Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Félagsvísindastofnun 7. – 13. des. 1. Börn og unglingar Guðrún Helgadóttir 2. sæti Barnabækur 1. prentun uppseld 2. prentun á þrotum 3. prentun væntanleg „Yndislegar „öðruvísi“ bækur ... vel skrifaðar. Þær eru fyndnar, sorglegar, hjartnæmar.“ Hrund Ólafsdóttir, Mbl. „Enn einu sinni hefur Guðrúnu tekist að heilla lesendur upp úr skónum.“ Elísabet Brekkan, DV „Frásögnin er bæði þétt og lifandi og skemmtileg ... mættum við fá meira að heyra.“ Kristín Viðarsdóttir, bokmenntir.is „Yndisleg öðruvísi bók“ STEINAR S. Waage, fyrrverandi skókaup- maður, Kríunesi 6, Garðabæ, lést að kvöldi 17. desember á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi í Fossvogi. Hann var 72 ára að aldri. Steinar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um Skarphéðni Waage, verkstjóra og Málfríði Waage húsmóður. Steinar lauk prófi frá iðnskólanum í Árósum í Danmörku og sveinspróf í ortho- pædiskri skósmíði í Árósum 1955. Hann lagði stund á framhaldsnám í sömu grein í Göttingen í Þýskalandi og tók próf þaðan í fótaaðgerðum innleggjasmiða 1956. Stundaði Steinar þessa iðngrein í Reykjavík frá 1956 og rak hann skóverslanir Steinars Waage til ársloka 1999, þegar reksturinn var seldur. Steinar starfaði að félagsmálum unglinga í KFUM og var einn af stofnendum KFUM-deilda í Garða- bæ og Langagerði. Hann starfaði einnig lengi í Gideon-félaginu og var formaður í Gid- eon-félaginu í Garða- bæ. Þá sat hann í stjórn Skókaupmannafélags- ins og í stjórn Stofn- lánasjóðs skó- og vefn- aðarkaupmanna frá upphafi. Steinar var formaður Sjálfstæðis- félags Garða- og Bessa- staðahrepps 1969 til 1970. Átti hann einnig sæti um skeið í skólanefnd barna- og gagnfræða- skóla Garðabæjar og Iðnskólans í Hafnarfirði og vann fyrir Sjálfs- björg, félag fatlaðra. Steinar kvæntist Clöru G. Waage 1. janúar árið 1957. Börn þeirra eru Vera Waage, kerfisfræðingur í Dan- mörku, Elsa Waage, söngkona á Ítalíu, og Snorri Waage, skrifstofu- stjóri í Garðabæ. Andlát STEINAR S. WAAGE YFIR þúsund kosningaeftirlitsmenn á vegum Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu (ÖSE) munu fylgjast með forsetakosningunum í Úkraínu hinn 26. desember nk. Urður Gunn- arsdóttir, starfsmaður ÖSE, sem nú er í Kíev, segir þetta fjölmennasta kosningaeftirlit ÖSE hingað til. „Við fengum fleiri eftirlitsmenn en við báðum um,“ segir hún. Það sé ekki síst óvenjulegt í ljósi þess að eft- irlitsmennirnir þurfi að vera í Úkr- aínu yfir jólin. „Segir það allt sem segja þarf um áhugann á þessum kosningum.“ Auk eftirlitsmanna frá ÖSE munu þingmenn frá Evrópuráðinu og Evr- ópuþinginu fylgjast með kosningun- um. Einnig er búist við þingmönnum frá þingmannasamtökum NATO. Tveir frá Íslandi Eftirlitsmenn ÖSE koma frá að minnsta kosti fjörutíu þjóðum. Þar af koma tveir í gegnum íslensku friðar- gæsluna. Í Stiklum, vefriti utanrík- isráðuneytisins, segir að vegna mik- ilvægis þess að samfélag þjóðanna styðji Úkraínumenn við löglega fram- kvæmd kosninganna hafi ráðuneytið ákveðið að senda tvo eftirlitsmenn til Úkraínu á vegum ÖSE. Þeir dvelja í landinu dagana 22. til 29. desember. Síðari umferð forsetakosninganna í Úkraínu fór fram 21. nóvember sl. Hæstiréttur landsins ógilti hins veg- ar úrslitin og boðaði til endurtekinna kosninga 26. desember. Yfir þúsund eftirlitsmenn í Úkraínu HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur hélt sinn fimmtánhundraðasta fund á föstudaginn var, sem jafnframt var síðasti fundur stjórnarinnar á þessu formi, en frá og með næstu áramótum sameinast höfnin í Reykjavík höfnunum á Akranesi, Borgarnesi og á Grundartanga. Af þessu tilefni var haldin hátíð- armóttaka á föstudaginn var þar sem öllum núlifandi hafnarstjórn- armönnum var boðið að vera, en við það tækifæri var Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungu- málum afhentur styrkur frá Reykjavíkurhöfn. Sameining hafna tekur gildi eftir áramótin Fyrsta hafnarnefnd Reykjavíkur var sett á laggirnar 1856. Hafnar- gerð við gömlu höfnina hefst árið 1913 og lýkur árið 1917 og er al- mennt miðað við það ár sem stofnár Reykjavíkurhafnar. 1. janúar næstkomandi sameinast síðan ofangreindar fjórar hafnir undir nafninu Faxaflóahafnir, sem á ensku hefur hlotið heitið Associated Icelandic Ports. Morgunblaðið/Golli Vigdís Finnbogadóttir tekur við styrknum frá Árna Þór Sigurðs- syni, formanni hafnarstjórnar. 1.500. fundur hafnarstjórnar Reykjavíkur ÚRVINNSLUGJALD leggst á allar pappírs-, plast- og pappaumbúðir frá næsta hausti samkvæmt breytingum á lögum um úrvinnslugjald sem hlutu samþykki á Alþingi fyrir jól. Í lögunum er einnig að finna ákvæði um lækkun úrvinnslugjalds á tiltekna vöruflokka, hækkun skila- gjalds á ökutæki úr 10 þúsund kr. í 15 þúsund kr. og frjálsa samninga um söfnun og förgun tiltekinna vöru- flokka, sem verða þá undanþegnir úrvinnslugjaldi, svo nokkrar helstu breytingarnar séu nefndar. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpi vegna laganna að breyta þurfi úrvinnslugjaldi sem lagt hafi verið á síðastliðið ár til þess að koma á jafnvægi í rekstri. Þannig er lögð til lækkun á fjárhæð gjalds í fjórum vöruflokkum á samsettar umbúðir fyrir drykkjarvörur um tæp 55%, á hjólbarða um 17% og á öku- tæki um 33% og rafhlöður um 50%. Fram kemur að miðað er við að jafn- vægi náist í rekstrarafkomu hvað varðar álagningu gjalds og skila í þessum vöruflokkum á fjórum til fimm árum. Gjaldið sem lagt verður á pappa-, plast- og pappírsvörur verður 10 kr. á kíló við innflutning og framleiðslu umbúða hér á landi. Fram kemur að samkvæmt tilskipun 94/62/EB um umbúðir og umbúðaúrgang er stjórnvöldum skylt að ná sem svarar 50–65% af þessum umbúðum til end- urnýtingar. Það svarar til þess að 13.500–17.550 tonn í pappa- og papp- írsflokknum þurfi að fara til endur- nýtingar á hverju ári. Í plastumbúð- um eru samsvarandi tölur að frádregnu magni af heyrúlluplasti 3.400–4.420 tonn á ári, en úrvinnslu- gjald er þegar lagt á heyrúlluplast. Hjá Samtökum iðnaðarins kemur fram að á móti gjaldinu komið lækk- un hjá fyrirtækjum því ekki verði tekið gjald fyrir skil á þessum úr- gangi. Þá er að finna í lögunum rýmri ákvæði vegna samninga um ráðstaf- anir til þess að tryggja úrvinnslu til- tekins úrgangs. Samkvæmt áður gildandi lögum var hægt að semja um úrvinnslu svartolíu en nú bætist við heimild til að semja við útgerð- armenn um úrvinnslu veiðarfæraúr- gangs og að veiðarfæri verði þar með undanþegin úrvinnslugjaldi. Úrvinnslugjald lagt á um- búðir úr plasti og pappa Skilagjald ökutækja hækkar um 50% Morgunblaðið/Þorkell Á ÞJÓÐMINJASAFNINU gefur um þessar mundir að líta jólatré sem skreytt er á japanska vísu. Er tréð skreytt með handgerðum trönum, en trana er tákn friðar og langlífis í Japan. Gestum safnsins býðst að rita óskir sínar á þar til gerð kort og festa á tréð, en í Japan er algengt að fólk tjái óskir sínar og vonir við hátíðleg tækifæri. Á safninu má einnig sjá ýmsa gripi tengda jól- um og áramótum í Japan, Póllandi og á Íslandi. Í Póllandi hefur um aldaraðir tíðkast sá siður að ganga á milli húsa með jólakveðjur og syngja jóla- lög, þ.e. Kolêdowanie. Ólíkar hefðir eru í kringum Kolêdowanie, en sumir hópar hafa með sér brúður af dýrum, s.s. pólskum vísundum, geitum, bjarn- dýrum, hestum og storkum. Þessi siður er frá því fyrir kristni þegar dýr táknuðu frjósemi og áttu að tryggja uppskeru fyrir næsta ár. Einnig var al- gengt að hafa hluti sem táknuðu engil, dauðann, kölska, prest eða ókunnuga, s.s. gyðinga, sígauna eða flækinga. Í mörgum landshlutum var líka gengið með jötu þar sem sýndir voru atburðir í tengslum við fæðingu Jesú. Íslenskir og erlendir munir tengdir jólum Morgunblaðið/Golli Svona eru jólatré skreytt á japanska vísu. Meðal þeirra muna sem eru til sýnis eru brúður er tengjast jólasöng og jólakveðjum í Póllandi. UM 400 tombólukrakkar Rauða krossins hafa á árinu safnað sam- tals 340.000 krónum til að „hjálpa börnum í útlöndum“, eins og þau segja svo gjarna þegar þau koma til Rauða krossins að skila fénu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Leikskólar Reykjavíkur ætla að láta 300.000 krónur sem annars hefðu farið í jólakort renna til málefnisins. Á sjö- unda hundrað þúsund króna verður því notað til að aðstoða heyrnar- dauf börn í Palestínu. Tombólubörnin söfnuðu 340 þúsundum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.