Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 23
herberginu. Við göngum hlið við hlið inn í ráðstefnuherbergið. Þeg- ar ég ætla að taka hlífina af ritvél- inni, segir Foringinn: „Takið þér frekar hraðritunarblokk.“ Ég sest umkomulaus við stóra borðið og bíð. Hitler stendur við langhliðina á borðinu eins og hann er vanur, styður báðum höndum á borðið og starir á auða borðplötuna sem nú er ekki lengur þakin landabréfum og kortum af borgum. Ef stein- steypan myndi ekki virka eins og málmþynna og endurkasta mis- kunnarlaust og með miklum látum hverjum einasta skothvelli, hefði ekkert heyrst í margar sekúndur nema andardráttur tveggja manna. Þá sendir Foringinn fyrstu orðin skyndilega út í herbergið: „Pólitísk erfðaskrá mín.“ Hönd mín titrar eitt andartak. Skyndilega er ég aft- ur verulega spennt. Nú kemur loksins það sem við höfum verið að bíða eftir dögum saman: Skýringin á því, hvað gerðist, játning, jafnvel sjálfsásökun, hugsanlega réttlæt- ing. Í þessu síðasta opinbera skjali Þriðja ríkisins hlýtur sannleikurinn að birtast, í formi játningar manns sem hefur engu að tapa lengur. Ráðherrar tilnefndir En þær vonir rættust ekki. Án nokkurrar hluttekningar, nánast vélrænt þylur Foringinn yfirlýsing- ar, ásakanir og kröfur sem ég, þýska þjóðin og allur heimurinn þekkir. Ég lít undrandi upp þegar Hitler telur upp ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Nú skil ég hvorki upp né niður í neinu lengur. Þegar allt er glatað, þegar Þýskaland er gjör- eyðilagt, nasisminn að eilífu dauður og Foringinn sér enga aðra leið út úr ógöngunum en að svipta sig lífi, hvað eiga þá þessir menn sem hann tilnefnir að gera? Ég næ þessu ekki. Hitler talar án þess að líta upp. Hann þegir eitt andartak og byrjar síðan að lesa fyrir sína eigin erfðaskrá. Og nú kemst ég að því að hann ætlar að giftast Evu Braun, áður en dauðinn sameinar þau. Ég man óljóst eftir orðum Evu þegar hún sagði að við ættum eftir að gráta í dag. En hjá mér koma engin tár. Foringinn skiptir eigum sínum, en hér nefnir hann allt í einu þann möguleika að ríkið geti ekki lengur haldið áfram að vera til, eftir að hann er allur. Síð- an er hann búinn. Hann losar sig frá borðinu sem hann hefur hallað sér yfir allan tímann eins og til að hafa eitthvert hald, og augnatillitið er skyndilega þreytulegt og ör- magna. „Skrifið þér þetta strax upp fyrir mig, í þríriti og komið svo með það inn til mín.“ Það er eitt- hvað krefjandi í röddinni og ég átta mig á því, mér til mikillar furðu, að síðasti, mikilvægasti og örlagarík- asti texti Hitlers kemur til með að verða sendur út í heiminn, án þess að verða leiðréttur eða vandlega yf- irfarinn. Hver einasta afmælis- kveðja til svæðisstjóra, listamanns eða einhvers annars var vandlega yfirfarin, lagfærð og leiðrétt, nú hefur Hitler ekki lengur tíma fyrir slíkt. Skálað í freyðivíni Foringinn fer aftur í samkvæmið sem innan stundar á eftir að verða brúðkaupsveisla. Ég sest hinsvegar í setustofuna sem er fyrir framan herbergi Goebbels, þar sem ég held að ég geti verið ein og óáreitt, og skrifa síðustu blaðsíðuna í sögu Þriðja ríkisins. Nú er búið að breyta ráðstefnuherberginu í fógetaskrifstofu og embættismað- ur, sem var sóttur á nálægar víg- stöðvar, hefur gefið Hitlerhjónin saman; Eva ætlaði að fara að und- irrita skjalið með B-i þegar henni var bent á að nafnið hennar- byrj- aði nú á H-i. Og síðan setjast brúð- kaupsgestirnir saman í herbergi Hitlers. Fyrir hverju skyldu þau skála í freyðivíninu? Fyrir gæfu- ríkri framtíð nýgiftu brúð- hjónanna? Foringinn getur varla beðið eftir að sjá það sem ég er að skrifa. Hann kemur hvað eftir annað inn í herbergið til mín, gáir hvað ég sé komin langt, og segir ekkert, held- ur horfir aðeins órólegum augum á það sem eftir er af hraðritaða text- anum og fer aftur út. Skyndilega kemur Goebbels æð- andi inn. Ég horfi undrandi á náföl- an og æstan svip hans. Það renna tár niður kinnar hans. Hann talar við mig, því hann getur ekki létt af hjarta sínu við neinn annan. Rödd- in sem annars er svo skýr er nú grátklökk og í uppnámi: „Foringinn ætlar að skipa mér að yfirgefa Berlín, frú Junge! Ég á að taka við leiðandi stöðu í nýju stjórninni. En ég get ekki farið frá Berlín og yf- irgefið Foringjann! Ég er svæð- isstjóri í Berlín og hér er minn staður. Þegar Foringinn fellur frá hefur líf mitt engan tilgang lengur. Og svo segir hann við mig: „Goeb- bels, ég átti ekki von á því frá yður að þér óhlýðnuðust minni síðustu skipun …“ Eftir að Foringinn er búinn að taka svo margar ákvarð- anir of seint, hvers vegna þurfti hann þá endilega að taka þessa ákvörðun of snemma?“ spyr hann fullur örvæntingar. Þvínæst les hann mér líka fyrir erfðaskrána sína, sem á að vera fylgiskjal með erfðaskrá Foringj- ans: Þar segir að hann muni í fyrsta sinn á ævinni ekki hlýða skipun Foringjans, því hann sjái sér ekki fært að yfirgefa Berlín og skilja Foringjann þar eftir. Á ókomnum tímum verði fyrirmynd trúmennskunnar talin meira virði en eitt líf sem bjargist … Og hann kemur þeim boðum líka til heims- ins að hann kjósi frekar að deyja með allri fjölskyldu sinni en að lifa í Þýskalandi, eftir að nasisminn sé liðinn undir lok. Ég skrifa báða textana eins hratt og ég get. Fingurnir á mér vinna vélrænt og ég er mest hissa á því að ég skuli varla gera eina einustu ásláttarvillu. Bormann, Goebbels og Foringinn kíkja allir inn annað slagið til að sjá hvort ég sé búin, þeir gera mig óstyrka og tefja mig. Að lokum liggur við að þeir rífi síð- asta blaðið úr ritvélinni, þeir fara aftur inn í ráðstefnuherbergið og skrifa undir öll þrjú eintökin og strax sömu nóttina leggur þessi texti af stað með sendiboðum í all- ar áttir. Von Below ofursti, Heinz Lorenz og Zander, samverkamaður Bormanns, taka hinsta vilja Hitlers með sér frá Berlín. Rússarnir nálgast Þannig er ævi Hitlers eiginlega lokið. Nú vill hann bara bíða eftir að fá það staðfest að eitt eintak af þessum skjölum hafi komist í rétt- ar hendur. Við eigum von á að Rússarnir ráðist á byrgið hvenær sem er, skarkalinn frá stríðinu virðist vera orðinn það nálægur. Hundarnir okkar eru allir dauðir. Hundahirðirinn gerði síðustu skyldu sína og aflífaði vini okkar til að koma í veg fyrir að þeir yrðu sprengdir í tætlur í garðinum. Þeir verðir og hermenn sem nú þurfa að fara út undir bert loft, hætta lífi sínu. Fólk úr okkar eigin hópi hefur þegar særst. Yfirmaður varðliðsins fékk skot í fótinn og getur ekki lengur hreyft sig fyrir kvölum. Það eru næstum allir búnir að gleyma fimm ljóshærðum stúlkum og dökkhærðum hnokka, sem eru enn að leika sér uppi í herberginu sínu, full af lífsgleði. Nú er móðirin búin að láta þau vita að það þurfi kannski að bólusetja þau öll. Þegar svona margt fólk býr saman í svona þröngu rými verður það að verja sig fyrir sjúkdómum. Þau skilja þetta mætavel og eru alveg ósmeyk. Til hinstu stundar eftir Traudl Junge, einkaritara Hitlers, í samstarfi við Mel- issu Müller, kemur út hjá PP-forlagi. Bókin er myndum prýdd og 326 bls. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 23 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 2 66 30 12 /2 00 4 Mikilvæg sending hratt og örugglega Jólatilboð fraktflugs Flugfélags Íslands gerir þér kleift að senda pakka frá 1 – 10 kg, af hverju sem er, á alla áfangastaði fyrir aðeins 700 kr. Tilboðið gildir frá 10. til og með 20. desember. Akureyri 460 7060 Egilsstaðir 471 1210 Ísafjörður 456 3000 Reykjavík 570 3400 www.flugfelag.is | 570 3030 1-10 kg á 700 kr. til allra áfangastaða Jólatilboð! FRAKT til og frá öllum áfangastöðum • fjöldi ferða daglega • hratt og örugglega • frysti- og kæligeymslur á helstu áfangastöðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.