Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 31

Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 31
en frá henni hef ég áður sagt, einn- ig sams konar framkvæmd í Thor- valdsenssafninu, hér vil ég víkja að hinni þriðju með sama sniði sem haldin var í hátíðarsal Akadem- íunnar við Nýjatorg konungsins. Lauk upp dyrum sínum stuttu eftir að ég var farinn heim í september og hafði ekki hugmynd um hana fyrr en nokkrum dögum fyrir lokun og þrátt fyrir góðan vilja náði ég ekki að taka stökkið fyrirvaralaust utan til Hafnar. En hef milli hand- anna góðar upplýsingar um fram- kvæmdina í formi sýningarskrár/ bókar sem ég fékk senda þrátt fyr- ir að hún væri þegar uppseld, naut hér ýtni Tryggva Ólafssonar úti á Amákri, sem að tilmælum mínum stormaði á vettvang með ljós- myndagræjurnar í farteskinu. Mað- ur skilur vel að bókin skuli hafa rokið út, hún er einföld falleg, handhæg og sneisafull af nytsöm- um upplýsingum, einmitt slíkum sem maður saknar í fyrrnefndum doðröntum. Einneginn kemur til, að borgarbúum þykir vænt um þessa gömlu höll í hollenzkum bar- okkstíl, sem á sautjándu öld var byggð fyrir Ulrik Frederik Gylden- løve, son Friðriks þriðja. Þá er fá- títt að hátíðarsalirnir séu opnir al- menningi, en þeir hýstu áður að meginhluta til eign Akademíunnar á gifsmyndum klassískrar högg- myndalistar frá Aþenu og Róm, vöggu evrópskrar siðmenningar, raunar einnig verk þeirra Canova og Thorvaldsens sem báðir unnu í anda hinnar fornu og sígildu hefð- ar. Í tilefni sýningarinnar voru veggirnir prýddir málverkum gull- aldarmálaranna, sem sóttu sér gjarnan efnivið í antíksalinn, og það sem meira var höfðu sýning- arstjórarnir þeir Pontus Kjerrman, Bjørn Nørgård og Jan Zahle, ásamt málarameistaranum Réne Petersen og hópi nemenda í skúlptúr, endurgert upprunalegu stallana og nutu þar gullaldar- málverkanna. Á undangengnum árumhefur það gerst að gifsiðer aftur komið inn í stofu-hita samtímalistarinnar og á öllum söfnum má sjá ungt fólk innan um stytturnar mundandi teiknigræjurnar. Kannski á frum- kvæði ameríska núlistamannsins Jim Dine, sem ég hef áður greint frá, einhvern þátt í endurreisninni og ætti að vera einum og öðrum nokkur lærdómur. Að vísu var gifs- ið aldrei alveg úti í kuldanum, jafn- vel þótt margur vildi ryðja því út í hafsauga, þótti og þykir enn góð leið til að öðlast þjálfun og innsýn í grunnatriði risslistarinnar. Antík- salurinn var eins og það heitir færður í sinn fyrri búning og til viðbótar var núlistaverkum nokk- urra helstu og framsæknustu myndhöggvara Danmerkur komið fyrir við hlið gömlu verkanna. Til- gangur gjörningsins var sem áður hermir að tengja saman gamalt og nýtt, koma á samræðu, díalógu, milli antíkinnar og nútímans og að sögn var um mikilsháttar lifun að ræða. Hér komið enn eitt dæmi viðhorfsbreytinga og að fortíðin lætur ekki að sér hæða, heimtar sem aldrei fyrr tilverurétt sinn og óskipta athygli. Það sem helst kom listrýnum blaðanna til að andvarpa, var að þegar dyr féllu endanlega að stöfum yrði heila klabbið fjarlægt og hátíðarsalurinn fengi aftur sitt fyrra og einsleitara form. Í ljósi þess að sýningin Clinch! á Ríkislistasafninu stóð yfir í hálft ár og sú í Thorvaldssenssafninu varla skemur, kemur mér meira en lítið spánskt fyrir sjónir að sýningin „Speglanir í gifsi“, skyldi einungis standa í hálfan annan mánuð. Einkum vegna þess að hún mun eftir öllum sólarmerkjum að dæma hafa verið þeirra áhrifaríkust, sömuleiðis vakið mestu athyglina í ljósi þess að katalógan seldist upp… Laókóonstyttan hellenska, frá því um einni öld f. Kr., við hlið hennar gifsmynd eftir Pontus Kjerrman: Amor og Psyke. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 31 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn FRUMSÝNT Á STÓRA SVIÐINU ANNAN Í JÓLUM Anna Kristín Arngrímsdóttir Arnbjörg Hlíf Valsdóttir Atli Rafn Sigurðarson Elva Ósk Ólafsdóttir Erlingur Gíslason Gunnar Eyjólfsson Hjalti Rögnvaldsson Jóhann Sigurðarson Kjartan Guðjónsson Kristján Franklín Magnús Nanna Kristín Magnúsdóttir Rúnar Freyr Gíslason Sólveig Arnarsdóttir Þórunn Lárusdóttir Þórhallur Sigurðsson Þorvaldur Davíð Kristjánsson Tónlist Hjálmar H. Ragnarsson Sviðshreyfingar Sveinbjörg Þórhallsdóttir Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson Búningar Þórunn María Jónsdóttir Leikmynd Gretar Reynisson Leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson eftir Ólaf Gunnarsson ARNAR JÓNSSON INGVAR E. SIGURÐSSON HILMIR SNÆR GUÐNASON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.