Morgunblaðið - 03.01.2005, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 03.01.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2005 35 UMRÆÐAN                        ! "                                            !"   #  $ %%    &#         # %  #  $  '          (     )))   #  $  %     &     '( )     ' %%  #  %    %  # % *      +,  -.- $%  %   # %# /   %   0 1        $% 2  310 $ %   %           $   $% 1        !*     + -    &     $  /           # %  $% 1       %  $ %     !" 4 $    25        %   %      /  1 $ $%   $  %   %     $ %%   1 $  $   /     /      %          %   %    ,&  #         2 *                %       2      # %  (     $ %      !" . #       1 $          $ %#    /  $  1 $  $      '  ( %  %      *  1 $     #   $ %%   &   %     % %   1 $2        /   $  &         %   1%         $ %%    6   /           $  1 $  $        $%       /   1  - $ %%  1 $ $             !    6       /     #          $  1 $        $          !            ( (   (     7  $%  $ 2    %      %   %    8 (  %      $         %  . %     $  % $% %   *   1 $%9 %    / * :       %%    %  % ;         """<!    <= $% =   %          (  1 1         6          /  (      &  ,  /         7*/   % /  &   ,   ># % %     %  # *  #% ! #1 ! $% %  #1 ! +   %       % $%   (        %  /%        % *   %              %     $%     #   -        # ;   %    (    %   %     % $         %       $%        (      ;.  % . + /      4 $ ? $% % & %   %  #  #    $% 1%=     2 7 #  !2  8 # 2  "" "2  2 )))         Í STÓRGÓÐRI bók Auðar Jónsdóttur, Fólkið í kjallaranum, sem kom út fyrir jólin segir að- alpersónan, hippabarnið Klara, um pólitískar hugsjónir sinnar (okkar) kynslóðar: „Fólk safnast saman í ólíka og tvístraða hópa til að fá útrás fyrir sín hjartans mál“ ... „mótmæla stríði“ ... „stuðla að umhverfisvernd“ ... „kveikja meðvitund um jafnrétti“ ... „flestir mæta þó á fundi hjá ungum hægrimönnum“. Síð- an segir Klara: „Reyndar skiptir engu máli hvað mað- ur aðhefst því allt er sniðugt og æðislegt. Ekkert bannað og enginn kippir sér upp við neitt. Allir sam- þykkja allt og enginn mótmælir neinu þannig séð. Póstmód- ernískt frelsi ein- staklingsins í fyr- irrúmi.“ Er þetta rétt? Er allt jafn „sniðugt og æðislegt“, er „póst- módernískt frelsi ein- staklingsins“ það sem blívur? Við áramót er hollt að skoða eigin hugmyndir, ekki síst ef þú ert þátttakandi í stjórnmálastarfi. Frjálshyggja 20. aldar Hugmyndir hægrimanna um yfir- burði frjáls markaðskerfis yfir rík- isreknum, miðstýrðum apparötum, sigruðu í hugmyndabaráttu 20. aldar. En um hvað tökumst við á á 21. öldinni? Hvað hafa hægri menn fram að færa umfram það sem vannst á 20. öldinni, sem að sjálfsögðu þarf að standa vörð um? Hvert er þeirra erindi í stjórnmálum annað, en það sem enn er óunnið í atvinnulífi eins og afnám ríkisforsjár og styrkja í landbúnaði, sala Símans o.fl. slíkt? Skattalækkanir, aðhald í með- ferð almannafjár eru sjálfsögð og klassísk viðfangsefni stjórnmála. Ekki þarf að fara lengra en niður í miðbæ og bera saman þá sem fara með völd í Ráðhúsi Reykja- víkur og þá sem stjórna í Arn- arhvoli til að sjá yfirburði hægri- manna. Annað álitamál, einka- rekstur á samfélagsþjónustu er einnig sjálfsagður, að því gefnu að um samkeppni sé að ræða, gæði tryggð og jafn aðgangur allra. En varla teljum við hægrimenn að fólk lifi af brauði (rekstri) einu saman? … ekki af brauði einu saman Hagvöxtur, útrás fyrirtækja, er grundvöllur annarra markmiða sem við þurfum að setja okkur og hugsa okkur í gegnum. Þar eru þó enn sem komið er í mínum huga fleiri spurningar, en svör. Til dæmis: Hvernig tryggjum við bet- ur aðgang allra að menntun, bæði íslenskra umgmenna og þeirra eldri sem duttu út úr skólum? Hvernig tryggjum við betur hlut- deild allra Íslendinga í þeim lífs- gæðum, sem við höfum nú efni á, hver er eðlileg skipting tekna og eigna? Hvernig vinnum við gegn því að fólk fari út á jaðar sam- félagsins, nái ekki tökum á eigin lífi, ánetjist fíkniefnum og af- brotum? Hvernig stuðlum við að samheldni og trausti í samfélag- inu? Hvernig tökum við þátt í að ná því aldamótamarkmiði Samein- uðu þjóðanna, að árið 2015 hafi þeim fækkað um helming í heim- inum sem lifa undir fátækramörk- um? Samfélag jafningja … stétt með stétt Kjörorð sjálfstæðisstefnunnar „stétt með stétt“, fel- ur þetta allt í sér og það kjörorð er styrkur Sjálfstæðisflokksins. Þegar það var sett fram voru aðstæður aðrar en nú og stétta- átök einkenndu at- vinnulíf og stjórnmál. Í dag felst stétta- samstaða í öðru. Hún felst m.a. í ábyrgð okkar á því að hér haldist áfram það samfélag jafningja sem landnámsmenn Íslands lögðu upp með. Samfélag þar sem lög, andstætt því sem var í öðrum löndum, gerðu ekki ráð fyrir hærri bót- um fyrir húskarla en goða og sveitungar báru ákveðna ábyrgð hver á öðrum ef áföll dundu yfir. Samfélag þar sem um þúsund árum síðar sló í gegn smásaga um sömu jafningjahugmynd. Saga Halldórs Lax- ness um ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933. Sig- ur Stebba pikkóló á Hótel Geysi á Pittigrilli fasista- herforingja. Stebbi, sem „tók alla fyrir jafningja sína“, taldi sig jafn- ingja herforingjans, ekki síst þar sem báðir voru í einkennisbúningi og með kaskeiti. Í sögunni biður Stebbi Pittigrilli kumpánlega um eld í vindling. Pittigrilli bregst við þeirri ósvífni pikkólósins, með því að slá vindlinginn úr hendi hans og gefa honum á kjaftinn. Stebba er misboðið, því eins og segir í sögunni leit hann ekki „á mann- virðingar sem afsökun og þaðan af síður einkaleyfi á því að sýna náunganum ósvífni“. Hann svarar því fyrir sig, keyrir Pittigrilli í götuna, með þeim afleiðingum að ítalski loftflotinn fer af landi brott í fússi. Verðleikar ekki valdatengsl Við lifum í samfélagi í dag, þar sem dugmiklir einstaklingar, án fjölskylduauðs, ættar- eða valda- tengsla, stýra í krafti eigin verð- leika útrás íslenskra fyrirtækja, sem löngu hafa tæmt við- skiptatækifærin innanlands. Þenn- an styrk, þessa verðleika þarf að varðveita og það sem ekki er minnst um vert stuðla að því að sem flestir njóti þeirra. Stétt með stétt, samfélag jafningja, verð- leikar en ekki valdatengsl merkir að leita skuli allra leiða til að tryggja öllum jöfn tækifæri til að nýta hæfileika sína og aðstæður. Í þjóðfélagi þar sem kjörorðið stétt með stétt fær endurnýjað inntak, samþykkja ekki allir allt, er ekki sama hvað maður aðhefst, er ekki allt sniðugt og æðislegt, eins og söguhetja Auðar Jóns- dóttur, Klara, heldur fram um okkar samtíma. Með endurnýjuðu inntaki kjör- orðsins stétt með stétt eigum við sjálfstæðismenn erindi við Íslend- inga og sönnum „Klörum“ þessa lands að þær hafi rangt fyrir sér. Endurnýjað inn- tak kjörorðsins „stétt með stétt“ Bolli Thoroddsen fjallar um hugsjónir og „póstmódernískt frelsi einstaklingsins“ í nútíma- samfélagi Bolli Thoroddsen ’Stétt með stétt,samfélag jafn- ingja, verðleikar en ekki valda- tengsl, merkir að leita skuli allra leiða til að tryggja öllum jöfn tækifæri til að nýta hæfileika sína og að- stæður.‘ Höfundur er formaður Heimdallar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.