Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EF MJÓLKURBÚ Flóamanna (MBF) og Mjólk-
ursamsalan (MS) sameinast verður sameinað fé-
lagið með um tvo þriðju hluta allrar mjólkur sem
framleidd er á landinu á sinni könnu, en sameining
félagana er þó ekki háð samþykki Samkeppnis-
stofnunnar.
Magnús H. Sigurðsson, stjórnarformaður MS,
segir að þar sem mjólkuriðnaðurinn heyri undir
búvörulög þurfi ekki samþykki Samkeppnis-
stofnunar áður en þessi félög sameinast, þrátt fyr-
ir mikla markaðshlutdeild. Hann bendir á að bú-
vörulögum hafi til að mynda verið breytt í
meðförum Alþingis í vor í þá veru að afurðastöðv-
um í mjólkuriðnaði er heimilt að sameinast eða
gera með sér samkomulag um verkaskiptingu
milli mjólkursamlaga, og hafa með sér samstarf til
þess að halda niðri kostnaði í framleiðslu.
„Við höfum þessa heimild vegna þess að mjólk-
uriðnaðurinn hefur þessa sérstöðu,“ segir Magn-
ús, og bendir á að fram til þessa hafi verið hægt að
líta á MBF og MS sem nokkurskonar fyrirtækja-
samsteypu og því sé sameiningin ekki svo stórt
mál.
„Mjólkuriðnaðurinn hefur tekið á sig þær
hækkanir sem hann hefur átt að fá í fyrra og einn-
ig núna, þannig að þarna er ástæðan fyrir því að
við þurfum að horfa fastar en áður til hagræðing-
armöguleika. Auk þess er varnagli í búvörulögum
um það að ef alþjóðasamningar breytast og opnað
verður fyrir flæði landbúnaðarvara milli landa þá
getur þurft að taka upp samninginn [um verð-
myndun á mjólk] til þess að geta svarað þess-
háttar. Þannig að við þurfum að laga okkur meira
að því sem umhverfið kallar á,“ segir Magnús.
Félögin sameinuð í apríl?
Hagræðingin af sameiningu yrði „veruleg“, að
sögn Magnúsar, en hann sagði ekki hægt að fara
með ákveðnar upphæðir í því sambandi. „Það er
þó það mikið að sækja að ekkert vit er í því að láta
sem ekkert sé.“
Það ferli er leiða kann til sameiningar MBF og
MS er nú hafið, og munu stjórnir félagana taka af-
stöðu til sameiningar í mars. Magnús segir að ef
allt gangi að óskum og sameiningin fái brautar-
gengi í báðum stjórnum megi búast við því að sam-
einað félag undir einni stjórn geti tekið til starfa
um eða eftir miðjan apríl nk.
Hugsanleg sameining Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamsölunnar
Með 2/3 allrar mjólkurvinnslu
Lögðu hald á
600 grömm af
kannabisefnum
LÖGREGLAN í Borgarnesi lagði
hald á rúmlega 600 grömm af
þurrkuðum kannabisefnum, auk
nokkurra gramma af amfetamíni,
við húsleit á sveitabæ í Borgar-
byggð á föstudag. Maður á fertugs-
aldri var handtekinn vegna máls-
ins, og var hann yfirheyrður í
gærkvöldi. Hann mun hafa komið
við sögu lögreglu áður.
Húsleitin var gerð í kjölfar þess
að lögreglan stöðvaði bifreið
mannsins og grunur vaknaði um að
hann væri undir áhrifum fíkniefna.
Við leit í bílnum fannst lítilræði af
kannabisefnum. Að sögn lögreglu
virðist sem kannabisefni hafi verið
ræktuð á sveitabænum því hald var
lagt á gróðurlampa og annan búnað
til ræktunar á kannabisefnum.
Einnig var lagt hald á skotvopn
sem maðurinn hafði ekki leyfi fyrir,
tvær haglabyssur og kraftmikinn
riffil auk nokkurs magns af skot-
færum. Málið telst að mestu upplýst
að sögn lögreglu.
Fíkniefni fund-
ust við húsleit
LÖGREGLAN á Akranesi
fann um 10 grömm af hassi
og 13 grömm af amfetamíni
við húsleit í íbúðarhúsi í
bænum í fyrrakvöld.
Íbúi í húsinu, 24 ára gam-
all karlmaður, var handtek-
inn og viðurkenndi hann við
yfirheyrslur að eiga fíkniefn-
in.
Málið telst upplýst og hef-
ur manninum verið sleppt úr
haldi.
Fögnuðu svo mik-
ið að lögreglan
var kölluð út
FAGNAÐARLÆTIN í fjórum
stuðningsmönnum Liverpool, sem
voru að horfa á leik liðsins við
gríska liðið Olympiakos í Meist-
aradeild Evrópu á miðvikudag,
voru svo mikil að kona, sem stóð
fyrir utan íbúð þeirra á Baróns-
stíg, taldi að eitthvað gruggugt
væri á seyði og kallaði ítrekað eft-
ir hjálp. Vegfarendur hringdu þá í
lögreglu og óskuðu eftir aðstoð
hennar. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni í Reykjavík voru
tveir lögreglubílar sendir á stað-
inn með fjórum lögreglumönnum
innanborðs til að grennslast fyrir
um hvað væri á seyði. Ekki var
talin þörf á frekari afskiptum lög-
reglu.
Rétt er að taka fram að fótbolta-
leikurinn var æsispennandi.
Olympiakos skoraði í fyrri hálfleik
og varð Liverpool því að skora
þrívegis til að komast áfram. Það
tókst Liverpool og því líklega ekki
að undra þótt fagnaðarlæti stuðn-
ingsmanna liðsins væru talsverð.
VEGNA framkvæmda við Vestur-
landsveg milli Víkurvegar og Skar-
hólabrautar hefur umferð verið
hleypt á eystri akbraut nýja vegar-
ins. Vegagerðin biður vegfarendur
um að sýna sérstaka varúð og tillits-
semi á meðan framkvæmdirnar
standa yfir, en vegfarendur mega
búast við truflun vegna þeirra.
Umferð um Úlfarsfellsveg var
einnig breytt, en hún mun nú tengj-
ast hringtorgi nýja vegarins nokkru
norðar við núverandi tengingu. Með-
an unnið er að tengingu eystri ak-
brautar nýja vegarins við gamla veg-
inn á móts við spennustöðina Korpu,
sem mun taka nokkra daga, mun
umferð þó fara um bráðabirgðaveg á
því svæði.
Morgunblaðið/Golli
Vegfarendur hvattir til að
sýna varúð og tillitssemi
JARMANDI smálamb var ekki það
sem Björgvin Viðarsson á Krauna-
stöðum í Aðaldal átti von á þegar
hann kom í fjárhúsin í gærmorg-
un. Þessi burður kom óvænt, en
það var forystuærin Krúna sem
var komin með nýfæddan lamb-
hrút í einni krónni, hvítan með
stóran svartan blett á bakinu.
Björgvin segir þetta mjög
óvanalegt í desember, en móðir
Krúnu bar tvö ár í röð í janúar
fyrir nokkrum árum svo eitthvað
er það í ættinni.
Forystuféð á Kraunastöðum á
sér langa sögu, en þangað kom ein
forystuær frá Núpi í Öxarfirði í
fjárskiptunum 1944 og er stofninn
í dag allur út af henni og ættlið-
irnir orðnir margir í beinan ær-
legg.
Með minnkandi vetrarbeit hefur
forystufé fækkað mjög í sveitum
en afi Björgvins, Jón Ólafsson,
hefur alla tíð haft mikinn áhuga á
þessum stofni og í fyrra voru 15
forystukindur á Kraunastöðum. Í
vetur eru þær aðeins færri, en litli
jólahrúturinn var ágæt viðbót við
stofninn.
Krúna
bar í des-
ember
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Björgvin Viðarsson með Krúnu og lambhrútinn.
Laxamýri. Morgunblaðið.
Samskiptavandi lækna-
ráðs og stjórnenda LSH
Vonar að
málið leysist
innan sjúkra-
hússins
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra vonar að samskiptavandamál
læknaráðs Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) og stjórnenda
sjúkrahússins verði leyst innan
sjúkrahússins og það sem fyrst.
Honum hafa borist bréf frá báðum
aðilum, þ.e. formanni læknaráðs og
forstjóra sjúkrahússins, og hefur
málið nú til skoðunar.
Í bréfi læknaráðs er farið fram á
það að ráðherrann hlutist til um að
farið sé að lögum um heilbrigðis-
þjónustu hvað varði hlutverk og
starf læknaráðsins. Kemur fram í
bréfinu að ráðið telji að stjórnendum
spítalans sé skylt að leita álits ráðs-
ins á öllum helstu málum er varði
læknisfræðileg atriði í rekstri
sjúkrahússins og einnig á öllum
helstu málum er varði læknisþjón-
ustu sjúkrahússins. Telur ráðið að
miklir meinbugir séu á því að stjórn-
endur hafi uppfyllt þessa lagaskyldu.
Í bréfi forstjóra spítalans, sem í
kjölfarið var sent ráðherra, er ásök-
unum formanns læknaráðs vísað á
bug og þær sagðar rangar og órök-
studdar.