Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 1

Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 346. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Í takt við tímann Virk samvinna og með allt á hreinu 22 árum síðar | 20 Tímaritið og Atvinna í dag Tímaritið | Óliver Twist á Akureyri  Gull í grjóti og gull í skó  Stjörnumerkin og gjafirnar  Tíska  Vín  Krossgáta Atvinna | Sveigjanleiki á vinnumarkaði  Minnkandi atvinnuþátttaka í ESB 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR getur kom- ist í þrot ef framhald verður á mikl- um uppgreiðslum á útlánum sjóðs- ins. Þetta stafar af því hvernig staðið var að skuldabréfaskiptum í tengsl- um við breytinguna úr húsbréfakerf- inu yfir í hið nýja peningalánakerfi hinn 1. júlí sl. Miðað við núverandi aðstæður á fjármálamarkaði stendur Íbúðalána- sjóði ekki til boða að fjárfesta þá peninga sem sjóðurinn fær inn, vegna uppgreiðslna á útlánum sín- um, á kjörum sem duga til að greiða af þeim skuldabréfum sem sjóðurinn gaf út í skuldabréfaútboðinu. Þetta skapar misræmi í inn- og útstreymi sjóðsins sem eykst eftir því sem vextir á íbúðalánamarkaði lækka. Á meðan bankarnir bjóða jafnhag- stæð eða betri kjör á íbúðalánum sín- um en Íbúðalánasjóður aukast að öll- um líkindum uppgreiðslur á óhag- stæðari eldri lánum sjóðsins sem flest bera 5,1% vexti. Skiptikjörin of hagstæð? Tilgangurinn með skiptiútboði Íbúðalánasjóðs, sem stóð yfir dag- ana 28.–30. júní sl., var að setja á markað mjög viðskiptahæfa verð- bréfaflokka sem væru gjaldgengir jafnt innanlands sem erlendis. Markmiðið var því að gera íbúða- bréfin seljanlegri. Almennt var talið að þetta myndi leiða til þess að vextir á fjármálamarkaði myndu lækka sem þeir hafa og gert. Ef raunvextir verða áfram í kring- um 3,5%, eins og þeir hafa verið að undanförnu, eða lækka enn frekar, getur Íbúðalánasjóður ekki vænst þess að fá hærri ávöxtun en það á því fjármagni sem sjóðurinn fær inn vegna uppgreiðslna á fasteignaveð- bréfum með 5,1% vöxtum. Sjóðurinn þarf því að fjárfesta á lægri vöxtum en skuldir hans eru en þær eru með u.þ.b. 4,5% vöxtum á þeim íbúðabréf- um sem gefin voru út í kjölfar skuldabréfaútboðsins. Gengistap sjóðsins gæti numið tugum milljarða króna og er sú hætta raunveruleg ef aðstæður á fjármálamarkaði verða áfram eins og þær eru nú. Greiningardeildir bankanna töldu að þau skiptikjör sem ákveðin voru í skuldabréfaútboðinu síðastliðið sum- ar hefðu verið góð. Líklegt er að þar liggi ástæðan fyrir þeirri stöðu sem hugsanlega blasir við Íbúðalánsjóði. Sjóðurinn virðist hafa haldið að hann sæti einn að markaðinum og því myndi ekki koma til þeirra miklu uppgreiðslna á útlánum sjóðsins sem raun ber vitni. Gengistap Íbúðalánasjóðs gæti numið tugum milljarða  Skuldabréfaskipti/16 UM það bil 500 fátæk börn búa á eða í nánd við ruslahaugana í útjaðri í Phnom Penh í Kambódíu. Börnin þjást oft af vandamálum tengdum eiturlyfjum og kynferðislegri mis- notkun. Þau vinna fyrir sér með því að safna plasti, pappír, málmi og gleri sem þau selja í endurvinnslustöðvar, eða með því að selja á skranmörkuðum. Frönsku hjálparsamtökin Brosandi börn (Pour un Sourire d’Enfant) eru að störfum á þessum slóðum og reka leikskóla og forskóla og kenna þeim eldri að elda mat og iðnir sem geta nýst þeim til að fá vinnu. „Ekki tíma til að vera í skóla“ Þúsundir fullorðinna tína einnig rusl á haugunum til endurvinnslu eða sölu á mörk- uðum. Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, var fyrr á þessu ári í Kambódíu og er frásögn af ferð hans í blaðinu í dag, m.a. um fólkið á ruslahaug- unum. Drengurinn á myndinni er of ungur til að skynja alvöruna í aðstæðum sínum, 14 ára félagi hans sagði aftur á móti: „Ég hef ekki tíma til að vera í skóla,“ og bætir við: „nú þarf ég að hvíla mig, því ég er svo þreyttur.“ Fleiri myndir Þorkels frá Kambódíu er að finna á mbl.is. /10–12 Börnin á rusla- haugunum Morgunblaðið/Þorkell ÞÚSUNDIR Tyrkja fögnuðu Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, sem þjóðhetju í gær þeg- ar hann kom til Istanbúl eftir við- ræður í Brussel sem lauk með því að leiðtogar Evrópusambandsins (ESB) buðu Tyrkjum viðræður um aðild að sambandinu. „Velkominn forsætisráðherra, sig- urvegari Evrópusambandsins,“ „Ný stjarna ESB“ og „Ekkert ESB án Tyrkja“ sagði á borðum sem stuðn- ingsmenn Erdogans héldu á þegar þeir tóku á móti honum á flugvellin- um í Istanbúl. Erdogan heldur hér á borða úr blómum sem mynda fána Tyrklands og Evrópusambandsins. Reuters „Sigurveg- ari ESB“ TALSMAÐUR bandaríska utanrík- isráðuneytisins ítrekaði á fundi með blaðamönnum að Bobby Fischer væri ákærður og eftirlýstur í Banda- ríkjunum. Morgunblaðið hefur heim- ildir fyrir því að viðbrögð af hálfu Bandaríkjamanna vegna máls Bobby Fischers liggi nú fyrir. Bandaríska sendiráðið í Reykjavík vildi hvorki staðfesta það né neita því. Ekki náðist í ráðuneytisstjóra í íslenska utanríkisráðuneytinu vegna málsins. Á fundi með blaðamönnum í Bandaríkjunum í fyrrakvöld var Richard Boucher, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, spurð- ur að því hvort bandarísk stjórnvöld myndu leyfa Bobby Fischer að fara til Íslands. „Fyrst af öllu er það á valdi hverr- ar ríkisstjórnar að ákveða hverjir fá að koma inn í viðkomandi land. En við myndum hins vegar benda á að hann [Fischer] hefur verið ákærður og er eftirlýstur í Bandaríkjunum,“ sagði Boucher. Fischer ákærður og eftirlýstur ar í heiminum. Flestir hæst settu embættismennirnir voru farnir af ráðstefnunni og um tíma var útlit fyrir að henni lyki án nokkurs sam- komulags. Samningamenn Bandaríkjanna og ESB höfðu deilt í marga daga um hvernig haga ætti óformlegum við- ræðum um hvað gera ætti til að SAMNINGANEFNDIR Evrópu- sambandsins og Bandaríkjanna náðu í gær samkomulagi um frekari viðræður um ráðstafanir til að draga úr losun lofttegunda sem valda gróð- urhúsaáhrifunum. Samkomulagið náðist á síðustu stundu á tólf daga ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um loftslagsbreyting- draga úr loftmengun eftir að Kyoto- bókunin fellur úr gildi árið 2012. ESB vildi nokkra fundi en Banda- ríkjastjórn aðeins einn. Samkomulag náðist um einn fund, eins og Bandaríkjamenn vildu og verður hann haldinn í maí á næsta ári. Hann á þó að standa í nokkra daga, eins og ESB vildi. Samið um viðræður um loftslagsbreytingar Buenos Aires. AFP. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.