Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÍMAFYRIRTÆKIN SPURÐ Íslensku farsímafyrirtækin OG Vodafone og Síminn hafa fengið sendan spurningalista frá ERG, sam- starfsvettvangi allra fjarskiptaeft- irlitsstofnana í Evrópu, þar sem þau eru innt svara um verðlagningu sína í tengslum við alþjóðlega reikisamn- inga. Um er að ræða rannsókn ERG er tekur til allra farsímafyrirtækja í Evrópu en markmið hennar er að greina og lækka alþjóðlegt reikiverð. Bruni í Nóatúni Mikið tjón varð í verslun Nóatúns í JL-húsinu í eldsvoða í fyrrinótt, bæði vegna elds og reyks. Eldurinn virðist hafa kviknað í kjötvinnslu og eldhúsi inn af kjötborði verslunarinnar. Allar vörur eru ónýtar og óljóst hvenær verslunin verður opnuð á nýjan leik. Reykur barst á skrifstofur á efri hæð- um en tjón af hans völdum var ekki talið mikið. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóður greiðir lánveit- endum sínum um 41 milljarð króna umfram venjubundnar afborganir, vexti og verðbætur að mestu á síð- ustu mánuðum þessa árs og í upphafi næsta árs. Þessar uppgreiðslur eru að stærstum hluta til komnar vegna uppgreiðslna í húsbréfakerfinu vegna lækkunar vaxta og aukinnar sam- keppni um íbúðalán. Skilar féð sér alla leið? Misjafnt er hvort allt fé, sem góð- gerðarsamtök hér á landi safna, skil- ar sér til þeirra sem safnað er fyrir. Ástæður geta verið mismunandi. Sem dæmi má þó nefna að öll framlög til ABC barnahjálpar renna óskert til málefnisins, nema fjármunir sem sér- staklega er aflað til reksturs skrif- stofu. Kerik verður ekki ráðherra Bernard Kerik, fyrrverandi lög- reglustjóri í New York, hefur ritað George W. Bush Bandaríkjaforseta bréf og beðist undan því að verða næsti heimavarnaráðherra Banda- ríkjanna. Bush skipaði Kerik í emb- ættið í síðustu viku en á daginn hefur komið að barnfóstra, sem starfaði um tíma hjá Kerik, var ólöglegur innflytj- andi í Bandaríkjunum. Barghuti hættur við? Ísraelska útvarpið fullyrti í gær- morgun að eiginkona Marwans Barghuti, leiðtogi Fatah-hreyfingar Palestínumanna á Vesturbakkanum, myndi tilkynna síðar um daginn að Barghuti væri hættur við framboð í palestínsku forsetakosningunum 9. janúar nk. Barghuti afplánar nú margfaldan lífstíðardóm í ísraelsku fangelsi. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Dagbók 54 Umræðan 29/30 Víkverji 54 Forystugrein 34 Velvakandi 55 Umræðan 38/44 Staður og stund 55 Bréf 42 Menning 58/65 Hugvekja 44 Ljósvakamiðlar 66 Minningar 45/49 Veður 67 Auðlesið 53 Staksteinar 67 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl LYFJAFYRIRTÆKIÐ Merck Sharp & Dohme, framleiðandi Vioxx, hefur samþykkt að endurgreiða inn- kallað lyfið að fullu. Þetta þýðir að lyfjafyrirtækið hefur bæði fallist á að endurgreiða sjúklingum hlut þeirra í lyfjum, sem innkölluð hafa verið, og sömuleiðis hlut ríkisins. Þetta á þó ekki við um samhliða innfluttar pakkningar af lyfjunum. Lyfjafyrirtækið Merck ákvað í lok september að taka frumlyfið rofecox- ib (Vioxx) af markaði vegna of tíðra og hættulegra aukaverkana á æðar í hjarta og heila. Miklar umræður höfðu spunnist um aukaverkanir lyfs- ins austan hafs og vestan. Fulltrúar heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins og Trygginga- stofnunar ríkisins hafa undanfarið átt í viðræðum við forsvarsmenn Merck Sharp & Dohme og leiddu þær við- ræður til þess, eins og áður segir, að fyrirtækið féllst á að endurgreiða inn- kallað lyf að fullu. Ómögulegt er að segja á þessu stigi hve mikil endur- greiðslan verður vegna þessa lyfs. Sjúklingar skili lyfinu Heilbrigðisráðuneytið hvetur sjúk- linga til að skila ónotuðum birgðum af Vioxx í það apótek sem afhenti lyfið og fá endurgreiddan kostnað sinn. Þá hvetur heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið til að gætt skuli varkárni við notkun annarra coxib-lyfja sem efnafræðilega eru náskyld rofecoxib og hafa enn markaðsleyfi hér á landi. Merck Sharp & Dome endurgreiða Vioxx að fullu ÞAÐ stefnir í að sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli gefi út fjórfalt fleiri ákærur á þessu ári en hann gerði í fyrra. Fjölgun hefur orðið í flestum brotaflokkum en einna mest í brotum gegn útlendingalögum og í fíkniefnamál- um. Þá hefur tollalagabrotum og fjársvikamálum fjölgað umtalsvert. Jóhann R. Benediktsson sýslumaður á Keflavíkurflug- velli segir að skýringin á fjölgun brota sé margþætt. Með nýjum útlendingalögum í vor hafi ýmislegt verið gert refsivert sem ekki var refsivert áður, auk þess sem nú sé tekið harðar á brotum gegn útlendingalögum og meiri áhersla sé lögð á rannsókn slíkra mála. Þar að auki rann- saki embættið og ákæri í auknum mæli vegna fíkniefna- mála sem koma upp á flugvellinum, en áður var algeng- ara að slík mál væru rannsökuð af lögreglunni í Reykjavík. „Fjölgun mála skýrist líka af aukinni flug- umferð og fjölgun farþega sem fara um flugvöllinn,“ seg- ir Jóhann. Vegabréfið talið falsað? Þrítugur Írani er nú í haldi lögreglunnar á Keflavík- urflugvelli en hann framvísaði ítölsku vegabréfi, sem tal- ið er falsað, við komuna til landsins á fimmtudag. Skammt er síðan Lithái var handtekinn með fölsuð skil- ríki fyrir annan Litháa í fórum sínum. Hlaut hann 30 daga fangelsi og hefur hann hafið afplánun dómsins. Frá því maðurinn var handtekinn og þar til dómur féll liðu tólf dagar. Jóhann segir að þetta endurspegli þann hraða sem þarf að vera á meðferð þeirra sakamála þar sem út- lendingar sem ekki búa hér á landi eiga í hlut. Maðurinn sem átti að taka við skilríkjunum hefur verið yfirheyrður og er mál hans í rannsókn. Fleiri mál hjá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli Fjórfalt fleiri ákærur en í fyrra HLUTI af fastaflota Atlantshafs- bandalagsins á Atlantshafi er nú í höfn á Íslandi og gefst almenn- ingi kostur á að skoða tvær frei- gátur flotans, hina hollensku Witte de With og hina þýsku Lu- beck. Hollendingarnir ætla að bjóða gestum upp á heitan súkku- laðidrykk. Í fastaflotanum eru að jafnaði sex til tíu skip, freigátur, tund- urspillar og birgðaskip sem vinna saman sem fjölþjóðleg flotadeild í allt að sex mánuði í senn. Skip- unum er þá skipt út og önnur koma í staðinn. Undanfarnar vik- ur hafa skipin verið á umfangs- mikilli flotaæfingu undan austur- strönd Bandaríkjanna og Kanada en eru nú á leið heim fyrir jólin. Frá 2001 hefur meginstarf flot- ans falist í eftirliti á Miðjarðar- hafi í tengslum við baráttuna gegn hryðjuverkum. Yfirmaður fastaflotans, hol- lenski aðmírállinn Leon Bruin, segir að sjóliðar hafi farið um borð í rúmlega 50 skip á Miðjarð- arhafi og skoðað farm þeirra. Að- spurður segir hann að ýmislegt hafi fundist en hvað það er ná- kvæmlega sé leyndarmál. Flotinn geti þó ekki hreykt sér af því að hafa fundið stórar sendingar af vopnum, sprengiefni eða öðru slíku. Bruin segir að þetta sé eins konar lögreglustarf, ef lögregla væri aldrei á götum úti myndi af- brotum að öllum líkindum fjölga. Hann segir að hlutverk flotans sé í auknum mæli að gæta landhelgi og koma í veg fyrir smygl. Á næstu árum verði flotinn að laga sig að þessu nýja hlutverki, m.a. með breytingum á skipakosti því stór herskip henti ekki endilega best til þessara starfa. Hollenska freigátan Witte de With heitir eftir frægum hol- lenskum aðmíráli sem m.a. barð- ist við flota Spánverja og Breta á 17. öld. Í áhöfn eru tæplega 200 manns. Almenningi er boðið að skoða skipin, sem liggja við Sunda- bakka, í dag, sunnudag, frá klukkan 13.30–16. Þrjár freigátur úr fastaflota NATO við Sundabakka Við lögreglustörf á freigátum Morgunblaðið/Þorkell Hollenski flotaforinginn Leon Bruin segir að hlutverk flotans felist í aukn- um mæli í því að gæta landhelgi og koma í veg fyrir smygl. SAMFYLKING og Vinstri grænir fengju átta borgarfulltrúa, Sjálf- stæðisflokkur sex og Frjálslyndi flokkurinn einn ef kosið yrði til borgarstjórnar nú, en Framsókn- arflokkinn vantar aðeins meira fylgi til að ná inn manni. Þetta kemur fram í könnun sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð- isflokks lét gera miðað við þær for- sendur að þeir flokkar sem eiga að- ild að R-lista byðu ekki fram saman. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að Sjálfstæðisflokk- urinn fengi 40,8% atkvæða ef kosið væri nú, Samfylking fengi 31,7%, Vinstri grænir fengju 17,9%, Frjáls- lyndi flokkurinn fengi 5,1% en Framsóknarflokkurinn 4,4%. Sam- kvæmt þessu gætu því Samfylking og Vinstri grænir myndað tveggja flokka meirihluta. Athygli vekur að mikill munur er á fylgi flokkanna eftir hverfum, t.d. eru Vinstri grænir með 34,9% fylgi í Vesturbæ og miðborginni, en að- eins 8,6% í Grafarvogi og Árbæ. Könnunin var gerð af IMG Gallup fyrir borgarstjórnarflokk Sjálf- stæðisflokksins, og fór fram 10.-29. nóvember. Fjöldi svarenda var 558 og svarhlutfallið var 62,5%. Framsókn með engan mann Í LESBÓK í gær birtist listi yfir þá myndlistarlistamenn sem fyrirséð er að taki þátt í myndlistarþætti Listahátíðar í Reykjavík næsta vor. Auk þeirra sem þar voru nefndir er ljóst að þeir Carsten Höller og Gabriel Kuri munu taka þátt í há- tíðinni. Beðist er velvirðingar á því að nöfn þeirra skuli hafa fallið nið- ur af listanum í gær. Höller og Kuri á listahátíð SEÐLABANKINN fagnar útspili Fjármálaeftirlitsins, sem boðar hert eftirlit með starfsemi lána- stofnana vegna aukinna fast- eignalána og útlána sem fela í sér markaðsáhættu. Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri segir þessar aðgerðir hvetja lánastofn- anir til varfærni og geta dregið úr áhættusömum útlánum. „Þetta á að gera lánamarkaðinn betri og öruggari,“ segir Birgir Ís- leifur. Hann segir þetta þó fyrst og fremst varúðartæki en ekki pen- ingastjórnunartæki, og muni því ekki hafa áhrif á það hvernig Seðla- bankinn hagar peningastjórnun sinni. Fagna útspili Fjármála- eftirlitsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.