Morgunblaðið - 19.12.2004, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 19.12.2004, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 57 MENNING i8 Gallerí Klapparstíg 33 101 Reykjavík sími 551 3666 www.i8.is VAXTALAUS LÁN TIL LISTAVERKAKAUPA Nú bjó›ast vaxtalaus lán frá KB Banka til allt a› 3 ára til kaupa á listaverkum hjá i8. Lánsupphæ› getur veri› frá kr. 36.000 til kr. 600.000. 19-23. desember er i8 opi› frá 14 - 22 HLJÓMPLATA með rómantískum verkum fyrir selló og píanó er komin út hjá Smekkleysu, og ber yfirskrift- ina Gunnar og Selma. Heitið vísar til flytjendanna, hinna landskunnu hljóðfæraleikara Gunnars Kvaran og Selmu Guðmundsdóttur, sem glatt hafa hlustendur um árabil með samleik sínum. Á nýju plötunni þeirra er að finna sónötu fyrir selló og píanó í g-moll eftir Frédéric Chopin, Rondo og Skógarklið eftir Antonín Dvorák, Ljóð án orða eftir Felix Mendels- sohn og Fantasíustykki eftir Robert Schumann. Eina kammerverk Chopins Upptakan er orðin liðlega þriggja ára gömul, en hún var unnin í tengslum við tónleika sem Gunnar og Selma héldu í Salnum í Kópavogi á þeim tíma. „Upphaflega ætluðum við að safna saman fallegum róm- antískum verkum fyrir þessa hljóð- færaskipan, enda erum við mjög rómantísk bæði,“ segir Gunnar og brosir. „En síðan kom upp sú spurn- ing af hverju við tækjum ekki þessa stóru sónötu eftir Chopin með, sem við vorum þá að æfa, og það varð úr.“ Selma bætir við að sónatan hafi ákveðna sérstöðu meðal verkanna á plötunni, enda langstærsta verkið. „Þetta er stórkostlegt verk,“ segir hún. Sónatan hefur líka sérstöðu meðal verka Chopins – hún er hans eina kammerverk að undanskildu píanó- tríói sem hann samdi mjög ungur að árum. Hún er líka eitt síðasta verkið sem Chopin lék opinberlega. „Hann samdi það fyrir vin sinn, sellóleikar- ann Auguste-Joseph Franchomme, og þeir léku það saman á tónleikum árið 1948, ári áður en Chopin lést,“ segir Gunnar Ólík en þó tilfinningarík Þrátt fyrir að öll verkin á plötunni teljist til rómantískra verka, og þrjú af fjórum séu skrifuð nokkurn veg- inn á sömu árunum í kringum miðja 19. öldina, eru þau afar ólík að yfir- bragði að sögn flytjendanna. „Þessi tónskáld hafa öll svo sterk höfund- areinkenni hvert fyrir sig – maður heyrir undir eins hvort um er að ræða Schumann eða Mendelssohn. Verkin sem við völdum eru því mjög ólík innbyrðis,“ segir Selma. Að sögn þeirra Gunnars eiga verkin það þó sameiginlegt að vera hlaðin tilfinningum. „Þau spila á nánast allan tilfinningaskalann – þar er að finna ljóðrænu og kátínu í bland við mikil og dramatísk átök. Þetta er aldeilis engin rómantísk lognmolla,“ segja flytjendurnir. Verk eins og þau sem platan hefur að geyma láta eflaust fáa ósnortna, og Gunnar segist telja að það hljóti að vera ljúft og gott fyrir sálina að hlusta á tónlist af þessum toga. „Þannig virkar hún að minnsta kosti á mig. Hún umlykur sálina og gerir henni eitthvað gott,“ segir hann. „Það hefur verið skrifað mikið af slíkum rómantískum verkum fyrir píanó en líka dálítið fyrir selló, og þau eru mjög yndisleg. Mér finnst til dæmis mikil gersemi fyrir sellóleik- ara að eiga þessa Chopin-sónötu, því við eigum ekkert of mikið af svona stórum, rómantískum sónötum.“ Jafnréttisgrundvöllur Sellóið og píanóið hafa svipað vægi í verkunum á plötunni, og það gildir um þau öll, að sögn flytjend- anna. „Píanóparturinn í Chopin- sónötunni er sérstaklega stór og eig- inlega frægur fyrir það – hann er nánast eins og konsert. En þeir sem skrifuðu á þessum tíma fyrir tvö hljóðfæri létu þau vera á jafnréttis- grundvelli og það hefur tíðkast allt fram á 20. öldina. En fyrir það hafði tíðkast að hafa píanóið í algjöru aðal- hlutverki,“ segir Gunnar. Samleikurinn er þeim Gunnari og Selmu mikils virði, enda hafa þau leikið nokkuð saman áður eins og fyrr sagði. Hin rómantísku verk sem þau bæta í útgáfusafn sitt nú eru þeim kær. „Það er svo gefandi að leika svona tónlist,“ segja þau að síð- ustu. Tónlist | Gunnar Kvaran og Selma Guðmundsdóttir gefa út rómantísk verk á geislaplötu Ljóðræna í bland við mikil átök Morgunblaðið/Golli Gunnar Kvaran og Selma Guðmundsdóttir segja verkin á nýju plötunni sinni eiga það sameiginlegt að vera hlaðin tilfinningum. „Þau spila á nán- ast allan tilfinningaskalann – þar er að finna ljóðrænu og kátínu í bland við mikil og dramatísk átök. Þetta er aldeilis engin rómantísk lognmolla.“ ingamaria@mbl.is ÁRLEGIR jólatónleikar Kammer- sveitar Reykjavíkur verða í Ás- kirkju í dag, sunnudag, kl. 17, en þetta eru 31. jólatónleikar sveit- arinnar. Sem kunnugt er hreppti Kammersveitin Íslensku tónlistar- verðlaunin fyrr á árinu fyrir plötu sína með Brandenborgarkons- ertum Bachs undir stjórn Jaaps Schröders, og af því tilefni verður einn þeirra, sá fyrsti, í F-dúr, leik- inn á tónleikunum. Þessi konsert varð fyrir valinu, að sögn Rutar Ingólfsdóttur leiðara Kamm- ersveitarinnar, vegna þess að hann er fjölmennastur þeirra, og þar leika bæði horn og óbó með strengjunum. „Þetta er mjög há- tíðlegur og skemmtilegur konsert, og það má segja að efnisskráin að öðru leyti miðist við hann, með blásarana í öndvegi. Þess vegna er yfirskrift tónleikanna: Blásið til hátíðar. Við byrjum á Trompet- konsert fyrir tvo trompeta eftir Manfredini. Þá leikum við mjög spennandi verk, Konsert fyrir tvö óbó, tvö klarinett, strengi og fylgi- rödd, eftir Vivaldi. Þetta er með því allra fyrsta sem klarinettið er notað, því það var alveg nýtt þeg- ar Vivaldi samdi konsertinn. Þótt þetta séu 31. jólatónleikarnir okk- ar, er þetta í fyrsta skipti sem klarinettið kemur við sögu á jóla- tónleikum hjá okkur. Ég vissi ekki af tilvist þessa konserts fyrr en í haust, og fannst þá alveg upplagt að bæta tveimur klarinettum við blásarahópinn á tónleikunum.“ Fjórði konsertinn sem Kammer- sveitin leikur á tónleikunum er hljómsveitarkonsert eða Concerto Grosso, eftir Manfredini, Jóla- konsertinn, með hjarðljóði í anda jólanæturinnar. Trompetleikarar verða Eiríkur Örn Pálsson og Ásgeir Stein- grímsson; Daði Kolbeinsson, Peter Tompkins og Eydís Franzdóttir leika á óbó; Einar Jóhannesson og Rúnar Óskarsson leika á klarinett- ur og Rúnar Vilbergsson á fagott. Þær Rut, Unnur María Ingólfs- dóttir og Inga Rós Ingólfsdóttir leika svo einleikshlutverk í Jóla- konsert Manfredinis. „Við reynum að hafa alltaf upplífgandi og skemmtilegt prógramm á jóla- tónleikum okkar, og það hefur tekist vel til í ár. Þetta verður bæði hátíðlegt og hressilegt og við hlökkum mikið til.“ Rut rifjar upp fyrstu árin sem Kammersveitin hélt jólatónleika, en þá var tón- leikalífið í borgin með talsvert öðrum brag en nú er. „Á fyrstu árum Kammersveitar- innar var ekkert um tónleikahald á þessum árstíma, nema þegar Pólýfónkórinn flutti Jólaórator- íuna. Það er ótrúlegt hvað margt hefur breyst og tónleikar eru orðnir margir á aðventunni. Það hefur þó haldist, að það er ekki mikið um hljóðfæratónleika, því mest eru þetta kórtónleikar. Fyrir marga koma jólin með tónleikum okkar, og við sjáum sömu gesti koma ár eftir ár.“ Morgunblaðið/Kristinn Kammersveit Reykjavíkur heldur 31. jólatónleika sína í Áskirkju í dag, sunnudag, kl. 17. Klarinettið var glænýtt þegar Vivaldi samdi verkið Tónlist | Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur Jólasnótirnar þrettán er vísnabók eft- ir Davíð Þór Jónsson. Jean Ant- oine Pos- occo mynd- skreytti. Vísurnar vöktu athygli þegar þær voru fluttar á Rás 2 fyrir jólin 2003 en jólasnótirnar eru systur jóla- sveinanna og hefur tilvera þeirra hingað til farið hljótt. Þær eru enn varhugaverðari en bræður þeirra og nútímalegri. Til að mynda hafa flestir einhvern tíma orðið fyrir barðinu á Lyklakrækju, Rógtungu og Bílklóru svo nokkrar séu nefnd- ar. Útgefandi er 21 12 kúltúr komp- aní. Nýjar bækur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.