Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 55
MENNING
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O b5 6. Bb3 Bc5 7. a4 Hb8 8. axb5
axb5 9. c3 d6 10. d4 Bb6 11. Ra3 O-O
12. Rxb5 exd4 13. cxd4 Bg4 14. Ba4
Bxf3 15. gxf3 d5 16. e5 Rh5 17. Be3
Dh4 18. Dd2 Rd8 19. Rc3 Re6 20. Bc6
Bxd4 21. Ha4 Rhf4 22. Bxf4 Rxf4 23.
Kh1
Staðan kom upp á frönsku at-
skákmóti sem lauk fyrir skömmu.
Murtas Kazhgaleyev (2607) hafði
svart gegn rússnesku skákdrottning-
unni Alexöndru Kosteniuk (2508). 23...
Dh3! og hvítur gafst upp enda er hann
óverjandi mát. Jólapakkamót Tafl-
félagsins Hellis hefst í dag í Borg-
arleikhúsinu en nánari upplýsingar um
viðburðinn er að finna á www.hellir.is.
Öllum krökkum á grunnskólaaldri er
velkomið að taka þátt í því en marg-
vísleg verðlaun eru í boði. Undanfarin
ár hefur stemningin á mótunum verið
mjög góð enda aðstæður í Borgarleik-
húsinu til fyrirmyndar. Forráðamenn
barnanna geta svo á meðan móti stend-
ur verslað inn fyrir jólin í Kringlunni.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Brúðkaup | Gefin voru saman 23.
október sl. í Kópavogskirkju af sr. Ægi
Fr. Sigurgeirssyni þau Guðlaug Guð-
jónsdóttir og Guðni Þór Sigurðsson.
Heimili þeirra er í Kópavogi.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Mynd, Hafnarfirði
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Gengið í kringum
jólatréð þriðjudaginn 21. des. kl. 14,
jólasveinninn kemur í heimsókn,
skráning í síma 535–2760 eigi síðar
en mánudaginn 20. des.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf.
Betri stofa og Listasmiðja opin alla
virka daga. Framsagnarhópur alla
mánudaga í Listasmiðju. Gönuhlaup kl.
9.30 alla föstudaga. Gönguhópur alla
laugardaga. Gönuhlaup alla föstudaga.
Hárgreiðslustofa 568–3139. Fótaað-
gerðarstofa 897–9801. Upplýsingar í
síma 568–3132.
Vesturgata 7 | Aðventuferð verður
þriðjudaginn 21. desember kl. 14.30,
ekið til Hafnarfjarðar, Kópavogs, í Ár-
túnshverfi, Grafarvog og miðbæ
Reykjavíkur. Komið við í Garðheimum.
Skráning í síma 535–2740, aðventu-
kaffi á Vesturgötu 7 kl. 15.15. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka
daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070.
Stafkirkjan á Heimaey | Helgistund á
aðventunni kl. 14. Stúlknakór Landa-
kirkju syngur jólalög og sálma undir
stjórn Guðrúnar Helgu Bjarnadóttur
og Joönnu Wlaszczyk. Sr. Kristján
Björnsson.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
Í TILEFNI 70 ára afmælis Haf-
steins Austmann var haldin sýning á
vatnslitamyndum hans í Listasafni
ASÍ og jafnframt gefin
út bókin Litbrigði
vatnsins sem sýnir all-
an feril listamannsins.
Aðalsteinn Ingólfsson
ritar greinargóðan, inn-
blásinn og upplýsandi
inngang að myndunum.
Þetta er falleg bók og
vel að henni staðið,
prentuð á vandaðan
pappír sem skilar við-
kvæmu litrófi vatnslit-
anna vel. Aðalsteinn
segir m.a. frá myndlist-
armenntun Hafsteins
en hann lærði hjá Þor-
valdi Skúlasyni í Mynd-
lista- og handíðaskólanum en hélt
síðan til Parísar upp úr 1950. Námið
hjá Þorvaldi og dvölin í París eru án
efa stórir áhrifavaldar í lífsstarfi
hans en strangflatarstíllinn sem þá
var ríkjandi heillaði hann frá upp-
hafi. Ekki er þó hægt að segja að
Hafsteinn hafi haldið sig við hann
en það má líta á hann sem grunn að
því húsi sem Hafsteinn hefur byggt
yfir sjálfið með vinnu sinni, en með
þeirri líkingu hefur listamaðurinn
hefur lýst starfi sínu. Myndirnar í
bókinni bregða upp svipmyndum af
ferli Hafsteins og sýna vel þróun
hans og breytingar á listferlinum. Á
sjöunda áratugnum þegar hann hélt
sína fyrstu einkasýningu, sem einn-
ig var fyrsta einkasýning listamanns
á vatnslitamyndum hér á landi, eru
áhrif strangflatarlistarinnar
ríkjandi en Hafsteinn notar rúðu-
mynstur til að byggja upp myndir
sínar líkt og margir gerðu á þeim
tíma. Myndir þessar búa yfir mjúkri
og hugljúfri birtu og eru mikið
augnayndi. Síðan færist meira kapp
í myndgerðina á áttunda og níunda
áratug aldarinnar, svart kemur inn í
myndirnar sem sterkur þáttur,
horfið er rúðumynstrið en flæði ljóð-
rænnar abstraktsjónar tekur við.
Hjá Hafsteini er þó aldrei bara látið
gossa, sterkur strúktúr er ávallt til
staðar í myndum hans, rétt eins og
steypustyrktarjárn sem halda
veggjunum uppi. Margar þessara
mynda minna mig á
veðurofsa en Haf-
steinn hefur þó svarið
af sér öll tengsl við
náttúruna. Hér er það
áhorfandinn sem
skáldar í myndflötinn
en þetta eru ástríðu-
full ljóð. Tilfinningin
fyrir ljóði kemur einn-
ig fram í myndum þar
sem svarti liturinn
myndar eins konar
skrift sem minnir á
austrænt letur. Aftur
virðist svo afgerandi
breyting eiga sér stað
í kringum aldamótin,
nokkrar myndir sýna hörð og að því
er virðist brothætt form. Nýjustu
verk listamannsins gætu síðan verið
eins konar óður til miðaldalistar, til
þess tíma þegar málverkið notaði
sér óspart nýja uppgötvun; fjarvídd-
ina. Málverk af útsýni út um glugga
voru algeng og hér er gluggamótífið
síendurtekið. Litirnir eru heitir og
sterkir og minna á suðrænar slóðir,
jafnvel eyðimerkurbirtu, gulan sand
og heitt sólarlag, en aftur er hér
áhorfandinn að skálda. Síðan má
líka ímynda sér listamanninn sem
hefur reist sitt hús og beinir nú
sjónum sínum út um gluggann, að
útsýninu. Það er meiri kyrrð yfir
þessum myndum en eldri verkum.
Nýjustu verkin sýna listamann í
stöðugri þróun sem ekki sér fyrir
endann á. Bókin er góð heimild um
vatnslitaverk Hafsteins, hún er rétt
eins og ljóðabók sem blaða má í aft-
ur og aftur, slíkt er eðli myndverka
hans.
Frá grunni
að glæstu húsi
BÆKUR
Myndlist
Vatnslitamálverk eftir Hafstein Aust-
mann. Inngang ritar Aðalsteinn Ingólfs-
son. Gefin út í tilefni 70 ára afmælis lista-
mannsins. 2004.
Litbrigði vatnsins
Ragna Sigurðardóttir
Hafsteinn Austmann
DAGBÓK
SÖNGKVINTETTINN
Reykjavík 5 heldur að-
ventutónleika í Laug-
arneskirkju í dag kl. 17
ásamt tríói Gunnars
Gunnarssonar, organista
og píanóleikara. Mun
þar, að sögn liðsmanna
kvintettsins, leikin hug-
ljúf aðventu- og jóla-
tónlist í léttum djassút-
setningum. Meðlimir
Reykjavík 5 eru þau
Hera Björk Þórhalls-
dóttir, Kristjana Stef-
ánsdóttir, Aðalheiður
Þorsteinsdóttir, Gísli
Magnason og Þorvaldur
Þorvaldsson.
„Þetta er ofsalega ljúf
og skemmtileg dagskrá
og kemur öllum í rétta
jólaskapið,“ segir Krist-
jana Stefánsdóttir, einn
meðlima Reykjavík 5.
„Það er alveg frábært að vinna með Gunnari og
tríóinu. Þetta eru miklir snillingar og við erum nú að
syngja nokkrar útsetningar eftir Gunnar sem eru
bara tær snilld.“
Kristjana segir Laugarneskirkju vera eina
skemmtilegustu tónleikakirkju landsins. „Hún er svo
mátulega stór, umvefjandi og þægileg íveru. Það er
gott að syngja þar og mikil nánd við tónleikagesti.“
Reykjavík 5 í Laugarneskirkju
Kvintettinn Reykjavík 5 leggur áherslu á léttar og djassaðar útsetningar á sönglögum.
DÓMKÓRINN flytur jólasöngva
sína í Dómkirkjunni í dag kl. 17, en
á dagskrá eru sígild jólalög auk
laga og mótetta eftir Praetorius,
Poulenc og Brahms.
Stjórnandi Dómkórsins, Marteinn
H. Friðriksson, segir ætlunina vera
að ná upp jólastemmningu hjá gest-
um með fallegum lögum. „Við mun-
um líka kveikja á kertum og syngja
söngva, minna á hvernig fjárhirðar
hafa sungist á, þegar þeir voru að
gæta sinnar hjarðar,“ segir Mar-
teinn, en jólasöngvarnir hafa verið
fluttir árlega í Dómkirkjunni síðan í
kringum 1978. „Hápunkturinn er
alltaf þegar við syngjum öll saman
Heims um ból, slökkvum ljósin í
kirkjunni og dreifum okkur um alla
kirkjuna með kerti í hönd.“
Á tónleikum syngur einnig Ung-
lingakór Dómkirkjunnar nokkur
lög og er stjórnandi Kristín Vals-
dóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Kertaljósastemmn-
ing í Dómkirkjunni
Tónleikarnir hefjast kl. 17 og er
aðgangur ókeypis.