Morgunblaðið - 04.01.2005, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR frá Kiwanisklúbbn-
um Eldey í Kópavogi komu á
jólatrésskemmtun Barnaspítala
Hringsins og gáfu tvær Play-
station-leikjatölvur, ásamt fylgi-
hlutum og nokkrum leikjum og
einnig sælgæti sem börnin fengu í
lok skemmtunarinnar. Á myndinni
má sjá þegar félagar í Kiwanis-
klúbbnum Eldey afhentu fulltrúum
Barnaspítala Hringsins leikjatölv-
urnar.
Eldey gaf Play-
station-leikjatölvur
Atvinnuauglýsingar
Sérfræðingur á peningamálasviði Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á peningamálasviði. Pen-
ingamálasvið annast öll viðskipti bankans á innlendum gjaldeyris- og peningamörkuðum
og skráningu opinbers viðmiðunargengis krónunnar auk þess að vakta millibankamarkað
í krónum. Peningamálasvið undirbýr vaxtaákvarðanir bankans, safnar upplýsingum um vexti
innanlands og utan og tekur þátt í samráði bankans við fjármálaráðuneyti og Lánasýslu ríkisins
um sölu ríkisverðbréfa.
Helstu verkefni sérfræðingsins eru:
Umsjón með millibankamarkaði fyrir lán í krónum ásamt reglulegum samskiptum við
markaðsaðila.
Skráning vaxta á innlendum mörkuðum.
Afgreiðsla daglána og önnur fyrirgreiðsla við lánastofnanir.
Eftirlit með viðskiptareikningum og bindiskyldu fé.
Gagnasöfnun um vexti o.fl. og uppfærsla gagnasafna.
Greining, skýrslugerð og upplýsingagjöf.
Afleysingar á gjaldeyrisborði og verðbréfaborði.
Rannsóknir sem tengjast viðfangsefnum sviðsins.
Áskilið er háskólapróf í viðskipta- og/eða hagfræði. Góð tölvukunnátta sérstaklega í töflureikni
er nauðsynleg auk ritfærni á íslensku og hæfni í mannlegum samskiptum.
Upplýsingar um starfið veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs,
í síma 569 9600. Umsóknum skal skilað fyrir 8. janúar 2005 til starfsmannastjóra Seðlabanka
Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Saltfiskmatsmaður
Fyrirtæki á landsbyggðinni óskar eftir vönum
saltfiskmatsmanni. Uppl. sendist til augldeildar
Mbl. merktar: „Saltfiskur — 1234“.
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
á Vatnsenda,
einnig á
Grettisgötu og
Njálsgötu
Blaðbera vantar
í afleysingar
í Hóla, Berg og
Bakka.
Upplýsingar
í síma 569 1376
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Kennsla
Ráðgjafaskólinn er fyrir þá sem starfa við,
eða ætla sér að starfa við, ráðgjöf fyrir áfeng-
is- og fíkniefnaneytendur og fjölskyldur þeir-
ra, t.d. ráðgjafa, félagsráðgjafa, sálfræðinga,
hjúkrunarfræðinga og lækna og er ætlað að
tengja saman persónulega reynslu, starfs-
reynslu og menntun á þessum sviðum. Skól-
inn veitir réttindi til að sækja um viðurkenn-
ingu frá ICRC/AODA (International Certificat-
ion and Reciprocity Consortium/Alcohol and
Other Drug Abuse) sem eru viðurkennd rétt-
indi í um 20 löndum utan Bandaríkjanna.
Eftirfarandi er m.a. tekið fyrir í náminu:
Grunnþekking á alkóhólisma og fíkn í
önnur efni en áfengi.
Vinsun, inntaka, meðferðarkynning og
mat á skjólstæðingi.
Ráðgjöf (einstaklings-, hóp- og fjölskyld-
uráðgjöf) og tækni til inngripa.
Meðferðarstjórnun, meðferðaráætlanir,
skýrsluhald.
Inngripatækni í áföllum.
Forvarnir og fræðsla.
Samstarf við aðra fagaðila.
Siðfræði, lögfræðileg álitamál, trúnaðar-
mál.
Sérstakir hópar (þjóðerni, menning, kyn-
hneigð, kynferði, alnæmi og fatlanir).
Líffræði og efnafræði áfengis og annarra
vímuefna (lögleg, ólögleg, sniffefni og
nikótín).
Sálfræðileg, tilfinningaleg og persónuleg
álitamál, þroski skjólstæðinga.
Tólf spor, erfðavenjur og heimspeki
sjálfshjálparhópa.
Umsóknarfrestur um skólavist á vorönn
2005 er til 15. janúar.
Upplýsingar og eyðublöð fást hjá:
Ráðgjafaskólinn, pósthólf 943,
121 Rvík. Netfang stefanjo@xnet.is.
Sími 553 8800. Fax 553 8802.
Sjá www.forvarnir.is
Styrkir
SAMIK
Samstarf Íslands og
Grænlands um ferðamál
SAMIK auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki til verkefna sem aukið geta samstarf
Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu.
Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heild-
arkostnaði viðkomandi verkefnis.
Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu
– merktar SAMIK – fyrir 10. febrúar nk. á eyðu-
blöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að
finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýs-
ingar þurfa að vera á dönsku eða ensku.
Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætl-
un þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk
nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verk-
efnið og tilgang þess.
Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun
styrkjanna liggi fyrir í lok febrúar.
Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur
út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir
og seinni helmingur þegar viðkomandi verk-
efni er lokið.
Eldri umsóknir er nauðsynlegt að endurnýja.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson,
stjórnarmaður SAMIK, í síma 553 9799.
SAMIK,
samgönguráðuneytinu,
Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu,
150 Reykjavík.
www.samgonguraduneyti.is
Tilkynningar
Gvendur dúllari
Hin rómaða janúarútsala hefst
í dag kl. 12.00.
50% afsláttur af öllum bókum.
Gvendur dúllari - alltaf góður,
Klapparstíg 35, sími 511 1925.
Félagslíf
FJÖLNIR 6005010419 I
Jeppaferð í Þórsmörk 8.–9.
janúar
Farið frá Hlíðarenda á Hvolsvelli
kl. 10 laugardaginn 8. janúar.
Gist í Skagfjörðsskála í Langadal.
Í Mörkinni verður farið um eftir
því sem færi leyfir. Um kvöldið
verður varðeldur og síðan kvöld-
vaka í skála fram að stjörnu-
j
skoðun á miðnætti. Á sunnudegi
farið úr Langadal kl. 11 og ekið í
Bása og með viðkomu í Húsadal.
Leitað vaðs á Markarfljóti og
komið til Reykjavíkur um kl. 20.
Skráning á skrifstofu félagsins í
síma 568 2533. Láttu vita ef þú
ferð á eigin bíl og hvort þú hefur
laust sæti fyrir farþega. Lögð er
áhersla á aðgát, liðsinni og sam-
fylgd. Taktu með þér sprek á eld-
inn og efni á kvöldvökuna. Þátt-
tökugjald á jeppa kr. 3.200, þátt-
tökugjald á auka farþega kr.
8.000. Gisting í Skagfjörðsskála
kr. 1.100/1.600.
Fararstjóri er Gísli Ólafur Péturs-
son.
Leið til jafnréttis?
Stenst gagnvart stjórnarskrá og alþjóðlegum
skuldbindingum Íslendinga að opinberir skólar
krefji börn í skyldunámi um greiðslur fyrir hluta
námsgagna, skemmtanir og mat? Börn eru
jafnan tekjulaus og ekki er víst að forráðamenn
þeirra vilji og geti greitt, nú, um 50 þús. krónur
á ári fyrir hvert þeirra.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
Ýmislegt