Morgunblaðið - 03.09.2004, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVÖLD hefst Nútímadanshátíð í
Reykjavík á Nýja sviði Borgarleik-
hússins. Hátíðin er haldin um þessa
helgi frá föstudegi til sunnudags og
næstu helgi frá fimmtudegi til laug-
ardags, og er þetta þriðja árið sem
efnt er til hennar. „Okkur fannst
vanta tækifæri fyrir dansara og
danshöfunda að kynna sig og verk
sín,“ segir Ástrós Gunnarsdóttir,
einn af aðstandendum hátíðarinnar.
Metnaðarfull verkefni
Sjö verk verða sýnd á danshátíð-
inni auk dansstuttmynda og segir
Ástrós þau jafnólík og þau eru
mörg. „Þau eiga það sameiginlegt
að vera öll mjög metnaðarfull verk-
efni, þó þau séu ólík. Þarna er með-
al annars dansleikhús, alvarlegur
nútímadans, grínsamur nútímadans,
video, eitt verkið gerist ekki inni á
sviði heldur annars staðar í húsinu –
sem sagt verkin eru mjög fjöl-
breytileg.“
Hún segist hafa fundið fyrir mikl-
um áhuga á dansi að undanförnu,
bæði meðal dansara og ekki síður
áhorfenda. Það endurspeglast ef til
vill í þeirri staðreynd að á hátíðinni í
fyrra var uppselt á allar sýningar.
„Það kom okkur á óvart hve margir
sem sóttu hátíðina heim voru ekki
þessir hefðbundnu gestir á danssýn-
ingum. En það helst auðvitað í
hendur við gróskuna í dansheim-
inum. Um leið og áhugi hjá lista-
fólkinu er fyrir hendi sýnir það fleiri
og fjölbreyttari verk, sem aftur kall-
ar á áhuga víðari og stærri hóps
áhorfenda.“
Von um erlent samstarf
Í fyrsta skipti sem hátíðin var
haldin var hún í Tjarnabíói, en í
fyrra var hún haldin á Nýja sviði
Borgarleikhússins eins og í ár. Í
kjölfar þess fylgdi samstarfssamn-
ingur við leikhúsið og þriggja ára
samningur við Reykjavíkurborg um
framhald á hátíðinni. Samningarnir
hafa opnað ýmsar dyr fyrir aðstand-
endum hennar. „Í fyrsta skipti fáum
við erlenda og íslenska gesti á hátíð-
ina, og vonum að það komi til með
að aukast í framtíðinni. En ekkert
af þessu hefði getað komið til ef
ekki hefði verið nægilegur áhugi
fyrir hendi á danshátíð hér í
Reykjavík,“ segir Ástrós.
Hún segir aðstandendur hátíð-
arinnar vonast til að dans hér á
landi þróist hraðar vegna tilkomu
hátíðarinnar. „Þetta form af list-
tjáningu er auðvitað mjög hentugt
að mörgu leyti fyrir samstarf við
önnur lönd og aðrar þjóðir. Við von-
umst þess vegna líka til að þetta
opni fyrir slíkt samstarf. Þess vegna
er það mikið fagnaðarefni fyrir okk-
ur að fá hingað þennan hóp frá
Birgittu Egerbladh sem er mjög vel
þekktur í Skandinavíu. Hver veit
hvað gæti komið í kjölfarið á því.“
Dans | Nútímadanshátíð í Reykjavík haldin í þriðja sinn um helgina og næstu helgi
Mikill áhugi á
dansi hérlendis
Morgunblaðið/Árni Torfason
„Okkur fannst vanta tækifæri fyrir dansara og danshöfunda að kynna sig
og verk sín,“ segir Ástrós Gunnarsdóttir, einn af aðstandendum Nútíma-
danshátíðar í Reykjavík, sem hér sést í verki sínu Án titils sem frumsýnt
verður á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld.
Morgunblaðið/Kristinn
ManWoMan er litríkt og lifandi verk að sögn annars
höfunda þess, Ólafar Ingólfsdóttur.
www.dancefestival.is
BÁRA Lyngdal leikkona er
einn fjögurra þátttakenda í
sænskri gestasýningu Nútíma-
danshátíðar í Reykjavík,
Things That Happen At
Home. Tveir leikarar og tveir
dansarar koma fram í dans-
leikhússýningunni sem fjallar
um atburði sem eiga sér stað
inni á heimilum, eins og nafn
sýningunnar gefur til kynna.
„Við vinnum með heimilið sem
stofnun og aðstæður sem þar
geta skapast, til dæmis hættur
á borð við að detta á hausinn
og rotast,“ segir Bára og hlær.
Hún segir að í raun sé ekki
hægt að kalla það sem fram
fer á sviðinu dans. „Þetta er
spuni á sérstakan hátt sem
Birgitta Egerbladh, höfundur
sýningarinnar, vinnur mikið
með. Mikil hreyfing einkennir
sýninguna, og ýmis hreyfim-
unstur. Við skoðum okkar eig-
in kæki og búum til hreyfingar
þaðan.“
Sýningin hefur notið mikilla
vinsælda í Svíþjóð síðan hún
var frumsýnd í fyrra, og segir
Bára hana henta allri fjöl-
skyldunni. „Ég veit um marga
sem fóru beint að lokinni sýn-
ingu og keyptu nýjan miða.
Það var einhvers konar upp-
lifun fyrir fólkið að sjá heimilið
út frá nýju sjónarhorni.“
Hættur
heimilisins
skoðaðar
„VERKIÐ fæddist úti í Brasilíu,
þar sem ég var að vinna í vetur,“
segir Jóhann Björgvinsson dans-
höfundur um Græna verkið, sem
frumsýnt verður í kvöld. „Rétt
hjá staðnum þar sem við bjugg-
um var risastór efnaverksmiðja,
sem var merkt „Inorganic
Chemical Factory“. Mér fannst
þessi orð svo brjáluð að þau
kveiktu hjá mér hugmynd að
þessu dansverki, þar sem ég
fjalla á óbeinan hátt um hvernig
það væri ef allt lífrænt væri
horfið, og hvað við gætum gert
til þess að skapa það aftur.“
Það var Filippía Elísdóttir
búningahönnuður sem aðstoðaði
Jóhann við útfærsluna á hug-
myndinni. „Filippía er alveg frá-
bær, mjög hugmyndarík og eig-
inlega algjör listræn uppspretta,
því í vinnslu verksins hefur hún
verið miklu meira en bún-
ingahönnuður. Við höfum unnið
mjög vel saman,“ segir hann.
Ólífrænar spurningar
„ÞAÐ fjallar um það ef maður
tæki kvenlega eiginleika og karl-
lega, og blandaði þeim saman –
byggi til nýja manngerð,“ segir
Ólöf Ingólfsdóttir danshöfundur
um verk sitt og finnska danshöf-
undarins Ismo-Pekka Heik-
inheimo, ManWoMan, sem frum-
sýnt verður í kvöld. „Í grunninn
erum við að fagna fjölbreytni
mannlífsins og því að það sé til
alls konar fólk, með alls konar
þarfir og stíl. Það er pláss fyrir
okkur öll í þessum heimi.“
Ólöf og Ismo-Pekka dansa sjálf
í verkinu, en tónlistin er frum-
samin fyrir verkið af Halli Ing-
ólfssyni, og nokkuð rokkuð á köfl-
um að sögn Ólafar. Búningar, svið
og ljós eru í höndum finnskra
hönnuða. „Yfirbragðið á sýning-
unni er litríkt og glaðlegt. Ég og
Ismo-Pekka unnum saman fyrir
tveimur árum, að verki sem heitir
Bylting hinna miðaldra, og það
verk var svolítið meira „grátt og
beige“. En nú kveður við annan
tón.“
Í fyrstu töldu höfundarnir að
útkoman í ManWoMan yrði mjög
dramatísk, þó raunin yrði önnur
að lokum. „Þegar við fórum að
skoða málið betur fundum við allt-
af fleiri og fleiri jákvæða punka.
Kannski höfum við í grunninn
meiri áhuga á þeim en erfiðleikum
og átökum,“ segir Ólöf Ingólfs-
dóttir að lokum.
Pláss fyrir okkur öll
Things That Happen At Home
eftir Birgittu Egerbladh
Lít ég út fyrir að vera pallíettudula?
eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur
og Sveinbjörgu Þórhallsdóttur
ManWoMan
eftir Ismo-Pekka Heikinheimo
og Ólöfu Ingólfsdóttur
Án titils
eftir Ástrós Gunnarsdóttur
Græna verkið
eftir Jóhann Björgvinsson
The Concept of Beauty
eftir Nadiu Banine
Metropolitan
eftir Cameron Corbett
Where do we go from this?
eftir Peter Anderson
Dansstuttmyndir
eftir Helenu Jónsdóttur
Sýningar á Nútíma-
danshátíð í Reykjavík
MIRALE
Grensásvegi 8
sími: 517 1020
Opið:
mán.- föstud.11-18
laugard. 11-15
Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina
umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt
af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst.
ingamaria@mbl.is