Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 23

Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 23 Starfsfólk IÐU óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Við viljum þakka fyrir hlýjar og góðar móttökur. Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum m.v. 2 fyrir 1. Netverð pr. mann Kr. 2.900 Verð á mann, m.v. 2 í herbergi, hótel Limmathof, pr. nótt með morgunmat. Kr. 5.900 Verð á mann, m.v. 2 í herbergi, hótel Senator, pr. nótt með morgunmat. Beint flug Heimsferða, 29. desember, brottför frá Keflavík kl. 8.00 • 1. janúar, brottför frá Zürich kl. 19.30 Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel. Tveir fyrir einn - Áramótaveisla í Zürich frá kr. 19.990 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að njóta áramótaveislu í Sviss á ótrúlegum kjörum. Þú bókar 2 flugsæti, en greiðir aðeins fyrir 1 og getur kynnst þessari frábæru borg.Zürich er stærsta borg Sviss og liggur í hjarta landsins við hið fagra Zürichvatn. Hér er að finna heillandi stemmningu um jól og áramót, hin stórkostlega flugeldasýn- ing um hver áramót er stærsta partý í Sviss og hingað koma þúsundir til að fylgjast með stemmningunni og njóta matar og drykkjar á hverju götuhorni fram eftir nóttu. Uppskriftin að kokteilsósunni Um miðja síðustu öld fann mat- reiðslu- og uppfinningamaðurinn Felix Jó upp sósu sem átti eftir að gerbylta matarvenjum Íslendinga. Felix þessi stundaði sósugerðartil- raunir í fjölda ára með afleitum ár- angri þar til hann datt fyrir helbera tilviljun niður á uppskrift sem var í senn bráðsnjöll, einföld og afar ljúf- feng. Það eina sem vitað er fyrir víst að sé í sósunni er svokallað majónes – en að auki er í henni leynilegt hráefni sem enginn þekkir annar en uppfinn- ingamaðurinn sjálfur, útvaldir af- komendur hans og öldruð móðir. Enginn veit með vissu hvar upp- skriftin sjálf er geymd þótt hennar hafi verið leitað um árabil. Marga fýsir þó að koma höndum yfir hana og ráða þar með gátuna á bak við þessa elskuðustu ídýfu þjóðarinnar. Þar fer fremstur í flokki majóneskonungur- inn Gunnar Gunnarsson, sem hefur lagt allt í sölurnar til að komast yfir uppskriftina, sem hann hyggst í framhaldinu selja í hendur erlendra stórfyrirtækja til fjöldaframleiðslu og markaðssetningar á alþjóðavísu. Rúgbrauðsgerðin Fáir staðir ef nokkrir eiga sér hryllilegri sögu en Rúgbrauðsgerðin svonefnda við Borgartún í Reykjavík. Þar voru um árabil bækistöðvar hins alræmda ríkissáttasemjara og eru til endalausar sagnir af hroðalegum pínslum og þjáningum ríkisstarfs- manna sem þar voru teknir í bakar- íið, í bókstaflegri merkingu. Enginn hefur lengur tölu á þeim aragrúa samninganefnda, þrýstihópa og kennara sem í gegnum aldirnar hafa horfið innan veggja Rúgbrauðs- gerðarinnar á köldum samninga- fundum – blóðugum sáttafundum sem ekkert var til frásagnar um ann- að en ilmandi „þrumarinn“ á morg- unverðarborði ríkissáttasemjara og sakbitin andlit skósveina hans. Blóðbaðið í Miklagarði 1986 Um miðjan níunda áratug síðustu aldar var „Útsala aldarinnar“ haldin í svokölluðum Miklagarði í Reykjavík. Þangað flykktust húsmæður svo tug- um þúsunda skipti til að gera góð kaup – einkum á heimilistækjum sem voru, segir sagan, á allt að 80% af- slætti, en slíkt var einsdæmi hér á landi á þessum tíma. Konurnar mættu á staðinn í stórum fólksflutn- inga- og vörubifreiðum víðsvegar að af landinu og jafnvel frá nágranna- löndunum (þá ýmist með flugvélum, loftförum eða flutningaskipum). Var atgangurinn svo mikill að kalla þurfti út fjórar björgunarsveitir, sérsveit lögreglunnar og Landhelgisgæsluna í von um að hafa hemil á kaupóðum konunum. Ekki er nákvæmlega vitað fyrir víst hvenær upp úr sauð, en flestir hallast að því að það hafi verið þegar síðasta vörubrettið af gufustraujárn- um kláraðist – en þau voru á há- marksafslætti (80%) og keyptu margir því 7–8 slík tæki til að græða sem allra mest. Vonsviknir viðskipta- vinir létu gremju sína bitna hver á öðrum og urðu fjölmörg meinleysis- leg útsölutæki að skæðum vopnum í höndum vitstola húsmæðra. Björg- unar- og lögreglumenn réðu ekkert við frávita múginn þrátt fyrir að beitt væri táragasi, gúmmíkúlum og öðr- um hefðbundnum óeirðabúnaði. Varð úr ein mannskæðasta orrusta Ís- landssögunnar þar sem hundruð kvenna féllu í átökunum og þúsundir særðust. Beislun mánaorku Einar Marínósson, húsgagnasmið- ur og ófaglærður eðlisfræðingur, þróaði tímamótakenningar um beisl- un tunglgeisla snemma á áttunda áratug síðustu aldar. Gekk hann út frá þeirri kenningu að rétt eins og hægt væri að virkja geisla sólar mætti að næturlagi beisla þá orku sem frá tunglinu stafaði. Einar lagði meðal annars drög að smíði tunglknúinnar bifreiðar, gróðurhúss sem hitað væri upp og lýst með mánaorku, og náttbrauðristar. Hugsjón Einars fólst fyrst og fremst í því að virkja þær löngu, heið- skíru nætur, sem jafnan þjaka Ísland og þá sem þar búa. Fékk Einar til liðs við sig nokkra fjársterka aðila og rík- isstofnanir sem kostuðu rannsóknir hans að miklu leyti. Eftir þriggja ára þrotlaust starf var Einar þó loks knú- inn til að láta af rannsóknum sínum og leggja allar hugmyndir um beislun tunglorku á hilluna. Ástæðan var sú að útreikningar sýndu svart á hvítu að slík orkuframleiðsla væri þegar allt kæmi til alls afar óhagkvæm þjóðhagslega, þar sem hún ýtti mjög undir næturvinnu, sem aftur kallaði á töluverða hækkun launa meðal al- mennings með tilheyrandi verðbólgu og óþægindum fyrir vinnuveitendur. Jólasveinar Jólasveinar eru karlkyns af kvæmi Fjallkonunnar svonefndu. Talið er að núlifandi einstaklingar af þessari teg- und séu um það bil 120 talsins og eru flestir þeirra búsettir hér á landi þó stöku flækingar hafi fundist á Norð- urlöndum, Hjaltlandseyjum og á Norðurpólnum. Jólasveinar eru oftast lágvaxnir, mjóslegnir og með síðan, hvítan feld sem þekur líkama þeirra allan, utan hvirfilinn sem er iðulega nauðasköll- óttur. Þeir hafa lítinn rófustúf eða dindil sem þeir dilla þegar vel liggur á þeim og líkt og móðir þeirra hafa þeir klaufir. Jólasveinar eru yfirleitt glaðlyndir og vingjarnlegir auk þess sem þeir eru gæddir ríkri þjónustulund. Þeir geta þó styggst séu þeir áreittir og dæmi eru um að þeir hafi glefsað í börn, sérstaklega ef þau hafa gert sér að leik að toga eða hnippa í viðkvæm- an feld þeirra. Jólasveinar eru nú alfriðaðir, en fyrr á öldum voru þeir veiddir og þóttu mikill herramannsmatur. Nafngift þeirra kemur einmitt til af því að þeir voru yfirleitt geymdir í súr til jóla og snæddir á jóladag með hömsum og hnausþykku hrútaberja- marmelaði. Sannleikurinn um Ísland – Alfræði Baggalúts kemur út hjá Almenna bóka- félaginu. Bókin er prýdd fjölda mynda og teikninga og er 219 bls. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.