Morgunblaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 43
Nú er hún elsku amma Halla látin
og við systkinin eigum öll mjög góð-
ar minningar um hana. Það var allt-
af gott að koma til ömmu og afa á
Snorrabrautina, þau voru alltaf í
leiðinni og var það griðastaður okk-
ar þegar við áttum leið um. Alltaf
var hægt að labba inn til þeirra og fá
kaffi, kókómjólk, vínarbrauð og gott
spjall um daginn og veginn, enda var
þar mjög gott andrúmsloft og okkur
leið mjög vel hjá þeim. Við gistum
margar nætur á Snorrabrautinni og
það var gaman að taka spil við afa
og spjalla við ömmu. Hún var alltaf
spjallgóð og vildi allt fyrir okkur
gera, gaukaði að okkur pening í tíma
og ótíma og það var ekki tekið í mál
að afþakka neitt sem hún rétti fram.
Hún kunni vel á okkur krakkana og
kunni fullt af máltækjum sem hún
notaði óspart eins og sá vægir sem
vitið hefur meira sem hún notaði oft
á Sólveigu þegar Helgi var að skap-
rauna henni. Þegar hún kom til okk-
ar á Blönduós kom hún alltaf fær-
andi hendi með fullt af skrifblokkum
í allskonar stærðum og liti handa
okkur til að dunda með.
Hún amma var alla tíð mjög iðju-
söm og var alltaf að. Þegar hún
heimsótti okkur var hún ómetanlega
hjálpsöm, gekk í öll verk á heimilinu
og kláraði þau. Hún var mjög tón-
elsk manneskja, hafði yfirleitt kveikt
á útvarpinu og raulaði þá með öllum
dægurlögunum. Amma tjáði sig al-
mennt ekki um tilfinningar sínar
með orðum en gegnum athafnir
hennar gátum við alltaf lesið hvað
henni þótti vænt um okkur. Við eig-
um eftir að sakna hennar ömmu
mikið.
Sólveig, Helgi, Hrafn og
Hjalti Sigvaldabörn.
SAVA vörubílahjólbarðar. Tilboð
12 R 22.5 Orjak MS kr. 24.016 +
vsk. Gildir meðan birgðir endast.
Kaldasel ehf., Dalvegi 16b,
201 Kópavogur.
S. 544 4333 og 820 1070.
Misty-skór,
Laugavegi 178, s. 551 2070.
Snókerborð
12 feta snókerborð með auka-
búnaði til sölu. Upplýsingar í síma
535 4040.
Nýtt timbur til sölu í takmörkuðu
magni. Úrvals byggingartimbur
frá Svíþjóð, flestar algengustu
stærðir, allt að 40% afsl. Ath.
takm. magn. Er staðsett á Sel-
fossi. Uppl. í s. 896 3456 og 894
6759.
Álnabær, sími 588 5900.
Ömmustangir eftir máli.
Sumarsandalar
Tilboð 1 par 1.290 - 2 pör 2.000.
Stærðir 35-41, margir litir. Nýir litir
í barnastærðum. Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Poncho - margar gerðir og litir
Ný töskusending. Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Láttu þér líða vel.
Verð kr. 5.685.
Misty-skór,
Laugavegi 178, s. 551 2070.
Barnaponcho komin - margar
gerðir og litir. Verð kr. 1.990.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Frábær gæsaveiði. Frábærir
kornakrar á einni af bestu veiði-
jörðum landsins, 90 mín. akstur
frá Rvík. Gisting, leiðsögn og
gervigæsir. Uppl. www.armot.is
eða veidi@armot.is og í síma 897
5005.
VW Golf árg. '98, ek. 59 þús. km.
Silfurgrár, 5 d., 5 g., 1,6 l, ABS,
vökva- og veltistýri, CD/mp3-
spilari. Mjög vel með farinn. Að-
eins bein sala. Ásett verð 980
þús. Ólafur, s. 663 5120.
Til sölu Nissan Primera slx árg.
'92, ek. 125 þús., sjálfsk., samlæs-
ing, rafm. í rúðum, aukadekk,
nýsk. Góður bíll. Verð 230 þús.
Uppl. í síma 669 1195.
Tilbúinn hvert sem er. Nissan
Patrol GR árgerð 1999. 44" dekk
og mikið af aukabúnaði. Ekinn
66.000 km. Uppl. í síma 862-6461.
GEYMUM TJALDVAGNA,
BÍLA, FELLIHÝSI O.FL.
UPPHITAÐ OG LOFTRÆST.
FYRRI VIÐSKIPTAV. STAÐFEST-
IÐ VETRARDVÖL. TEK Á MÓTI
EFTIR SAMKOMULAGI.
GEYMSLUR ÁSGEIRS EIRÍKS-
SONAR, KLETTUM.
UPPL. Í SÍMA 897 1731
Sérhæfum okkur
með varahluti
í jeppa og Subaru
Tangarhöfða 2
S 587 5058, 587 8061
894 8818
Stíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Elsku pabbi, mig
skortir orð, það órétt-
læti að taka ykkur
mömmu frá okkur með
svo stuttu millibili. Við
höfum alltaf verið svo
mikið saman fjölskyld-
an og notið leiðsagnar ykkar, ást-
úðar og umhyggju, missir okkar er
því mikill. En nú ert þú kominn til
elsku mömmu sem þú saknaðir svo
mikið. Minning ykkar lifir. Elsku
pabbi, ég sakna þín.
Þín dóttir
Hulda.
Það er ekki auðvelt að lýsa því
hvernig manni líður, það er varla
hægt að trúa því að þú, elsku pabbi
og afi, sért líka farinn, en við vitum
að þú saknaðir mömmu og ömmu
svo rosalega mikið. Þið voruð sem
eitt og eins og sagt er í ljóðinu sem
sungið var til hennar frá þér „ég
trúi því á andartaki aftur verð hjá
þér“ og nú fáið þið að vera saman
aftur.
Það er varla hægt að hugsa það
HÖRÐUR
SIGURVINSSON
✝ Hörður Sigur-vinsson fæddist í
Reykjavík 6. október
1936. Hann lést á
Krít fimmtudaginn
19. ágúst síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Garðakirkju
2. september.
til enda hvernig við
komumst af án ykkar
en við verðum að
minnast tímans sem
við áttum með ykkur.
Ég talaði við þig í
síðasta sinn mánudag-
inn 16. ágúst, þegar þú
hringdir frá Krít til
þess að spá og spek-
úlera hvað þú gætir
keypt handa barna-
börnunum til þess að
gefa þeim þegar þú
kæmir heim, þar var
þér rétt lýst, fyrst og
fremst að hugsa um að
gleðja aðra.
Þú varst og ert besti pabbi og afi í
heimi. Hver á nú að velja fiskinn
eins og þú varst snillingur í?
Hvergi annars staðar en hjá afa
og ömmu fengum við besta fisk í
heimi. Það verður sárt að geta ekki
skroppið í Safamýrina.
Jónatan Victor fékk að vera með
afa sínum meðan leikskólinn hans
var lokaður og áttu þeir góðan tíma
saman, fóru meira að segja í kaffi í
Garðahverfið til þess að hitta
„krakkana“ eins og þú sagðir sjálfur
og þú varst svo stoltur að hafa afa-
drenginn með þér.
Mig skortir orð til þess að lýsa
því hversu mikið ég og börnin mín
eigum eftir að sakna ykkar.
Elsku pabbi og afi, hvíl í friði.
Við elskum þig hringinn í kring-
um heiminn og aftur til baka.
Veistu að ég á lítinn dreng sem labbar
langt í burtu og rekur margar kýr.
Hann er alveg eins og pabbi forðum,
elskar land og sjó og menn og dýr.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Þín
Anna Sess., Tanja Halla, Nat-
alía Anna og Jónatan Victor.
Elsku afi, þetta gerðist allt svo
skjótt að maður hefur varla haft
tíma til að átta sig á því hvað gerð-
ist.
Þú varst búinn að vera svo
spenntur að komast aðeins til út-
landa til þess að slaka á og vera með
ástvinum, en brátt dró ský fyrir
sólu, afi minn, og þú hófst þitt flug í
faðm ömmu Höllu þar sem við vit-
um að þér líður best.
Þú varst alltaf sá sem hægt var
að reiða sig á í öllu og vissir þú að
margra mati allt. Ef barnabörnin
lentu í vandræðum með viðgerðir á
alls kyns hlutum þá var fyrsta sam-
talið alltaf til afa og var hann ekki
lengi að redda málunum Stundirnar
sem við áttum öll saman í blíðu og
stríðu munu alltaf lifa í hjörtum
okkar.
Öll matarboðin sem voru haldin
hafa haldið okkar fjölskyldu vel
saman. Manni leið alltaf vel eftir að
hafa komið til ömmu og afa í mat og
varð það í raun orðið siður. Það
vantaði eitthvað í vikuna ef fjöl-
skyldan hittist ekki í Safamýrinni.
Jólin voru uppáhaldstími okkar
allra og var alltaf notalegt að njóta
þeirra með ykkur, hlýjan og góð-
mennskan í kringum ykkur kom
manni alltaf í svo gott jólaskap.
Að fara með afa að veiða var allt-
af mikið ævintýri, smitaði hann
útfrá sér með gleðinni sem hann
hafði við veiðar og þótti okkur
barnabörnunum mjög gaman að því.
Þó að veiðin væri kannski ekki mikil
var alltaf farið heim með bros á vör
eftir að hafa neytt góðs nestis sem
sérbúið var af afa og ömmu.
Svo þegar amma veiktist varstu
svo sterkur bæði fyrir hana og fyrir
okkur öll. Þú varst alltaf eins og
klettur og hughreystir okkur öll.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir
að hafa fengið að njóta félagskapar
þíns, ástar og umhyggju. Það var
svo erfitt að fá ekki að kveðja þig.
Við söknum þín, elsku afi, og mun
minning þín ávallt lifa hjá okkur.
Hörður Jens og Lena Rut.
Það er erfitt að tjá tilfinningar
sínar á þessari stundu, og það verð-
ur ennþá skrítnara þegar frá líður
því enn er maður ekki búinn að átta
sig á því að þið séuð bæði farin.
Við hlökkuðum svo til að fara til
Krítar og eyða þar tíma saman.
Hjörvar sagði alltaf að það yrði svo
gaman að fara til Krítar með afa,
því að hann væri svo skemmtilegur.
Þannig varst þú í huga okkar, alltaf
svo góður og í góðu skapi og gaman
að vera með þér. Þú varst ekki sam-
ur eftir að mamma og amma fór og
við tókum eftir því. Við vitum að þið
eruð núna saman eins og þið voruð
alltaf.
Elsku pabbi og afi, það var ynd-
islegt að eyða síðustu stundunum
með þér. Það verður ekki fyllt það
skarð sem þú skilur eftir þig. Minn-
ing þín mun ávallt lifa í hugum okk-
ar.
Óli og Hjörvar Þór.