Morgunblaðið - 03.12.2004, Page 42

Morgunblaðið - 03.12.2004, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigríður ElísabetHalldórsdóttir fæddist í Hnífsdal 3. október 1954. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 25. nóvem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Inga Ingimarsdóttir, húsmóðir, f. 12. júní 1924, d. 26. október 1981, og Halldór Pálsson, verkstjóri, f. 5. nóvember 1921. Systkini Sigríðar eru, Kristín, f. 11. janúar 1942, Ingimar, f. 1. apríl 1949, Páll, f. 17. september 1950, Guðrún, f. 7. júlí 1958, og Dagmar, f. 12. febrúar 1961. Hinn 29. desember 1973 giftist skap í Hnífsdal. Árið 1977 fara þau til Hafnafjarðar, þar sem hún hef- ur nám í Fiskvinnsluskólanum og lýkur þaðan námi sem fisktæknir. Árið 1986 flytja þau til Súðavíkur þar sem Sigríður var verkstjóri hjá Frosta h.f., sem var fisk- vinnslu- og útgerðarfyrirtæki. Það var hennar ævistarf að vinna við fiskvinnslu, þá lengst af sem verk- stjóri eða við eftirlitsstörf hjá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna. Sigríður og Gunnar skildu. Snjóflóðin í Súðavík árið 1995 urðu Sigríði mjög erfið, þar sem hún missir bæði starfsfólk sitt og vini. Fljótlega eftir það flytur hún aftur til Hafnafjarðar. Þar kynnt- ist hún eftirlifandi sambýlismanni sínum Rikhard Bess Júlíussyni. Reistu þau sér heimili í Þrastarási 6. Rikhard á þrjú börn, Júlíus Þór, f. 26. júní 1984, Önnu Lísu, f. 27. febrúar 1988, og Brynjar Örn, f. 3. maí 1992. Útför Sigríðar verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Sigríður Gunnari Finnssyni. f. 8. maí 1950. Foreldrar hans voru þau Sigríður Ingimundardóttir, f. 24. júní 1926, d. 14. apríl 1987, og Finnur H. Guðmundsson, f. 20. júlí 1926, d. 6. ágúst 1997, ættaður frá Ingjaldssandi. Sig- ríður og Gunnar eign- uðust tvær dætur. Þær eru: 1) Eva Hlín, f. 25. september 1976, maki Jökull Pálmar Jónsson, f. 27. maí 1975, og eiga þau soninn Hákon Darra, f. 29. maí 2002. 2) Marta, f. 26. júlí 1985, í sambúð með Sig- valda Guðmundssyni, f. 1985. Sig- ríður og Gunnar byrjuðu sinn bú- Okkur langar að minnast þín, elsku Sigga okkar. Það var mikil blessun þegar þú komst inn í líf Rik- harðs sonar okkar og barna hans, Önnu Lísu, Brynjars og Júlla. Þú reyndist þeim sem besta móðir og þau sakna þín sárt. Það var gaman þegar þið fluttuð í hverfið okkar í Áslandinu fyrir tveimur árum og samgangurinn varð meiri. Nýja íbúðin ykkar er falleg og þú lagðir mikinn metnað í að hafa huggulegt og fallegt í kringum þig. Þú varst uppfull af elju og krafti og varst alls ekki á leiðinni frá okkur. Við sitjum hér öll eftir en erfiðast eiga þó dætur þínar, Eva og Marta, sem horfa á eftir móður sinni kveðja þennan heim langt um aldur fram. Svo að ekki sé minnst á sólargeislann þinn, Hákon Darra, sem saknar sárt ömmu sinnar. Þegar hann fæddist fyrir tveimur árum birti upp í lífi þínu og það gaf þér enn meiri lífskraft og styrk í baráttu þinni við þennan ill- víga sjúkdóm. Síðan snemma á þessu ári flutti Hákon Darri með foreldrum sínum til Kaupmannahafnar og var þeirra sárt saknað af allri fjölskyld- unni. Heimsóknir hans til ömmu voru stórar stundir svo ekki sé minnst á þegar sá litli birtist óvænt í 50 ára af- mælisveislunni þinni. Þá felldu marg- ir tár þegar sá litli gekk inn í salinn með blóm handa ömmu sinni. Pabbi þinn og fjölskyldan öll voru þín stoð og styrkur í allri baráttu þinni sem staðið hefur lengi yfir, ekki hvað síst síðastliðið ár. Við vottum dætrum þínum, föður, fóstru, systr- um og bræðrum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og þér, elsku Rikki okkar og börn. Blessuð sé minning þín, elsku Sigga. Elín G. Ólafsdóttir og Júlíus Bess. Nú hefur stórt skarð verið höggvið í fjölskylduna okkar, því Sigga systir er farin. Sigga var alveg einstaklega dugleg kona sem kveinkaði sér aldrei. Hún var alltaf hress og kát og hrókur alls fagnaðar. Eftir að hún flutti í Dóra- townið fórum við að eyða miklum tíma saman. Við hittumst daglega og jafnvel nokkru sinnum á dag. Ef við heyrðum ekki í hvor annarri daglega héldum við einfaldlega að það væri eitthvað að. Hinn 3. okótber 2002 kom Gunnar Ingi sonur minn í heiminn. Það vildi svo skemmtilega til að hann fæddist á afmælisdeginum hennar Siggu. Hún var alveg himinlifandi yfir þess- um flotta afmælispakka og kom í heimsókn til að ná í gjöfina sína. Eldri sonur minn var nú ekki hrifin af því að Sigga væri komin að sækja þennan nýfædda pakka og sagði henni að mamma sín væri örugglega til í að kaupa einhvern annan pakka fyrir hana. Elsku Sigga mín, nú er þessari þrautagöngu þinni lokið og þú hefur öðlast hvíldina sem þú varst farin að þrá. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, en þegar þig hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. ók.) Þín systir Dagmar. Það var sár kveðjustundin okkar systra þegar Sigga Beta kvaddi mig í síðasta skipti. Að missa hana svona langt um ald- ur fram vekur sorg sem ákaflega erf- itt er að taka á. Alla tíð höfum við systkinin verið mjög náin og átt tíð samskipti. Þegar ég hugsa um sam- skipti okkar Siggu eru mér efstar í huga samverustundirnar okkar þeg- ar hún bjó í Súðavík. Ég og fjölskylda mín vorum eins og farfuglarnir og vorum mætt til að vera hjá henni um leið og sumarið kom. Það var gott að vera hjá Siggu, Gunna og stelpunum. Það var eins og að vera heima. Sigga hafði mikla félagsþörf og var eins og pabbi okkar, dugleg að rækta fjölskyldu og vini. Þar hjálpaði svo sannarlega til að Sigga var mikið fyr- ir bíltúra og göntuðumst við oft með það, að þess vegna hefði hún náði sér í leigubílstjóra. Hún og Rikki töldu það ekki eftir sér að skreppa í kaffi til okkar í Búðardal. Það var ekki málið hvort hún keyrði þrjá eða þrjú hundruð kílómetra til að við gætum hist. Að lifa með krabbamein er hlut- skipti sem er mikil raun. Sigga mín tók á því á sinn sérstaka hátt. Að kvarta og kveina var ekki til í henni. Hún sagði að það gæfi henni ekki bætta heilsu og væri því ekki til nokkurs gagns. Svona tók hún á sín- um málum og stappaði frekar stálinu í fólkið sitt, sem hún vildi hlífa í einu og öllu. Sem betur fer á ég ótal svona góðar minningar sem munu hjálpa mér og öðrum ástvinum hennar að takast á við sorgina. Guðrún Guðríður. Elsku Sigga Beta. Nú er löngu og ströngu stríði lokið. Baráttan búin að vera erfið, en þú tókst þessum illvíga sjúkdómi af miklu æðruleysi. Mér fannst stund- um alveg ótrúlegt hvað þú varst sterk og dugleg, kvartaðir aldrei í þessum erfiðu veikindum. Þegar ég spurði þig hvernig heilsan væri svar- aðir þú alltaf; „bara fín“ og leiddir síðan talið inn á aðrar brautir. Þú skyldir sko bíta á jaxlinn, alltaf sami naglinn! Þú þráðir það mikið að geta haldið upp á fimmtugsafmæli þitt og það tókst svo sannarlega. Fjölskylda þín og vinir samankomnir, og hvað þú varst glöð og hrærð þegar litli leynigesturinn, Hákon Darri ömm- ustrákurinn þinn, og Eva dóttir þín, nýkomin frá Kaupmannahöfn, gengu inn gólfið. Það, að eiga svona ynd- islega og samheldna fjölskyldu og vini, er ekki öllum gefið. Allir sem kynntust Siggu Betu, sem nú hefur svo allt of snemma ver- ið frá okkur tekin, hljóta að hugsa til hennar af miklum hlýhug og söknuði. Megi algóður Guð gefa syrgjendum styrk í sorginni. Hvíl í friði kæra vina. Megi minningin um baráttu- konuna Siggu Betu lifa. Þín mágkona, Kristín. Elsku Sigga. „Auður, nú er þetta búið,“ voru þín síðustu orð til mín. Hvað ég er sorgmædd í hjarta mínu. Þú varst ofurkona í mínum augum, barðist eins og hetja við þennan ill- víga sjúkdóm, til þinnar hinstu stundar. Við kynntumst fyrir tæpum sex ár- um er þú komst inn í líf Rikka, mágs míns, og barnanna hans, þeirra Júlla, Önnu Lísu og Brynjars. Hvað þau voru heppin að fá þig! Því eftir mjög erfiða lífsreynslu þeirra komstu eins og kölluð inn í líf þeirra og gæddir það svo mikilli hlýju og umhyggju. Sorg þeirra er mikil í dag, en með minningarnar að vopni takast þau á við lífið sem framundan er. Þau eiga eftir að standa sig! Þær eru ófáar minningarnar sem koma uppí huga minn er ég sit hér og hugsa til þín. Manstu ferðina í Þórs- mörk veturinn ’99, allt hvítt og svo friðsælt, við vorum dolfallnar yfir náttúrufegurðinni og kyrrðinni. Einnig erum við, fjölskyldurnar, búnar að eiga margar frábærar stundir í sumarbústöðum hingað og þangað um landið. Ógleymanlegust er þó ferðin á Vestfirðina sumarið 2003, þú áttir hugmyndina að henni enda ættuð að vestan. Þér fannst við ekki hafa séð nema lítið brot af land- inu því við höfðum aldrei komið á Vestfirðina. Þú varst komin heim, þekktir alla staðhætti og gast frætt okkur hin endalaust á allri þessari dýrð sem fyrir augun bar, betri far- arstjóra og leiðsögumann gátum við ekki fengið. Ég er þér svo þakklát fyrir frábæra ferð. Við áttum margar stundir saman, við tvær, þegar aðrir voru gengnir til náða, spjölluðum, sungum eða bara þögðum saman. Elsku Sigga, takk fyrir allt. Þú varst og verður frábær í mínum huga. Elsku Rikki, Júlli, Anna Lísa, Brynjar, Eva, Marta og fjölskylda, Guð veri með ykkur. Þín svilkona Auður. Sigga var af vestfirsku bergi brot- in. Hennar viðmót mótaðist allt af því. Hún var hrein og bein í öllum samskiptum. Allir gátu gengið að því sem vísu hvað henni fannst um hlut- ina. Hún var ein af þessum samferða- mönnum okkar sem aðdáun vekja fyrir mannkosti í allri framkomu sinni. Hún gat verið beinskeytt í orð- um sínum en ávallt sagði hún mein- ingu sína á hreinskiptinn og heiðar- legan hátt. Sumarið 2002 fórum við vestur á heimaslóðir Siggu og kynntumst henni og fjölskyldu hennar betur. Þar fræddi hún okkur um alla stað- hætti á norðanverðum Vestfjörðum eins og sannur Vestfjarðavíkingur. Ógleymanleg er ferðin sem við fórum út í Vigur þar sem íslensk náttúra skartaði sínu fegursta á fallegum sumardegi. Þar naut Sigga sín vel þó að skuggi veikinda væri ávallt skammt undan. Hún barðist við veikindi sín af miklum innri styrk. Hún gekk börn- um bróður míns í móðurstað og reyndist þeim jafngóð og sínum eigin börnum. Harmur þeirra er mikill og sorgin er þung. En margra ára bar- átta Siggu gegn ofureflinu er yfir- staðin og hún fær nú loks að hvíla í friði. Horfin frá okkur langt um aldur fram. Drottinn Guð blessi minningu hennar og styrki fjöskyldu hennar og vini sem syrgja einstaka konu. Við burtför þína er sorgin sár, af söknuði hjörtun blæða, en horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóh. frá Brautarholti.) Hanna Jenný, Kristján og dætur. Ég man alltaf þegar ég var pínulít- ill og fór og heimsótti hana Siggu frænku mína í Súðavík. Ég var nú ekki gamall þegar hún átti heima þar og man kannski ekki mikið eftir því en ég man að það var það besta sem ég gerði. Að vera með henni var alltaf jafn gaman. Hún Sigga var alltaf í góðu skapi, alltaf brosandi og hlæj- andi. Mér fannst gaman að vera ná- lægt henni. Hún og Gunni manni eignuðust líka bestu börn sem hægt er að hugsa sér, Evu og Mörtu. Mér hefur alltaf fundist ég svo svakalega náin þeim að stundum líður mér eins og þær séu einfaldlega systur mínar. Maður veit allavega hvaðan þær fá þetta góða skap sem þær eru alltaf í. Mér þótti alveg ólýsanlega vænt um hana Siggu og á eftir að sakna henn- ar rosalega mikið. Jón Gunnar. „Er hún þá frænka mín líka?“ spurði ég þegar uppáhaldsfrændi minn giftist Sigríði Halldórsdóttur. Svarið olli mér miklum vonbrigðum. Nei, en í mínum huga ákvað ég að hún væri það samt. Þegar Sigga gift- ist honum Gunna frænda mínum milli jóla og nýárs 1973 var ég sex ára og fékk að fara með ömmu og afa í brúð- kaupið vestur í Hnífsdal. Sigga var glæsileg brúður sem heillaði alla upp úr skónum, hún var líka merkileg í mínum augum því hún sendi mér fyrsta sendibréfið sem ég fékk sem var ekki frá umferðarfræðslu lög- reglunnar. Það var kort með þakk- læti og mynd af þeim brúðhjónunum. Mér fannst Sigga „frænka“ vera eins og drottning og útblásinn af stolti stillti ég myndinni upp í hillu á meðal bangsa og leikfangabíla. Hún hélt vel utan um frænkuhlut- verkið og ræktaði það af alúð, sér- staklega þegar unglingsárin herjuðu hvað verst á mig. Við áttum margar góðar samræður um helstu vanda- málin sem tengdust þessu aldurs- skeiði mínu. Hún virtist hafa innsýn í sálarangist unglingsins og með létt- leika sínum og lífsgleði átti hún tölu- verðan þátt í að hjálpa mér í gegnum það tímabil. Hún átti einnig stóran þátt í næstu manndómsraun minni vestur í Súða- vík. Þar var Sigga verkstjóri í frysti- húsinu og eitt sumar var hún yfir- maður minn og leiðbeinandi. Þarna var annað ferðalag vestur sem greyptist vandlega í minni mitt. Mik- ið var gott að hafa kunnugleg andlit þeirra Gunna og Siggu á þessum nýja stað og enn á ný kunni Sigga lagið á mér. Hún bauð mér ávallt í sunnu- dagssteikina og yfirheyrði mig um ástamálin og gerði góðlátlegt grín að öllu saman. Hún var mér mikil stoð og stytta þetta tímamótasumar. Tíu árum síðar hringdi hún í mig út til London til að biðja mig að líta eftir Evu Hlín eldri dóttur sinni sem átti leið um stórborgina. Þarna var kær- komið tækifæri til að endurgreiða brot af þeirri umhyggju sem Sigga hafði sýnt mér á lífsleiðinni. Það er mikil eftirsjá að Siggu og þeir sem voru svo heppnir að fá að kynnast henni á lífsleiðinni koma til með að sakna hennar sárt. Dagur Gunnarsson. Hún Sigga hefur lagt aftur augun sín og fundið frið. Hvunndagshetja að vestan með mikinn vilja sem glímdi við erfitt krabbamein í sjö ár. Upphaf samskipta okkar vin- kvennanna var sameiginleg reynsla sem fólst í að hafa greinst með brjóstakrabbamein. Við vorum allar sannfærðar um að enda saman á elli- heimili, skemmta okkur og öðrum og drekka púrtvín og Baileys. En eng- inn sér fyrir framgang lífsins. Áfangasigrar Siggu á þessum bar- áttuárum voru margir og sýndu bet- ur en nokkuð annað mikla lífsgleði og lífsvilja hennar. Stórfjölskylda Siggu stór þétt við hlið hennar í hverju sem á gekk. Sigga kynntist honum Rikka og veitti börnum hans ástríki. Saman komu þau sér upp glæsilegu heimili í Hafnarfirði. Dætrum sínum veitti hún mikla ást og fékk að sjá þær dafna og þroskast. Ömmubarnið, dóttursonurinn, var augasteinninn hennar. Siggu auðnaðist að halda upp á fimmtugsafmælið sitt í faðmi fjöl- skyldu sinnar og vina þó sárþjáð væri. Hún hélt okkur Júllunum ógleymanlegt samsæti á heimili sínu fyrir fáeinum vikum þrátt fyrir að verulega hafi verið gengið á hið lík- amlega þrek en andinn var einbeittur og lífsviljinn skýr. Hún var fordóma- laus manneskja sem vildi lifa lífinu lifandi. Við erum þakklátar fyrir að hafa átt Siggu að vinkonu og við munum sakna hennar sárt en hún mun lifa áfram í hugum okkar og allra sem þekktum hana. Við sendum dætrum Siggu og fósturbörnum, litla ömmu- stráknum, Rikka og öllum ástvinum Siggu innilegustu samúðarkveðjur okkar. Blessuð sé minning Sigríðar Elísabetar Halldórsdóttur. Júllurnar: Elín María Guðjónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir. Minningabrotin hrannast upp síð- astliðna mánuði, á meðan þú, kæra vinkona mín, ert að njóta þess lífs sem líknin veitti þér. Þér fannst lífið yndislegt, það var vel hugsað um þig og þú heyrðir klukknahljóminn við heimili þitt frá nærliggjandi kirkju. En þig hefði langað til þess að geta leitt litla dóttursoninn þér við hlið að- eins lengur. Hann fékk að kynnast móðurömmu sinni fyrstu æviárin sín, lífslöngunin óx meðal annars hans vegna. Þau fræ sem þú náðir að sá í sálu hans munu fylgja honum um ókomin ár. Persónuleiki þinn ein- SIGRÍÐUR E. HALLDÓRSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.