Morgunblaðið - 19.12.2004, Page 46
46 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
PÉTURS G. HELGASONAR
vélstjóra,
Huldugili 36,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar á Akureyri.
Margrét Rögnvaldsdóttir,
Hjördís Pétursdóttir, Björn Pálsson,
Ásberg Kristján Pétursson,
Sigurður Óskar Pétursson,
Rögnvaldur Dofri Pétursson, Sigríður Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ÁGÚSTS G. BREIÐDAL
frá Krossi á Skarðsströnd,
Sogavegi 118,
Reykjavík.
Ólöf Guðmundsdóttir,
Jóhanna Ósk Breiðdal, Jóhann Sævar Kjartansson,
Dagný Stefánsdóttir, Magnús Jónsson,
Unnþór Stefánsson, Margrét Guðlaugsdóttir,
Stefán Stefánsson,
Gunnar Stefánsson, Anna Þorgilsdóttir,
Ása Björg Stefánsdóttir, Þórður Jónsson
og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts
ÓLAFÍU JÓHANNESDÓTTUR,
Ölduslóð 46,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 2-B,
Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir hlýhug og góða
umönnun.
Kári P. Þormar,
Jóhannes Þormar, Margrét Hilmisdóttir,
Páll Þormar, Elín Guðmundsdóttir,
Sigurveig Þormar, Njáll Jóhannsson,
Sigfríð Þormar, Svanur Stefánsson,
Kári Þormar, Sveinbjörg Halldórsdóttir,
barnabörn og langömmubarn.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HINRIKS ALBERTSSONAR,
Framnesvegi 20,
Reykjanesbæ.
Ráðhildur Guðmundsdóttir,
Albert Hinriksson, Guðrún Guðbjartsdóttir,
Guðmundur Hinriksson, Guðríður Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Þegar Guðsteinn
Þengilsson hafði látið af
störfum sem læknir hóf
hann haustið 1997 að
kanna handritasafn
langafa síns, Jónatans
Þorlákssonar á Þórðarstöðum í
Fnjóskadal, sem varðveitt er í hand-
ritadeild Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns. Úr þeirri könnun
varð til grein sem hann ritaði ásamt
öðrum starfsmanni deildarinnar um
þennan forföður sinn og birtist í Rit-
mennt, ársriti safnsins, árið 1998.
Hann stóð þó ekki upp af fræðastóln-
GUÐSTEINN
ÞENGILSSON
✝ Guðsteinn Þeng-ilsson fæddist á
Akureyri 26. maí
1924. Hann varð
bráðkvaddur hinn 1.
desember síðastlið-
inn og var útför hans
gerð frá Neskirkju 9.
desember.
um að því verki loknu
heldur vann allar götur
síðan fram að andláti
sem sjálfboðaliði í deild-
inni við skráningu bréfa
og ýmissa annarra
gagna. Hann sat ákaf-
lega vel við og var drjúg-
ur verkmaður enda
fræðaáhugi ætíð blundað
með honum þótt læknis-
fræðin hafi orðið ofan á
sem námsgrein í háskól-
anum og starfsvettvang-
ur. Verk það er orðið ær-
ið sem hann hefur skilað
af sér á þeim sjö árum sem hann hefur
iðjað í deildinni. Safnið vill að leiðar-
lokum þakka honum fyrir allt það starf
sem hann hefur innt af hendi í þágu
þess og sendir aðstandendum hug-
heilar samúðarkveðjur.
Samstarfsfólk í handritadeild
Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HREFNA EINARSDÓTTIR,
Reykjanesvegi 16,
Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudags-
kvöldið 17. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guttormur Arnar Jónsson,
Sigurbjörg Arndís Guttormsdóttir, Haraldur Auðunsson,
Harpa Guttormsdóttir, Orri Brandsson,
Soffía Guttormsdóttir, Sighvatur Halldórsson,
Alma Björk Guttormsdóttir, Björgvin Björgvinsson,
Elfa Hrund Guttormsdóttir, Einar Ásbjörn Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR E. SIGVALDASON
jarðfræðingur,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 21. desember kl. 13:00.
Halldóra Þorsteinsdóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Daniel Friedan,
Birgir Guðmundsson, Rut Petersen,
Gunnar Bragi Guðmundsson, Ulla Uhrskov,
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, Kristján Matthíasson,
Anna Maire Sigmond Guðmundsdóttir, Eivind Slettemeås,
Solveig Birgitta Guðmundsdóttir Sigmond,
Guðný Þóra Guðmundsdóttir, Björn Teitsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ég kynntist Steinu
tengdamóður minni
fyrir þrjátíu og fimm
árum þegar ég var yfir
jól hjá systur minni fyrir vestan. Þá
fórum við á ball og fórum eftir það
með Hanhólssystrum út á Hanhól.
ÞORSTEINA KRIST-
JANA JÓNSDÓTTIR
✝ Þorsteina Krist-jana Jónsdóttir
fæddist á Birnustöð-
um í Ögurhreppi 16.
nóvember 1914. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 27.
nóvember síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Hólskirkju í Bolung-
arvík 4. desember.
Þar komum við klukk-
an þrjú um nótt og
hafði Steina þá útbúið
svið og fleiri kræsing-
ar til að ballfólkið
fengi í svanginn. Þann-
ig var alltaf að koma á
Hanhól. Stundum
komum við seint þegar
við fórum vestur á
sumrin í frí. Alltaf var
heitt á könnunni og
matur á borðum sama
hve seint við komum,
þótt margir væru á
staðnum. Steina var
alla tíð tilbúin að þjóna
og allt var svo sjálfsagt hjá henni.
Ekki var hávaðinn í þeirri konu
þótt hún hefði margt að huga að og
vinna með sín 15 börn, barnabörn
og önnur sem voru hjá henni í sveit.
Steina var glæsileg kona sem tekið
var eftir. Hún var mjög heimakær
og vildi sem minnst fara af bæ. Þó
fóru þau hjónin í ferðir með bænd-
um af svæðinu og komu suður með
ára millibili. Steina var rólynd og
iðin og vann verk sín af alúð. Hún
naut sín í sveitinni og fram yfir átt-
rætt handmjólkaði hún kýrnar sín-
ar. Hún bjó með Jóhanni syni sín-
um á Hanhóli í nokkur ár eftir að
Hannibal lést. Þá fór heilsan að
gefa sig og var hún flutt til Reykja-
víkur þar sem henni hrakaði smátt
og smátt. Síðustu árin hafa verið
henni erfið. Steina var hetja hvunn-
dagsins sem ekki fór mikið fyrir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Elsku Steina mín, um leið og ég
votta ættingjum og vinum samúð
mína þakka ég samfylgdina.
Óli Th.
Nú hefur hún Steina amma feng-
ið hvíldina og langar okkur að
minnast hennar með nokkrum orð-
um. Það var alltaf notalegt að koma
í sveitina til ömmu þar sem við vor-
um mikið sem börn. Hún amma var
róleg og ljúf og hafði einstakt lag á
bæði börnum og fullorðnum. Við
börnin vorum alltaf velkomin og
hún hafði alltaf tíma fyrir okkur
þótt mikið væri að gera. Hún virtist
líka alltaf vita hvað þeir sem voru
hjá henni í sveit voru að brasa þótt
hún væri sjálf í eldhúsinu að baka
heimsins bestu kleinur. Ætli hún
hafi séð í gegnum holt og hæðir?
Við bræðurnir vorum öll sumur í
sveit hjá ömmu frá 5 ára til 16 ára
aldurs. Það var góður skóli fyrir líf-
ið að vinna í sveitinni. Alltaf var nóg
að gera, bæði við vinnu og leik, og
margt var brallað með frændsystk-
inunum.
Amma var mikill dýravinur og
kom fram við dýrin af virðingu,
sama hvort um var að ræða mýs
eða kýr. Ósköp var notalegt að fara
snemma morguns með ömmu að
mjólka og fá að smakka spenvolga
mjólkina. Þótt amma léti lítið fyrir
sér fara kom hún miklu í verk á
stóru heimili. Hún var heimakær,
en þekkti landið okkar vel þótt hún
hefði lítið ferðast um það. Hún var
vel lesin um ýmis málefni og gat
svarað flestum okkar spurningum.
Við bárum ómælda virðingu fyrir
henni ömmu og þurfti hún aldrei að
æsa sig eða byrsta til að við hlýdd-
um því sem hún sagði.
Vaktu, minn Jesús, vaktu’ í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku amma okkar, við þökkum
þær góðu stundir sem við áttum
með þér.
Gunnar, Ágústa,
Bjarkar og Hrund.