Morgunblaðið - 24.09.2004, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 51
JAPÖNSKU Pokémon-teiknimynd-
irnar hafa notið fádæma vinsælda um
heim allan síðustu árin. Nú er fimmta
myndin komin en í henni slást tveir
nýir Poké-
monar í för,
systkinin
Latias og
Latios sem
eru vernd-
arar Hjarta-
dropans –
ómetanlegs
fjársjóðs.
Íslensk
talsetning fór
fram í Sýr-
landi – hljóðsetningu í leikstjórn Jak-
obs Þórs Einarssonar og með helstu
hlutverk fara Guðjón Davíð Karlsson
sem Ash, Björgvin Franz Gíslason
sem Brock og Freydís Kristófers-
dóttir sem Misty.
Sögumaður er Jóhann Sigurðarson
og kynnir Örn Árnason. Sverrir
Bergmann sér um sönginn og þýð-
andi er Magnús Guðni Magnússon.
Söngstjóri er Friðrik Sturluson. Aðr-
ir leikarar eru Aino Freyja Jarvela,
Jakob Þór Einarsson, Esther Talia
Casey, Orri Huginn Ágústsson, Hall-
grímur Ólafsson, Arnbjörg Valsdóttir
og Kristjana Skúladóttir.
Frumsýning | Pokémon 5
Á þjófa-
veiðum
Pokémon-hetjurnar
eru mættar aftur þar
sem Ash, Pikachu og
félagar reyna að
stöðva þjófa sem fela
sig í Alto Mare-síkj-
unum, vatnshöfuðborg
heimsins.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 23/100
Variety 30/100 (skv. metacritic)
Pokémon-ævintýrið
heldur áfram.
Frumsýningarhelgarinnarfolk@mbl.is
MICHAEL Mann, leikstjóri Coll-
ateral, er einhver sá virtasti í faginu
og er það mál manna ytra að hér sé á
ferð einhver sterkasta glæpamynd
síðari ára.
Sem endranær, þegar mynd eftir
Mann er annars vegar, þá skiptir út-
litið miklu, stíllinn er útpældur og
spennan kynngimögnuð. Þó sér
Mann nær alltaf til þess að í þessum
flottu umbúðum sé alvöruinnihald,
eitthvað verulega kjötmikið. Hér,
líkt og í fyrri myndum sínum, fjallar
Mann um líf glæpamannsins og sið-
ferðislega árekstra hans við „venju-
lega“ fólkið. Báðir hafa þeir Cruise
og Foxx fengi mikið lof fyrir frammi-
stöðu sína. Einkum hefur stór-
stjarnan Cruise vakið athygli í hlut-
verki hins vægðarlausa morðingja
með gráa hárið!
Sjá nánari umfjöllun um Collater-
al í Lesbók Morgunblaðsins á morg-
un.
Frumsýning | Collateral
Tom Cruise sem leigumorðinginn.
Tom Cruise leikur leigumorðingja sem neyðir
leigubílstjóra leikinn af Jamie Foxx með sér í
verkefni að næturlagi í Los Angeles.
ERLENDIR DÓMAR
Roger Ebert Guardian BBC Metacritic.com 69/100
Variety 80/100
Nótt í Los Angeles
ÆVINTÝRIÐ um stelpuna venju-
legu Miu Thermopolis sem komst
allt í einu að því að hún væri prins-
essa sló óvænt í gegn árið 2001.
Því var að sjálfsögðu gerð fram-
haldsmynd þar sem Mia er 21 árs og
farin að venjast því að vera prins-
essa. En hún fær eitt áfallið enn þeg-
ar hún fréttir að gera á hana að
drottningu fyrr en hún hélt og það
sem verra er þá þarf hún að giftast
enskum prinsi sem hún kærir sig
ekkert um. En Clarice drottning sér
aumur á Miu og gefur henni 30 daga
til að finna þann eina rétta.
Frumsýning |
The Princess
Diaries 2
ERLENDIR DÓMAR
Roger Ebert USA Today Metacritic.com 38/100
Variety 40/100
Mia prinsessa í Genovia
lendir í klípu þegar hún
fréttir að hún eigi að
giftast enskum prinsi
sem henni líkar ekki við.
Prinsessan
á bauninni