Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 27 Hverafold 1-3 • Foldatorg Grafarvogi • Sími 577 4949 Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939 Fullar búðir af glæsilegri vöru Opið í dag frá kl.11-18 Vorum að taka upp mikið úrval af pilsum og blússum Munið gjafakortin Persónuleg þjónusta og rólegt umhverfi Glæsilegur hátíðarfatnaður Vönduð díóðuvasaljós með langa rafhlöðuendingu. Góður ljósstyrkur. Fást hjá Afreks- vörum, Símabæ, Vesturröst. Vasaljós aðalhlutverki og án efa stærsta mynd næsta árs. Hin Spielbergmyndin, Memoirs of a Geisha, hefur verið í bí- gerð hjá Spielberg í tíu ár og því margir nú þegar farnir að bíða henn- ar með óþreyju,“ segir Snorri. En hvaða myndir skyldu ganga best? „Grínmyndir, – Dumb and Dumber var t.d. vinsælasta mynd ársins hjá okkur á sínum tíma, en við vorum eina landið í heimi þar sem sú niðurstaða fékkst. Íslendingar hafa sérstöðu að þessu leyti, sumar myndir sem hafa ekki gengið erlendis gera það gott hér. Í öðru sæti hér eru hasarmyndir og svo góðar, rómantískar myndir. Ísland er miklu líkara Bandaríkj- unum en Evrópu í myndasmekk. Myndir sem ganga vestra ganga yf- irleitt vel hér,“ segja þeir. Lord of the Rings I borgaði strax allan kostnað áhættunnar Hvaða mynd skyldi hafa gengið best frá upphafi þeirra samstarfs? „Lord of the Rings,“ segja þeir ein- um rómi. „Þegar sú mynd var gerð var það altalað í bransanum að annaðhvort yrði þetta algjört „hit“ eða algjört „flopp“, kostnaðurinn var svo mikill. Við tókum þátt í kostnaði við gerð myndarinnar og vissum auðvitað ekki hvernig til myndi takast. Stórar ep- ískar myndir eins og Lord of the Rings verða að vera mjög góðar ef ekki á að verða tap á þeim.“ Hve langt leið þangað til myndirn- ar um Hringadróttinssögu fóru að skila arði? „Sú fyrsta skilaði okkur öllu sem við höfðum lagt í gerð myndanna allra. Við gerðum mjög góðan pró- sentusamning þannig að hagnaðurinn var töluverður. Þessi mynd er fram- leidd á hinum svokallaða „óháða markaði“, þar sem kvikmyndaverin koma ekki að gerð myndanna heldur er lagt upp úr að dreifa kostnaði og fá sem flesta til að leggja fram fé, þetta er aðferð sem stóru kvikmyndaverin nota síður – evrópskar kvikmyndir eru hins vegar gjarnan fjármagnaðar með styrkjum og svo bankalánum.“ Lítur oft betur út á pappírnum Áhættan er þá mikil þegar lagt er út fé fyrirfram? „Já, þetta lítur alltaf mjög vel út á pappírnum en útkoman er oft ekki samræmi við það, aðeins um 20–30% myndanna skila ágóða. Ef mynd er lé- leg er lítið hægt að gera, það er sama hvað leikstjóri eða leikarar eru fræg- ir, sé myndin misheppnuð þá duga hvorki auglýsingar né annað – mynd- in gengur bara ekki. En sé myndin þokkaleg geta frægir leikarar dregið að.“ Þeir félagar upplýsa að nú séu frægustu leikararnir farnir að gera samninga sem kveða á um sölupró- sentur. „Það eru þó ekki nema fáir sem komast upp með þetta, kvikmynda- félögum er ekki vel við slíka samn- inga,“ segir Gunnar. En skyldu dagar hinna stóru stjarna vera liðnir? „Nei, Tom Cruise og Brad Pitt eru t.d. gulltryggðir og Julia Róberts og Cameron Diaz gera það yfirleitt gott hvað aðsókn snertir,“ segja þeir. Lykillinn að öllu þessu er kvik- myndahátíðirnar. „Kvikmyndahátíðir í Cannes, Mílanó og American Film Market hafa verið þær stærstu en nú er Berlín að koma sterk inn,“ segja þeir. Mismunandi er hversu mikið þeir kaupa á hverri hátíð. „Það fer eftir því hvernig fyrirtæk- in eru stödd með efni hverju sinni, það þarf að ákveða hvaða fyrirtæki á að heimsækja á hverri hátíð en oftast er búið að kaupa sýningarréttinn löngu fyrr en myndirnar eru sýndar á kvikmyndahátíðum. Það er sjaldgæft að keypt sé mynd sem búið er að framleiða,“ segir Gunnar. Íslendingar fara oftast í bíó Í máli þeirra Myndformsmanna kemur fram að Íslendingar fara oft- ast í bíó af öllum þjóðum heims og myndbandanotkun er líka mjög mikil hér. DVD-myndir sækja mjög á í leigu og eru nær einráðar á markaði seldra mynda fyrir fullorðna en barnamyndir á myndböndum eru enn mikið keyptar og leigðar. „Fólk er tilbúið til að eiga DVD- myndir fremur en myndböndin, sem meira fer fyrir. Um þessar mundir er verið að færa gömlu og sígildu mynd- irnar yfir á DVD og endurútgefa þær, þar er kominn nýr markaður.“ Myndform er langstærsta og um- fangsmesta fyrirtæki þeirra Snorra, Magnúsar og Gunnars og sú eining sem tengir öll fyrirtæki þeirra saman. Velta Myndforms hefur fjórfaldast frá árinu 1997. Samtals eru vöru- og þjónustuliðir Myndforms fimmtán talsins og umsvif hafa farið vaxandi vegna erlendra samninga. uttugu ár Morgunblaðið/Árni Torfason Félagarnir hjá Myndformi. Frá vinstri Snorri, Gunnar og Magnús ásamt Guð- mundi Hallvarðssyni, formanni Sjómannadagsráðs. gudrung@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.