Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 37
ÞÓ AÐ Norðmenn hafi verið ríkir
af olíu í langan tíma þá hefur skáklíf
þeirra ekki verið auðugt eftir að
mótshaldarinn Arnold Eikrem lést
fyrir tæpum tíu árum. Núna bregður
svo við að ungstirnið Magnus Carl-
sen hefur vakið mikla almenna at-
hygli þar í landi
enda einn yngsti
skákmaður sög-
unnar til að verða
stórmeistari. Það
hefur án efa
hjálpað til að öfl-
ug skákhátíð er
haldin þessa dag-
ana í Drammen
en helsti styrkt-
araðili mótsins
Smartfish, hefur
aðstoðað Magnus
með margvíslegu
móti. Fyrirtæki
þetta ku aðallega
framleiða og selja
bætiefni. Skákhá-
tíðin er flokka-
skipt og er sterk-
asti flokkurinn
skipaður tíu afar
öflugum skák-
meisturum. Einnig er haldið opið al-
þjóðlegt mót sem hefur á að skipa
nokkrum stórmeisturum. Þrír ungir
og galvaskir íslenskir skákmenn
taka þar þátt. Alþjóðlegi meistarinn
Stefán Kristjánsson heldur áfram að
sýna sig og sanna en hann hefur 5
vinninga af 6 mögulegum og er í 2.-6.
sæti. Hann hefur unnið fjóra stiga-
lægri skákmenn og sigrað einn stór-
meistara frá Makedóníu. Hinsvegar
þurfti hann að lúta í lægri haldi gegn
pólskum alþjóðlegum meistara eftir
að hafa tapað manni fyrir tvo peð
snemma tafls. Sæmilegir möguleikar
eru fyrir Stefán að ná sínum fyrsta
áfanga að stórmeistaratitli á mótinu
en til þess þarf allt að ganga upp í
lokaumferðunum þrem. Í sjöundu
umferð etur hann kappi við norska
stórmeistarann Rune Djurhuus.
Hinum íslenska alþjóðlega meistar-
anum á mótinu hafa verið mislagðar
hendur í síðustu tveim umferðum
eftir að hafa byrjað mótið af krafti.
Jón Viktor Gunnarsson hafði þrjá og
hálfan vinning eftir fjórar umferðir
og hafði þá m.a. lagt finnska stór-
meistarann Heikki Westerinen að
velli. Hann tapaði svo tveim umferð-
um í röð svo að nauðsynlegt er fyrir
hann að spýta í lófana til að ná góðu
sæti á mótinu. Davíð Kjartansson
vann fyrstu tvær skákir sínar á
mótinu en tapaði svo fyrir Stefáni og
stórmeistara frá Ekvador. Tveir
sigrar í röð þýða að hann hefur nú
fjóra vinninga af sex mögulegum og
ekki er hægt að útiloka að hann nái
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Í ofurmótinu hefur gengi norska
undrabarnsins verið rysjótt í meira
lagi. Taflmennskan hefur verið slök
og er hann neðstur með 1½ vinning
af 6 mögulegum. Stigahæsti skák-
maður Norðurlanda, danski stór-
meistarinn Peter Heine Nielsen,
hefur teflt af miklu öryggi og er efst-
ur með 4½ vinning en ofurstórmeist-
arinn Alexey Shirov kemur í humátt
á eftir með fjóra vinninga. Sá danski
lagði undrabarnið að velli í fyrstu
umferð mótsins í sérstakri skák þar
sem byrjunarundirbúningur skar úr
um úrslit viðureignarinnar.
Hvítt: Peter Heine Nielsen (2663)
Svart: Magnus Carlsen (2581)
1. Rf3 Rf6 2. c4 c6 3. d4 d5 4. Rc3
dxc4 5. a4 Bf5 6. Re5 Rbd7 7. Rxc4
Dc7 8. g3 e5 9. dxe5 Rxe5 10. Bf4
Þetta afbrigði slavnesku varnar
kom upp þrívegis í heimsmeistara-
einvígi Aljekíns og Euwe árið 1935.
Síðan þá kom það sjaldan upp í
sterkum skákmótum þangað til að
Alexander Morozevich og fleiri rúss-
neskir meistarar tóku það upp á sína
arma. Það hefur nánast án undan-
tekninga verið leikið 10...Rfd7 í stöð-
unni en Magnus bryddar upp á til-
breytingu. Eins og við var að búast
kom hann ekki að tómum kofanum
hjá Dananum snjalla.
10...Rfg4? 11. f3! g5 12. fxg4 gxf4
13. Rxe5 Dxe5 14. gxf5 Bc5 15. Dc2
O-O-O 16. De4 fxg3
Eftir miklar flækjur síðustu leikja
liggur fyrir að hvítur er manni yfir
en svartur hótar máti og hefur viss
praktísk færi vegna veikra kóngs-
stöðu hvíts og yfirburða sinna á
svörtu reitunum.
17. Bg2
17. Dxe5?? Bf2# hefði verið snot-
ur endalok. Eftir textaleikinn tekst
hvítum að verjast og stilla saman
strengi sína.
17... Dd6 18. Dd3! Df4 19. Dxg3
Dd2+ 20. Kf1 Dxb2 21. Hb1 Dxb1+
Endataflið sem kemur upp eftir
þetta er tapað en aðrir kostir í stöð-
unni voru ekki góðir en hinsvegar
mátti íhuga 21...Dc2 í þeirri von að
halda drottningunum inni á borðinu.
22. Rxb1 Hd1+ 23. De1 Hhd8 24.
Be4 Hxe1+ 25. Kxe1 Hd4 26. Bc2
Kc7 27. e4! a5 28. Ke2 Hc4 29. Kd3
Hd4+ 30. Ke2 Hc4 31. Kd3 Hd4+ 32.
Kc3
Hvítur er manni yfir í endatafli en
helsti möguleiki svarts liggur í tíma-
bundinni passífri stöðu hvíta riddar-
ans og að frípeð hans á drottning-
arvæng komist eitthvað áleiðis.
Þessir möguleikar eru þó vart raun-
hæfir gegn sæmilega skynsamri tafl-
mennsku hvíts. Hinsvegar er eitt
einkenni Magnusar hins unga að
hann gefst seint upp þó að staða
hans hafi verið gjörtöpuð í langan
tíma.
32... b5 33. axb5 cxb5 34. Hd1
Hc4+ 35. Kd3 a4 36. Rd2 Hd4+ 37.
Ke2 a3 38. Bb3 f6 39. Bd5 Kb6 40.
Hc1 Ha4 41. Rb3 Bb4 42. Hc6+ Ka7
43. Rc1
Eftir að tímamörkunum var náð
eftir fjörutíu leiki og það lá fyrir að
hvítum hafi tekist að skorða frípeð
svarts með mönnum sínum var orðið
tímabært fyrir svartan að gefast
upp. Engu að síður hélt hann áfram í
tuttugu leiki til viðbótar og gafst
ekki upp fyrr en hann yrði mátaður
innan nokkra leikja.
43... Ha6 44. Hc7+ Kb6 45. Hb7+
Ka5 46. Rb3+ Ka4 47. Rd4 Bc5 48.
Kd3 Bxd4 49. Kxd4 Kb4 50. Hxh7 a2
51. Bxa2 Hxa2 52. Hh6 Hd2+ 53.
Ke3 Hd6 54. e5 Hd5 55. e6 Kc5 56.
Hxf6 b4 57. Kf4 Hd4+ 58. Kg5 b3
59. Hf8 Hb4 60. e7 b2 61. e8=D
b1=D 62. De5+ Kc4 63. Hc8+ Kb3
64. Dc3+ og svartur gafst upp sadd-
ur lífdaga.
Viktor gamli Korsnoj er á meðal
keppanda og hefur hann helming
vinninga eins og nokkrir aðrir þátt-
takendur, þ. á m. Kjetil nokkur Lie.
Lie þessi kom inn í mótið á síðustu
stundu í stað landa síns Simons
Agdesteins sem varð veikur. Hann
er alþjóðlegur meistari með 2474
stig og hefur náð tveim áföngum að
stórmeistaratitli.
Haldi hann vel á spöðunum í síð-
ustu umferðunum tryggir hann sér
þann þriðja.
Heimsmeistari kvenna, Antonaeta
Stefanova hefur teflt slælega á
mótinu og er næstneðst með 2 vinn-
inga.
Upplýsingar um nánari úrslit og
um mótið er hægt að finna á
www.skak.is en á þeirri síðu er
hlekkur við heimasíðu mótsins.
Ingvar Ásbjörnsson
tefldi í Þýskalandi
Hinn 13 ára Fjölnismaður, Ingvar
Ásbjörnsson, tók þátt í alþjóðlegu
skákmóti í Travemünde í Þýskalandi
sem lauk rétt fyrir áramótin. Hann
stóð sig býsna vel og fékk 3½ vinning
af sjö mögulegum.
Hugsanlegt er að hann komist á
stigalista FIDE vegna frammistöð-
unnar en tveir sterkir stórmeistarar,
annar frá Georgíu og hinn frá Úkr-
aínu unnu mótið með 6½ vinning.
Fyrirlestraröð í janúar um
Fischer í Skákskóla Íslands
Helgi Ólafsson stórmeistari og
skólastjóri Skákskóla Íslands mun
standa fyrir fyrirlestrakvöldum um
Bobby Fischer alla fimmtudaga í
janúar. Mun Helgi gera úttekt á stíl-
brögðum Fischer, skákum hans, per-
sónuleika og ferli.
Helgi mun taka fyrir skákir Fisch-
er, byrjanir, miðtafls- og endatafls-
tækni, varpa ljósi á hugsun bak við
einstaka leiki, val á byrjunum og
hernaðartækni.
Fyrsta fyrirlestrakvöldið verður
næstkomandi fimmtudag þann 6.
janúar og hefst klukkan 20 í húsa-
kynnum Skákskóla Íslands að Faxa-
feni 12.
Stefán Kristjánsson í
2.–6. sæti í Drammen
SKÁK
Rica Park Hótel Drammen
SKÁKHÁTÍÐ Í DRAMMEN Í NOREGI
27. desember 2004 – 5. janúar 2005
Helgi Áss Grétarsson
Peter Heine
Nielsen
Stefán
Kristjánsson
daggi@internet.is
Bridsfélag
Kópavogs
Fimmtudaginn 6. janúar verður
eins kvölds tvímenningur og verður
án efa boðið upp á einhverjar flug-
eldasýningar við spilaborðið í tilefni
dagsins.
Fimmtudaginn 13. janúar hefst
svo aðalsveitakeppnin.
Spilað er í Hamraborg 11, 3. hæð
og byrjað kl. 19.30.
Hangikjötið gengið út hjá
Bridsfélagi Akureyrar
Að venju var spilað um hangikjöt,
síðasta þriðjudag fyrir jól.
Nú voru hangiketstvímenningarn-
ir tveir og var betra kvöldið látið
ráða.
Verðlaunasæti skiptust þannig:
Stefán Ragnarss. - Pétur Guðjónsson 61%
Helgi Steinsson - Gylfi Pálsson 59%
Frímann Stefáns. - Hermann Huijbens 58%
Úrslit seinna kvöldsins voru eins
og hér segir:
Helgi Steinsson - Gylfi Pálsson (59%)
Frímann Stefáns.- Hermann Huijbens (58%)
Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir (54%)
Páll Þórsson - Kolbrún Guðveigsd. (53%)
Sunnudaginn 19. des. var síðasti
sunnudagstvímenningurinn á þessu
ári.
Úrslit voru sem hér segir:
Frímann Stefánss. og Björn Þorlákss. +21
Víðir Jónsson og Soffía Guðmundsd. +19
Hjalti Bergmann og Gissur Jónasson +7
Steinarr Guðmss. og Sigfús Aðalsteinss. +7
Dagskrá Bridsfélags Akureyrar
eftir áramót er ekki tilbúin, en hún
verður auglýst eins fljótt og auðið er.
FEBK Gjábakka
Þriðjudaginn 7. desember var spil-
aður tvímenningur á 8 borðum. Með-
alskor var 168.
Úrslitin urðu þessi í N/S:
Einar Einarsson og Ólafur Lárusson 193
Lilja Kristjánsd. og Unnar A. Guðm.s. 192
Eysteinn Einarsson og Jón Stefánsson 170
A/V.
Guðjón Kristjánss. og Magnús Oddss. 197
Helga Helgadóttir og Sigrún Pálsdóttir 196
Aðalheiður Torfad. og Ragnar Ásm.s. 188
Föstudaginn 10. desember var
spilaður tvímenningur á 10 borðum.
Meðalskor var 216.
Úrslitin urðu þessi í N/S:
Júlíus Guðmss. og Oliver Kristófersson 254
Hrafnhildur Skúlad. og Þórður Jörunds. 241
Auðunn Guðm.s. og Bragi Björnsson 238
A/V.
Ólafur Ingvarsson og Ragnar Björnsson 246
Halla Ólafsdóttir og Jón Lárusson 235
Helga Helgadóttir og Sigrún Pálsdóttir 229
Eysteinn Einarsson og Jón Stefánsson 229
Föstudaginn 17. desember var
spilaður tvímenningur á 8 borðum.
Meðalskor var 168.
Úrslitin urðu þessi í N/S:
Albert Þorsteins. og Sæmundur Björns. 196
Eysteinn Einarsson og Jón Stefánsson 195
Auðunn Guðmss. og Bragi Björnsson 173
A/V.
Ólafur Ingvarss. og Ragnar Björnsson 204
Helga Helgadóttir og Sigrún Pálsdóttir 195
Hrafnhildur Skúlad. og Þórður Jörunds. 183
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Innritun og greiðsla á http://kvoldnam.ir.is og í skólanum
3., 4. og 5. janúar, kl. 16–19. Kennsla hefst mánudaginn 10. janúar.
Hver eining er 4.000 kr., þó er aldrei greitt fyrir fleiri en 9 einingar.
Fastagjald er 4.250 kr. og efnisgjald þar sem við á.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um þátttöku.
Stundatöflur eru á http://kvoldnam.ir.is
Upplýsingar í síma 522 6500 og á www.ir.is • ir@ir.is
Kvöldskóli
Fjarnám
Bygginga- og mannvirkjagreinar
Verklegt og bóklegt grunn- og framhaldsnám.
Rafiðnanám
Grunnnám rafi›na 2. önn. Rafvirkjun 3.–7. önn.
Tölvubraut
†msir tölvuáfangar, undirbúningur undir CCNA grá›u.
Listnám
†msir áfangar í kjarna og á kjörsvi›i almennrar hönnunar.
Öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun.
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar
Grunnnám uppl‡singa- og fjölmi›lagreina.
Undirbúningur fyrir nám í grafískri mi›lun, vefsmí›,
ljósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi..
Tækniteiknun
Fjölbreyttir áfangar í AutoCad.
Meistaraskóli
Allar rekstrar- og stjórnunargreinar.
Faggreinar byggingagreina.
Almennt nám
Bókfærsla, danska, e›lis- og efnafræ›i, enska,
félagsfræ›i, fríhendisteikning, íslenska, grunnteikning,
spænska, stær›fræ›i, tölvugreinar, fl‡ska.
Traust menntun í framsæknum skóla
Innritun og grei›sla á fjarnám.ir.is
Kennsla hefst 17. janúar.
Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um þáttöku.
Allar nánari uppl‡singar á fjarnám.ir.is
og á ir.is e›a í síma 522 6500.
me› áherslu á starfstengt nám
Byggingagreinar
Efnisfræ›i og grunnteikning.
Grunnnám rafi›na
Rafmagnsfræ›i 103 og 202.
Rafvirkjabraut
Rafmagnsfræ›i, regluger›, raflagnateikning.
Rafeindavirkjun
Greinar á 3. og 4. önn.
Tækniteiknun
Grunnteikning, húsateikning, raflagnateikning,
AutoCad.
Tölvubraut
Forritun, gagnasafnsfræ›i, vefsí›ugerð, netst‡rikerfi.
Uppl‡singa- og fjölmi›labraut
Allar greinar í grunnnámi uppl‡singa- og
fjölmi›labrautar.
Meistaraskóli
Allar stjórnunar- og rekstrargreinar.