Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞVÍ miður virtust furðufáir sjá ástæðu
til að líta inn í Neskirkju sl. þriðju-
dagskvöld eða um 17 manns. SMS-
tríóið (líklega
dregið af upphafs-
stöfum spilenda
frekar en far-
símatækni) mun
nýtt af nálinni þótt
tæki fyrir forna
tónlist úr ítölsku
miðbarokki [ekki
„barrokki“ eins og
nú sést víða á
prenti] frá um
1700; einu glæstasta sköpunarskeiði
þess mikla tónlistarlands, þótt kamm-
erverk tímabilsins séu fyrst nú að rísa
úr gleymsku. Því miður var ekkert
fjallað um verkin í tónleikaskrá, er
gat ekki einu sinni heita þátta, hvað
þá fjölda þeirra. Var sú skrýtna þögn
einna bagalegust í tilviki fyrsta og
minnst kunna höfundarins, Francesc-
os Antonios Bonporti (1672–1749),
eftir hvern tríóið lék „Invenzioni a
violino solo e basso op 10; nr 6 og nr
9“. Forvitnilegt hefði t.d. verið fyrir
hlustendur að vita, að þetta bullandi
frjóa og fjölbreytta tíu stykkja safn
(útg. í Bologna 1712) hafi allt fram á
20. öld verið talið eftir J.S. Bach, er
afritaði nr. 2, 5, 6 og 7. Hér, sem í
næstu tveimur verkum kvöldsins eft-
ir Antonio Vivaldi, sónötum nr. 1 og
12 úr Op. 2, var rithátturinn í meg-
inatriðum undir formerkjum „cont-
inuo“-hefðar tímans, þ.e. með lag-
ræna aðaláherzlu á fiðluna við
fylgibassastuðning orgels og sellós,
þó að mæddi stundum hressilega á
sellóinu í Corelli. Fyrir vikið hefði
fiðluleikur Martins Frewer mátt sýna
virtúósari tilþrif, því mótunin var
framan af fremur daufleg, þó að
sækti síðan í sig veðrið í Vivaldi og
væri orðin gizka tápmikil í passacagl-
íutilbrigðum Corellis, „La follia“ Op.
5 nr. 12 um samnefnt þrábassastef.
Losaralegur frágangur tónleika-
skrár endurspeglaðist sumpart í sam-
spilinu er ekki var alltaf jafn sam-
taka, þó að styrkvægi milli hljóðfæra
væri í heild býsna gott, ekki sízt þökk
sé smekklegu orgelraddvali Stein-
gríms Þórhallssonar. Eins og fyrri
daginn með Rinascente-hópnum
hefði samt mátt reyna fleiri litbrigði
til tilbreytingarauka. Jafnvel seilast í
sembal inn á milli, er hefði að lík-
indum oft reynzt nauðsynlegt, hefði
túlkunin öll verið í sagnréttum upp-
hafsstíl með veikum girnisstrengjum
en ekki bara að hálfu, eins og m.a.
kom fram af meðvitað takmörkuðu
víbratói strokhljóðfæranna.
TÓNLIST
Neskirkja
Verk eftir Bonporti, Vivaldi og Corelli.
SMS-tríóið (Martin Frewer fiðla, Sig-
urgeir Agnarsson selló og Steingrímur
Þórhallsson orgel). Þriðjudaginn 30. nóv-
ember kl. 21:30.
Barokktónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Steingrímur
Þórhallsson
Bach
J. S. Bach ::: Hljómsveitarsvíta nr. 3 í D-dúr, BWV 1068
J. S. Bach ::: Kantata nr. 172, „Erschallet, ihr Lieder”
G. P. Telemann ::: Vatnamúsík, „Hamburger Ebb und Fluht“
J. S. Bach ::: Magnificat í D-dúr, BWV 243
Hljómsveitarstjóri ::: Robert King
Einsöngvarar ::: Gillian Keith, Diana Moore, Gunnar Guðbjörnsson, Stephen Richardson
Kór ::: Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Gul áskriftarröð #3
Tónlistarkynning: Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnis-
skrá kvöldsins í Sunnusal Hótel Sögu kl. 18:30. Samverustund Vinafélags
SÍ hefst kl. 18.00. Verð 1000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir.
HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
HÉRI HÉRASON
Fyndið - fjörugt - ferskt - farsakennt
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Í kvöld kl 20, Fö 3/12 kl 20
Fö 10/12 kl 20, Su 12/12 kl 20, Mi 29/12 kl 20
Aðeins þessar sýningar
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar Eftir vesturfarasögum
Böðvars Guðmundssonar
Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/1 kl 20 - GUL KORT
Su 9/1 kl 20 - AUKASÝNING
Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT
Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT
Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT
Lau 22/1 kl 20
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ - GILDIR ENDALAUST
Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafkort fyrir tvo kr. 5.400
Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr. 4.000
VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
- pantið í síma 568 8000 eða á midasala@borgarleikhus.is
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 5/12 kl 14,
Su 2/1 kl 14
Su 9/1 kl 14,
Su 16/1 kl 14
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 4/12 kl 20,
Fö 14/1 kl 20,
Su 23/1 kl 20
BROT AF ÞVÍ BESTA - BÓKAKYNNING
Kringlusafns, Kringlunnar og Borgarleikhúss:
Halldór Guðmundsson,
Kristín Marja Baldursdóttir,
Kristín Eiríksdóttir, Jóhanna Kristjónsdóttir,
Sigmundur Ernir, Þórarinn Eldjárn
Í kvöld kl 20, Aðgangur ókeypis,
Ljúfir tónar og léttar veitingar
JÓLAPERLUR - JÓLADAGSKRÁ
Leikhópurinn Perlan
Leiklist, tónlist, dans
Su 5/12 kl 14 - kr 1.200
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fö 3/12 kl 20, Lau 4/12 kl 20
15:15 TÓNLEIKAR - DEAN FERRETT
Captaine Humes Musicall Humors
Lau 4/12 kl 15:15 - Tal og tónar
AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR
eftir Ionesco Í samstarfi við LA
Frumsýning fi 30/12 kl 20 - UPPSELT
Su 2/1 kl 20, Fö 7/1 kl 20, Lau 8/1 kl
fös. 3. des. kl. 20. aukasýning
lau. 4. des. kl. 20. aukasýning
allra síðustu sýningar
Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is
Þjóðleikhúsið sími 551 1200
BÖNDIN Á MILLI OKKAR
SÍÐASTA SÝNING FYRIR JÓL!
• Stóra sviðið kl. 20:00
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur
Fös. 3/12 nokkur sæti laus. Síðasta sýning fyrir jól. fös. 7/1.
EDITH PIAF – Sigurður Pálsson
Lau. 4/12 uppselt, lau. 11/12 uppselt, sun. 12/12 uppselt,
mið. 29/12 uppselt, fim. 30/12 uppselt, sun. 2/1 nokkur sæti laus,
lau. 8/1 örfá sæti laus, sun. 9/1.
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner
Sun. 5/12 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 12/12 kl. 14:00 nokkur sæti laus,
fim. 30/12 kl. 14:00 80. sýning nokkur sæti laus.
• Smíðaverkstæðið kl. 20:00
NÍTJÁNHUNDRUÐ – Alessandro Baricco
Fös. 3/12, lau. 11/12 örfá sæti laus. Síðustu sýningar fyrir jól.
Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin.
• Litla sviðið kl. 20:00
BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson
Fös. 3/12. Síðasta sýning fyrir jól. Fös. 7/1.
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
sun. 5. des. kl. 14- sun. 12. des kl. 14 – sun. 19. des kl. 14 – sun. 26. des kl. 14
Gjafakort í Óperuna
- upplögð gjöf fyrir músikalska starfsmenn og viðskiptavini
Miðaverð við allra hæfi: Frá kr. 1.000 upp í 6.500 – og allt þar á milli.
Gjafakort seld í miðasölu.
Tosca – Frumsýning 11. febrúar – Miðasala hafin
Miðasala á netinu: www.opera.is
☎ 552 3000
EKKI MISSA AF KÓNGINUM!
AÐEINS TVÆR SÝNINGAR EFTIR:
• Sunnudag 12/12 kl 20 NOKKUR SÆTI
• Sunnudag 26/12 kl 20 LOKASÝNING
eftir LEE HALL
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
TVEIR FYRIR EINN á netinu
Kíktu á loftkastalinn.is og tryggðu þér tvo miða á verði eins.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
ÓLIVER!
gjafakort
tilvalin jólagjöf
Óliver! Eftir Lionel Bart
Þri 28/12 kl 20 UPPSELT Frums.
Mið 29/12 kl 20 UPPSELT
Fim 30/12 kl 16 UPPSELT
Fim 30/12 kl 21 UPPSELT
Sun 2/1 kl 14 örfá sæti
Sun 2/1 kl 20 örfá sæti
Fim 6/1 kl 20 örfá sæti
Lau 8/1 kl 20 UPPSELT
Sun 9/1 kl 20 nokkur sæti
Fim 13/1 kl 20 nokkur sæti
Lau 15/1 kl 20 nokkur sæti
Sun 16/1 kl 20 nokkur sæti
Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir
Lau . 04 .12 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 11 .12 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im. 30 .12 20 .00 NOKKUR SÆTI
Miðasa lan e r op in f rá k l . 14 -18
Lokað á sunnudögum
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
TÓNLEIKAR Ágústs Ólafssonar
baritónsöngvara í Íslensku óperunni
báru yfirskriftina Aldan stigin – ljóð
úr heimi ræðara,
far- og fiski-
manna. Öll lögin
voru eftir Schu-
bert og fjallaði
hið fyrsta um
fiskimann sem
rær út á haf árla
morguns,
áhyggjulaus og í
góðu skapi. Þessa
stemningu hefði
píanóleikarinn Izumi Kawakatsu átt
að hafa í huga, en hún byrjaði lagið
með fremur flóknu undirspili.Því
miður virtist svo ekki vera; leikur
hennar var hvass, órólegur, nánast
ógnandi; svo gersamlega úr takti við
efni ljóðsins að hann hefði betur
hæft spennutrylli um hákarla og sæ-
skrímsli. Annað á efnisskránni var
eftir þessu; píanóleikurinn var svo
hátt gíraður og ofstopafullur að ekki
nokkur leið var að njóta raddar
Ágústs. Er þetta synd því hann hef-
ur allt til að bera sem ljóðasöngvari;
fagra, hljómmikla rödd, skýran
framburð og sannfærandi túlkun
sem hefði getað orðið verulega
áhrifarík ef píanóleikurinn hefði ver-
ið mýkri. Lagið Dvergurinn var t.d.
glæsilega sungið með allskonar blæ-
brigðum og er sömu sögu að segja
um margt annað á efnisskránni.
Vonandi mun Ágúst halda ljóða-
tónleika undir heppilegri kring-
umstæðum í nánustu framtíð.
TÓNLIST
Íslenska óperan
Ágúst Ólafsson bariton og Izumi
Kawakatsu píanóleikari fluttu lög eftir
Schubert. Þriðjudagur 30. nóvember.
Ljóðatónleikar
Ágúst Ólafsson
Jónas Sen