Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 63

Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 63
* * Nýr og betri www.regnboginn.is Sýnd kl. 3.40 og 5.45. Sýnd kl. 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 3.30 og 5.45. B.i. 12 ára. Jólaklúður Kranks Jólaklúður Kranks Hverfisgötu ☎ 551 9000 Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... ...  DV ÓÖH... Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 og 10.15. Kr. 500 Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Ein besta spennu- og grínmynd ársins Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Forsýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Frábær rómantísk gamanmynd frá leikstjóra Bend it like Beckham Sýnd kl. 4. b.i. 16Sýnd kl. 3.30. b.i. 16 Kr. 500 KR. 300 KR. 300 KR. 300 KR. 300 www.laugarasbio.is kl. 6, 8 og 10. Stranglega b.i. 16 ára. BRUCE-LEE EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA CARY ELWES DANNY GLOVER MONICA POTTER EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI CARY ELWES DANNY GLOVER MONICA POTTER „Balli Popptíví“  „Balli Popptíví“  MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 63 Forsýnd kl. 20 B.i. 16. BANDARÍSKI tónlistarmað- urinn James Brown, sem hélt tónleika í Laug- ardalshöll í haust, hefur gengist undir vel heppnaða skurð- aðgerð vegna krabbameins í blöðruhálskirtli, sem hann greind- ist nýlega með. „Aðgerðin á Brown heppnaðist vel og hann hvílist nú,“ sagði James Bennett, læknir Brown, í yfirlýsingu. „Við búumst við því að hann nái sér að fullu,“ sagði læknirinn jafnframt og bætti við að til þess að svo gæti orðið væri góð eft- irmeðferð og umönnun nauðsyn- leg. Brown hefur stundum verið kall- aður guðfaðir sálartónlistarinnar. Hann hefur nýlega lokið tveggja vikna tónlistarferð um Kanada en þar áður var hann í ferð um Evr- ópu. Fyrr á þessu ári var hann ákærður fyrir heimilisofbeldi en sú deila leystist þegar hann játaði á sig sakir. Fólk í fréttum | James Brown með krabbamein Gekkst undir vel heppnaða aðgerð James Brown á tónleikum í Laug- ardalshöll. SÚ hugmynd að gefa út safn uppá- haldslaga er góðra gjalda verð og þegar vel tekst til geta gömul lög lifnað við í nýjum búningi, sýnt á sér nýjar hliðar og jafnvel boðið upp á nýjan skilning. Svo eru líka dæmi um slíkar plötur sem hafa engan til- gang ef svo má segja, hafa ekkert nýtt fram að færa, eru ekki til neins. Í bæklingi þessarar plötu Á móti sól segja hljómsveitarmeðlimir frá því hvað hafi drifið þá áfram í útgáf- unni og nefna að valið hafi verið erf- itt þar sem svo mikið sé til af góðri íslenskri tónlist, en þess má geta að þrjú laganna eru erlend þótt ortir hafi verið við þau íslenskir textar. Lögin eru annars alþekkt lög, „topplög“ eins og segir í heiti plöt- unnar, lög sem allir kunna og þekkja, sum áður flutt af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar þann- ig að ekki eru þeir félagar að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Það er og eitt helsta vandamál þess- arar plötu því þegar maður heyrir Á móti sól flytja þessi lög með upp- runalega flytjendur í huga fer hljóm- sveitin vægast sagt illa út úr sam- anburðinum. Sérstaklega fara þeir félagar illa með lög sem eru með einhverjum undirtóni, einhverja sögu á bak við sig eins og til að mynda „Sirkus Geira smart“ og „Rómeó og Júlíu“. Fyrrnefnda lagið var beitt innlegg í stjórnmálaumræðu á sínum tíma eins og heitið ber með sér, afburða- snjallt áróðurslag, og hið síðar- nefnda segir hörmungarsögu fólks sem veltist í ræsinu, rúið allri mann- legri virðingu og reisn. Magni syngur lögin aftur á móti eins og hann hafi ekki hugmynd um hvað sé verið að fjalla um, „Sirkus Geira smart“ verður að rokklegri soðgrýlu og „Rómeó og Júlía“ geld FM977 singalong-vella. Ekki er þó bara við söngvarann að sakast, út- setningarnar eru ekki upp á marga fiska, sérstaklega er „Rómeó og Júl- ía“ í lélegum búningi, ekki síst þegar litið er til þess að hér vélar um hljómsveit sem hefur verið í hópi bestu ballsveita landsins undanfarna mánuði og ár. Dæmi um hugmyndaskort eru ekki bara þau tvö lög sem tínd hafa verið til, ekki tekst að gera jafn ein- földu lagi og „Rangur maður“ al- mennileg skil, í meðförum hljóm- sveitarinnar týnist galgopaleg kímnin sem einkenndi það í upp- runalegum búningi og „Traustur vinur“ er líka slappt með hljóm- borðssulli og hallærisklappi. Fleiri dæmi má nefna en það er helst að þeir komist sæmilega frá Brimklóarlögunum tveimur sem á plötunni eru, „Sögunni af Nínu og Geira“ og „Einu lagi enn“, enda ekki úr háum söðli að detta. Eins og getið er í upphafi er ekk- ert að því í sjálfu sér að menn séu að taka lög eftir aðra tónlistarmenn ís- lenska og mætti reyndar vera meira um það; sum lög kalla einfaldlega á það að vera skoðuð frá fleiri hliðum. Getur líka verið þjóðþrifaverk þegar menn draga fram í dagsljósið góð lög sem ekki hafa fengið þá athygli sem vert væri, en þá eins og alltaf finnst mér rétt að gera einfalda kröfu: Ýmist séu menn að segja eitt- hvað nýtt með listinni eða eitthvað gamalt á nýjan hátt. Þessi plata þeirra félaga í Á móti sól hefur ekkert nýtt fram að færa, hvorki gleði né sorg. Ekkert nýtt TÓNLIST Íslenskar plötur 12 íslensk topplög, hljómplata með hljómsveitinni Á móti sól. Hljómsveitina skipa þeir Magni Ásgeirsson söngvari og gítarleikari, Sævar Þór Helgason gítar- leikari, Stefán Þórhallsson trommuleik- ari og Heimir Eyvindarson hljómborðs- leikari. Ýmsir leggja hljómsveitinni lið. Lög og textar eftir íslenska höfunda utan þrjú lög sem eru útlend. Sonet gefur út. 76:54 mín. (á plötunni eru lögin tólf í tveimur útgáfum, með og án söngs). Á móti sól – 12 íslensk topplög  Árni Matthíasson Á móti sól er á algerum villigötum á nýjustu plötu sinni að mati rýnis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.