Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GETUR KOMIST Í ÞROT
Íbúðalánasjóður getur komist í
þrot ef framhald verður á miklum
uppgreiðslum á útlánum sjóðsins
vegna þess hvernig staðið var að
skuldabréfaskiptum í tengslum við
breytingar á húsbréfakerfinu yfir í
nýtt peningalánakerfi 1. júlí sl.
50% söluaukning
Söluaðilar utanlandsferða merkja
mikla aukningu í sölu á ferðum fyrir
jólin, einkum til Kanaríeyja, sem er
langvinsælasti áfangastaðurinn um
jólin, nú sem endranær. Dæmi er um
50% söluaukningu í ferðum á milli
ára. Fleiri hundruð Íslendingar
munu dvelja yfir jólin í sólinni á
Kanarí.
Úrvinnslugjald á plast
Úrvinnslugjald leggst á allar
pappírs-, plast- og pappaumbúðir frá
næsta hausti samkvæmt breyt-
ingum á lögum um úrvinnslugjald
sem hlutu samþykki á Alþingi fyrir
jól. Gjaldið verður tíu krónur á kíló
við innflutning og framleiðslu um-
búða hér á landi.
Samið um viðræður
Samninganefndir Evrópusam-
bandsins og Bandaríkjanna á ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar náðu í gær sam-
komulagi um frekari viðræður í maí
á næsta ári.
Voru þær samþykktar á síðustu
stundu, en um tíma var útlit fyrir að
ekkert samkomulag næðist á ráð-
stefnunni.
Fagnað sem þjóðhetju
Þúsundir Tyrkja fögnuðu for-
sætisráðherra sínum, Tayyip Erd-
ogan, sem þjóðhetju í gær þegar
hann kom til Istanbúl eftir viðræður
í Brussel sem lauk með sam-
komulagi um að hafnar yrðu við-
ræður um aðild Tyrkja að Evrópu-
sambandinu.
Óvissa um nám geðsjúkra
Enn hefur ekki fengist niðurstaða
varðandi nám og starfsendurhæf-
ingu fyrir geðsjúka á vegum Fjöl-
menntar og Geðhjálpar.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
skorar á ráðherra sem málið snertir
að taka málið upp á næsta ríkis-
stjórnarfundi og tryggja að námið
hefjist á tilsettum tíma í janúar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Myndasögur 52
Fréttaskýring 8 Dagbók 52/54
Forystugrein 32 Víkverji 52
Reykjavíkurbréf 32 Staður og stund 54
Sjónspegill 36 Menning 55/65
Þjóðlífsþankar 37 Leikhús 56
Umræðan 38/41 Af listum 56
Bréf 41 Bíó 62/65
Hugvekja 42 Sjónvarp 66/67
Minningar 42/47 Veður 67
Auðlesið efni 48 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
NÝ bandarísk rannsókn bendir til að notkun al-
gengs liðagigtarlyfs, Celebrex, geti aukið líkur á
hjartaáföllum. Lyfið hefur m.a. verið í notkun hér
á landi. Ekki hefur verið talin ástæða til að taka
lyfið af markaði en læknum verið ráðlagt að fara
varlega við ávísanir á lyfið og hafa í huga að vís-
bendingar eru um að það geti haft alvarlegar
aukaverkanir á hjartað, skv. upplýsingum Matth-
íasar E. Halldórssonar aðstoðarlandlæknis.
Það er bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer sem
framleiðir lyfið og er það í sama lyfjaflokki og
gigtarlyfið Vioxx sem ákveðið var í haust að taka
af markaði eftir að prófanir á lyfinu leiddu í ljós
að notkun þess eykur hlutfallslega hættu á
hjarta- og æðasjúkdómum. Að sögn Matthíasar
hafa bæði þessi lyf verið í notkun hér á landi og
hvort lyf selst fyrir rúmlega 100 milljónir á ári
hér.
Nýju gigtarlyfin í fyrstu talin betri en
gömlu lyfin en reyndust álíka góð
„Þetta er eitt af þessum nýju gigtarlyfjum,
sem var í fyrstu talið betra en gömlu gigtarlyfin,
en reyndist síðan vera álíka gott að því er varðar
virkni gagnvart gigtinni. Hins vegar hafði það
færri aukaverkanir á maga. Síðan komu fram
rannsóknir sem sýndu að Vioxx hafði of mikil
áhrif á hjartað,“ sagði hann.
Celebrex og Vioxx eru langalgengustu gigtar-
lyfin í heiminum í þessum flokki nýrra gigtar-
lyfja. Matthías segir að menn hafi verið sér þess
meðvitandi að fara þyrfti varlega í notkun þess-
ara lyfja vegna aukaverkana en Vioxx er þó eina
lyfið sem hefur verið fullrannsakað og talið er
sannað að geti aukið hættu á hjarta- og æðasjúk-
dómum.
Hefur Landlæknisembættið hvatt lækna til að
fara varlega með þessi lyf.
„Ég held að læknar reyni eftir því sem þeir
geta að hafa fólkið frekar á gömlu lyfjunum, sem
eru alveg jafngóð gagnvart gigtinni, a.m.k. hjá
því fólki sem þolir þau í magann,“ segir Matthías.
Ný rannsókn bendir til alvarlegra aukaverkana liðagigtarlyfsins Celebrex
Hvatt til varlegrar með-
ferðar lyfsins hér á landi
SKELJUNGUR hefur ákveðið að
standa straum af kostnaði við
endurfundi Sæmundar Pálssonar
og vinar hans, Bobbys Fischers, í
Tókýó. Skeljungur hefur verið ið-
inn við að styðja skákíþróttina í
gegnum tíðina og telur mikilvægt
að Sæmundur fari út og komi með
Fischer hingað heim.
Sæmundur, einnig þekktur sem
Sæmi rokk, segist afar þakklátur
Skeljungi fyrir framtakið enda
kostnaðarsamt að fara til Japans
og dvelja þar. „Þeir hringdu í mig
í gærkvöld [fyrrakvöld] og ég er
mjög hrifinn af þessu framtaki
þeirra.“ Sæmundur tekur þó fram
að hann muni ekki fara fyrr en
mál Fischers séu orðin skýrari og
hvað þurfi til þess að hann geti
komist til Íslands, s.s. einhvers
konar vegabréf fyrir Fischer. Þá
eigi Fischer enn í málaferlum í
Japan þannig að dálítil óvissa sé
um framhaldið.
„Ég bíð því átekta, annað væri
óskynsamlegt. En það er samt allt
útlit fyrir að ég fari að hitta
Fischer í Japan enda hefur hann
óskað eftir því, hann hefur talað
um það og vildi helst fá mig
strax,“ segir Sæmundur.
Sæmundur Pálsson tekur við skjali úr
hendi Árna Ármanns Árnasonar fjár-
málastjóra Skeljungs en fyrirtækið
ætlar að greiða fyrir ferð Sæmundar
til Japans. Áformað er að Sæmundur
fari til Japans strax og fyrir liggur að
Fischer verði frjáls ferða sinna.
Skeljungur
greiðir fyrir
ferð Sæ-
mundar til
Japans
Sæmundur Pálsson, kallaður Sæmi
rokk, á tali við vin sinn Bobby Fischer
en sá síðarnefndi hefur óskað eftir því
að Sæmi komi til Japans og fylgi sér til
Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
VELTA á greiðslukortum Master-
card jókst um rúm 19% 15. nóv-
ember til 14. desember í ár miðað
við sama tímabil í fyrra. Einna mest
er aukningin í heimilistækjum og
raftækjum eða rúm 36%, þá er
16,3% aukning í kaupum á fatnaði
og um 26,5% aukning í liðnum ferða-
kostnaður. Alls er veltan rúmir þrír
milljarðar á tímabilinu, þar af rúmar
600 milljónir í mat og drykk en
aukningin milli ára í þeim flokki er
15%.
„Það er rétt að það er aukning
milli ára í veltunni en það sem er
einnig að gerast er að kortin eru að
ýta seðlum og tékkum enn frekar til
hliðar,“ segir Ragnar Önundarson,
framkvæmdastjóri Kreditskorts hf.
Hann bendir á að í veltutölum fyrir-
tækisins séu einnig fyrirtækjavið-
skipti og notkun fyrirtækjakorta.
„Viðskiptalífið er að verða seðla-
laust og fyrirtæki þurfa að fylgja í
þessum efnum. Þar með kemur
fram einhver raunaukning vegna
þeirra áhrifa.“
Ragnar bendir á aukin kaup á
heimilistækjum með greiðslukortum
og einnig aukningu í liðnum ferða-
kostnaður, sem er um 26,5% á milli
ára á fyrrgreindu tímabili. „Á ár-
unum 2001–2002 drógu Íslendingar
mjög úr utanlandsferðum sínum. En
nú er greinilega kominn fiðringur í
landann. Við sjáum það á tölum okk-
ar að það er feikileg uppsveifla í
[utanlandsferðum],“ segir Ragnar.
Velta á Mastercard-greiðslukortum
36% aukning í
raftækjakaupum