Morgunblaðið - 08.02.2005, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegs föður míns,
SVEINS CECILS JÓNSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hornbrekku
Ólafsfirði fyrir frábæra umönnun.
Héðinn Sveinsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KJARTANS ÞÓRS VALGEIRSSONAR,
Akraseli 10,
Reykjavík.
Anna Elín Hermannsdóttir,
Þóra Kjartansdóttir,
Hermann Kjartansson,
Valgeir Kjartansson, Lísa Björk Bragadóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAKEL STEINVÖR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hléskógum 8,
Egilsstöðum,
lést á sjúkrahúsinu Egilsstöðum sunnudaginn
6. febrúar.
Erla Sigurðardóttir, Jakob Þórarinsson,
Anna Sigurðardóttir,
Kristbjörg Sigurðardóttir, Hallgrímur Gunnarsson,
Páll Sigurðsson, Sumarrós Árnadóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
AÐALHEIÐUR KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
Háeyrarvöllum 40,
Eyrarbakka,
andaðist á Ljósheimum Selfossi sunnudaginn
6. febrúar.
Elín Sigurðardóttir,
Jón Sigurðsson, Sigríður Magnúsdóttir,
Kristján S. Sigurðsson,
Aðalheiður Kristín Jónsdóttir,
Magnús Jóel Jónsson.
Útför móður okkar,
STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
fyrrv. prentsmiðjustjóra,
sem lést á Sólvangi, Hafnarfirði, föstudaginn
28. janúar síðastliðinn, fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 11. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Guðmundur Magnús Guðmundsson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR ÞORLÁKSDÓTTIR,
Lindasíðu 47,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Glerárkirkju fimmtu-
daginn 10. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á minningarsjóð Þorgerðar
Eiríksdóttur við Tónlistarskólann á Akureyri, minningarkort eru seld í
Pennanum Bókval Akureyri.
Eiríkur Stefánsson,
Ingibjörg Eiríksdóttir, Sævar Gunnarsson,
Anna Eiríksdóttir, Magnús Sigurðsson,
Þorsteinn Eiríksson,
Reynir Eiríksson, Rannveig Kristinsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT INGIMUNDARDÓTTIR,
áður til heimilis í
Skeiðarvogi 131,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði laugardaginn
5. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 11. febrúar kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl G. Karlsson.
✝ Jóna Júlía Val-steinsdóttir
fæddist á Ytra-
Krossanesi í Glæsi-
bæjarhreppi við Ak-
ureyri 28. júlí 1920.
Hún lést á Hjúkrun-
arheimilinu Sólvangi
í Hafnarfirði 29. jan-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Ólöf Tryggvadóttir,
f. 29.1. 1896, d. 26.9.
1982, og Valsteinn
Jónsson útvegsbóndi
á Þórsnesi við Akureyri, f. 11.9.
1890, d. 8.6. 1974. Systkin Júlíu
eru: 1) Jón Júlíus, f. 1919, d. 1920,
2) María, f. 1921, 3) Jóhanna, f.
1923, 4) Birna Friðrika, f. 1924, d.
1942, 5) Hermann, f. 1926, 7) Lára,
f. 1929, 8) Tryggvi, f. 1930, 9) Jenný
Ólöf, f. 1933, og 10) Haraldur, f.
1934.
Júlía giftist í nóvember 1943
Þorvaldi Ásmundssyni, sjómanni
og Sindri Freyr, og stjúpbörn Sig-
urbjartar og börn Sveinsínu eru
Sigrún Anna og Gunnar Hjalti en
auk þess á Sigurbjartur soninn
Bjarka, 5) Guðmundur Páll blikk-
og húsasmiður, f. 1960, maki Helga
Aðalbjörg Þórðardóttir, f. 1963,
börn þeirra eru Þóra Dröfn og
Þórður Rafn. Barnabarnabörn Júl-
íu og Þorvaldar eru 18.
Júlía sótti nám í barnaskólann í
Glerárþorpinu á Akureyri og síðan
í Húsmæðraskólann á Laugalandi í
Eyjafirði. Júlía bjó á unglingsárum
á Þórsnesi. Júlía fór ung að vinna
fyrir sér, m.a. við síldarvinnslu á
Siglufirði og víðar. Þorvaldi kynnt-
ist hún um þær mundir og í nóv-
ember 1943 giftust þau og bjuggu
til að byrja með á Brimnesi á Ár-
skógssandi. Þaðan fluttu Júlía og
Þorvaldur árið 1947 til Hafnar-
fjarðar þar sem Júlía ásamt heim-
ilisstörfum og uppeldi fimm barna
vann við fiskvinnslu í Norður-
stjörnunni. Í Hafnarfirði bjuggu
þau lengst af á Hverfisgötu 47 en
síðustu fjögur árin bjó hún á Hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi. Útför Júl-
íu verður gerð frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
og verkamanni frá
Litla-Árskógssandi, f.
19.7. 1920, d. 27.8. 1985.
Foreldrar hans voru
Guðrún Jónsdóttir og
Ásmundur Sigfússon frá
Svalbarði á Árskógs-
strönd. Börn Júlíu og
Þorvaldar eru: 1) Henn-
ing húsasmíðameistari,
f. 1943, maki Jónína
Steinunn Alfreðsdóttir,
f. 1945, börn þeirra eru
Jóna Júlía, Henning
Freyr og Þorvaldur Jón,
2) Birna Friðrika, f. 1948, maki Jón
Ragnar Jónsson, f. 1949, börn þeirra
eru Friðrik Már, Valdís Ólöf og Arn-
ar Þór, 3) Valdís Ólöf, f. 1951, maki
Steinar Harðarson, f. 1952, börn
þeirra eru Ásmundur Þór, Þorvald-
ur, Steinar Valur og Hörður Páll, 4)
Sigurbjartur Ágúst húsasmíða-
meistari, f. 1957, maki Sveinsína
Björg Jónsdóttir, f. 1953, börn
þeirra eru Jóna Júlía, Telma Dögg
Júlla mamma er fallin frá. Þótt vit-
að væri lengi að hverju stefndi, þar
sem Júlla hafði háð harða lífsbaráttu
um nokkurt skeið vegna heilsufars-
brests, þá svíður ætíð jafn sárt ást-
vina missir. Það er ekki hægt að lýsa
Júllu mömmu með fáum orðum því
hún var alveg einstök kona, en minn-
ingar um margar góðar stundir eiga
eftir að ylja okkur öllum um hjarta-
rætur um ókomin ár.
Ung að árum flutti Júlla árið 1926
með foreldrum sínum að Þórsnesi við
Akureyri þar sem hún bjó á sínum
uppvaxtarárum, en flutti þaðan, eftir
að hún kynntist Þorvaldi eiginmanni
sínum, fyrst út á Árskógssand og síð-
an til Hafnarfjarðar.
Júlla og Þorvaldur bjuggu börnum
sínum gott heimili, sem jafnan stóð
þeim og fjölskyldum þeirra opið til
afnota. Stór-fjölskyldan var afar
samheldin og oft þurfti ekki stóra
hluti til að gleðja hvert annað. Þau
héldu vel utan um fjölskylduhópinn,
voru gestrisin, rausnarleg og hlý og
vildu allt fyrir alla gera. Þrátt fyrir
takmarkað húsrými var ætíð nóg
pláss fyrir alla, allir velkomnir, og
nægur tími til að dekra við stór-fjöl-
skylduna, sem allt þeirra líf snerist
um. Veraldlegur auður skipti þau
minna máli en manngæska, kærleiki
og andlegur auður. Fjársjóður
þeirra lá í börnunum, barnabörnun-
um og barnabarnabörnunum. Barn-
góð voru þau bæði tvö og öllum
stundum tilbúin að láta gott af sér
leiða og hjálparhellur öllum þeim,
sem til þeirra leituðu. Hafa margir
notið góðs af velvilja og rausn þeirra
í gegnum tíðina.
Með Júllu er gengin kjarnakona
sem alla tíð vann hörðum höndum
eftir því sem heilsan leyfði og skilaði
sínu dagsverki með sóma. Fljótlega
fór hún að vinna utan heimilis þar
sem Þorvaldur missti snemma heils-
una vegna berkla og hjartasjúk-
dóma. Júlla var ósérhlífin, samvisku-
söm og dugleg. Hún var handlagin,
saumaði og prjónaði, bakaði og útbjó
dýrindis vöfflur og pönnukökur auk
annars góðmetis. Einnig var Júlla
mikið fyrir að spila á spil, leggja kap-
al og lesa sögubækur.
Erfiðleikum í lífinu mætti hún
jafnan með stökustu ró og jákvæðri
lífssýn. Þau hjónin höfðu komið sér
vel fyrir á Hverfisgötu 47, búið þar í
áratugi og farin að sjá fram á góða
tíma, en hamingjan er hverful,
starfsþrek og heilsa Þorvaldar fór að
láta á sjá og á haustdögum 1985
dimmdi yfir þegar Þorvaldur féll frá.
Þrátt fyrir fyrri veikindi hans var
áfallið mikið og tók hún og fjölskyld-
an öll þann missi mjög nærri sér.
Júlla unni ætíð heimahögunum
fyrir norðan og naut hverrar stundar
er hún átti þess kost að bera æsku-
slóðirnar augum, einkum Þórsnes.
Ættarmótin, sem hún gat sótt á þeim
slóðum, gáfu henni að sama skapi
mikla upplifun og eins þegar hafin
var skógrækt á jörðinni.
Um haustið 2000 hafði heilsu Júllu
hrakað það mikið að hún þurfti að
leggjast inn á Hjúkrunarheimilið
Sólvang, en sakir einstaks lífsvilja og
baráttuþreks var hún ekki fyrr en nú
reiðubúin að mæta skapara sínum og
hvíldi í lokin mikill friður yfir henni.
Aðstandendum og ástvinum öllum
vottum við innilega samúð okkar og
megi trú, von og kærleikur veita
okkur öllum huggun og ró.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Nú er komið að kveðjustund. Við
kveðjum Júllu mömmu með hlýhug,
þakklæti og virðingu og þökkum fyr-
ir samveruna í þessu lífi. Þrátt fyrir
allt þá heldur lífið áfram og þú lifir í
okkur öllum. Blessuð sé minning þín.
Valdís og Steinar.
Með hlýhug og þakklæti í hjarta
kveð ég þig, elsku Júlía.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð geymi þig.
Þín tengdadóttir
Steinunn.
Ég vil kveðja Júllu tengdamóður
mína með örfáum orðum.
Það er margs að minnast þegar lit-
ið er til baka. Heimsóknirnar til Júllu
og Valda á Hverfisgötuna voru ófáar.
Þau höfðu svo mikla ánægju af því að
fá barnahópinn í heimsókn. Eftir því
sem hópurinn stækkaði, varð ánægj-
an meiri.
Það var oft fjör þegar allir voru
saman komnir og ekki skemmdi fyrir
að fá vöfflukaffi, sem varð ómissandi
þáttur í tilverunni og allir hlökkuðu
til að njóta. Það var í raun ekkert að-
fangadagskvöld nema komið væri
saman á Hverfisgötunni og drukkið
súkkulaði eða kaffi. Þannig vildu þau
hafa það. Þau vildu líka fá hópinn
sinn sem oftast í heimsókn.
Ég vil minnast Júllu eins og hún
var, hjartahlý og glaðvær. Valdi
veiktist alvarlega þegar börnin voru
flest ung og þurfti þá Júlla að vinna
ein fyrir heimilinu meðan á þeim
stóð. Axlaði hún þá byrði án þess að
mögla. Hún var stolt kona sem sýndi
að hún var fullfær um að sjá sér og
sínum farborða, þó kjörin væru á
stundum kröpp. Þrátt fyrir langan
vinnutíma átti hún alltaf hlýju og
bros til að veita okkur. Alltaf vorum
við velkomin til þeirra hjóna hvernig
sem á stóð. Eftir að hún veiktist á
Sólvangi naut hún frábærrar umönn-
unar starfsfólksins á fjórðu hæðinni.
Vil ég færa þeim bestu þakkir fyrir.
Júlla var svona, þannig lifir hún í
minningunni.
Hugumstór og hjartahlý
hefur yndisþokka.
Birtist lífið bjart á ný
í brosi telpu og hnokka.
Jón Ragnar Jónsson.
JÓNA JÚLÍA
VALSTEINSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um Jónu
Júlíu Valsteinsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Sveinsína
Björg Jónsdóttir, Jóna Júlía Sig-
urbjartsdóttir, Júlía Hennings-
dóttir, Telma Dögg Sigurbjarts-
dóttir, Þorvaldur; Þóra Dröfn og
Jakob Darri; Ásmundur Þór og
Steinar Valur; Hörður Páll; Henný;
Valdís, Sveinn, Sigurður Jón, Ólöf
Birna og Sara Lind; Vigfús.