Morgunblaðið - 03.09.2004, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.09.2004, Qupperneq 15
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 15 It’s how you live EINUNGIS 18% þjóðarinnar eru ánægð með kvótakerfið eins og það er í dag. Óánægjan hefur þó minnkað frá því árið 1998, er síðast var spurt hjá Gallup um viðhorf til kvótakerfisins í sjávarútvegi. Óánægja hefur minnkað um nærri 8 prósentustig síðan þá og eru rúmlega 64% óánægð með kvóta- kerfið nú í stað nærri 72% árið 1998. Að sama skapi hefur ánægja aukist um tæplega 6 prósentustig. Eins og fyrr segir eru tæplega 18% ánægð í dag en voru tæplega 12% árið 1998. Um 18% eru hvorki ánægð né óánægð með kvótakerfið í sjávar- útvegi. Samkvæmt könnun Gallup eru karlar mun ánægðari en konur með kvótakerfið, eða 25% karla á móti 10% kvenna. Þeir sem styðja rík- isstjórnina eru mun ánægðari með kerfið en stjórnarandstæðingar. Um 40% framsóknarmanna og 29% sjálfstæðismanna eru ánægð, en einungis 11% stuðningsfólks Sam- fylkingarinnar og 5% þeirra sem styðja Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Ekki var marktækur munur á viðhorfi til kvótakerfisins eftir búsetu, aldri eða menntun. 65% vilja breyta kvótakerfinu Meirihluti, eða tæplega 65% þjóðarinnar, vill breyta kvótakerf- inu en það er heldur lægra hlutfall en 1998. Álíka margir vilja leggja það nið- ur nú og fyrir 6 árum, eða rösklega 19% í stað 20,5%, og ívið fleiri vilja halda kvótakerfinu óbreyttu, eða 16% í stað 10% árið 1998. Um 39% framsóknarmanna og 30% sjálfstæðismanna vilja halda kvótakerfinu óbreyttu, en um 9% fylgismanna Samfylkingarinnar. Stuðningsfólk vinstri grænna er alfarið á móti núverandi kvótakerfi. Þeir sem vildu breyta kvótakerf- inu voru spurðir hvaða breytingar ætti að gera. Af þeim sögðust 15% vilja dreifð- ari eignaraðild að kvótanum, tæp- lega 13% vilja byggðakvóta og um 12% vilja banna framsal veiðiheim- ilda. Næst nefndi fólk að það ætti að efla smábátaútgerð, þá að þjóðin ætti að eiga kvótann og rúmlega 4% sögðu að það ætti að taka upp veiðileyfagjald. Annað sem nefnt var, var að taka upp leigukvóta- kerfi, útrýma sækóngum eða -greifum og að taka upp sóknar- dagakerfi. Leggja kvótakerfið niður Þeir sem vildu leggja niður kvótakerfið voru spurðir hvað ætti að koma í staðinn. Hafa ber í huga að þetta voru aðeins um 19% svar- enda. Flestir þeirra sem vilja að kvóta- kerfið verði lagt niður telja að veiði skuli gefin frjáls, næstflestir vilja sóknardagakerfi og í þriðja sæti var nefnt að það ætti að taka upp byggðakvóta. Þá vill fólk efla smá- bátaútgerð og taka upp veiðileyfa- gjald. Flestir óánægðir með kvótakerfið                      ! "  ! #$  !  % $ &' ()' (' (*' +,'+' ' &' ' ' (' ()' *' ' +' *',' (+' &'((' (-' )-'+ (&' . / (,,) /   ! . 0 " ! . .  $ ! . .   . 1   $ 2     3 4   Ánægja með kerfið hef- ur þó aukist um 50% eða 6 prósentustig Ljósmynd/Alfons Finnsson Kvótinn Meirihlutinn er á móti kvótanum, en þeim sem eru sáttir við hann hefur þó fjölgað. Karlar eru nokkru sáttari við kvótakerfið en konurnar. VÍSINDAMENN frá Kanada og Bretlandi halda því fram að tóm- stundaveiðar hafi mun meiri áhrif á afkomu fiskistofna en áður var talið. Frá þessu er greint í vefritinu Intra- Fish. Vísindamenn við háskólann í Bresku-Kólumbíu í Kanada og há- skólann í Hull í Englandi segja vissu- lega erfitt að ímynda sér að veiðimað- ur sem rennir fyrir fisk sér til gamans geti hafi áhrif á heilan fiskistofn. Í ljósi þess hve margir stundi sportveiðar sé hinsvegar augljóst að veiðarnar hafi einhver áhrif.Vísinda- mennirnir áætla að um 11,5% mann- kyns stundi fiskveiðar sér til skemmt- unar og að aflinn sé um 47 milljarðar fiska eða um 11 milljónir tonna á ári. Árlegur fiskafli í heiminum er um 80 milljónir tonna á ári en þá er aðeins miðað við veiðar í atvinnuskyni. Segja vísindamennirnir að skortur á eftirliti og skráningu á tómstundaveiðum geri þeim mjög erfitt að meta áhrif veið- anna á hnignun fiskistofna. Ekki sé farið fram á að sportveiðimenn þurfi sérstök veiðileyfi nema í fáum lönd- um, og í enn færri löndum sé haldið til haga gögnum yfir afla, ræktun og fisk sem er sleppt aftur. Telja vísinda- mennirnir að um 30 milljörðum fiska sé sleppt aftur lifandi en einhver hluti þeirra drepist fljótlega. Segja vísindamennirnir nauðsyn- legt að gera fleiri rannsóknir á áhrif- um tómstundaveiða og þá þurfi jafn- framt nákvæmari skráningu. Telja þeir það í verkahring Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), sem og stjórnvalda í hverju landi, að fylgjast betur með og skrá þá fiska sem tómstundaveiði- menn draga á land. Tómstunda- veiðar hafa áhrif

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.