Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 11 FRÉTTIR Mohairpeysa 6.000 1.900 Riffluð peysa 6.500 1.900 Rennd peysa 5.900 1.900 Rúllukragapeysa 6.200 1.900 Vafin peysa 4.800 1.900 Satíntoppur 5.300 1.900 Bolur m/perlum 6.600 1.900 Bolur m/áprentun 3.700 900 Skyrta 4.000 1.800 Viskósblússa 4.700 900 Hettupeysa 4.900 1.900 Sítt pils 6.300 900 Flauelsjakki 6.400 1.900 Dömujakki 6.500 1.900 Vatteruð úlpa 6.800 2.900 Íþróttagalli 8.900 2.900 Leðurbuxur 11.200 2.900 Kvartbuxur 4.900 900 Dömubuxur 5.800 900 Og margt margt fleira ÚTSALA - ÚTSALA 50—80% afsláttur Ótrúlega lágt verð Síðumúla 13 sími 568 2870 108 Reykjavík. Opið frá 10 - 18 ÞRJÁR stúlkur, þær Eydís Lilja Ey- steinsdóttir, Eva Agnarsdóttir og Lilja Dís Smáradóttir, voru búnar að safna 22.000 krónum í ferðasjóð vegna ferðar með fimleikafélaginu sínu í janúar. Þær ákváðu hins veg- ar að fara með peningana til Rauða krossins og þótti þeim betur varið til aðstoðar fórnarlamba hamfar- anna í Asíu í staðinn. Sögðust þær mundu hafa einhver ráð með ferð- ina. Ljósmynd/Þórir Guðmundsson Eydís Lilja Eysteinsdóttir, Eva Agnarsdóttir og Lilja Dís Smáradóttir. Gáfu RKÍ ferðasjóðinn ÞÆR Katrín Sif Ingimundardóttir, Hrund Andradóttir, Kolbrún Andradóttir og Stefanía Lára Magnúsdóttir (ekki á mynd) seldu flöskur og dósir fyrir rúmlega 20.000 krónur og afhentu Rauða krossinum til að nota til aðstoðar fórnarlömbum flóðanna í Asíu. Katrín Sif Ingimundardóttir, Hrund Andradóttir og Kolbrún Andradóttir. Styrktu RKÍ um 20.000 kr. NÍU af þeim 10 Íslendingum sem óttast var um, eftir að miklar flóð- bylgjur skullu á Suður-Asíu á annan dag jóla, hafa látið vita af sér. Fólkið reyndist heilt á húfi. Um var að ræða þriggja manna fjölskyldu sem stödd er í Taílandi, fimm manna fjölskyldu á Balí og einstakling sem staddur er í Taílandi. Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins hefur enn ekkert heyrst frá einum Íslendingi sem vitað er að var á Taílandi þegar hamfarirnar áttu sér stað. Ráðu- neytið telur ekki ástæðu til að ætla annað en að viðkomandi sé heill á húfi. Að sögn Péturs Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í utanríkisráðuneyt- inu, höfðu báðar fjölskyldurnar verið á svæði þar sem hvorki var síma- né tölvusamband. Fjölskyldan á Taí- landi hringdi heim í fyrrinótt og fjöl- skyldan á Balí sendi tölvupóst í gær- morgun, en í boðum, sem frá fjölskyldunum bárust, kom fram að ekkert amaði að þeim og að allir væru heilir á húfi. Síðdegis í gær bárust utanríkisráðuneytinu síðan upplýsingar um að annar einstak- linganna sem óttast var um væri heill á húfi, en hann hringdi heim í gær. Aðspurður segir Pétur ráðuneytið ekki hafa haft ástæðu til að ætla ann- að en að viðkomandi væri heill á húfi, svo og hinn einstaklingurinn sem enn hefur ekki látið vita af sér. Pétur segir ráðuneytið hafa fengið heimild hjá Persónuvernd og fjölskyldum fólksins til að athuga hvort kredit- kort þeirra hafi verið notuð síðustu daga. Aðeins var kannað hvort kortið hefði verið notað og hvort það hefði þá verið notað í verslun eða hrað- banka. Pétur segir vitað nokkurn veginn hvar sá Íslendingur sem ekki hefur enn látið vita af sér sé niðurkominn, en hann mun vera í þorpi miðja vegu milli Pattaya og Bangkok, en vitað er að hann hafi notað kreditkortið sitt á þessum stað nýlega. Að sögn Péturs hafa íslenskir ræðismenn á staðnum verið beðnir um að svipast um eftir manninum og spyrjast fyrir um hann á hótelum. Aðeins eftir að hafa uppi á einum „ÞEGAR verið er að ræða um tekjuöflun sveitarfélaga, eins og Reykjavíkurborgar, þá gengur auðvitað ekki að ræða hana án sam- hengis við önnur sveit- arfélög í landinu,“ segir Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir borgarstjóri og vísar gagnrýni borg- arfulltrúa sjálfstæðis- manna, sem birtist í auglýsingu og í frétt í Morgunblaðinu í gær, á bug. Aðspurð hvort og hvað hafi breyst síðan Reykjavíkurlistinn lof- aði fyrir síðustu kosningar að hækka ekki skatta bendir Steinunn á að Reykjavíkurborg hafi, líkt og öll sveitarfélög, verið að taka við aukn- um verkefnum af ríkinu á síðustu misserum. „Á sama tíma hafa sveit- arfélög orðið af miklum fjármunum, t.d. vegna mikillar fjölgunar einka- hlutafélaga, sem bitað hefur harka- lega á Reykjavíkur- borg.“ Í viðtali við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, odd- vita sjálfstæðismanna, í blaðinu í gær segir hann að rekja megi gjalda- og skattahækk- anir til langvarandi óráðsíu í fjármálum borgarinnar og skulda- söfnunar. „Með svona málflutningi er verið að reyna að slá ryki í augu fólks þegar það er stað- reynd, og það á Vil- hjálmur að vita sem formaður Sambands íslenskra sveitarfé- laga, að öll sveitarfélög í landinu eru að reyna að auka tekjur sínar með einhverjum hætti,“ segir Steinunn og veltir upp þeirri spurningu hvort Vilhjálmur sé með málflutningi sín- um að meina að öll sveitarfélög sem hækki útsvar búi við lélega fjármála- stjórn. „Það er auðvitað af og frá að setja málið fram með þessum hætti, því þetta hefur ekkert með fjármála- stjórn eða skuldasöfnun að gera. Þetta er villandi málflutningur þegar menn eru að koma því inn hjá fólki að hvítt sé svart,“ segir Steinunn og bendir á að í reynd séu skuldir Reykjavíkurborgar að lækka milli ára. Að sögn Steinunnar er það metn- aður Reykjavíkurborgar að vera í fararbroddi varðandi leikskóla, grunnskóla og félagsþjónustu. „Á sama tíma er Reykjavíkurborg að veita þjónustu langt út fyrir það sem er kveðið á um í lögum. Þannig má t.d. nefna að Reykjavíkurborg veitir, eitt sveitarfélaga, fötluðum börnum aðstöðu í frístundaheimilum. Allt kostar þetta vissulega peninga, en þess ber að geta að þótt sum þeirra gjalda, sem staðið hafa í stað árum saman, séu að hækka núna þá fer kostnaður fólks af þjónustunni í reynd lækkandi. Þannig ber borgin meiri kostnað vegna þjónustunnar þar sem bæði laun og verðlag hafa hækkað, en hlutfall almennings af þessum kostnaði fer lækkandi.“ „Villandi málflutningur“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir Í fréttatilkynningu sem Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, sendi frá sér síðdegis í gær sakar hann Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra um rang- færslur og útúrsnún- inga í viðbrögðum hennar við auglýsingu borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um skattahækkanir og svikin loforð R-listans í Morgunblaðinu í gær. Vilhjálmur segir rangt hjá borgarstjóra að auglýs- ingin sé villandi þar sem sveitar- félög undir stjórn sjálfstæðis- manna séu einnig að hækka sömu gjöld. „Fyrst borgarstjóri kýs að ræða um fjármál og skatta annarra sveitarfélaga þá má benda á að sveitar- félög eins og Garða- bær og Seltjarnarnes, þar sem sjálfstæðis- menn fara með meiri- hluta, hafa ekki verið að hækka skatta og gjöld neitt í líkingu við það sem gert hefur verið í Reykjavík. Ef borgarstjóri er að vísa til Kópavogs þá var þar um óverulega hækkun útsvars að ræða eða um 0,09 pró- sentustig á sama tíma og Reykjavíkurborg hækkaði um 0,33 pró- sentustig,“ segir m.a. í fréttatil- kynningunni. Að mati Vilhjálms á Reykjavík- urborg ekki að þurfa að hækka skattana þar sem það sé stærsta og öflugasta sveitarfélag landsins sem fái árlega um 1.500 milljónir í borg- arsjóð úr sjóðum OR. Vilhjálmur segir aðalforsenduna fyrir skatta- hækkunum R-listans vera lélega fjármálastjórn og stóraukna skuldasöfnun. Hann telur ástæðu til að spyrja hvaða forsendur hafi breyst frá árinu 2002 sem kalli á að Reykjavík hækki skatta og þjón- ustugjöld um rúman milljarð króna. „Ef einhverjar forsendur hafa breyst frá kosningaárinu 2002 þá eru það þær staðreyndir að skuldir borgarsjóðs hafa hækkað upp úr öllu valdi, þvert á það sem haldið var fram árið 2002. Tekjur borgarinnar hafa farið hækkandi ár frá ári, fasteignaskattar hafa hækkað umfram áætlanir og borg- in hefur haft verulegar tekjur af sölu lóða með uppboðsaðferðum. Auk þess er óeðlilegt og ekki sann- gjarnt að tengja skattahækkanir við ákveðna starfsstétt eins og borgarstjóri hefur gert.“ Léleg fjármálastjórn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.