Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSwww.borgarbio.is
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 6 og 8..
Ó.Ö.H / DV
Sýnd kl. 1.15, 3.40, 5.45, 8 og 10.15.
PoppTíví
PoppTíví
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 2, 4, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Sjáumst
í bíó
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára.
kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Hann er á toppnum...
og allir á eftir honum
Framleidd af Mel Gibson
Pottþéttur spennutryllir...
DV ÓÖH...
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Sýnd kl. 4. Ísl tal. Sýnd kl. 6. b.i. 16 Sýnd kl. 2, 4 og 6. b.i. 14 Sýnd kl. 2, 4 og 6. B.i. 12 ára.
Kr. 500Kr. 500
TILBOÐ 300 KR. KL. 2 OG 4
KR. 300
KR. 300
KR. 300
SVAKALEGA ÖFLUG
BARDAGAMYND Í ANDA
BRUCE-LEE
EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA
HVERSU
LANGT
MYNDIR
ÞÚ GANGA
TIL AÐ
HALDA
LÍFI
„Balli Popptíví“
Sýnd kl. 6. b.i. 16
Sýnd kl. 2 og 4. b.i 16. Sýnd kl. 3.30 og 5.45. b.i. 12 Sýnd kl. 3.30. b.i. 14
Sýnd kl. 4. b.i. 16Sýnd kl. 2, 4 og 6. b.i. 12
Sýnd kl. 2, 4 og 6. b.i 14.
Aðeins 300 kr. Aðeins 300 kr.Aðeins 300 kr.
Aðeins 300 kr.
Aðeins 300 kr.
Aðeins 300 kr.
Aðeins 300 kr.
SPENNUHELGI
300 kr. miðaverð ÞORIRÐU ?
LIÐIN vika hefur verið við-
burðarík hjá stúlkunum í Nylon-
flokknum vinsæla. Þær hafa verið
iðnar við að árita plötur sínar og
bækur fyrir aðdáendur og troðið
víða upp. Síðan kvartettinn sté
fyrst fram á svið snemma á þessu
ári hefur leiðin verið greið upp á
við og hafa stúlkurnar náð að heilla
landann með hressilegri sviðs-
framkomu og sjarmerandi fasi.
Bæði platan og bókin hafa selst
mjög vel. Í vikunni fengu stúlk-
urnar afhenta sína fyrstu gullplötu,
til merkis um það að nú hafa yfir
5.500 eintök verið afgreidd af
plötunni og 3.500 eintök selst
samkvæmt Tónlistanum.
Þá samglöddust þær „mæðrum“
sínum, þeim þremur kjarnakonum
sem höfðu veg og vanda af útgáfu
bókarinnar, sem hefur selst vel og
verið meðal 10 söluhæstu barna-
bóka undanfarnar vikur.
Mæðurnar eru Dröfn Þórisdóttir,
útgefandi hjá Vöku-Helgafelli,
Marta María Jónasdóttir stílisti og
blaðamaður sem skrifaði bókina um
Nylon og Kristín Agnarsdóttir
grafískur hönnuður, sem hannaði
útlit Nylon-bókarinnar. Þessar
góðu konur tóku höndum saman við
að búa sögu Nylons á bók og gefa
út.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nylon-mæðgur ánægðar með árangurinn: Dröfn, Alma, Steinunn, Emilía, Klara, Marta María og Kristín.
Tónlist | Gull í greipar Nylon-flokksins
Nylon-mæðgur
samgleðjast
POTTÞÉTT-safnplötuútgáfan hefur
notið mikilla vinsælda síðustu árin og
eru þær orðnar 36 talsins – hvorki
fleiri né færri. Þá hafa verið tekin
mörg ansi vel heppnuð hliðarspor þar
sem Pottþétt-fyrirbrigðið hefur verið
helgað ákveðnum tónlistarstefnum
eða tímabilum í poppsögunni og hafa
Pottþétt 70’s og 80’s notið mikilla vin-
sælda, sem og Pottþétt ást, Pottþétt
jól, Pottþétt hinsegin og hvað þær nú
heita allar saman þessar Pottþéttu
plötur.
Nú er komin til skjalanna enn ein
nýjungin í Pottþétt-flóruna fjöl-
skrúðugu – Pottþétt Popptíví 2004.
Eins og glöggir geta sér nú til um þá
er ekki um hefðbundinn hljómdisk að
ræða – enda Popptíví sjónvarpsstöð –
heldur er hér á ferð fyrsti Pottþétt-
mynddiskurinn. Og eðli málsins sam-
kvæmt hefur hann að geyma safn
tónlistarmyndbanda. Alls eru 24 tón-
listarmyndbönd á þessum fyrsta
Pottþétt-mynddiski og eiga þau að
endurspegla það besta og vinsælasta
sem gerðist í poppinu á árinu 2004.
Fjögur íslensk myndbönd ná þar að
skipa sér á meðal myndbanda er-
lendu stjórstjarnanna; tvö með Quar-
ashi, „Stun Gun“ og „Crazy Bastard“
sem þeir taka með 70 mínútna mönn-
um, hið umdeilda myndband Mínus-
liða við lagið „The Long Face“ og
„Lög unga fólksins“ með Nylon.
Verður að teljast afar líklegt að
þessi mynddiskur sé aðeins sá fyrsti
af mörgum og fyrr en varir verði
Pottþéttu mynddiskarnir orðnir 36
talsins.
Pottþéttur
mynddiskur