Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa hvatt
til, að komið verði upp kerfi til að
vara við flóðbylgjum á Indlandshafi
innan árs og á það ætlar Taílands-
stjórn að leggja áherslu á ráðstefnu
um hamfarirnar, sem haldin verður í
Jakarta í Indónesíu á fimmtudag. Á
það er einnig bent, að sams konar
náttúruhamfarir geti orðið á Atl-
antshafi og í Miðjarðarhafi.
Salvano Briceno, sem starfar við
að auka viðbúnað og draga þannig úr
afleiðingum náttúruhamfara, segir,
að kerfi eða búnaður, sem vari við
flóðbylgjum, sé mjög öruggur en
mesti vandinn sé hins vegar að koma
boðunum áleiðis til þeirra, sem mest
þurfa á þeim að halda. Þar sé oft um
að ræða fólk í afskekktum og fátæk-
um strandbyggðum.
Briceno benti á, að það hefði tekið
flóðbylgjuna eina klukkustund að ná
ströndum Súmötru í Indónesíu og
sex klukkustundir að ná til Afríku-
stranda. Hefði þessi tími átt að
nægja til að vara flesta við en reynd-
in var hins vegar sú, að almennt
hafði fólk ekki nema eina eða tvær
mínútur til að forða sér.
Japanir, Bandaríkjamenn
og Rússar bjóða aðgang
Briceno nefndi einnig, að strax
eftir jarðskjálftann á öðrum degi jóla
hefðu bandarískir jarðskjálftafræð-
ingar varað við hættunni á flóðbylgju
en sú viðvörun hefði því miður ekki
borist til þeirra byggða, sem voru í
mestri hættu. Sagði hann, að yfir-
völd í Japan, Bandaríkjunum og
Rússlandi hefðu nú boðist til að veita
öðrum ríkjum aðgang að sínum kerf-
um og gæti það orðið grundvöllur
nýs kerfis um allan heim. Sagði
hann, að sams konar hamfarir gætu
orðið í Karíbahafi og í löndunum við
Miðjarðarhaf.
Ástæða til að
óttast Kanaríeyjar
Sir David King, helsti vísindaráð-
gjafi bresku stjórnarinnar, segir í
grein í Independent on Sunday, að
hætta sé á, að hluti af einni Kan-
aríeyjanna, Cumbre Vieja, geti
hrunið fram í sjó og valdið gífurlegri
flóðbylgju. Byggir hann það á rann-
sóknum tveggja bandarískra vís-
indamanna en þeir telja, að eldgos á
Cumbre Vieja gæti valdið því, að
vesturhelmingur eyjarinnar brotn-
aði frá. Flóðbylgjan, sem hrunið ylli,
gæti orðið 100 metra há.
Sir David segir, að mestar yrðu
hamfarirnar á Kanaríeyjum sjálfum
en á Spáni og Englandi mætti búast
við fimm til sjö metra hárri öldu. Á
Nýfundnalandi gæti ölduhæðin orðið
10 metrar en 20 til 25 á Flórída. Í
norðanverðri Suður-Ameríku 25 til
20 metrar.
Sir David segir, að þetta geti gerst
„einhvern tíma á næstu 10.000 ár-
um“ og bendir á, að í Atlantshafi hafi
þetta gerst 10 til 20 sinnum á síðustu
milljón árum.
Líkur á heimssamstarfi
um viðvörunarkerfi
Bandaríkjamenn vöruðu við flóð-
bylgjum strax eftir jarðskjálftann en
boðin komust ekki á leiðarenda
Phuket, Genf. AP. AFP.
%&'!'
!"
#$!
%
& #
'(
((
()*!
! +,, ./+01
*0.2!)'' 31+&4 0 !'/ '4 564 .!20/7 89.02'
* 4&':0;'!*
$ "
$%$!
)! !
$ "
!"
*+
$
* $
#$ #
*
(0.2!)''+0
!0 *)*!! '4
45!!.0! ')/. 9 8)0/+
!
*
) $
,!
. )
)"$
)" $! #$!
<'4
UPPREISNARMENN í Írak eru
fleiri en 200 þúsund talsins að mati
Mohameds Abdullah Shahwani, yfir-
manns írösku leyniþjónustunnar.
„Ég tel að fleiri andspyrnumenn séu
í Írak heldur en bandarískir her-
menn. Ég tel að þeir séu meira en
200 þúsund,“ sagði Shahwani í gær.
Sextán mann biðu bana í þremur
tilræðum í Írak í gær, þ.á m. þrír í
sjálfsmorðsárás nálægt höfuðstöðv-
um stjórnmálaflokks Iyads Allawis,
forsætisráðherra bráðabirgðastjórn-
arinnar, í Bagdad. Á sunnudag höfðu
nítján íraskir þjóðvarðliðar fallið í
sjálfsmorðsárás í Balad, norður af
Bagdad. Um tugur manna til viðbót-
ar féll í árásum annars staðar í land-
inu á sunnudag.
Shahwani, yfirmaður írösku leyni-
þjónustunnar, segist telja að um
40.000 séu mjög virkir í baráttu upp-
reisnarmanna í Írak en hinir séu þeir
sem taka stundum þátt, eða hjálpa til
með einhverju móti, t.d. veita upp-
lýsingar um herliðið eða húsaskjól.
Á sunnudag viðurkenndi Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, að líklega myndi sameig-
inlegt framboð helstu flokka sjíta í
Írak, sem nýtur blessunar Ali Sist-
anis erkiklerks, vinna þar stórsigur.
Súnnítar þyrftu þó ekki að hafa
áhyggjur af þessu. Réttindi Súnníta
og Kúrda yrðu tryggð í stjórnar-
skránni sem þingið nýja mun skrifa.
Tugir farast í árásum í Írak
Bagdad. AFP, AP.
SUÐUR-KÓRESKI læknirinn Sin
Sang-Do (t.h.) veitir stúlkubarninu
Sandes aðhlynningu í sjávarþorp-
inu Mirisa á Sri Lanka í gær. Sand-
es er níu mánaða gömul en Sri
Lanka varð mjög illa úti í hamför-
unum í Suðaustur-Asíu á öðrum
degi jóla, þar dóu meira en 30.000
manns.
Reuters
Læknar hjúkra fólki á Sri Lanka
STJÓRNVÖLD í Danmörku, Nor-
egi og Finnlandi hafa birt lista yfir
þá, sem létust eða er saknað eftir
náttúruhamfarirnar í Suður-Asíu.
Eru tölurnar verulega lægri en ótt-
ast var. Í Svíþjóð verður enginn slík-
ur listi birtur á næstu dögum vegna
mikillar óvissu um áreiðanlegar upp-
lýsingar. Að því er fram kemur í nor-
rænum fjölmiðlum er þó ljóst, að tala
þeirra, sem er saknað, fer lækkandi.
Danska lögreglan greindi í gær
frá nöfnum sjö Dana, sem vitað er,
að fórust í hamförunum, og birti
einnig lista með nöfnum 69 manna,
sem er saknað. Á sunnudag setti hún
á Netið lista með nöfnum 268 manna,
sem þá var saknað, og kom þá strax í
ljós, að 199 þeirra voru heilir á húfi.
Á listanum, sem norska lögreglan
birti í gær, eru nöfn 16 Norðmanna,
sem staðfest er, að séu látnir, og 275,
sem er saknað. Áður hafði verið talið,
að 21 hefði látist og tala þeirra, sem
saknað var, var líka miklu hærri.
„Hef aldrei til Taílands komið“
Norska lögreglan og sú danska
leggja mikla áherslu á, að hér sé ekki
um neinar endanlegar tölur að ræða.
Kom enda á daginn síðar í gær að
norsku lögreglunni barst fjöldi sím-
tala frá fólki, sem séð hafði nafn sitt
á listanum og sem gera vildi grein
fyrir því að allt væri í lagi. Er nú 150
Norðmanna saknað. Það er því ljóst
að mun færri Norðmenn hafa farist
en talið var í upphafi, bæði Kjell
Magne Bondevik forsætisráðherra
og Jan Petersen utanríkisráðherra
höfðu lýst áhyggjum af því að norsk
fórnarlömb „kynnu að verða fleiri en
1.000“.
Ole Finseth, sem býr í Ósló, sagð-
ist í samtali við AFP-fréttastofuna
hafa undrast það mjög að hafa séð
nafn sitt á lista lögreglunnar fyrr um
daginn. „Ég hef aldrei til Taílands
komið,“ sagði hann.
Fleiri slíkar sögur voru sagðar,
Kjersti Hoyer frá Lillehammer,
sagðist t.d. tvívegis hafa greint
norska utanríkisráðuneytinu frá því
að henni og sex ættingjum hennar
eða vinir væri óhætt. Engu að síður
fann hún nafn sitt á listanum sem
birtur var í gærmorgun.
Staðfest að 52 Svíar fórust,
827 er enn saknað
Í Svíþjóð er óvissan mest enda
voru Svíar fjölmennir á hamfaraslóð-
unum eða allt að 20.000 manns. Á
sunnudag var tala þeirra, sem er
saknað, lækkuð úr um 3.500 manns í
2.915 en í fyrrakvöld og fram undir
morgun í gær var búið að strika út af
þeim lista 1.554 menn. Á sama tíma
bættust hins vegar við einhver nöfn.
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sagði í gær, að þá væri
með vissu saknað 827 manna en auk
þess hefði utanríkisráðuneytið ónóg-
ar upplýsingar um aðra 1.495 manns.
Væri margt af því fólki á ferðalagi í
Asíu en hefði ekki haft samband
heim. Staðfest tala yfir látna er enn
52.
Á listanum, sem finnska lögreglan
birti á sunnudag, voru nöfn 15
manns, sem eru látnir, og 186, sem
er saknað.
Færri Norður-
landabúa sakn-
að en óttast var
Nafnalistar birtir í Danmörku,
Noregi og Finnlandi en ekki í Svíþjóð
TÓLF ára gömlum sænskum
dreng sem slasaðist í flóðbylgj-
unni sem reið yfir landið kann
að hafa verið
rænt af
sjúkrahúsi
sem hann
dvaldi á í Taí-
landi. Sænska
og taílenska
lögreglan
vinna saman
að því að finna
drenginn sem
heitir Kristian
Walker.
Læknir á sjúkrahúsinu í
Khao Lak, einum af sumarleyf-
isstöðunum sem verst varð úti í
hamförunum, segir að maður
hafi komið og tekið Kristian
með sér. Maðurinn sem talið er
að hafi farið með hann er sagð-
ur „evrópskur í útliti, með yfir-
varaskegg og í rauðri skyrtu.“
Samtökin Barnaheill í Sví-
þjóð höfðu daginn áður varað
við því að börn væru látin vera
ein á sjúkrahúsum þar sem
hætta væri á að barnaníðingar
kæmust að þeim. „Reynslan af
slíkum hamförum sýnir að börn
eru sérstaklega varnarlaus,“
sagði Charlotte Petri Gorn-
itzka, talsmaður Barnaheilla.
Sagði hún að nú þegar væri ótt-
ast að eitthvað af slíkum tilvik-
um hefði komið upp í Sri Lanka
sem varð illa úti í hamförunum.
Ótti við
barnarán í
Taílandi
Kristian Walker
Sænskum dreng
rænt af spítala?