Morgunblaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Hausttilboð 15% afsláttur af úlpum og kápum Laugavegi 53, s. 552 1555. TÍSKUVAL Fallegur danskur fatnaður Jakkar • buxur • pils • skyrtur o.fl. Opnum kl. 10 virka daga, lau. kl. 11. Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Ný sending Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Enskar stærðir 12-32 Já þeir eru glæsilegir samkvæmiskjólarnir frá HAUSTDAGAR Í MJÓDD Mikið úrval af peysum og bolum Einnig tilboð á völdum gallafatnaði á haustdögum Verið velkomnar Mjódd, sími 557 5900 Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ! Tilboðsdögum LÝKUR LAUGARDAG 10-50% AFSLÁTTUR Laugavegi 41, sími 561 4465 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, laug. frá kl. 10-16. Öðruvísi peysur frá eru komnir 15% afsl. af buxum í dag og á morgun bolirnir NETNOTENDUR sem slegið hafa inn slóðirnar www.icelandexpress.- org og .tv hafa eflaust rekið upp stór augu þegar vefsíða Icelandair í Bretlandi birtist á skjánum í stað vefsíðu Iceland Express eins og gera mætti ráð fyrir út frá slóðunum. Að sögn Ólafs Haukssonar, upp- lýsingafulltrúa Iceland Express, voru lénin tvö skráð í júní sl. af Ice- landair í Bretlandi. Ólafur segir að ekkert verði að- hafst vegna málsins þó að ljóst sé að Icelandair hafi engan rétt til að eigna sér lén með nafni Iceland Ex- press. „Það er að vissu leyti við- urkenning fyrir okkur að þeir telji okkur vera svo sterkt nafn á bresk- um markaði að ein leið til að ná í við- skiptavini sé í gegnum okkar nafn,“ segir hann í samtali við Morg- unblaðið. Guðjón Arngrímsson segir skrán- ingu lénanna hafa verið mistök. „Þetta voru mistök hjá starfsmanni félagsins sem var að skrá ýmis ferðatengd lén fyrir Icelandair í vor. Þetta var auðvitað leiðrétt jafn- skjótt og stjórnendur Icelandair fengu upplýsingar um þetta og vita- skuld er beðist velvirðingar á mis- tökunum.“ Icelandair skráð fyrir vefslóðum á nafni Iceland Express EIMSKIPAFÉLAG Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu, vegna rannsóknar lögreglu á fíkni- efnasmygli með einu skipa félagsins: „Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hefur lögreglan komið upp um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi, skipi Eimskipafélags Íslands. Rannsókn lögreglu hefur staðið yfir í nokkurn tíma og er ekki lokið. Forráðamenn og starfsfólk Eim- skips harmar að fíkniefnasmyglarar misnoti skip félagsins til að flytja til landsins ólögleg og lífshættuleg fíkni- efni. Eimskip mun hér eftir sem hing- að til leggja áherslu á forvarnir og öfl- ugt eftirlit til að koma í veg fyrir smygl á fíkniefnum og öðrum ólögleg- um varningi með skipum félagsins. Eimskip starfar í nánu sambandi við lögreglu- og tollayfirvöld í öllum höfnum sem skip félagsins hafa við- komu í með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir smygl. Félagið leggur áherslu á að um er að ræða opinbert lögreglumál og mun Eimskip ekki tjá sig frekar um málavöxtu fyrr en rannsókn málsins og hugsanlegri meðferð dómstóla er lokið.“ Yfirlýsing vegna smygls á fíkniefnum ER UNNT að kenna köttum að leita að fíkniefnum og hefur umhverfi áhrif á sköpunargáfu vélmenna? Þetta eru þær rannsóknarspurn- ingar sem lagðar eru til grundvall- ar þeim tveimur rannsóknum ungra íslenskra vísindamanna er verða framlag Íslands í Evr- ópukeppni ungra vísindamanna sem fram fer í Dyflinni á Írlandi dagana 25.–30. september nk. Fulltrúar Íslands í keppninni eru vinningshafar í Landskeppni ungra vísindamanna á Íslandi árið 2004 sem fór fram í Háskóla Íslands 19. maí sl., en íslensku þátttakendurnir kynntu verkefni sín á blaðamanna- fundi í húsakynnum Íslandsbanka í gær. Við það sama tækifæri skrifuðu Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís- lands, Ágúst Ingþórsson, for- stöðumaður Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, Bjarni Ármanns- son, forstjóri Íslandsbanka, og Ein- ar Sveinsson, stjórnarformaður Ís- landsbanka, undir samstarfssamning milli Rannsókn- arþjónustu Háskóla Íslands og Menningarsjóðs Íslandsbanka og Sjóvár-Almennra um verkefni er nefnist Ungir vísindamenn á Ís- landi. Sjóðurinn mun á næstu þrem- ur árum leggja verkefninu til sam- tals 4,5 milljónir eða 1,5 milljónir árlega. Að sögn Ágústs er stuðn- ingur sjóðsins grundvöllur og for- senda fyrir framgangi verkefnisins á komandi árum, en þar sem styrk- urinn er til þriggja ára er hægt að tryggja ákveðna samfellu í starfinu sem er lykilatriði. Sveinn hafði á orði við undirskriftina að það væri sér sérstök ánægja að Menning- arsjóður Íslandsbanka og Sjóvár- Almennra fengi að styðja við unga vísindamenn með þessum hætti. Brjáluð hugmynd að skilyrða ketti Að verkefni er nefnist Hasskött- urinn standa nemendur í Verk- menntaskóla Austurlands, þau El- ísa Guðrún Brynjólfsson, Eva María Þrastardóttir og Stefán Þór Ey- steinsson, en leiðbeinendur þeirra eru Þórður Júlíusson og Gunnar Ólafsson. Aðspurðir sögðu nem- arnir ferðina út leggjast afar vel í sig, en vissulega væru þau ofurlítið stressuð gagnvart því að þurfa að kynna verkefni sín á ensku þótt það væri á sama tíma líka spennandi áskorun. En hópurinn hefur að sögn fengið allgóða þjálfun í að tjá sig um verkefnið á ensku á síðustu vikum. Spurð hvernig þeim hafi hugkvæmst að reyna að þjálfa ketti segir Elísa hugmyndina í raun vera komna frá föður Evu, sem hafi gaukað hugmyndinni að þeim. „Okkur fannst þetta reyndar frek- ar brjáluð hugmynd vegna þess að allt sem við höfðum lesið og kynnt okkur um ketti benti til að þeir væru svo sjálfstæðir að fráleitt væri að reyna að þjálfa þá,“ segir Elísa, en hópurinn fékk tvo sveitarketti til að vinna með í átta vikur. Að sögn Evu gekk verkefnið framar vonum og kom það hópnum verulega á óvart hve auðveldlega gekk að þjálfa kettina með virkri skilyrð- ingu. „Við notuðum tepoka, þar sem auðvitað var ekki hægt að vera með alvöru hass við þjálfunina, og verðlaunuðum kettina með rækjum þegar þeir fundu það sem þeir áttu að vera að leita að,“ segir Elísa. Hrafn Þorri Þórisson, nemandi við Fjölbrautaskólann í Ármúla, er höfundur verkefnisins Áhrif um- hverfis á sköpunargáfu, en leið- beinandi hans er Ólafur H. Sig- urjónsson. Aðspurður sagðist Hrafn hlakka til að fara út og lítið finna fyrir stressi, en hann tók fram að hann hefði raunar fengið ágætis þjálfun í að kynna verkefni sitt því hann tók nýverið þátt í al- þjóðlegu vísindaráðstefnunni ECCBR’04 sem haldin var á Spáni. Ungir vísindamenn á leið í Evrópukeppni Geta kettir fundið fíkniefni? Morgunblaðið/Þorkell Einar Sveinsson, Ágúst Ingþórsson, Páll Skúlason og Bjarni Ármannsson (l.t.h.) hér ásamt afreksfólkinu unga, Hrafni Þorra Þórissyni, Stefáni Þór Eysteinssyni, Evu Maríu Þrastardóttur og Elísu Guðrúnu Brynjólfsdóttur. Fréttasíminn 904 1100 HARALDUR Johannessen ríkislög- reglustjórinn og Markús Örn Ant- onsson útvarpsstjóri hafa gengið frá samkomulagi um að Rík- isútvarpið komi að samhæfing- arstöð almannavarna til að tryggja markvissar upplýsingar og leið- beiningar til almennings við hættu- og neyðarástand. Styrkur Rík- isútvarpsins er langbylgjan en ef FM-sendingar rofna er hægt að ná sendingum útvarpsins á langbylgju. Sendingar RÚV verða til notk- unar fyrir aðra fjölmiðla. RÚV og almanna- varnir semja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.