Morgunblaðið - 19.01.2005, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÓÐAMATI BÆTT VIÐ?
Félagsmálaráðuneytið hefur það
til skoðunar að bæta lóðamati fast-
eigna við viðmiðun á brunabótamati
í lánveitingum Íbúðalánasjóðs. Fyrir
meðalíbúð getur þetta hækkað láns-
möguleika viðkomandi eiganda um
1–1,5 milljónir króna.
Lofa að hætta árásum
Önnur af tveim stærstu hreyf-
ingum herskárra Palestínumanna,
Al-Aqsa, hét því í gær að hætta árás-
um á Ísrael. Mahmud Abbas, forseti
Palestínu, kom í gær til Gaza til að
ræða við talsmenn vopnaðra hreyf-
inga en Hamas-samtökin sögðust
ekki myndu samþykkja vopnahlé.
Umsókn mótmælt
Umsókn verslunarkeðjunnar Ice-
land Plc. um útvíkkun á einkaleyfi
fyrirtækisins til að nota vöruheitið
Iceland hefur verið mótmælt af ut-
anríkisráðuneytinu þar sem það tel-
ur að ef hún verði samþykkt muni
það trufla markaðsstarf íslenskra
fyrirtækja og kynningarstarf á veg-
um ríkisstjórnarinnar erlendis.
Stærsta farþegaþotan
Stærsta farþegaþota heims, Air-
bus A380, var afhjúpuð í Frakklandi
í gær við hátíðlega athöfn. Þotan
getur tekið a.m.k. 555 manns í sæti
og er búist við að hún verði tekin í
notkun á næsta ári.
Engin atvinnuleyfi nú
Engin atvinnuleyfi fyrir erlenda
starfsmenn Impregilo utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins verða gef-
in út fyrr en í næstu viku í fyrsta
lagi, eða eftir að niðurstaða hefur
fengist í viðræðum félagsmálaráðu-
neytisins og verkalýðshreyfing-
arinnar um starfsmannamál við
Kárahnjúkavirkjun, samkvæmt upp-
lýsingum Vinnumálastofnunar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Fréttaskýring 8 Umræðan 24
Viðskipti 12 Bréf 25
Úr verinu 13 Minningar 26/29
Erlent 13/14 Dagbók 32/34
Minn staður 15 Myndasögur 32
Höfuðborgin 16 Víkverji 32
Akureyri 16 Staður og stund 34
Suðurnes 17 Leikhús 36
Landið 17 Bíó 38/41
Daglegt líf 18/19 Ljósvakamiðlar 42
Listir 20, 23/41 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
ÓTTAST var að alvarlegt slys hefði
orðið neðst í Ártúnsbrekku síðdegis
í gær þegar tilkynnt var um bifreið
sem hefði farið fram af Ártúns-
brekkubrúnni við Reykjanesbraut.
Tækjabíll Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins var kallaður á vettvang
en í ljós koma að slysið var ekki
eins slæmt og talið var.
Að sögn fulltrúa hjá slysarann-
sóknadeild lögreglunnar í Reykja-
vík hafði bílstjóri á fólksbíl misst
vald á bílnum við vestari enda brú-
arinnar með þeim afleiðingum að
hann fór út af brúnni og féll niður á
milli tveggja brúarhafa. Bíllinn
lenti á réttum kili og fór ekki út á
Reykjanesbrautina þar sem hann
hefði getað lent á öðrum bílum með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Ökumaðurinn fékk háls- og bak-
hnykk og var fluttur á slysadeild
Landspítalans til rannsóknar.
Kvaðst vera ómeiddur
Að sögn vegfaranda sem kom að
slysstað örstuttu eftir slysið var
ökumaðurinn nokkuð æstur og var
að tala í farsíma sinn og sagðist að-
spurður ómeiddur í hálsi og baki.
Hann vildi hins vegar fá símanúm-
erið hjá bifreiðaumboði Ingvars
Helgasonar því bíllinn var í eigu
umboðsins og í reynsluakstri. Að
sögn lögreglunnar voru tildrög
slyssins á þann veg að annar öku-
maður svínaði fyrir manninn með
fyrrgreindum afleiðingum.
Nokkrar tafir urðu á umferð
meðan lögreglan sinnti málinu á
vettvangi. Bíllinn er talsvert
skemmdur.
Lá við stórslysi við Ártúnsbrekkubrú
Morgunblaðið/Golli
SMÆRRI matvöruverslanir geta
verið opnar alla daga ársins fyrir utan
jóladag ef frumvarp Björns Bjarna-
sonar dómsmálaráðherra um breyt-
ingu á lögum um helgidagafrið verður
að lögum, en það var kynnt á fundi
ríkisstjórnarinnar í gær.
Um er að ræða undanþágu sem
nær til verslana sem eru með versl-
unarrými undir 600 fermetrum, þar
sem a.m.k 2⁄3 hlutar veltunnar koma
frá sölu á matvöru, drykkjarvöru og
tóbaki. Verslanir sem uppfylla þessi
skilyrði geta því haft opið á föstudag-
inn langa, páskadag og hvítasunnu-
dag, verði frumvarpið að lögum.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjónustu,
segir að málið hafi komið upp með er-
indi samtakanna þess efnis að versl-
anir fengju að hafa opið á hvítasunnu-
dag, en hann sat í nefnd sem fjallaði
um málið ásamt fulltrúum dómsmála-
ráðuneytisins og Biskupsstofu.
„Þarna er ráðherrann framsýnni
en við vorum að búast við, og horfir á
það að trúarbrögð eru eitt og þjón-
usta annað, og ekki ástæða til að
tengja þetta of mikið saman. Enda
fleiri trúarbrögð í landinu en kristni,“
segir Sigurður.
Þetta þýðir að flestar af svokölluð-
um klukkubúðum mega hafa opið, en
nokkrar þeirra eru þó stærri en 600
fermetrar og fá því ekki þessa und-
antekningu, segir Sigurður. Hann
segir að það hafi einkum verið smærri
verslanirnar sem kölluðu á þessa
breytingu, enda líti þær svo á að þær
séu m.a. í samkeppni við bensínstöðv-
ar, sem hafa haft slíka undanþágu.
Þjónusta við ferðamenn
Sigurður segir að þetta þýði vænt-
anlega að verslanir muni hafa opið á
þessum dögum ef þær sjá hag sinn í
því, sérstaklega klukkubúðirnar og
þær verslanir sem eru í samkeppni
við þær. Ennfremur geri þetta versl-
unum á landsbyggðinni kleift að bjóða
ferðamönnum upp á þjónustu á þess-
um dögum. Aðspurður segir Sigurður
vissulega kostnað fyrir verslanir að
hafa opið á þessum dögum.
„Það er með þetta eins og allt ann-
að að allur kostnaður lendir að lokum
í vöruverðinu. En ég held að þetta
muni ekki hreyfa vöruverð í sjálfu
sér, enda aðeins þrír dagar, og ég
vona nú að þær verslanir sem sjá ekki
hag sinn í því að hafa opið á þessum
dögum séu nógu sjálfstæðar til þess
að hafa lokað,“ segir Sigurður.
Smærri verslunum heimilað að hafa opið á helgidögum
Opið alla daga
nema jóladag
Morgunblaðið/Þorkell
RÚMLEGA 1% fólks á aldrinum 35–
44 ára er tannlaust í báðum gómum
og 55% Íslendinga á þessum aldri eru
með allar fullorðinstennur sínar, sam-
kvæmt könnun sem gerð var þar að
lútandi á árinu 2000 og hefur tann-
heilsa Íslendinga á þessum aldri batn-
að umtalsvert síðustu áratugina og er
umfram þau markmið sem Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin hefur sett.
Fram kemur að árið 1985 hafi 9%
Íslendinga verið tannlaus í báðum
gómum, 5,8% árið 1990, 3,3% árið
1995 og 1,3% árið 2000, en það jafn-
gildir því að 530 einstaklingar í þess-
um aldurshópi hafi verið tannlausir.
Tannlausum hefur þannig fækkað um
7,7 prósentustig á þessu 15 ára tíma-
bili
Fram kemur að tannleysi hefur
minnkað meira hjá konum en körlum
á ofangreindu tímabili en munurinn á
kynjunum er ekki marktækur.
Þá kemur fram að tæplega 91%
fólks á ofangreindu aldursbili var með
fleiri en tíu tennur í hvorum gómi.
Jafnframt að hlutfall þeirra sem eru
með allar fullorðinstennurnar, 28
talsins, hefur hækkað marktækt á
tímabilinu. Nú er rúmur helmingur
fólks eða tæp 55% með allar fullorð-
instennurnar, en rétt rúmur fjórð-
ungur var með þær allar árið 1985.
1% aldrei til tannlæknis
Einnig kemur fram í könnuninni að
tæpur fimmtungur fólks í þessum ald-
urshópi hafði farið til tannlæknis fyrir
sex ára aldur, en þá eru börn ennþá
einungis með barnatennur. 65% fóru
fyrst til tannlæknis á aldrinum 6–10
ára.
Loks kemur fram að tæp 70% fólks
fara til tannlæknis árlega eða oftar,
tæp 30% fara sjaldnar og 1% sagðist
aldrei fara til tannlæknis.
55% Íslendinga 35–44 ára
með allar fullorðinstennur
Valdís til-
nefnd til
BAFTA-
verðlauna
VALDÍS Óskarsdóttir hefur
hlotið tilnefningu til BAFTA-
verðlaunanna, bresku kvik-
myndaverð-
launanna,
fyrir klipp-
ingu á
bandarísku
myndinni
Eternal
Sunshine of
the Spot-
less Mind.
Þetta mun
vera í
fyrsta sinn sem Íslendingur
er tilnefndur til þessara virt-
ustu kvikmyndaverðlauna í
Bretlandi.
Aðrar myndir sem til-
nefndar eru fyrir klippingu
eru The Aviator, Collateral,
House of Flying Daggers og
Vera Drake og mun Valdís
því etja kappi við einn fræg-
asta klippara kvikmyndasög-
unnar, Thelmu Schoonmaker,
en hún klippti myndina The
Aviator.
Vísbending um
tilnefningu til Óskars
Þá hafa fagsamtök klippara í
Bandaríkjunum tilnefnt Val-
dísi fyrir vinnu hennar við
sömu kvikmynd.
Þykir það framar öðru vera
vísbending um það að Valdís
eigi góða möguleika á að
verða tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna, því það eru ein-
mitt félagar í þessum sömu
samtökum, sem og aðrir
klipparar í Óskarsakademí-
unni, sem velja þá sem til-
nefndir eru hverju sinn.
Tilnefningar til þessara
frægustu kvikmyndaverð-
launa í heimi verða kunn-
gjörðar í Hollywood hinn 25.
janúar næstkomandi.
BAFTA-verðlaunin verða
afhent við hátíðlega athöfn í
Lundúnum hinn 12. febrúar
næstkomandi.
Valdís
Óskarsdóttir