Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com                 !   !"# $%& '#(% $%& '%)%* +,*%-% !% + - )%   . /' . /(- 0 .    1% 1 "% + - 2- ,%& 34%, 3%% +,*%-%. 5% # $ %&" +%)%    $%  &), %)%6 78%4% 9 :%).%% 0;,8)% <=4%, 3 + 3 *%> - 3)%   3( )() 4%)%64 %6---)() ? () 7%8)% %93.%- '"$ & ( & )* !%. +  @6,,%)% 0 ;    % )+, -&" AB@C 3;) #)#%)             9  9  9 9 9 9   9    9   9 9 9 9 '%6- %* 6%% #)#%) 9 9 9 9 9 9  9 9 9 9 9 9 9  9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 D  E D 9 E D 9 E D 9 E D 9 E D 9 E D 9 E D 9 E 9 D 9 E D 9 E D 9 E 9 D  E D 9  E 9 D  E 9 9 9 9 D 9 E 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9  %#)& -  .) ;  - /& 3                   9    9  9 9 9 9   9  9  9 9   9 9              9                           9               ?)& ; FG % !  H !4-%  +,(  #)&     9 9  9 9 9 9   9   9  9 9  9 9 ! 9 I#  *%4   (  4 ,*% ! 9 36   ) --, % 6%( .) 4%  ● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands námu um 7.152 milljónum króna í gær. Mest voru viðskipti með íbúða- bréf, fyrir um 2.227 milljónir króna er með hlutabréf fyrir um 2.087 millj- ónir króna. Mest hlutabréfaviðskipti urðu með bréf Íslandsbanka, fyrir um 617 milljónir króna og lækkaði gengi þeirra um 0,9%. Mesta hækk- un dagsins varð á bréfum Granda hf. eða 1,3%. Af félögum í úrvalsvíst- ölunni hækkuðu aðeins bréf Straums Fjárfestingarbanka, um 0,5%, og bréf Actavis Group um 0,2%. Mest höndlað með bréf Íslandsbanka ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● GENGI krónunnar lækkaði um 0,13% í gær og endaði geng- isvísitalan í 111,50 stigum. Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í gær var í hærra lagi eða 8 millj- arðar. Í fyrradag náði gengi krónunnar nýju hámarki þegar gengisvísitalan endaði í 111,37. Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka segir að vísitalan hafi ekki staðið svo lág í um fjögur og hálft ár en eftir því sem gengisvísitalan er lægri þeim mun hærra er gengi krónunnar. „Frá því að gengi krónunnar fór lægst í lok árs 2001 hefur það hækkað um ríf- lega þriðjung, dollarinn farið úr því að vera ríflega 110 krónur niður í 62 krónur og evran úr því að vera um 97 krónur niður í 81 krónu.“ Að því er fram kemur í Morg- unkorninu er aukinn munur á inn- lendum og erlendum skamm- tímavöxtum eitt af því sem leitt hefur til hækkunar á gengi krón- unnar að undanförnu. „Nú stendur þriggja mánaða vaxtamunur í ríflega 6 prósentustigum og hefur aukist um helming á einu ári. Aukninguna má rekja til aðgerða Seðlabankans í peningamálum en bankinn hefur hækkað stýrivexti sína um tæplega 3 prósent á tímabilinu.“ Krónan lækkaði í gær ● SAMNINGAVIÐRÆÐUR milli EFTA og S-Kóreu um fríverslun hófust í Genf í gær. Markmið viðræðnanna, sem eru í framhaldi af fundi sem haldinn var í Genf þann 16. des- ember síðastliðinn, er að tryggja tvíhliða fríverslunarsamning fyrir lok ársins 2005 og er áætlað að fundir verði haldnir á tveggja til þriggja mánaða fresti, samkvæmt kóreanska blaðinu Yonhap News. Grétar Már Sigurðsson, skrif- stofustjóri viðskiptaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að það yrði krafa Íslendinga að allir tollar á íslensk- ar vörur yrðu felldir niður en að mest áhersla yrði þó lögð á sjáv- arafurðir. Einnig sagði hann að áhersla yrði lögð á að bæta skil- yrði til fjárfestinga Íslendinga í S- Kóreu, meðal annars með því að fá yfirvöld þar í landi til þess að verja íslenska fjárfestingu með lögum. EFTA og S-Kórea að samningaborðinu HAGFRÆÐI trúverðugleikans er yf- irskrift erindis sem Gylfi Magn- ússon, forseti viðskipta- og hag- fræðideildar Háskóla Íslands, flytur í málstofu Hagfræðistofnunar og Viðskiptafræðistofnunar mið- vikudaginn 19. janúar, kl. 12:15, í Öskju, stofu 132. Í DAG Maya og er hún um 120 kílómetra löng. Að sögn Ómars og Egils eru ferðirnar skipulagðar í sam- vinnu við ferðamálayfirvöld á Riveria Maya og í Quintana Roo auk borgaryfirvalda í Playa del Carmen. „Heimamönnum er mikið í mun að fá Íslendinga í þá miklu flóru ferðamanna sem heimsækir Playa del Carmen, en bærinn er vel þekktur ferðamannastaður og þangað kemur mikill fjöldi ferðamanna, m.a. frá Evrópu. Þeir hafa sýnt þessu mikinn áhuga og hyggjast taka á móti fyrstu Íslendingunum með viðhöfn við kom- una í vor. Markmiðið með samstarfinu er að fá fleiri íslenska ferðamenn til Mexíkó en ekki síð- ur að fá mexíkanska ferðamenn til Íslands þegar fram í sækir, auk þess sem stefnt verður að FERÐASKRIFSTOFAN Trans-Atlantic á Ak- ureyri hyggst flytja hundruð íslenskra nemenda til Mexíkó í vor, í samvinnu við þarlenda aðila. Trans-Atlantic hefur frá því í haust skipulagt ferðir til Playa del Carmen í Mexíkó. Fyrsta ferð er áætluð 25. maí og er stefnt að allt að 8 ferð- um. Trans-Atlantic, sem var stofnuð á síðasta ári, hefur síðustu mánuði kynnt ferðirnar fyrir útskriftarárgöngum framhaldsskólanna og segja þeir Ómar Banine, framkvæmdastjóri, og Egill Örn Arnarsson, stjórnarformaður, að við- tökurnar hafi verið mjög góðar. „Við viljum opna Mexíkó fyrir íslenskum ferðamönnum, en Íslendingum hefur ekki gefist kostur á að fara í skipulagðar ferðir til Mexíkó í áraraðir. Mexíkó þykir greinilega spennandi kostur, því við höf- um nú þegar staðfestingar frá mörgum fram- haldsskólum og enn fleiri skólar hafa látið taka frá sæti. Við höfum einnig bókað ferðir fyrir nemendur úr öðrum skólum. Staðfesti þeir allir, þá má gera ráð fyrir að hátt í eitt þúsund ís- lenskir stúdentar verði í Mexíkó í vor.“ Um er að ræða 14 daga ferðir og er að sögn Ómars dvalið á 4–5 stjörnu lúxushóteli í Playa del Carmen, þar sem allt er innifalið, þ.m.t. mat- ur, drykkir og öll þjónusta á hótelinu svo og mikil og fjölbreytt afþreying. „Við teljum að þarna sé margt skemmtilegt í boði fyrir íslenska ferðamenn. Ásamt því að bjóða upp á allt sem prýðir góðar sólarstrendur, er þarna skammt frá að finna merkilegar minjar frá tímum Maya og einn helsta þjóðgarð Mexíkó. Þá er annað stærsta kóralrif heims aðeins um 500 metra und- an ströndinni með fjölskrúðugu sjávardýralífi.“ Í samvinnu við heimamenn Playa del Carmen er á Yucatan-skaganum, í fylkinu Quintana Roo í suðausturhluta Mexíkó, um 52 kílómetra suður af alþjóðlega flugvell- inum í Cancun, þangað sem flogið er. Strand- lengjan sem bærinn liggur að nefnist Riviera auknum menningarsamskiptum milli þjóðanna.“ Að sögn þeirra Ómars og Egils verður einnig boðið upp á fleiri og fjölbreyttari ferðir til Mexíkó og nálægra landa. Flogið verður frá Keflavík í þessar ferðir. Í framtíðinni er stefnt að því að farþegar Trans-Atlantic fljúgi einnig frá Akureyri og Egilsstöðum líkt og frá Keflavík og þá til annarra og nýrra áfangastaða. „Við teljum nauðsynlegt að bjóða upp á slíkt enda teljum við að það felist ákveðin mismunun í því að landsbyggðarfólk þurfi að leggja í aukakostn- að við að koma sér á suðvesturhornið ætli það til útlanda. Við viljum leggja okkar af mörkum til að eyða þessum aðstöðumun.“ segja Ómar og Egill. Stefna nýstúdentum til Mexíkó Strandlengjan Playa del Carmen liggur að Riviera Maya-ströndinni og er hún um 120 kílómetra löng. VERSLANIR í eigu Baugs Group eru um 1.400 talsins um þessar mund- ir, veltan er um 180 milljarðar króna og fjöldi starfsmanna 17 þúsund. Þeg- ar Big Food Group bætist í hópinn verða starfsmenn fyrir- tækja Baugs Group orðnir um 50 þús- und talsins, verslanir 2.400 og sam- anlögð velta fyrirtækjanna yfir 800 milljarðar króna. Þetta kemur fram í pistli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs Group, í annál fyr- irtækisins fyrir árið 2004. „Ef gengið verður að yfirtökutil- boðinu [Baugs í Big Food Group] verður Baugur Group orðinn eigandi að einni af stærstu matvörukeðjum Bretlands og ef miðað er við saman- lagða veltu allra fyrirtækjanna í eigu Baugs Group verður félagið meðal stærstu einkafyrirtækja á Bretlands- markaði, ef ekki það stærsta. Segja má að Baugur Group sé komið í „úr- valsdeildina“ svo notast sé við samlík- ingu úr ensku knattspyrnunni,“ segir Jón Ásgeir. Jafnframt kemur fram að gert sé ráð fyrir að Baugur verði stærsti hluthafinn í Big Food Group með 43% hlutdeild, en hlutur fyrir- tækisins er um 20% fyrir. Velta á Norðurlöndum 100 ma. Hjá fyrirtækjum sem Baugur á að- ild að á Íslandi og á Norðurlöndum starfa um 6 þúsund manns, verslanir eru 115 talsins og veltan er rúmir 100 milljarðar króna. Þá er tekið fram að EBITDA hagnaður félaganna á Norðurlöndunum hafi verið um 8 milljarðar króna. Velta Baugs úr 180 í 800 milljarða ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta því um þrjá mánuði að hið nýja flug- félag, City Star Airlines, hefji beint flug á milli Aberdeen í Skotlandi og Óslóar. Fyrirhugað var að flugið hæfist næstkomandi mánudag, 17. janúar. Frá þessu er greint í frétt á skoska fréttavefnum press&journal. City Star var stofnað í mars á síð- asta ári og eru íslenskir fjárfestar meðal eigenda þess. Hefur press&- journal eftir Atla Árnasyni, fram- kvæmdastjóra og eins eigenda City Star, að ástæðan fyrir frestuninni sé sú að bókanir hafi verið undir áætl- unum félagsins. Hann segir að á síð- asta ári hafi um 12.500 manns ferðast á milli Aberdeen og Óslóar án þess að nokkur markaðssetning kæmi þar að. Aðstandendur City Star hafi vonast til að geta náð litlum hluta af þeim markaði, en þær hógværu væntingar hafi ekki gengið eftir. Þeir hafi þó enn trú á þessum markaði og nú sé stefnt að því að fyrsta flugferðin til Óslóar verði 28. mars næstkomandi. Í frétt press&journal kemur fram að þetta sé í annað skiptið á einu ári sem áætlanir um flug frá Aberdeen gangi ekki eins og stefnt hafi verið að. City Star frestar fyrstu flugferðinni < J 3KL        +3@ M!N     B!B  21N        /+N <        AB@N MO :   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.