Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKA meistaramótinu
árið 2005 lauk fyrir skömmu í San
Diego en það var níu umferða opið
mót sem bæði kynin tóku þátt í.
Sjálfsagt furðar margan að meist-
aramótið 2005 skuli hafa farið fram
árið 2004 en ástæða þess ku vera sú
að samningsskuldbindingar leyfðu
mótshöldurum ekki að kalla þetta
meistaramótið fyrir árið 2004! Meðal
keppenda var hinn 16 ára stórmeist-
ari Hikaru Nakamura, en hann
fæddist í Hirakata í Japan. Tveggja
ára fór hann til Bandaríkjanna og
hefur búið þar síðan. Flestir eru á
því að hann sé mikið efni en hann
varð stórmeistari 15 ára og tveggja
mánaða. Með þessu sló hann met
Bobbys Fischers en því hefur verið
haldið fram að hann hafi slegið öll
bandarísk met meistarans mikla fyr-
ir utan að verða ekki meistari lands-
ins fjórtán ára. Í ár náði hann að
vinna sinn fyrsta meistaratitil þegar
hann varð jafn Alex Stripunsky með
sjö vinninga. Í einvígi þeirra vann
unglingurinn örugglega. Það vakti
mikla athygli að Gata Kamsky tók
þátt í mótinu en hann tefldi heims-
meistaraeinvígi árið 1996, þá 22 ára,
við Anatoly Karpov. Eftir það hætti
hann að tefla enda taldi hann að
Kasparov og Karpov stjórnuðu
skákheiminum með svikráðum! Það
var afar ánægjulegt að sjá hann aft-
ur við taflborðið en það er mörgum
ógleymanlegt hversu eitilharður
hann var á sínum tíma enda fékk
hann annars að kenna á því hjá föður
sínum, fyrrverandi hnefaleikakapp-
anum Rustam Kamsky. Hann tapaði
engri skák á mótinu en vann ein-
göngu tvær og fékk 5½ vinning og
lenti í ellefta sæti. Eins og landslið
Bandaríkjanna voru flestir þátttak-
endur frá fyrrverandi lýðveldum
Sóvétríkjanna. Rusa Goletiani varð
efst kvenna í mótinu ásamt Tatev
Abrahamyan en vann einvígi þeirra
um meistaratitil kvenna í skák. Einn
af fáum innfæddum bandarískum
stórmeisturum, Nick De Firmian,
fékk að kynnast handbragði Nakam-
ura í fjórðu umferð.
Hvítt: Nick De Firmian (2.550)
Svart: Hikaru Nakamura (2.620)
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Da5
4. d4 c6 5. Bc4 Bf5 6. Bd2 e6 7. De2
Bb4 8. 0–0–0 Rf6 9. a3 Bxc3 10.
Bxc3 Dc7 11. d5
Skandinavíski leikurinn stendur
prýðilega í fræðunum og textaleik-
urinn virðist ekki vera til þess fallinn
að breyta því mati. Þó að línur opnist
fyrir svartreita biskup hvíts hafa
uppskiptin í för með sér að vörn
svarts verður auðveldari en ella.
11. … cxd5 12. Bxd5 Rxd5 13.
Hxd5 0–0 14. Hd2 Rc6 15. Rf3 Hfd8
16. Hhd1
Við fyrstu sýn virðist sem hvítur
standi örlítið betur en næstu leikir
svarts, sem miðast að enn frekari
uppskiptum, hafa í för með sér að
taflið jafnast.
16. … Bg4!? 17. h3 Hxd2 18. Hxd2
Bxf3 19. Dxf3 f6! 20. De4 He8 21. f4
De7 22. Dc4 Df7 23. He2 h6 24. b3
a6 25. a4 e5!
Með þessari framrás jafnar svart-
ur taflið endanlega en hvítur sættir
sig ekki við það með því að leika 26.
Dxf7 Kxf7 27. fxe5 heldur teygir sig
of langt í vinningstilraunum sínum.
26. De4? f5! 27. De3 e4 28. g4 Re7!
29. Be5 Rd5 30. Dg3
Svartur lætur nú til skarar skríða
16 ára stórmeistari
sigrar á bandaríska
meistaramótinu
SKÁK
San Diego, Bandaríkjunum
Bandaríska meistaramótið 2005
23. nóvember til 5. desember 2004
Sigurreifir nemendur Rimaskóla.
enda skiptamunarfórnin mjög væn-
leg.
30. … Hxe5! 31. fxe5 f4 32. De1 e3
33. c4 Dc7! 34. Dh1?
Betra hefði verið að reyna 34. Kd1
eða 34. Kb1 þó að möguleikarnir
væru frekar svarts megin í þessari
flóknu stöðu. Eftir textaleikinn er
taflið tapað.
34. … Rc3! 35. He1 Dd7 36. Dh2
Dd4 37. e6 Re4 38. e7 Dd2+ 39. Kb1
Rc3+ 40. Ka1 Dxh2 og hvítur gafst
upp enda er hann óverjandi mát
jafnvel þótt hann veki upp nýja
drottningu.
Frumkvöðullinn Erik Andersen
og samtök hans, AF4C, hafa undan-
farin ár staðið fyrir meistaramótum
Bandaríkjanna með miklum mynd-
arbrag. Í ár voru heildarverðlaun á
mótinu tæpir 300.000 bandaríkjadal-
ir eða sem samsvarar 18 milljónum
íslenskra króna. Þessi náungi ætlar
sér stóra hluti með skákina og ekki
síst hyggst hann koma henni í nám-
skrá bandarískra skóla.
Friðriksmót
Landsbanka Íslands
Friðriksmót Landsbankans og
Skáksambands Íslands fer fram
sunnudaginn 12. desember nk. kl.
15.00. Úrvalsflokkur mótsins mun
skarta sterkustu skákmönnum og
-konum landsins. Mótið er hluti af
aðventu- og jólahátíð Landsbankans
sem nú stendur yfir með ýmiss kon-
ar menningarviðburðum í aðalútibúi
bankans við Austurstræti. Skákun-
um verður varpað á risaskjá til að
gera áhorfendum betur kleift að
fylgjast með framvindu þeirra. Auk
þess verða til sýnis verðlaunagripir,
fréttamyndir og annað fróðlegt efni
um feril Friðriks Ólafssonar fyrir
áhorfendur að kynna sér. Áður en
úrvalsflokkur hefst munu efnileg-
ustu ungmenni Íslands leiða saman
hesta sína kl. 10.30 um morguninn og
keppa um sæti á meðal eldri og
reyndari meistara. Umhugsunartími
er fimm mínútur á mann og eru
áhorfendur velkomnir.
daggi@internet.is
Helgi Áss Grétarsson
Mótshaldarinn Erik Andersen ásamt
bandarísku meisturunum Hikaru
Nakamura og Rusa Goletiani.
L
istaakademían í
Kaupmannahöfn
hefur ekki gert
endasleppt um
hátíðabrigði í til-
efni 250 ára
afmælisársins.
Það sem helst mun standast tímans
tönn verður líkast til útgáfa sögu-
annáls í þrem þykkum bindum, sem
afar vel er staðið að um hönnun og
útlit eins og vænta má úr þeim
ranni. Tvö þeirra hafa ratað í mínar
hendur en hið þriðja lætur bíða eft-
ir sér ef það er þá komið út, þannig
nærtækast að slá því á frest að
fjalla um útgáfuna. Ekki að vita
nema síðasta bindið kunni að
breyta að
einhverju
áliti mínu
eftir að hafa
flett end-
urtekið í
þeim fyrri
sem mér þykja í fljótu bragði yf-
irmáta fræðileg. Vissulega saman
kominn drjúgur og nytsamur fróð-
leikur á sögulegum grunni sem
ómetanlegt er að geta gripið til
jafnt af leikum sem lærðum, nátt-
úrulega einkum fræðimönnum á
sögusviði. Auðvitað þarf að hafa
akademísku fræðin, þróunarferilinn
og heimildirnar á hreinu við sam-
setningu slíkra rita, um það deilir
enginn, en of mikið má af öllu gera
og best að viðurkenna strax að ég
bjóst við læsilegra riti, jafnframt
blóðríkari og sveigjanlegri fróðleik.
Hér er ég einungis í hlutverki
frásegjandans sem miðlar þeim
sem les þeim brotakenndu upplýs-
ingum sem hann hefur milli hand-
anna, en stofnunin hins vegar
drjúgur hluti íslenzkrar sjón-
menntasögu sem ekki skal litið
framhjá. Við lifum á undarlegum
tímum uppstokkana og rang-
hugmynda um grunn akademískra
fræða í listum, ásamt grófum sér-
hagsmunatengdum umskiptum
staðreynda. Borðleggjandi að fræði
Platons og endurfæðingarinnar
byggðust á framþróun síður en
íhaldssemi og stöðnun, jafnframt að
halda þéttingsfast um mikilsháttar
hefðir.
A
ð listakademíur hafi í ald-
anna rás verið meira og
minna íhaldssamar stofn-
anir liggur að vissu marki í
hlutarins eðli, en sjálfur mennt-
unargrunnur sjónarheimsins og
miðlun þekkingar hefur þó lengst-
um verið megininntak þeirra. Öll
almenn fræði eiga það sameiginlegt
að missa kraftbirting sinn með tíð
og tíma, eins og dagur líður að
kvöldi, en öfugþróun er sjaldnast
sök sjálfrar grunnhugmyndarinnar
heldur misviturra eftirkomenda.
Minni á að einsleit og stöðluð
ítroðsla innan menntakerfa þjóða er
einmitt viðsnúningur á kenningum
Platons, að menn skuli ala ungviðið
upp með fulltingi skapandi kennda.
Í lok útmánaða nánar tiltekið 1.
apríl, var haldin mikil hátíð í Ríkis-
listasafninu í tilefni tímamótanna
og var rithöfundurinn Suzanne
Brøgger fengin til að halda að-
alræðuna. Lagði hún út af hætt-
inum hvernig fólk lítur hlutina ólík-
um augum og óskaði
listakademíunni til hamingju með
að beina athyglinni að innri gerð
sinni, augunum innan í sjálfri sér.
Sagði að Akademían hefði hýst
margar mismunandi hefðir í tímans
rás, sem seinna stokkuðust upp
milli fleiri stofnana samfélagsins.
Akademían væri í framtíðinni ei
heldur með einkarétt á skapandi
athöfnum, frekar dæmd til vera í
beinharðri samkeppni við líf-
tækniheiminn, hvar einungis hug-
arflugið setur mörkin þá menn
hygðust klóna risaeðlur, fluguglur
og agúrkur með tómatabragði.
Í gamla daga fóru menn til mál-
ara til að gera sig ódauðlega. Eða
til ljósmyndara. Í dag fara menn til
fegrunarskurðlæknisins og sagt er
að á morgun muni hin hannaða
manneskja vera hinn erfðafræðilegi
óhjákvæmileiki. Eftir að Dolly sá
dagsins ljós – klónaða lambið –
mun einfaldlega eftirsókn eftir
hinni fullkomnu manneskju – helst
með innkóðuðum ódauðleika. Tími
líftækniheimsins boðaði ný trúar-
brögð fyrir hin byltingarkenndu
vinnubrögð á leyndardómum sköp-
unarferlisins.
En ef skapandi atriði eru útlögð
á tæknilegum rannsóknarstofn-
unum sem vísinda-bisniss, science-
business, hvað er þá til bragðs að
taka fyrir eldgamla listakademíu í
stýrirými, cyberspace, árið 2004?
Suzönnu Brøgger mæltistmjög vel í ræðu sinni ogkom víða við, helst voruþetta hugleiðingar um til-
vist og þýðingu listamannsins í
mannheimi, sjálft sköpunarverkið,
þróunarferlið og þýðingu þess að
skoða heiminn með galopnum aug-
um, sjá. Lauk henni með því að
vísa til þess að maðurinn hefði
njósnað um sköpunarverk almætt-
isins og uppgötvað að því væri ekki
með öllu lokið, að það vantaði ein-
hverja vigt í það sem við (lista-
mennirnir) værum stöðugt að leit-
ast við að ráða bót á…
Sama dag var sýningin Clinch!
opnuð í öllum eldri sölum safnsins,
Smátt af hátíðarári
Ljósmynd/Tryggvi Ólafsson
Núverandi hátíðarsalur listakademíunnar í hollenskum barokkstíl, upprunalega riddarasalur krónprinsins, síðan antík-
salur sem hýsti flestar gifsafsteypur akademíunnar.
SJÓNSPEGILL
Bragi
Ásgeirsson
bragi@internet.is