Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI BOBBY Fischer hefur verið boðið dvalar-leyfi á Íslandi. Fischer er fyrrverandi heimsmeistari í skák. Hann tefldi sögu-lega skák við Boris Spasskí árið 1972. Skákin fór fram hér á Íslandi og Fischer vann. Fischer hefur verið eftir-lýstur í Banda-ríkjunum síðan árið 1992. Hann var hand-tekinn í Japan í sumar. Japanir ætluðu að senda hann til Banda-ríkjanna. Fischer fór í mál við þá og sagði að það væri ólög-legt að setja hann í fangelsi. Óvíst hvernig fer Útlendinga-stofnun, utanríkis-ráðherra og forsætis-ráðherra tóku ákvörðun um að bjóða Fischer hingað. Ekki er vitað hvort hann kemur til Íslands en hann er mjög ánægður með boðið. Það er einnig óvíst hvað Banda-rísk yfir-völd ætla að gera í málinu. Ef þau vilja að Fischer verði fram-seldur til Banda-ríkjanna þarf Ísland að verða að þeirri ósk. Fischer hefur oft vakið reiði fólks með ummælum sínum. Hann fagnaði t.d. árásinni á Banda-ríkin 11. september 2001. Reuters Bobby Fischer hefur oft valdið usla með ummælum sínum. Flytur Bobby Fischer til Íslands? Guðjón til Kefla-víkur Guðjón Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari karla-liðs Kefla-víkur í fótbolta. Guðjón þjálfaði eitt sinn íslenska landsliðið. Hann hefur búið í 5 ár í útlöndum og var meðal annars knattspyrnu-stjóri Stoke City í Englandi. Fleiri börn fá greiningu Börnum með geð-raskanir hefur fjölgað um 119% á 5 árum. Þau eru nú 2.399. Um 850 þeirra eru með alvarlegar raskanir. Skýringin er m.a. sú að fleiri börn fá greiningu á vanda sínum. Basescu forseti Rúmeníu Traian Basescu hefur verið kosinn forseti Rúmeníu. Hann er borgar-stjóri Búkarest. Adrain Nastase forsætis-ráðherra var í mót-framboði. Basescu var fulltrúi stjórnar-andstöðunnar. Hann er leið-togi Réttlætis- og sannleiks-bandalagsins og vill vinna gegn spillingu. Margrét Lára og Eiður best Margrét Lára Viðarsdóttir og Eiður Smári Guðjohnsen voru valin knattspyrnu-fólk ársins hjá KSÍ. Margrét Lára var í ÍBV en er á leið til Vals. Eiður Smári spilar með Chelsea í Englandi. Hann er líka fyrir-liði íslenska lands-liðsins. Ríkið kaupir Sigmúnd Ríkið hefur keypt 10 þúsund teikningar eftir Sigmúnd Jóhansson. Það kostar 18 milljónir. Til stendur að setja teikningarnar á Netið. Sigmúnd hefur teiknað fyrir Morgunblaðið í meira en 40 ár. STÚLKA, sem aðeins er 19 ára gömul, hefur verið dæmd til dauða í Arak í Íran. Ástæðan er að hún hafi rekið vændis-hús, haft sam-ræði við ættingja sína og fætt óskil-getið barn. Amnesty International í Bretlandi ætla í herferð til að fá hæsta-rétt í Íran til að snúa dóminum við. Stúlkan er kölluð Leyla M. Hún á sér mikla sorgar-sögu. Mamma hennar neyddi hana í vændi þegar hún var 8 ára. Henni var nauðgað oft. Þegar hún var 9 ára ól hún barn. Hún var dæmd til 100 svipuhögga. 14 ára ól hún tvíbura. Þá var hún aftur dæmd til 100 svipu-högga. Fjölskyldan seldi hana tvisvar í hjóna-band. Þar var hún neydd til að stunda vændi. Þroski á við 8 ára barn Starfs-fólk félags-þjónustunnar í Arak segir að Leyla hafi andlegan þroska á við 8 ára barn. Amnesty International benda m.a. á að Íran sé aðili að alþjóða-samningi sem felur í sér að það sé bannað að taka fólk af lífi fyrir glæpi sem voru framdir fyrir 18 ára aldur. 19 ára stelpa dæmd til dauða David Blunkett sagði af sér. Hann var innan-ríkis-ráðherra og bjó til lögin um hryðju-verk. Blunkett sagði af sér vegna hneykslis. Hann viður-kenndi að ráðu-neytið hans hafi flýtt fyrir dvalar-leyfi filippseyskrar konu. Konan var barn-fóstra. Hún starfaði fyrir fyrrum ást-konu Blunketts. Talið er að ný ævi-saga Blunketts hafi haft áhrif á afsögnina. LÁVARÐA-DEILDIN í Bretlandi hefur úrskurðað að það sé bannað að halda fólki í fangelsi í langan tíma fyrir það eitt að vera grunað um hryðju-verk. Lávarða-deildin er æðsta dóms-stigið. Þetta breytir breskum lögum um hryðju-verk mjög mikið. Samkvæmt þeim mátti halda útlendingum enda-laust í fangelsi án þess að birt væri ákæra eða réttað í málinu. 8 af 9 mönnum í laga-ráði deildarinnar voru sammála um að þetta brjóti gegn lýðræðis-legum réttar-venjum. Þeir segja líka að það stríði gegn Mannréttinda-sáttmála Evrópu. David Blunkett sagði af sér Úrskurðurinn er áfall fyrir Tony Blair, forsætis-ráðherra. Það var líka mikið áfall fyrir hann þegar Grunur nægir ekki til að fangelsa fólk Frægt fólk í Rómeó og Júlíu Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson Fræga fólkið vill fá að vera með í Rómeó og Júlíu. FRÆGIR breskir leikarar ætla að taka þátt í upp-færslu Vestur-ports á Rómeó og Júlíu. Sýningin er sýnd á West End í London. T.d. ætla Joanna Lumley, Sean Connery og Lenny Seagrove að taka þátt í henni. Leikararnir munu flytja loka-línur verksins. Ótrúlega margir hafa sýnt því áhuga að taka þátt í sýningunni. Dorrit Moussaieff, forseta- frú, kom hugmyndinni í fram- kvæmd. Hún þekkir Seagrove og Lumley. Lumley lýsti yfir áhuga á að vera með og hafði svo samband við félaga sína. Sýningin hefur fengið mjög góða dóma. Margar stór-stjörnur hafa hælt henni. 2 MENN rændu rútu í Grikk-landi síðasta miðvikudag. Þeir tóku um það bil 25 manns í gíslingu. Mennirnir vildu 1 milljón evra í lausnar-gjald. Það eru um 84 milljónir íslenskra króna. Þeir kröfðust þess líka að vera fluttir með flug-vél til Rússlands. Þeir slepptu 17 manns síðar um daginn. Nóttina fyrir fimmtudag slepptu þeir síðan hinum. Mennirnir eru taldir vera Albanir. Sumir eru hræddir við að þetta leiði til meiri andúðar á Albönum í Grikk-landi. Reuters Gríska sér-sveitin var í viðbragðs-stöðu. Gísla-taka í Grikk-landi Lést eftir höfuð-högg MAÐUR lést eftir árás á Ásláki í Mosfellsbæ síðustu helgi. Maðurinn hét Ragnar Björnsson og er úr Mosfellsbæ. Árásin var framin í and-dyri Ásláks. Árásar-maðurinn kýldi Ragnar á kjálkann. Hann heitir Loftur Jens Magnússon. Hann játaði að hafa lent í átökum þessa nótt. Hann hefur verið úrskurðaður í gæslu-varðhald. Þetta er í annað sinn á tæpum mánuði sem maður deyr eftir eitt höfuð-högg á kjálka. Lögreglan í Reykjavík rannsakar málið. Netfang: auefni@mbl.is Stutt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.