Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Reynir Ragnarsson starfaðilengi í lögreglunni í Vík íMýrdal, en er nú kominn á eftirlaun. Hann lærði ungur að fljúga og aflaði sér síðar atvinnuréttinda. Um tíma átti hann tveggja hreyfla flugvél og annaðist útsýnisflug, sjúkraflug og leiguflug í hjáverkum. Hlaup kom skyndilega í Jökulsá á Sólheimasandi hinn 18. júlí 1999. Líkur eru taldar á að þá hafi orðið lítið gos undir jöklinum, en ekki náð að bræða sig upp úr honum. Reynir hafði flugvél til umráða og flaug strax yfir jökulinn. Hann sá hvar sig- ketill hafði myndast, þar sem hitnað hafði undir. „Síðan hef ég flogið nokkuð reglu- lega yfir Mýrdalsjökulinn,“ segir Reynir. „Raunvísindastofnun Há- skóla Íslands bað mig að fylgjast með þessu. Ég reyni að fara því sem næst hálfsmánaðarlega. Stundum fer ég þéttar og stundum líður aðeins lengra á milli. Það fer eftir veðri. Ef það er mjög bjart stenst ég sjaldnast freistinguna að kíkja á þetta.“ Þegar veðrið er sérstaklega gott tekur Reynir lengri hring og flýgur einnig yfir Eyjafjallajökul. Hann sit- ur vinstra megin í flugvélinni og tek- ur ljósmyndir út um rennilúgu sem hann hefur útbúið á hliðargluggann. Flugleiðin er alltaf sú sama, rang- sælis kringum jökulinn og í um 1.000 feta (um 300 m) hæð yfir jökul- hjarninu. Sigkatlarnir í Kötluöskj- unni hafa hver sitt númer, Reynir skoðar hvern og einn og tekur mynd- ir. Honum þykir best að fara rétt eft- ir sólarupprás, þá fellur sólarljósið skáhallt eftir jöklinum. Sólarhæðin ræður því hve áberandi skuggarnir í sigdældunum verða. Við myndatök- urnar leitast Reynir við að hafa þekkt kennileiti í bakgrunni sem auðveldar að átta sig á staðsetning- unni. „Ef ég sé eitthvað sem mér þykir frábrugðið því venjulega eða athygl- isvert sendi ég myndir af því inn á vísindavefinn. Þetta er samráðsvefur vísindamanna í sambandi við Kötlu. Ég tek 50 til 100 myndir í hverri flugferð. Eftir árið brenni ég allar myndirnar á disk og sendi til dr. Magnúsar Tuma Guðmundssonar á Raunvísindastofnun,“ segir Reynir. Flugvélin sem hann notar til eft- irlitsflugsins, TF-FAR, er eins hreyfils Aero Commander, fjögurra sæta, með 150 ha Lycoming-hreyfli, árgerð 1968. Reynir á hana með ná- granna sínum, sem einnig á heima í Vík. Vélin er geymd í flugskýli við flugvöllinn austur undir Höfða- brekkum. En skyldi flugvélinni vera óhætt ef gysi? „Hún er eiginlega í hættu þar sem hún er, í svokölluðum Höfðabrekku- jökli,“segir Reynir. „Þar strandaði gríðarmikil jakahrönn sennilega í gosinu 1721 eða 1755. Jakahrönnin var kölluð Jökullinn eða Höfða- brekkujökull og festist nafnið við svæðið. Hluti sandhólanna var jafn- aður og gerður flugvöllur. Hólarnir eru helsta vörnin fyrir því að flóð- vatn komist að austan hingað til Vík- ur.“ Reynir segist ekki hafa merkt neinar stórbreytingar á Mýrdals- jökli að undanförnu. Ekkert sem hann myndi telja fyrirboða þess að eitthvað væri í aðsigi. „Seinnipart sumars, þegar snjórinn fer að hlána, koma oft í ljós sprungur í kringum sigkatlana. Þær eru mismiklar milli ára. Sigkatlarnir verða líka mis- djúpir.“ Auk eftirlits úr lofti með jöklinum starfar Reynir einnig fyrir vatna- mælingar Orkustofnunar. Hann kannar leiðni og rennsli í Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi. Það eft- irlit er til viðbótar eftirliti með sjálf- virkum mælum. Vel æfð viðbrögð Auk þess að starfa í lögreglunni um árabil er Reynir í björgunar- sveitinni Víkverja og í svæðisstjórn hennar. Hann segir að ein fyrsta við- bragðsáætlun Almannavarna rík- isins, eins og starfsemin hét þá, hafi verið gerð fyrir Vík í Mýrdal vegna mögulegs Kötlugoss. „Þá var ég for- maður björgunarsveitarinnar og vann að gerð áætlunarinnar með Guðjóni Petersen, þáverandi fram- kvæmdastjóra almannavarna, og nefndinni sem hér var. Áætlunin gengur út á að rýma láglendið hér í Vík, ef kemur til goss.“ Reynir segir mikið hafa breyst síðan fyrsta áætlunin var gerð, ekki síst hvað varðar alla tækni. „Þá var ekki einu sinni kominn sjálfvirkur sími, heldur var hér símstöð sem var lokað á nóttunni og sveitasímar. Það voru settar upp nokkrar loftvarna- sírenur til að vara fólk við ef eitthvað gerðist. Einnig var sérstök vakt á Kötlu í gegnum lóranstöðina á Reyn- isfjalli, því þar var vakt allan sólar- hringinn. Settur var strengur inn undir jökli. Hann átti að slitna ef kæmi hlaup og þá hringdi bjalla í lór- anstöðinni. Strengurinn vildi slitna vegna hruns, bæði grjóts og snjó- flóða, og bjallan hringdi oft og gaf falska viðvörun.“ Nú er tæknin öll önnur. Katla er vöktuð með jarðskjálftamælum og landmælingum auk eftirlits úr lofti. Reynir er á úthringilista hjá Neyð- arlínunni og fær sjálfkrafa boð ef dregur til tíðinda. Til er viðbragðs- og rýmingaráætlun fyrir Vík sem heimamönnum er vel kunnugt um og hefur verið æfð. Reynir segir nokkur dæmi þess að falskar tilkynningar hafi komið um Kötlugos. Stundum hafi ekki þurft meira til en smávægis jarð- skjálftakipp til þess að hleypa af stað viðbúnaðarstigi. „Einu sinni varð snarpur skjálfti hér og almanna- varnanefndin kölluð saman. Ég var þá í nefndinni. Þá var hringt og sjón- arvottur taldi sig sjá mökk. Skýja- myndun er þannig að þau geta stigið hratt upp norður af jöklinum. Það hefur gerst oftar en einu sinni að fólk hefur talið sig sjá mökk bólstrast upp af jöklinum. Menn hafa jafnvel talið sig sjá flóð koma niður skriðjök- ulinn, en allt hafa þetta reynst vera falskar aðvaranir,“ segir Reynir. En er Katla mjög nálæg í daglegri til- veru Mýrdælinga? „Mér finnst fólk yfirleitt ekki ótt- ast Kötlu,“ segir Reynir. „Það hefur ekki orðið manntjón hér af hennar völdum, svo maður viti um. Einu sinni fyrir löngu fórust tvær mann- eskjur af völdum eldingar úr gos- mekkinum. Ég er helst á því að eld- ingarnar séu það sem maður þyrfti helst að óttast við gos.“ Dreymir Kötlugos Reynir nefnir að nú sé langt um liðið síðan Katla gaus. Þá hafi húsa- kostur að mestu verið torfbæir. Hann segist spyrjandi yfir því hvernig færi ef gysi og eldingunum slæi niður í járnklædd hús. „Þegar mökkinn leggur yfir virðist gríð- armikið rafmagn í honum. Þorsteinn Magnússon í Þykkvabæjarklaustri lýsti því mikla rafmagni sem fylgdi gosmekkinum 1625, bæði eldingum og stöðurarafmagni.“ En hvernig nágranni er Katla? „Ég held að hún sé spennandi ná- granni. Maður ber kannski ótta- blandna virðingu fyrir henni. Ég segi fyrir mig, þótt margir telji það nán- ast guðlast, að mig langar að lifa það að sjá Kötlugos. Mig hefur oftar en einu sinni dreymt Kötlugos. Það hef- ur verið æði raunverulegt, að mér hefur fundist. Meira að segja dreymdi mig einhvern tímann Kötlu- gos og var þá að horfa á hlaupið í draumnum og hugsa um að þetta væri alveg eins og mig hafði dreymt. Þetta var þá tvöfaldur draumur!“ Katla er spennandi nágranni Ljósmynd/Reynir Ragnarsson Horft austur yfir Mýrdalsjökul, Goðabunga í forgrunni. Myndin var tekin í könnunarflugi yfir jökulinn 27. nóvember síðastliðinn. Reynir Ragnarsson í Vík í Mýrdal flýgur reglulega á eigin flugvél yfir Kötlu og aðgætir hvort sjáanlegar breytingar hafa orðið á eldstöðinni. gudni@mbl.is Morgunblaðið/RAX Reynir Ragnarsson við flugvélina TF-FAR. Hann flýgur á henni yfir Mýrdals- jökul og stundum Eyjafjallajökul til eftirlits með jöklunum. Nágrannar Kötlu Mýrdælingar eru næstu nágrannar Kötlu og hafa lært að lifa með eldstöðinni, sem sumir telja eina þá hættulegustu hér á landi. Mýrdælingar láta það þó ekki raska ró sinni. Guðni Einarsson og Ragnar Axelsson fóru í Mýrdalinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.