Morgunblaðið - 04.01.2005, Síða 20
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
auglýsir eftir umsóknum um styrki
úr sjóðnum á árinu 2005
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361
30. september 1977, sbr. auglýsingu nr. 673
frá 12. september 2000 um staðfestingu á breytingu
á skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð, er tilgangur sjóðsins
„að veita styrki til stofnana og annarra aðila,
er hafa það verkefni að vinna að varðveislu
og vernd þeirra verðmæta lands og menningar,
sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.“
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög
til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess
að lækka önnur opinber framlög til þeirra
eða draga úr stuðningi annarra við þau.
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2005.
Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Nálgast má umsóknareyðublöð á veffanginu www.sedlabanki.is
Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðstjórnar,
Sigfús Gauti Þórðarson, í síma 569 9600.
Reykjavík, 29. desember 2004
ÞJÓÐHÁT ÍÐARS JÓÐUR
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Margir góðir gestir hafa stigið á svið gamla
Samkomuhússins undir brekkunni í gegn-
um tíðina. Fjöldi þeirra eftirminnilegur en
ég efast um að annar eins senuþjófur og
Ólafur Egill Egilsson hafi birst þar lengi.
Fagín Ólafs Egils í nýfrumsýndum söng-
leiknum Óliver! er alveg frábær.
Áramótaskaupið sást vel í Eyjafirði. Mér
heyrist ýmsir sammála mér um það að Al-
freð Þorsteinsson hafi verið bestur; sniðugt
að fá fólk til að koma fram í eigin persónu(!)
Davíð og Bjarni Fel voru líka góðir.
Á heimasíðu Akureyrar er greint frá því
að inflúensa hafi stungið sér niður í bænum.
Helstu einkenni eru, skv. fréttinni: hár hiti
sem byrjar skyndilega, höfuðverkur og
beinverkir, hósti, hæsi, sviði í augum, nef-
rennsli og hálssærindi, og kviðverkir og
uppköst sem geta komið fyrir hjá börnum.
Mér skilst að flensan hafi stungið sér víða
niður á nýársdag en verið á bak og burt
strax daginn eftir, jafnvel síðar sama dag.
Börn sluppu þó í þetta sinn, skilst mér.
Nútímabarnið veit líklega ekki hvað það
þýðir að draga til stekks og nafnið Stekkja-
staur hefur jafnvel enga merkingu. Ég
heyrði af sveini, sem gefið var nýtt nafn, en
sá færði ungri Akureyrarmær síma í jóla-
gjöf að þessu sinni. Og heitir nú sem sagt
Símastaur! Býsna sniðugt. Eða hvað? Þeg-
ar pabbinn ætlaði að vera fyndinn og frum-
flutti nafnið skildi unga kynslóðin auðvitað
ekki neitt í neinu. Símastaurar, sem voru út
um allt í ungdæmi föðurins, eru hvergi sjá-
anlegir lengur. Nú eru allir hugsanlegir
kaplar lagðir í jörðu … Nei, það er kannski
úrelt líka. Allt orðið stafrænt, flutt einhvern
veginn í gegnum eilífðina og gervihnött.
Einn af föstu punktunum í tilverunni í upp-
hafi nýs árs á Akureyri er þrettándagleði
íþróttafélagsins Þórs 6. janúar. Að þessu
sinni kemur Birgitta Haukdal fram, ásamt
álfakóngi, drottningu hans, tröllum og púk-
um. Annar atburður, sem sannarlega er til-
hlökkunarefni, er afmælisleikur KA á laug-
ardaginn, 8. janúar – félagið var stofnað
þann dag 1928 – en þá mætast núverandi
úrvalsdeildarlið félagsins í handbolta og
fyrstu bikarmeistarar KA frá 1995. Leik-
urinn verður í KA-heimilinu kl. 15. Í gamla
liðinu verða m.a. Alfreð Gíslason, Valdimar
Grímsson og Sigmar Þröstur Óskarsson og
heyrst hefur að Róbert Julian Duranona
mæti til leiks.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
EFTIR SKAPTA HALLGRÍMSSON
BLAÐAMANN
Notkun á vefBændasamtak-anna, bondi.is,
jókst verulega á nýliðnu
ári miðað við árið á undan,
eða um 32%.
Notendur eru að jafnaði
á bilinu 300–500 á dag en
flestir heimsóttu vefinn
hinn 30. ágúst sl. þegar
830 einstaklingar fóru þar
inn. Ástæðan var sú að
þann dag voru settar inn
upplýsingar um fjár- og
stóðréttir sem vöktu
áhuga annarra vefmiðla
sem beindu gestum inn á
vef Bændasamtakanna.
Fæstir rápa um Netið á
nýársdag en þó voru 116
notendur sem fögnuðu
nýju ári með bondi.is segir
í frétt á vefnum.
Fleiri skoða
bændavefinn
Við reynum að leggja eitthvað af mörkum til sam-félagsins sem stendur á bak við okkur,“ sagðiSkúli Skúlason starfsmannastjóri Samkaupa
sem afhenti félaginu Stróki á Suðurlandi 250 þúsund
króna styrk. Hann sagði þýðingarmikið starf unnið í fé-
laginu þó hljótt færi. „Allt sem gert er til að færa birtu
í hjörtu fólks er af hinu góða, sagði Skúli.
Sigríður Jensdóttir, hjá Stróki, tók við styrknum og
þakkaði hlýhug í garð félagsins og sagði hann gefa
kraft til að halda áfram við að koma starfinu á legg.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Styrkja starfsemi Stróks
Friðrik Stein-grímsson í Mý-vatnssveit orti yf-
ir bridsspilunum kvöldið
fyrir gamlárskvöld:
Þó að heit ég eitt og eitt
um áramótin strengi
endast þau nú yfirleitt
ekkert voða lengi.
Nýtt ár er gengið í
garð og Jón Ingvar Jóns-
son strax farinn að yrkja
af kappi:
Gengur ár í garð hjá mér
glæstra nýrra vona.
Fyrsta vísa ársins er
einfaldlega svona.
Áramótabrennum var
víðast hvar aflýst vegna
veðurútlits, en Hjálmar
Freysteinsson tók eftir
fréttum sem sýndu að það
var ekki algilt:
Gáfumenn í Grindavík
eru gjarnan með á nótunum,
sú forsjálni er fáu lík
að flýta áramótunum.
Um áramót
pebl@mbl.is
Akureyri | „Þetta er neyslufylleríið í hnotskurn,“
sagði Guðjón Eiríksson og sveiflaði svörtum rusla-
pokum lipurlega upp í bíl sinn, en hann ekur einum
af sorpbílum bæjarins. Karlarnir í ruslinu voru
komnir af stað í býtið í gærmorgun að losa íbúana
við áramótaúrganginn, en líkt og í liðinni viku, eftir
jólin, voru ruslapokarnir við hvert heimili nokkru
fleiri en vant er. „Þetta voru 76 tonn í Glerárhverfi í
síðustu viku og mér sýnist stefna í að það verði svip-
að magn í þessari viku,“ sagði Guðjón.
Morgunblaðið/Kristján
Mun meira rusl eftir hátíðarnar
Neyslufyllerí
Blönduós | Stjórn Húnakaupa hf. á
Blönduósi hefur tekið tilboði Samkaupa hf.
í rekstur dagvöruverslana félagsins á
Blönduósi og Skagaströnd. Þá er einnig
gert ráð fyrir a rekstur Skálans á Blöndu-
ósi verði í höndum Samkaupa hf.
Markmið Samkaupa hf. með þessum
kaupum er að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu að styrkja framtíð verslunar-
reksturs með matvöru í Húnaþingi. Sam-
kaup hf. taka við rekstrinum 1. febrúar nk.
og mun starfsfólk verslana Húnakaupa hf.
starfa hjá Samkaupum hf.
Húnakaup hf. voru stofnuð upp úr Kaup-
félagi Húnvetninga. Samkaup reka fjölda
matvöruverslana um land allt. Félagið var
upphaflega stofnað um verslunarrekstur
Kaupfélags Suðurnesja en tók síðar við
verslunarrekstri KEA við Eyjafjörð og
ýmissa kaupfélaga, t.d. á Austurlandi og í
Borgarnesi. Auk matvöruverslunarinnar á
Blönduósi ráku Húnakaup hf. bygginga-
og búvöruverslun en hún var nýlega seld
Krák ehf., félagi Lárusar B. Jónssonar á
Blönduósi. Nýr eigandi tók við um áramót
og starfsmenn halda áfram störfum.
Samkaup
yfirtaka
rekstur
Húnakaupa
Ísafjörður| Heilbrigðisstofnunin í Ísafjarð-
arbæ hefur hætt við þau áform að innheimta
gjald fyrir þvott á fötum vistmanna á öldr-
unardeild stofnunarinnar. Sú gjaldtaka var
ákveðin fyrir skömmu og átti að innheimta
5.500 krónur á mánuði. Þessi ákvörðun vakti
töluverða óánægju en meðal þeirra sem
gagnrýndu gjaldtökuna var Jón Fanndal
Þórðarson formaður félags aldraðra á Ísa-
firði. Ákvörðun um þessa gjaldtöku var tek-
in eftir að þvottahús stofnunarinnar var lagt
niður í sumar. Í frétt á vef Heilbrigðisstofn-
unarinnar á gamlársdag var tilkynnt um
ákvörðunina. Þar segir að stofnunin hafi
ákveðið að falla frá áformum um innheimtu
gjalds fyrir þvott á einkafatnaði vistmanna
öldrunarlækningadeildar um ótilgreindan
tíma eins og segir í fréttinni. Þar kemur
fram að samkvæmt reglugerð um öldrunar-
stofnanir sé ekki skylt að kosta persónulega
muni og því telji stofnunin sér ekki skylt að
standa straum af kostnaði við þvott. Hins
vegar hefði verið ákveðið að stofnunin muni
áfram kosta þvott á persónulegum flíkum
vistmanna.
Hætt við
gjaldtöku
fyrir þvott
♦♦♦