Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
ÁRAMÓTASKAUPIÐ
2004 er undir stjórn Spaug-
stofunnar og er það í fyrsta
sinn sem sá hópur sem
heild annast þennan vin-
sælasta og umdeildasta
sjónvarpsþátt Íslands.
„Við reynum að hugsa
upp nýja vinkla á þetta
skaup,“ segir leikstjórinn,
Sigurður Sigurjónsson, „og
erum sjálfir ekkert sér-
staklega frekir á athyglina.
Erum með eina 15 aðra
leikara með okkur, ásamt aragrúa af öðru fólki,
án þess ég fari nánar út í það. Það verður mikil
músík úr ólíklegustu áttum
og uppleggið er fjölbreytni.
Svo rífst fólk um skaupið
fram í mars enda er það
partur af programmet.“
Í Tímariti Morgunblaðs-
ins í dag er rætt við Spaug-
stofumenn í gamni og alvöru
um áramót, góð ár og erfið í
lífi þeirra. Þar kemur m.a.
fram að næsta ár, 2005,
verður tímamótaár fyrir þá
á ýmsan hátt. Samstarfið
um Spaugstofuna verður 20
ára og hyggjast þeir minnast þess með sér-
stökum hátíðahöldum. „Mér finnst okkur bera
skylda til að halda upp á það með einhverju húll-
úmhæi,“ segir Karl Ágúst Úlfsson.
Spaugstofumenn eru á þessum tímamótum
nokkuð uppteknir af þeirri staðreynd að aldur-
inn færist yfir. Þannig segir Örn Árnason um
árið 2005: „Ég er kominn á miðjan aldur og
hygg því á jákvæðar breytingar, ætla að sækja
fram, m.a. í gerð barnaefnis og framleiðslu af-
þreyingarefnis af öllum sortum.“
Og Sigurður Sigurjónsson sem verður fimm-
tugur á næsta ári kveðst vera farinn að hugleiða
hversu margt hann langi til að gera, einkum í því
að leikstýra eða skapa leikhús. „Hef ýmsar hug-
myndir á því sviði sem ég finn að mér liggur á að
hrinda í framkvæmd. Og ég hyggst gefa sjálfum
mér það í fimmtugsafmælisgjöf.“
Spaugstofumenn á tímamótum og hyggja á sókn á ýmsum sviðum
Hátíðahöld á tvítugsafmælinu 2005
Spaugstofumenn geta verið alvarlegir.
SÖLUAÐILAR utanlandsferða merkja mikla
aukningu í sölu á ferðum fyrir jólin, einkum
til Kanaríeyja, sem er langvinsælasti áfanga-
staðurinn um jólin, nú sem endranær. Dæmi
er um 50% söluaukningu í ferðum á milli ára.
Að sögn Laufeyjar Jóhannsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Plúsferða, er langmest selt af
ferðum til Kanaríeyja og aukningin um 50% á
milli ára en þangað fara um 300 manns á veg-
um ferðaskrifstofunnar um jólin.
Fyrsta ferðin uppseld í júlí
„Það er allt búið fyrir löngu,“ segir Laufey
um sætaframboð og að ekki hafi verið unnt að
bæta við gistingu þrátt fyrir mikla eftirspurn.
Þá fer hópur á vegum Plúsferða til Alicante
þar sem fjöldi Íslendinga á sumarhús sem
þeir hyggjast nýta um jól og áramót.
Að sögn Helga Eysteinssonar, sölu- og
markaðsstjóra Ferðaskrifstofu Íslands-Úr-
vals-Útsýnar, er uppselt í allar ferðir fyrir
jólin en um 800 manns fara á vegum ferða-
skrifstofunnar til Kanaríeyja fyrir þessi jól
og 200 til viðbótar fyrir áramót. Þá flýgur ein
flugvél í beinu leiguflugi til Benidorm. Að
sögn Helga eru fastakúnnar stór hópur
þeirra sem halda utan til Kanaríeyja en einn-
ig færist í vöxt að fjölskyldufólk fari í slíkar
ferðir.
Sömu sögu var að segja hjá Helga Jó-
hannssyni hjá Sumarferðum. Um 600 manns
verða á Kanaríeyjum yfir áramót á vegum
ferðaskrifstofunnar. „Fyrsta ferðin seldist
upp í júlí og við ákváðum að bæta við annarri
og það skipti engum togum að það seldist
strax upp í hana líka.“
Að sögn Helga er algengara nú að ferða-
menn dvelji skemur á stöðum eins og Kan-
aríeyjum yfir jólin, t.d. í um vikutíma, einkum
yngra fólk. Eldra fólk sé hins vegar eins og
farfuglarnir sem fljúga af landi brott þegar
vetur gengur í garð og dvelur ytra í allt upp
undir 10 vikur á ári.
Kanaríeyjar langvinsælasti áfangastaðurinn um jólin og áramótin
Mörg hundruð Íslend-
ingar á Kanarí um jólin
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„ÉG stóð uppi
einn með plöt-
una og spurði
sjálfan mig: Ja,
hvað geri ég nú?
Anna Pálína var
ekki til staðar til
að fylgja plöt-
unni eftir og
færa hana út til
fólksins, eins og
hún var vön að
gera. En ég fann að þetta efni myndi sjá um
sig sjálft.“
Þetta segir Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son, rithöfundur og tónlistarmaður, m.a. í
viðtali við Tímarit Morgunblaðsins en
Dimma, útgáfufyrirtæki hans og eiginkonu
hans Önnu Pálínu Árnadóttur, sem lést í lok
október eftir langa baráttu við krabbamein,
hefur sent frá sér diskinn Sagnadans. Þar
flytja Anna Pálína og sænska þjóðlagatríóið
Draupner íslenska sagnadansa í nýjum út-
færslum en þau0 höfðu unnið að verkefninu
í nokkur ár.
Platan var tekin upp í ágúst sl. og tveimur
mánuðum seinna var Anna Pálína öll.
Svanasöngur
Önnu Pálínu
DÝRASTA flíkin, sem Katrín Káradóttir
kjólaklæðskeri hefur unnið að er með
ísaumi og er metin á rúmlega eina milljón
króna. Flíkina
vann hún í starfs-
námi sínu hjá
John Galliano,
listrænum stjórn-
anda Dior-
tískuhússins í
París, þar sem
hún hefur verið í
starfsnámi frá því
hún lauk þriggja
ára framhalds-
námi í listrænni
tískuhönnun við
Studio Berçot-
skólann.
Katrín gegnir
stöðu aðstoðarmanns í hönnunarstúdíóinu,
þar sem Galliano ræður lögum og lofum;
hann hannar fötin, er ímynd Dior, leggur
línurnar fyrir aðstoðarmenn sína og velur
úr bestu hugmyndum þeirra. Í Tímaritinu
í dag lýsir Katrín lífi sínu og starfi í tísku-
borginni. „Galliano er minn maestro,“ seg-
ir hún. Spurð hvort tískuhönnuðir hjá
Dior líti við ódýrari fötum svarar Katrín:
„Starfsmönnum stóru tískuhúsanna þykir
merkjavara næstum hallærisleg, sér-
staklega ef hún er frá toppi til táar. Ódýr-
ari föt geta líka verið vönduð. (…) Í dag
lætur fólk draga sig á asnaeyrunum og fá-
ir spyrja sig: „Hvað finnst mér fallegt,
hver er minn stíll?“
Í starfsnámi hjá
John Galliano
FYRSTI jólasnjórinn féll á suð-
vesturhorni landsins í gær og not-
uðu margir höfuðborgarbúa tæki-
færið til að ganga um borgina.
Ekki virtist hið alræmda jóla-
stress hafa mikil áhrif á þetta
unga par sem gekk um Ægisíðuna
í gærmorgun.
Nokkuð hlýtt var í veðri eftir
töluvert frost í liðinni viku.
Spáð er hlýnandi veðri víðs-
vegar um landið í dag, sunnudag.
Sumstaðar munu snjókornin falla
en annars staðar verður dálítil
slydda. Þó má búast við frosti inn
til landsins.
Morgunblaðið/Kristinn
Gengið um í jólasnjónum
♦♦♦