Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Hluthafafundur í HB Granda hf. verður
haldinn fimmtudaginn 6. janúar 2005 í matsal
fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík, og
hefst hann kl. 14:00.
Á dagskrá fundarins er samruni HB Granda hf., Tanga
ehf., Bjarnareyjar ehf. og Svans RE-45 ehf., og aukning
hlutafjár HB Granda hf. tengd samrunanum.
Tillaga liggur frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum
til sýnis, ásamt gögnum í samræmi við 5. mgr. 99. gr. laga
nr 138/1994 og 5. mgr. 124. gr. laga nr. 2/1995. Ennfremur
er hægt að nálgast tillöguna á vefsíðu félagsins www.
hbgrandi.is.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað
frá kl. 13:30.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast gefa
umboð, þurfa að gera það skriflega.
Stjórn HB Granda hf.
HLUTHAFAFUNDUR
HB GRANDA HF.
Norðurgarður | 101 Reykjavík | www.hbgrandi.is
BROTTHVARF átta starfsmanna
SÍF rétt fyrir áramót og stofnun
nýs fyrirtækis um sölu og mark-
aðssetningu á saltfiski þykir
höggva stórt skarð í starfsemi SÍF
sem verið hefur leiðandi í sölu ís-
lensks saltfisks um áratuga skeið.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu á föstudag sögðu átta
starfsmenn SÍF upp störfum í síð-
ustu viku og hyggjast þeir við ní-
unda mann, sem áður starfaði hjá
SÍF, stofna eigið fyrirtæki um sölu
og markaðssetningu á saltfiski og
skreið. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var það óánægja
meðal starfsmannanna um áherslur
og stefnu SÍF sem olli því að þeir
ákváðu að segja upp störfum og
hefja starfsemi á eigin spýtur.
Sölu- og markaðsstarfsemi SÍF var
fyrir skömmu færð í nýtt dótt-
urfélag, Iceland Seafood, þ.á m.
sala saltaðra afurða.
Ljóst er að brotthvarf starfs-
mannanna er nokkur blóðtaka fyrir
SÍF, a.m.k. mun félagið nú mæta
öflugri samkeppni í sölu á saltfiski
en það hefur gert um margra ára
skeið. Margir þeirra sem nú hverfa
frá félaginu hafa gegnt lykilhlut-
verki í sölu og markaðssetningu
saltfisks á helstu mörkuðum á und-
anförnum árum. Einkum er rætt
um að Ítalíumarkaður renni að
mestu úr greipum SÍF með brott-
hvarfi lykilmanna félagsins þaðan.
Þó saltfiskur vegi ekki ýkja
þungt í heildarveltu SÍF er hann
stór hluti af kjarnastarfsemi og
framleiðni félagsins. Munu stjórn-
endur félagsins hafa lagt hart að
umræddum starfsmönnum að
halda áfram störfum en ekki haft
árangur sem erfiði.
Fátt er enn vitað um hið nýja fé-
lag. Telja má víst að á bak við það
standi fjársterkir aðilar og hafa
ýmis nöfn verið nefnd í því sam-
bandi. Ekki hefur þó fengist neitt
staðfest í þeim efnum og áttmenn-
ingarnir þögulir sem gröfin. Þó má
teljast líklegt að umræddir starfs-
menn hafi ekki ráðist í svo djarfar
aðgerðir nema að gerðum samn-
ingum við stóra framleiðendur hér
á landi og sterka kaupendur er-
lendis. Þannig hefur nafn Vísis hf. í
Grindavík verið nefnt í þessu sam-
hengi en fyrirtækið er einn stærsti
saltfiskframleiðandi landsins og
hefur selt alla framleiðslu sína í
gegnum SÍF. Pétur H. Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis, sagði hins
vegar í samtali við Morgunblaðið í
gær að félagið hefði ekkert með
stofnun hins nýja fyrirtækis að
gera.
Örn Viðar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood,
segir að þó uppsagnirnar hafi kom-
ið á óvart sé hér aðeins um lítinn
hluta starfsliðs fyrirtækisins að
ræða. Þar starfi um 230 manns.
Hann segir að Iceland Seafood reki
öflug saltfisksölufyrirtæki á Spáni
og Grikklandi og engin breyting
verði á starfsemi fyrirtækisins á
Portúgalsmarkaði. Auk þess reki
SÍF-samstæðan öfluga saltfisksölu
í Frakklandi og Kanada og sölu-
skrifstofu á Ítalíu. „Við erum því
vel í stakk búin til að bregðast við
þessum uppsögnum og munum
halda áfram uppbyggingarstarfi á
okkar helstu mörkuðum,“ segir
Örn.
Uppsagnir blóð-
taka fyrir SÍF?
hema@mbl.is
Fréttaskýring
Helgi Mar Árnason
ÁRIÐ 2004 jókst verðmæti Fjár-
festingarfélagsins Atorku hf. hlut-
fallslega mest af þeim fyrirtækjum
sem skráð voru í úrvalsvísitölu
Kauphallar Íslands í lok ársins. Alls
jókst verðmæti félagsins um rúm
294%. Næstmest jókst verðmæti
KB banka, um tæp 196%. Þegar
skoðaðar eru krónutölur í stað
hundraðshluta jókst verðmæti KB
banka mest, um ríflega 193 millj-
arða króna. Næstmest jókst verð-
mæti Íslandsbanka, um tæpa 76
milljarða króna eða 113%. Verð-
mæti Atorku jókst um rúma 12
milljarða króna. Actavis Group hf.
var eina félagið sem dróst saman í
verðmæti en verðmæti félagsins er
6,75% minna en fyrir ári.
Fækkun skráðra félaga
Nýskráningar félaga í Kauphöll-
ina á síðasta ári voru engar en alls
voru 13 félög afskráð. Auk þeirra
verða Opin Kerfi hf. afskráð í dag
er yfirtaka Kögunar hf. á félaginu
tekur gildi. Auk þess verða Tangi
hf. og Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
afskráð á næstu mánuðum. Alls eru
í dag skráð 34 félög í Kauphöllina
en að þessum félögum frátöldum
eru þau 31. Samkvæmt Morgun-
korni Íslandsbanka er líklegt að
flugfélagið Avion Group verði skráð
í Kauphöllina á þessu ári auk fær-
eyska olíufélagsins Atlantic Petrol-
eum. Þá er gert ráð fyrir að Síminn
verði skráður í kjölfar einkavæð-
ingar sem stefnt er að á þessu ári.
!
! "
#
$
$
%
%
&'
&
'
(
)*+,-
*.+/-
0+-,
*+.*
1+1-
1+/,
22)+--
,+.-
20+/-
1+2,
2+.1
*.+0-
.+3,
)+.1
)/+1-
"# #
"
/.+0-
2)+/-
*2+--
,+.,
0+0,
**+2-
))2+--
*2+*-
)3+2-
1+*-
/+2-
20+--
**+*-
3+,,
01+,-
"# #
4././
5**)).
5/,)-)
5*2***
5*0-*
50,,1,
5*3//)-
5,),*-
5,2,0
5**-3
5*/.3
521)0
5/,0
5/*)-/
5*--)*
$% **,.,3
/32./
110-1
*1221
**)12
*)22)-
232-2/
3.-*-
**.**
)-3-
**/-2
.2-,
*.)/
,*,0-
2)/1*
"# #
*2)2)2
20./,
/*/-2
)**,
301*
1110,
3.1./
)/,--
1,,)
23.2
33*/
,,,.
*).1
2-*10
*)/2-
"# #
"
Verðmæti KB banka
jókst um 193 milljarða
NOKKUR áhugi er fyrir kaupum á
fyrirtækinu Woodward Foodservice
af Baugi Group, að því er fram kemur
í breskum fjölmiðlum. Woodward út-
vegar matvæli í veitingahús og hótel á
Bretlandi og er hluti af verslanakeðj-
unni Big Food Group (BFG), en
Baugur lagði fram yfirtökutilboð í
BFG í síðasta mánuði.
Í frétt á vefmiðli breska blaðsins
Daily Mail segir að forsvarsmenn
Baugs hafi rætt við forsvarsmenn
suður-afríska fyrirtækisins Bidwest
um að kaupa Woodward. Fleiri aðilar
eru sagðir hafa áhuga.
Þá segir Daily Mail að orðrómur
hafi verið á kreiki um að þegar Baug-
ur hafi að fullu lokið yfirtökunni á
BFG verði Bill Grimsey, fram-
kvæmdastjóri BFG, beðinn um að
taka við Booker verslunarkeðjunni,
sem einnig er hluti af BFG. Blaðið
hefur hins vegar eftir heimildarmönn-
um, að þetta sé ólíklegt og Grimsey og
Bill Hoskins, sem hefur verið fjár-
málastjóri BFG, muni láta af störfum.
Áhugi á
Woodward
● EIGENDUR að 99,54% hlutafjár í
hinum norska BNbank hafa samþykkt
yfirtökutilboð Íslandsbanka en fram-
lengdu tilboðstímabili lauk 30. des-
ember. Íslandsbanki hefur þegar sent
umsókn til norska fjármálaeftirlitsins,
norska fjármálaráðuneytisins og ís-
lenska fjármálaeftirlitsins um heimild
til kaupa á BNbank. Íslandsbanki
mun óska eftir innköllun á þeim bréf-
um sem eftir kunna að standa.
Tilboðstíma
í BNbank lokið
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
!"
#
!
!!"
#
"
#
$