Morgunblaðið - 12.12.2004, Side 1
Morgunblaðið/Ómar
FORSALA aðgöngumiða á leikritið Híbýli
vindanna hefur verið mjög góð, en verkið
verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 7.
janúar nk. Þegar hafa tæplega 4.000 mið-
ar selst og er uppselt á frumsýningu en
enn er hægt að fá eitthvað af miðum á
fyrstu sýningar og forsýningu 6. janúar.
„Það gengur mjög vel að selja á þessa
sýningu, fólk virðist bíða spennt eftir
henni,“ segir Guðrún Stefánsdóttir, miða-
sölustjóri í Borgarleikhúsinu. Hún þakkar
góða forsölu áhuga fólks á bókum Böðv-
ars Guðmundssonar, Híbýlum vindanna
og Lífsins tré, en leikritið byggist á bók-
unum. Hún segir einvalalið vinna að sýn-
ingunni og það spilli eflaust ekki fyrir
áhuga fólks á henni.
Híbýli vindanna
Hafa selt um
4.000 miða í
forsölu
Tímaritið og Atvinna í dag
Í takt við tímann? Því svara hvert
með sínum hætti: Stuðmenn
STOFNAÐ 1913 339. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ævintýri
Jagúars
Hello Somebody! Frábrugðin því
sem sveitin hefur áður gert | 65
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
PLAYSTATION II leikjatölvur eru upp-
seldar á landinu og á umboðsaðili ekki von
á að fá fleiri tölvur til landsins fyrir jól.
Sumar verslanir hyggjast þó reyna að
flytja sjálfar inn eitthvert magn af tölv-
unum og bjóða til sölu fyrir jól.
Ólafur Þór Jóelsson, vörustjóri tölvu-
leikja hjá Skífunni – sem er umboðsaðili
Playstation II á Íslandi, segir að síðustu
vélarnar á landinu hafi selst í þessari viku,
og alls hafi selst um 2.000 tölvur í nóv-
ember og desember. Hann segir að sama
ástand sé víðast hvar í heiminum, en ný
gerð af Playstation II kom á markað í nóv-
ember og hefur framleiðandinn ekki við
að framleiða tölvurnar, slík sé eftir-
spurnin.
Að sögn eins af viðmælendum Morgun-
blaðsins eru dæmi um að Playstation II
tölvur seljist á fjórföldu markaðsverði á
uppboðsvefnum Ebay, sem sé lýsandi fyrir
áhuga fólks á að kaupa vélarnar.
Leikjatölvur
uppseldar
BERNARD Kerik, fyrrverandi lög-
reglustjóri í New York, verður ekki
næsti heimavarnaráðherra Banda-
ríkjanna eins og tilkynnt hafði verið.
Hann hefur ritað George W. Bush
Bandaríkjaforseta bréf þar sem
hann greinir frá því að hann hafi
komist að raun um við eftirgrennsl-
anir sínar að barnfóstra, sem starf-
aði um tíma hjá honum, var ólögleg-
ur innflytjandi í Bandaríkjunum.
Ekki er nema vika liðin síðan Bush
tilkynnti um skipan Keriks. Þykir
ljóst að erfiðlega hefði gengið fyrir
hann að hljóta staðfestingu Banda-
ríkjaþings, einkum í ljósi þess að
bandaríska innflytjendastofnunin er
á forræði heimavarnaráðuneytisins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
barnfóstrumál valda nýjum ráð-
herraefnum erfiðleikum. Þau urðu
einnig Zoe Baird, sem Bill Clinton
vildi á sínum tíma skipa dómsmála-
ráðherra, að falli og sömuleiðis
Lindu Chavez, sem Bush vildi skipa
atvinnumálaráðherra 2001.
Fóstrumál urðu Kerik að falli
Washington. AP.
Reuters
Bush tilkynnti í síðustu viku að
hann hefði tilnefnt Bernard Kerik
sem heimavarnaráðherra.
EFTIRLITSSTOFNUN Evrópusambandsins á
sviði fjarskiptamála hyggst rannsaka verðlagn-
ingu farsímafyrirtækja í aðildarríkjum ESB á al-
þjóðlegum reikisamningum, þ.e. notkunarsamn-
ingum við erlend farsímafyrirtæki sem þá veita
aðgang að sínu farsímakerfi. Markmið rannsókn-
arinnar er að greina og lækka alþjóðlegt reiki-
verð en það þykir afar mismunandi eftir löndum.
Fulltrúar European Regulators Group (ERG)
greindu frá rannsókninni á föstudag en ERG er
samstarfsvettvangur allra fjarskiptaeftirlits-
stofnana í Evrópu; einnig landanna fjögurra sem
aðild eiga að EFTA, þ.e. Íslands, Noregs, Sviss
og Liechtenstein. Hefur öllum evrópskum far-
símafyrirtækjum nú verið sendur spurningalisti
þar sem þau eru innt svara um verðlagningu sína.
Lét Viviane Reding, sem hefur með fjarskipta-
mál að gera í framkvæmdastjórn ESB, hafa eftir
sér á föstudag að hún þekkti það af eigin raun
hversu dýrt það getur verið að nota farsímann í
útlöndum. „Hvort sem við erum að ferðast í
tengslum við viðskipti eða okkur til ánægju þá
hafa mörg okkar lent í því að fá óþægilega háan
símreikning þegar heim er komið,“ sagði hún.
Gert er ráð fyrir því að ERG skili af sér bráða-
birgðaniðurstöðum í maí á næsta ári og er ekki
talið útilokað að framkvæmdastjórn ESB setji
þak á verð reikisímtala í framhaldinu.
Gott fyrir íslenska neytendur
Tilskipanir ESB á sviði fjarskiptamála gilda á
Íslandi og nær rannsókn ERG til Íslands, sem
fyrr segir. Fengu fulltrúar Og Vodafone og Sím-
ans umræddan spurningalista afhentan á föstu-
dag, að sögn Hrafnkels V. Gíslasonar, forstjóra
Póst- og fjarskiptastofnunar.
Hrafnkell sagði listann þess eðlis að oft væri
farið fram á mjög viðskiptalega viðkvæmar upp-
lýsingar. „En ég held að ég sé ekki að ljóstra upp
neinum leyndarmálum þegar ég segi að íslensku
fjarskiptafyrirtækin tóku þessum lista fagnandi.“
Sagði Hrafnkell að verð vegna reikisamninga
væri tiltölulega viðunandi hér á landi en Íslend-
ingar sem notuðu síma sína erlendis lentu stund-
um illa í því, enda þá um að ræða reikisamninga
sem gerðir hefðu verið við farsímafyrirtæki í við-
komandi ríki. Sagði hann að íslensku farsímafyr-
irtækin teldu sig finna fyrir því að Íslendingar
settu hinn mikla kostnað vegna notkunar farsím-
ans erlendis oft fyrir sig. Almenn lækkun yrði því
ekki bara góð fyrir íslenska neytendur, heldur
myndi hún hugsanlega valda aukinni notkun
þeirra á farsímanum erlendis sem þýddi aukin
viðskipti fyrir íslensku farsímafyrirtækin.
Telur notkun farsíma
í útlöndum of dýra
Evrópusambandið rannsakar alþjóðlega reikisamninga
FILIPPSEYSK kona heldur á
barni sínu við sjávarsíðuna í
þorpinu Real í Quezon-héraði í
gær en fellibylur hafði leikið
byggð á þessu svæði mjög grátt.
Næstum 1.800 manns eru talin
hafa farist eða er saknað af völd-
um veðurofsa sem gengið hefur
yfir Filippseyjar síðustu dagana.
Reuters
Veður sem engu eirði
♦♦♦
DÓMSTÓLL á Sikiley dæmdi í gær
náinn samstarfsmann Silvios Berlu-
sconis, forsætisráðherra Ítalíu, til
níu ára fangelsisvistar fyrir tengsl
hans við ítölsku mafíuna. Dómstóll-
inn úrskurðaði einnig að maðurinn,
Marcello Dell’Utri, gæti aldrei
framar gegnt opinberu starfi.
Dell’Utri, sem á sæti í efri deild
ítalska þingsins fyrir flokk Berlu-
sconis, Forza Italia, hyggst áfrýja
dómnum.
Dómurinn féll aðeins degi eftir að
Berlusconi sjálfur var sýknaður af
ákæru um að hafa mútað dómara
fyrir 20 árum. Var sök dæmd fyrnd
í öðru mútumáli á hendur honum.
Dell’Utri var sakaður um að hafa
verið „sendiherra“ mafíunnar gagn-
vart viðskiptaöflunum í Mílanó frá
því á áttunda áratugnum og til
1995. „Dómurinn gegn Marcello
Dell’Utri jafngildir siðferðislegri
fordæmingu á Silvio Berlusconi,“
sagði Francesco Cossiga, fyrrver-
andi forseti Ítalíu.
Dæmdur
fyrir tengsl
við mafíuna
Róm. AFP.
Ráðgjafi Berlusconis