Morgunblaðið - 03.12.2004, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 43
MINNINGAR
kenndist af ferskleika og glaðværð.
Þegar við kynntumst fyrir 33 árum,
ungar og fullar kátínu uppi í Hval-
firði, þá var eins og við hefðum alltaf
þekkst. Vestfirðingurinn með skarp-
ar eggjar háu fjallanna, meitlaðar í
einkenni sín og Borgfirðingurinn
með víðáttu dalanna og draum-
kenndu lautirnar í sínu farteski. Það
var eins og við hefðum ávallt þekkst,
áhugamálin runnu saman og húmor-
inn var líkur. Þú tókst þátt í lífi mínu
og í hugann kemur upp mynd af þér
með ungan frumburð minn í fanginu,
að sumarlagi þar sem grönn, létt og
kát, ung stúlka heldur á barni sem
virðist vera of stórt í faðmi hennar.
En hress og brosandi bauðst þú mér
vestur í Hnífsdal, á æskuheimilið þitt,
hjá Ingu Ingimars og Dóra Páls.
Kynni tókust fyrir þitt tilstilli við
eldri bróður þinn og mágkonu, Ingi-
mar og Kristínu Karls. Það var fyrir
þín orð að við Kristín urðum herberg-
isfélagar á Samvinnuskólanum í Bif-
röst árið 1973. Þá voru bróðir þinn og
eiginmaður minn árinu á undan í
skólanum og tilvalið að ég kynntist
mágkonu þinni. Fyrir þetta færðu
ævinlegar þakkir, þú stuðlaðir að vin-
áttukynnum innan stórfjölskyldunn-
ar. Hressileikinn ber þig áfram, þú
býrð í Hafnarfirði, tekur þig upp eftir
nokkur ár og ferð vestur á Súðavík
með Gunnari og föngulegum, tveim-
ur dætrum ykkar. Aftur kemur
minning í hugann, þá ertu stödd í
Hafnarfirði hjá Guðrúnu systur
þinni, varst á námskeiði fyrir verk-
stjóra í frystihúsi. En þú hafðir
stundað nám við Fiskvinnsluskólann
í Hafnarfirði og tekið verkstjórn.
Þegar halda skyldi vestur með flugi
var ekki flugveður að morgni og stórt
snjóflóð hafði fallið á Súðavík. Þar
var fjölskyldan þín og fyrst í stað
vissir þú ekki um afdrif hennar. Þetta
atvik reyndi verulega á persónustyrk
þinn, eins og allra nábúa þinna á
Súðavík. Fjölskyldan fluttist aftur í
Hafnarfjörðinn og við hittumst oftar
en heyrðumst ávallt í síma.
Þegar ég heimsótti þig í maí síðast-
liðnum, varstu mjög máttfarin en
persónuleikinn ferskur og brá fyrir
gráglettu þegar ég hafði á orði bakk-
elsið, sem fram var borið með
kaffinu. Jú, þú hélst það nú, að lítið
mál væri að skella í eins og eina tertu
og hlóst við. Augljóst var að þrek þitt
leyfði það ekki en umræðan varð
skemmtileg og hressandi. Sumarið
varð þér gott og ótrúlegur léttir
fylgdi raddblænum þegar þróttur
þinn jókst.
Persónur eins og þú, sameina
manneskjur með fæðingu sinni. Saga
fylgir hverri lítilli, nýrri manneskju
og þín ber einkenni trúmennsku og
heiðarleika. Með hvarfi þínu úr þessu
lífi sameinar þú á ný og aftur, fólk
sem lengi hefur ekki hist, ég hitti aft-
ur æskuvinkonur þínar sl. vor heima
hjá þér. Þær mun ég alltaf þekkja
eins og allt þitt fólk, sem þú hélst
stóra afmælisveislu núna 2. október
en þá steigstu inn í aldur hálfrar ald-
ar, engan gat órað fyrir því í vor þeg-
ar heilsu þinni hrakaði svo mjög. Þú
áttir eftir að halda veislu og sameina
fólk áður en yfir lyki.
Um leið og ég kveð þig hinstu
kveðju, kæra vinkona mín Sigga
Beta, votta ég dætrum þínum, dótt-
ursyni og tengdasyni samúð mína og
bið Guð um styrk þeim til handa eins
og öllum systkinum þínum, föður og
mágfólki. Rikka, sambýlismanni þín-
um, og börnum hans vottum við sam-
úð á mikilli sorgarstundu.
Steinunn Njálsdóttir
og fjölskylda.
Elsku Sigga vinkona, það er svo
sárt að þurfa að kveðja þig, þú varst
alltof ung til að deyja. Við erum búin
að eiga saman ótrúlega skemmtileg-
ar stundir síðan við kynntumst fyrst,
við smullum saman frá fyrsta degi
okkar saman í Sjólastöðinni. Við unn-
um saman, við töluðum saman, við
sungum saman, við dönsuðum saman
öll þrjú og við grétum saman. Við
munum alltaf hugsa um þig þegar við
spilum diskinn „Sigga alein heima“.
Það sem við „fíluðum í botn“ að
hlusta á þessi fallegu lög, lag númer
eitt í uppáhaldi var „Fyrsta ástin“
með B G og Ingibjörgu. Þá var dans-
að og sungið.
Öll þessi veikindi þín settu mark á
lífið og oft var erfitt, við vonum að
þér líði betur núna, elsku vinkona.
Við ræddum um dauðann eins og allt
annað og við ákváðum að það okkar
sem færi fyrst mundi bera kveðju til
hans Bjössa okkar sem fór úr
krabbameini eins og þú. Við vitum að
þú ert búin að því, ástarþakkir fyrir.
Það var alveg sama hvenær við
hringdum eða komum til að athuga
með þig, alltaf sagðir þú allt það
besta, ótrúlega dugleg kona.
Við munum alltaf sakna þín.
Elsku Eva og fjölskylda, Marta,
Rikki og börn, Halldór, Daggý, Stína
systir, Guðrún, Ingimar, Páll og allir
í þessari stóru og samheldnu fjöl-
skyldu, við sendum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Kveðja, þínir vinir
Erna Sigurbjörnsdóttir,
Þorvaldur Skaftason.
Kæra vinkona. Við viljum þakka
þér vináttuna sem verður okkur
ómetanleg og mun varðveitast þótt
við vinkonurnar höfum skilið við þig
um stund. Minningin um góða vin-
konu verður okkur leiðarljós um alla
framtíð.
Nú sitjum við saman og rifjum upp
allar stundirnar sem við áttum sam-
an. Þar var löngum hlegið dátt og
hent að mörgu gaman segir í kvæð-
inu Í Hlíðarendakoti eftir Þorstein
Erlingsson og er það lýsandi fyrir
okkar samverustundir enda vildi
helst engin okkar fara heim fyrr en
um síðir. Þú varst alltaf hress, alltaf
kát enda vildir þú lifa lífinu lifandi!
Þú hélst einkennum þínum allt til
enda. Félagsveran Sigga Beta sem
vildi ávallt gera gott úr öllu var ávallt
til staðar og allt til loka. Í veikindum
þínum sýndir þú mikið æðruleysi og
vildir enga vorkunnsemi. Eins og áð-
ur vildir þú enn lifa lífinu lifandi! Þú
hafðir þann kraft að horfa fram á
veginn og varst ótrúlega skapandi og
skildir eftir þig afar fallegt heimili.
Dæturnar þínar voru þitt stolt
enda einstaklega fallegar og vel af
Guði gerðar. Þær hugsuðu líka af-
skaplega vel um þig í þínum veikind-
um. Minning þín mun lifa í þeim.
Við vinkonur þínar sem eftir
stöndum erum ríkari fyrir að hafa átt
þig að vinkonu. Þú hefur kennt okkur
að lífið er ekki sjálfsagt heldur er það
einstök Guðs gjöf sem skal varðveita
og þakka fyrir á hverjum degi.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Dætrum Siggu og fjölskyldunni
allri sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Þínar vinkonur,
Guðrún Elísa, Hrafnhildur,
Helga, María og Guðrún Helga.
Enn og aftur er höggvið stórt
skarð í ’54-árganginn á Ísafirði og
Hnífsdal. Nú er látin kær skólasystir
okkar Sigríður Elísabet – eða Sigga
Beta eins og við kölluðum hana alltaf,
en hún er fjórða úr okkar árgangi
sem fellur frá, en áður eru látin Ás-
rún Ben., Sævar Ægis og nú í sumar
lést hann Rabbi okkar Jóns.
Við sameiningu Ísafjarðar og
Hnífsdals varð okkar árgangur
þremur ungmennum ríkari er þau
Sigga Beta, Maja Friðriks og Hall-
dór Antons bættust í hópinn. Má
segja að þessi nýkomnu ungmenni
hafi smollið inn í hópinn eins og þau
hefðu verið með frá byrjun í barna-
skóla. Þessi árgangur hefur staðið
einstaklega þétt saman, verið sam-
heldinn og vinaböndin sterk, margt
verið brallað í gegnum tíðina. Eftir
gagnfræðaskólann fór fólk hvert í
sína áttina út í lífið en aldrei skildu
leiðir því við höfum hist reglulega,
haldið upp á skólaafmæli og stóraf-
mæli saman sem hafa verið í minnum
höfð. Eins og þegar við árgangurinn
héldum upp á fertugsafmælið saman
þá bjó Sigga Beta í Súðavík með
Gunnari Finns, fyrri manni sínum,
ásamt dætrunum Evu og Mörtu. Þá
var farið í sögufræga rútuferð sem
endaði í heimsókn hjá Siggu sem var
reyndar á fundi en þá gerði árgang-
urinn sér lítið fyrir og gerði hústöku
á meðan beðið var eftir henni. Stólar
og borð voru borin út í garð í góða
veðrinu, árgangurinn bauð sjálfum
sér upp á veitingar sem teknar voru
traustataki. Að lokum kom Sigga
heim og var henn allbrugðið og las
hún hraustlega yfir hausamótunum á
skólasystkinum sínum, en brosti um
leið út í annað og hafði lúmskt gaman
af. Henni og okkur hefur orðið tíð-
rætt um þessa frægu heimsókn og er
enn verið að vitna í hana og nú síðast
þegar ein skólasystirin að vestan
heimsótti hana tveimur dögum fyrir
andlát hennar.
Sigga Beta var verkstjóri hjá
Hraðfr. Frosta í Súðavík í mörg ár,
og fetaði hún þar í fótspor föður síns
Halldórs Páls, en hann var verkstjóri
til fjölda ára í Hraðfr. í Hnífsdal áður
en hann flutti suður. Sigga flutti síð-
an með fjölskyldu sína til Hafnar-
fjarðar.
Sigga Beta var afskaplega jákvæð,
hressileg, glaðleg og hrókur alls
fagnaðar er við hittumst og var stutt í
skopið og kímnina, var hún vinur vina
sinna.
Nú er komið að kveðjustund, og
við skólasystkinin eigum eftir að
sakna dýrmætrar skólasystur en
jafnframt getum við yljað okkur við
fallegar minningar og eigum örugg-
lega eftir að rifja þær upp um ókomin
ár. Guð gefi þér frið, elsku Sigga,
þökkum þér vináttu og tryggð í gegn-
um árin.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gafstu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibj. Sig.)
Elsku Eva, Marta og ástvinir
Siggu Betu, við skólasystkinin send-
um ykkur okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum að Guð gefi ykk-
ur styrk.
Árgangur ’54 Ísafirði.
Leggur ósinn fenna fjöll,
fölnar rós og stráin.
Vonarljósin eru öll
eins og rósin dáin.
(B. J.)
Öllum aðstandendum Siggu
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðrún Birna (Bidda)
og fjölskylda.
HINSTA KVEÐJA
Minningarkort
570 4000
Pantanir á netinu: www.redcross.is
Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands
sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að
takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum.
Þegar á reynir
Rauði kross Íslands
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.iswww.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KRISTJANA GUÐLAUGSDÓTTIR
frá Sandbrekku,
Fáskrúðsfirði,
verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju
laugardaginn 4. desember kl. 13.30.
Jens Pétur Jensen,
Sigurður Jensen, Herdís Larsdóttir,
Aðalheiður Jensen,
Vilhelm Jensen, Linda Rut Jónsdóttir,
Fanney Dögg Jensen
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUÐFINNUR GRÉTAR AÐALSTEINSSON,
Hlíðarvegi 6,
Siglufirði,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 27. nóvem-
ber sl., verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 4. desember kl. 14.00.
Steinfríður Ólafsdóttir,
Róbert Guðfinnsson, Steinunn R. Árnadóttir,
Erla H. Guðfinnsdóttir, Gunnlaugur S. Guðleifsson,
Gretar Guðfinnsson, Valdís M. Stefánsdóttir
og barnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG ÞÓRARINSDÓTTIR,
Víðihlíð,
Grindavík,
sem lést sunnudaginn 28. nóvember, verður
jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn
4. desember kl. 14.
Ingimar Magnússon,
Ragnar Magnússon, Rannveig Randversdóttir,
Þórður Magnússon, Sjöfn Ísaksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar eftir hádegi í dag, föstudaginn
3. desember, vegna útfarar STEFÁNS REYNIS ÁSGEIRSSONAR.
Ásgeir Einarsson ehf.,
Garðabæ.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
EINAR ARNÓRSSON
verkfræðingur,
Langagerði 11,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 6. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er
bent á Blindrafélagið.
Inger Arnórsson,
Tór Einarsson,
Linda Einarsdóttir, Jóhann Gíslason,
Hannes Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.