Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Bróðir okkar,
SIGURÐUR EÐVARÐ PÁLSSON,
Leifsgötu 32,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánu-
daginn 13. desember. Hefst athöfnin kl. 13.00.
Guðríður Pálsdóttir, Guðrún Pálsdóttir,
Páll Ólafur Pálsson, Hreinn Pálsson,
Guðmundur Pálsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
MARELLA GEIRDAL SVERRISDÓTTIR,
Sjávargötu 25,
Álftanesi,
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ
þriðjudaginn 14. desember kl. 13.00.
Ari E. Jónsson,
Sverrir Örn Ólafsson,
Steinar Arason Ólafsson,
Unnar Geirdal Valsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi iðnskólakennari,
Álfaskeiði 91,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 14. desember kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Bryndís Stefánsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson, Guðrún Jónasdóttir,
Þórunn Gunnarsdóttir, Kristinn Ágústsson,
Daníel Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu vegna andláts og útfarar okkar ást-
kæra eiginmanns, föður, stjúpföður, tengda-
föður og afa,
HJÖRLEIFS GUNNARSSONAR,
Þúfubarði 11,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefs-
spítala, Hafnarfirði, fyrir góða umönnun og
einstakan hlýhug.
Ingibjörg Ástvaldsdóttir,
Björg Hjörleifsdóttir, Sumarliði Már Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson, Margrét Ósk Guðjónsdóttir,
Guðmundur Rúnar Guðmundsson, Sigríður R. Sigurðardóttir
og afabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
EINARS BORG ÞÓRÐARSONAR,
Suðurvangi 23B,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðileg jól.
Steinvör Sigurðardóttir,
Guðrún Einarsdóttir, Ágúst Guðmundsson,
Jenný Einarsdóttir, Hjalti Sæmundsson,
Sigurður Einarsson, Sólveig Birna Jósefsdóttir,
Þórður Einarsson, Ingibjörg Helgadóttir,
Kristján Þórðarson, Sigrún Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
✝ Þórunn Sigur-bergsdóttir
fæddist á Þernunesi
við Reyðarfjörð 19.
mars 1919 og ólst
upp á Eyri við Fá-
skrúðsfjörð. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli 30.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Oddný Þor-
steinsdóttir, f. 1893,
d. 1983, og Sigur-
bergur Oddsson, f.
1894, d. 1976. Systk-
ini Þórunnar eru:
Stefanía, f. 1915, d. 2000, Guðlaug,
f. 1916, Oddur, f. 1917, d. 2001,
Guðbjörg, f. 1921, Sigsteinn, f.
1922, d. 1986, Karl, f. 1923, Arth-
ur, f. 1924, d. 1991, Valborg, f.
1926, Baldur, f. 1929, d. 1986 og
Bragi, f. 1929, d. 1985.
Árið 1942 giftist Þórunn Hall-
dóri Benediktsyni, f. 21.7. 1912, d.
7.3. 1984, verkstjóra í Reykjavík
frá Miðengi í Grímsnesi. Börn
þeirra eru: 1) Oddný, f. 2.1. 1942,
d. 10.7. 1997, tækniteiknari og
skrautskrifari. Fyrri maður henn-
ar var Baldur J. S. Guðmundsson,
f. 8.12. 1939, skrifvélavirki. Þau
skildu. Þeirra börn: A) Halldór
Björn, f. 28.1. 1962, viðskiptafræð-
ingur í Ríga í Lettlandi. Börn hans
og fyrri konu hans, Valgerðar
Hjartardóttur, f. 7.7. 1961, hjúkr-
unarfræðings og djákna: Hjörtur
Torfi, f. 23.3. 1985, Hildigunnur, f.
11.4. 1987, Þorgerður, f. 29.7.
1991, Oddný Halla, f. 3.7. 1998.
Börn Halldórs og seinni eiginkonu
hans, Innu Jarovicinu, f. 2.3. 1976:
Alexandra, f. 13.11. 2000, og
Daria, f. 5.5. 2003. B) Haraldur, f.
27.4. 1963, tölvuverkfræðingur,
kvæntur Jensínu Eddu Her-
mannsdóttur, f. 10.4. 1969, leik-
skólakennara. Þeirra börn: Her-
Hennar börn: Atli Valtýsson, f.
17.1. 1992 og Elma Rut Valtýs-
dóttir, f. 16.8. 1996. 3) Hreinn, f.
5.1. 1945, húsasmíðameistari,
kvæntur Katrínu Sól Ólafsdóttur,
f. 4.1. 1947, verslunarmanni.
Þeirra börn: A) Hilmir Þór, f. 13.1.
1971 húsasmiður. Sambýliskona
hans er Kristín Elfa Axelsdóttir, f.
7.9. 1979, fulltrúi. Þeirra barn: Ax-
el Hreinn, f. 29.9. 2000. B) Íris
Anna, f. 27.5. 1973 stuðnings-
fulltrúi. Barn hennar og Jónasar
Rafns Jónssonar: Viktor Ingi, f.
21.2. 1994. Sambýlismaður Írisar
er Sigurður Skjaldarson, f. 14.7.
1964, skrifstofumaður. Þeirra
barn: drengur, f. 25.11. 2004. Barn
Sigurðar af fyrra hjónabandi:
Díana Lind, f. 26.4 1995. C) Harpa
Sif, f. 12.4. 1978, nemi. Hennar
barn og Ragnars Inga Ragnars-
sonar: Tristan Ingi, f. 8.5. 1999.
Sambýlismaður Hörpu er Ingvar
Christiensen, f. 17.10. 1981, þjónn.
4) Bragi, f. 29.3. 1949, mennta-
skólakennari, kvæntur Önnu
Ragnhildi Ingólfsdóttur, f. 18.9.
1946, tónlistarmanni og þýðanda.
Barn Braga og fyrri konu hans,
Kristínar Þorvaldsdóttur: A)
Hrefna, f. 14.7. 1981, teiknimynda-
höfundur og myndlistarkona.
Börn Kristínar af fyrra hjóna-
bandi: B) Þorvaldur S. Arnarson f.
28.4. 1967 rafmagnsverkfræðing-
ur og C) Sif Arnardóttir, f. 18.8.
1977, sölumaður, búsett í Nýja-
Sjálandi. Börn Önnu af fyrra
hjónabandi: D) Linda Vilhjálms-
dóttir, f. 7.9. 1971, félagsfræðing-
ur og starfsmaður Atlanta. Sam-
býlismaður hennar er Sigtryggur
Ari Jóhannsson, f. 15.6. 1974,
starfsmaður Atlanta. E) Þrúður
Vilhjálmsdóttir, f. 31.3. 1973, leik-
kona. Barn hennar og Ásgeirs
Halldórssonar, f. 25.1. 1973, raf-
virkja: Róbert Vilhjálmur, f. 29.11.
2000. F) Ingólfur Vilhjálmsson, f.
15.3. 1976 klarinettleikari, búsett-
ur í Hollandi. Sambýliskona hans
er Korina P. Kordova-Santos, f.
21.5. 1978, dansari.
Útför Þórunnar fór fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
mann Björgvin, f.
31.9. 1996, Halldór
Benedikt, f. 8.3. 2000.
Dóttir Jensínu: Kol-
brún Björg Baldvins-
dóttir, f. 14.4. 1990. C)
Brynja, f. 12.4. 1964,
myndlistarkona og
hönnuður á Siglufirði.
Sambýlismaður henn-
ar er Arnþór Þórsson,
f. 16.5 1951 vélstjóri.
Börn Arnþórs: Kári
Þór, f. 23.4. 1975,
Guðbjörg Þóra, f.
24.5. 1983, Ívar, f.
5.12. 1985, Sigríður
Rut, f. 19.9. 1990. D) Guðmundur
Björgvin f. 9.11. 1966 sjómaður,
kvæntur Önnu Hildi Guðmunds-
dóttur, f. 22.11. 1969. Þeirra börn:
Ásdís, f. 30.3. 1998, Brynja Rún, f.
5.5. 2000. E) Áslaug, f. 2.11. 1974,
sölumaður. Sambýlismaður henn-
ar er Gísli Skúlason, f. 15.9. 1965
starfsmaður Atlanta. Seinni eigin-
maður Oddnýjar var Árni Kristján
Aðalsteinsson, f. 7.11. 1935 versl-
unarmaður. 2) Halldóra, f. 19.2.
1943, d. 10.7. 1997 smurbrauðs-
dama. Barn Halldóru og Haraldar
Eiríkssonar: A) Ragnar, f. 10.9.
1967, verkfræðingur í Árósum í
Danmörku, kvæntur Christine
Julie Kjærulf Beck, f. 10.1. 1968,
presti. Þeirra börn: Halldór Kjær-
ulf Ragnarsson Beck, f. 30.1. 1994,
Jens Kjærulf Ragnarsson Beck, f.
17.3. 1998. Halldóra var gift Davíð
Guðnasyni, f. 27.8. 1938, sjómanni.
Þau skildu. Þeirra börn: B) Þór-
unn, f. 16.10. 1970, fulltrúi hjá
Landssímanum. Sambýlismaður
hennar er Jóhannes Kristinn
Steinsson, f. 28.9. 1965 bílstjóri.
Þeirra börn: Sunneva Lind, f. 5.3.
1995, Kári Steinn, f. 25.4. 1999. C)
Sævar, f. 10.2. 1973 viðskiptafræð-
ingur. Sambýliskona hans er
Dagný Ágústsdóttir, f. 4.8. 1974.
Elsku amma mín, þegar ég
hugsa til baka og minnist allra okk-
ar góðu stunda get ég aðeins sagt
að þú varst sniðugasta og skemmti-
legasta amma sem nokkur gæti
óskað sér að eiga. Sögurnar sem þú
sagðir voru svo litríkar og fullar af
töfrum.
Einni sögu gleymi ég aldrei frá
því ég var átta ára gömul. Þú
varðst eftir heima hjá pabba á með-
an við pabbi fórum út í búð. Þegar
við komum til baka náðir þú að
sannfæra mig um að Michael Jack-
son-plakatið mitt hefði lifnað við og
hann sjálfur stigið út úr því og
byrjað að dansa inni í svefnher-
bergi. Þar sem ég var ung og mikill
Jackson-aðdáandi trúði ég öllu
saman og dáðist að þessu plakati
lengi eftir það.
Einu sinni sagðirðu mér líka að
þú værir af konungaætt og að allir
í þeirri ætt væru með blátt blóð.
Sem krakki tók ég þessu hreint
bókstaflega og trúði því lengi vel að
þú værir ekki eins og við hin! En
amma mín, í mínum huga varstu
merkilegri en allar drottningar
heimsins samanlagðar.
Ég veit að núna ertu á betri stað
að baða þig í sólinni og syndir af
krafti í glæsilegri sundlaug. Þannig
eiga hlutirnir að vera. Guð geymi
þig, elsku amma mín, þín verður
sárt saknað, því verður ekki komist
hjá.
Hrefna Bragadóttir.
Margar af mínum bestu bernsku-
minningum eru tengdar heimili
Þórunnar föðursystur minnar, Tótu
frænku, og manns hennar Halldórs
Benediktssonar í Úthlíð 4. Þau áttu
þar sérstaklega fallegt og mynd-
arlegt heimili með börnunum sínum
fjórum þeim Oddnýju, Halldóru,
Hreini og Braga. Og það var meira
líf og fjör en ég átti að venjast og
meira frjálsræði. Svo lengi sem ég
man eftir mér voru fjölskyldur okk-
ar nátengdar.
Það voru miklir kærleikar með
systkinunum Oddi föður mínum og
Þórunni alla tíð. Þau voru þriðja og
fjórða barn í ellefu systkina hópi og
aðeins tveggja ára aldursmunur.
Sem ungur maður bjó faðir minn á
heimili Tótu og Halldórs og þar
hófu foreldrar mínir sinn búskap
og dæturnar ungu, Oddný og Dolla,
eins og Halldóra var alltaf kölluð,
urðu eftirlæti þeirra. Þar var
grunnur lagður að ævilangri vin-
áttu móður minnar og Tótu. Minn-
ist móðir mín mágkonu sinnar með
mikilli hlýju. Þær voru ólíkar að
ýmsu leyti, en voru hvor annarri
ævinlega stoð og stytta og gátu líka
gantast og hlegið saman ef sá var
gállinn á þeim. Hún á Tótu mikið
að þakka frá fyrstu tíð þegar hún
kom inn í fjölskylduna og færir
þakkir fyrir alla hennar vinsemd og
velgjörðir.
Í Úthlíðinni var gestkvæmt. Þar
kom stórfjölskyldan saman, ávallt
var glatt á hjalla og mikið spjallað.
Og það var gripið í spil með góðum
vinum. Þegar Hótel Saga var
byggð gaf Tóta Úthlíðinni heitið
Smásaga. Í fermingarveislum okk-
ar krakkanna var húsgögnum ýtt
til hliðar, farið í leiki, spilað á
harmóniku og dansað. Þær mág-
konurnar, mamma og Tóta, hjálp-
uðust að við saumaskap, bakstur og
veisluundirbúning. Einhvern veg-
inn var á þessum árum alltaf næg-
ur tími. Og þá fóru konur í bæinn
prúðbúnar í sparikápum með hatta
og á háum hælum. Tóta vakti at-
hygli hvar sem hún fór, hún var fal-
leg og glæsileg. Ég leit upp til
hennar – svona ætlaði ég að verða
þegar ég yrði stór.
Hvernig kona var Tóta? Hún var
afar heiðarleg, dugleg og trygg,
kjarnyrt og orðheppin. Hún var
vönduð kona og orðvör. Eins og títt
er um fólk af hennar kynslóð stóð
hugur hennar til lengri skólagöngu
en tök voru á. Hún hafði gaman af
lestri bóka og í seinni tíð naut hún
þess að sækja tónleika og hlusta á
klassíska tónlist. Einnig gáfust þá
góð tækifæri til ferðalaga. Sterkt
skap og lífskraftur gerðu hana ef til
vill svolítið óstýriláta. Það var eng-
in lognmolla í kringum hana Tótu
mína. Þegar á reyndi var hún fum-
laus og ákveðin – þá voru óþörf orð
spöruð. Hún var sannur vinur vina
sinna. En dýpstu hugsanirnar átti
hún fyrir sig sjálfa.
Tóta var líka mamma hennar
Oddnýjar, mikillar uppáhalds-
frænku minnar, sem um skeið
dvaldi hjá okkur fjölskyldunni þeg-
ar við bjuggum í Vík. Sem ungling-
ur í skóla átti ég alltaf víst athvarf í
Úthlíðinni, bjó þar hálfan vetur og
fermdist um vorið með Hreini. Til
Tótu frænku leitaði ég þegar á
bjátaði í lífi mínu. Ég skírði yngri
dóttur mína í höfuðið á henni og
trúi því að það hafi verið þeirri
yngri til heilla.
Það varð Tótu mikið áfall þegar
dætur hennar þær Oddný og Hall-
dóra létust á sama degi árið 1997.
Hún bar aldrei sitt barr eftir það.
Síðustu árin bjó hún á Skjóli og
það voru erfið ár. En hún tók mér
alltaf fagnandi þegar ég kom til
hennar og fylgdist með minni fjöl-
skyldu, dætrum og dótturdætrum.
Faðmurinn var svo stór og hjarta-
hlýjan mikil að hann rúmaði okkur
allar ásamt hennar stóru fjöl-
skyldu.
Ég þakka mínum sæla fyrir að
hafa átt hana að og kveð hana með
söknuði. Fyrir hönd móður minnar
og fjölskyldu sendi ég sonum henn-
ar, tengdadætrum og barnabörnum
einlægar samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Tótu frænku.
Margrét Oddsdóttir.
Þórunn Sigurbergsdóttir kynnti
sig fyrir mér í byrjun árs 1977 með
orðum, sem í mínum eyrum hljóð-
uðu á þá leið, að fyrst hún hefði
getað passað börn fyrir Bríeti
frænku mína, þá gæti hún víst ald-
eilis passað mín börn. Enda leist
mér strax þannig á hana, að ég leit-
aði ekki frekar að konu til þess að
sinna tveggja mánaða syni mínum
og dóttur á meðan ég var í vinnu.
Þórunn vann hug okkar og hjarta.
Ekki með blíðmælgi né væmni,
ÞÓRUNN SIGUR-
BERGSDÓTTIR