fyrst og fremst þarf allt sem fer á fjalirnar að vera
gott og spennandi,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri á Akureyri.
Talað til áhorfenda
Leiklist | Rætt við Magnús Geir Þórðarson, nýjan leikhússtjóra á Akureyri, um vetrardagskrána
ingamaria@mbl.is
www.leikfelag.is