Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!"#$"$ %
&
% %
'
!(
)
& % %
*
+
, '
!"
# -. ' ' '
$
%
&
'
$
(
( $ )
"
& " *
+" ,
)"
$
-
-
../0#1
-
$2 "
3 $ " "## )
'
"
/
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● TRYGGVI Jónsson, forstjóri bíla-
umboðsins Heklu, á í viðræðum
ásamt öðrum fjárfestum við Straum
um kaup á hlut bankans í Heklu.
Tryggvi á nú meirihluta í Heklu eftir
að hann keypti hlut KB banka og
Tryggingamiðstöðvarinnar fyrir
nokkru. Fjárfestarnir eru Hjörleifur
Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins,
Frosti Bergsson, fyrrverandi stjórn-
arformaður Opinna kerfa, og Egill
Ágústsson fyrir hönd Íslensk-
ameríska.
Tryggvi segir að einnig komi til
greina að fjárfestarnir kaupi hlut af
eignarhlut hans í Heklu. Hann tekur
fram að þó viðræður séu í gangi sé
niðurstaða úr þeim ekki komin.
Viðræður um breytt
eignarhald á Heklu
● ÍSLANDSBANKI er einn fjárfesta í
nýjum hlutabréfasjóði sem danska
fjárfestingarfélagið Polaris Private
Equity hefur stofnað samkvæmt frétt
í Berlingske Tidene.
Alls hefur sjóðurinn nú um 1,35
milljarða danskra króna, sem sam-
svarar ríflega 14,7 milljörðum ís-
lenskra króna, til ráðstöfunar en von-
ir standa til að heildarfjármagn hans
verði 1,6 milljarðar, tæplega 17,5
milljarðar króna, og er markmiðið að
fjárfesta í 8–10 litlum og meðal-
stórum fyrirtækjum í Danmörku og
S-Svíþjóð. Hámarksverð þeirra má
samkvæmt BT vera um 800 milljónir
danskar krónur.
Samkvæmt Erhvervsbladet
standa fjárfestar sem áður hafa fjár-
fest í sjóðum Polaris fyrir 75% fjár-
magnsins en þrjú fyrirtæki standa
fyrir afganginum og er Íslandsbanki
eitt þeirra.
Íslandsbanki fjár-
festir í dönskum sjóði
„OKKUR blöskraði þegar við
sáum kynjahlutföllin í stjórnum
fyrirtækja á hlutabréfamarkaði,“
sagði Sif Konráðsdóttir, formaður
Félags kvenna í lögmennsku, á
blaðamannafundi sem félagið stóð
fyrir í gær ásamt Félagi kvenna í
endurskoðun, Félagi kvenna í
læknastétt á Íslandi og Kvenna-
deild Verkfræðingafélags Íslands.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi
félög taka sig saman um eitthvert
málefni, að sögn Sifjar. „Við viss-
um að nú í byrjun árs færi að
renna upp tími aðalfundanna og
teljum við okkur hafa erindi til að
vekja máls á því hvernig kynja-
hlutföllin eru í fyrirtækjum á
hlutabréfamarkaði. Svo þegar við
skoðuðum stjórnir lífeyrissjóðanna
þessu til viðbótar þá kom í ljós að
þar er óskaplega mikil kynja-
skekkja. Í stærstu lífeyrissjóðun-
um er mikill meirihluti sjóðfélaga
konur en þar eru nánast engar
konur í stjórnum.“
Sif sagði konur orðnar leiðar á
því að heyra það að konur bjóði sig
ekki fram til stjórnarsetu. Það hafi
konur í HR gert í fyrra „Þær buðu
sig beinlínis fram. Og hér erum
við,“ segir Sif.
Félögin fjögur tóku saman yf-
irlit yfir fjölda kvenna í stjórnum
skráðra fyrirtækja og stjórnum
helstu lífeyrissjóða. Þar kemur
fram að í stjórnum 32 skráðra fyr-
irtækja sitja 177 stjórnarmenn,
þar af eru konur 10 talsins eða
5,7%.
„Það kemur í ljós í þessari út-
tekt okkar að það breytist ekkert
hjá þeim félögum sem skráð eru í
Kauphöllinni. Árið 2003 voru rúm-
lega 5% í stjórnum skráðu félag-
anna. Og það er nákvæmlega eins í
dag. Það gerist ekkert,“ sagði Sif.
Hvað varðar lífeyrissjóðina sitja
77 manns í stjórnum 12 af stærstu
lífeyrissjóðum í landinu, sam-
kvæmt samantektinni. Af þessum
77 eru 15 konur, eða 19%. Vakin
var athygli á því að í stjórn lífeyr-
issjóðs bankamanna situr engin
kona þrátt fyrir að 70% sjóðfélaga
séu konur. Þá var vakin sérstök
athygli á að í 21 manns stjórn
Samtaka atvinnulífsins sætu ein-
ungis tvær konur, væru 10%
stjórnarmanna.
Sif sagði að lítið þýddi að semja
fleiri skýrslur um vandann eða að
ætlast til þess að stjórnvöld grípi
inn í. „Boðskapur okkar er ekki sá
að settur verði kynjakvóti. Ekki að
svo stöddu. En ég bendi á það að
fyrir tveimur árum gerðist það í
Svíþjóð á örfáum mánuðum, að
kynjahlutfallið í stjórnum fyrir-
tækja á hlutabréfamarkaði fór úr
því að vera um 6% í um 12%.
Ástæðan var sú að aðstoðarforsæt-
isráðherrann hótaði að taka upp
kynjakvóta.“
Sif lagði þó áherslu á að vert
væri að bíða og sjá hvort breyt-
ingar verði á næstu mánuðum, í
yfirstandandi aðalfundahrinu. „Við
höfðum til ábyrgðar allra þeirra
sem ákveða eða koma að ákvörðun
um hverjir sitja í stjórnum að nú
sé komið að því að breyta fyr-
irkomulaginu.“
Tími aðgerða
runninn upp
Í fréttatilkynningu frá félögun-
um fjórum segir að tími aðgerða
sé runninn upp. Fylgst verði
grannt með því á næstunni hvern-
ig fer í stjórnarkjöri hjá lífeyr-
issjóðum, fjármálastofnunum og
stærstu fyrirtækjum. Jafnframt
eru konur hvattar til þátttöku í
þessum stjórnum og karlar hvattir
til að styðja þær.
„Margendurteknar rannsóknir
og skýrslur á vegum stjórnvalda
sýna að völd kvenna í efnahagslíf-
inu eru lítil. Er það í hróplegri
andstöðu við þá staðreynd að at-
vinnuþátttaka kvenna er hér meiri
en í nokkru öðru OECD-ríki og að
konur eru í þann veginn að verða í
meirihluta á meðal háskólafólks á
Íslandi,“ segir í tilkynningunni.
Konur funda um fákvenni
„Nú er komið að
því að breyta fyr-
irkomulaginu,“
segja konur í fjór-
um fagfélögum
!
"
#
$%&' ( *+&
-.
/ &-0
1 $ 2
3
&$
4
!"
5
&
" /+
* &
$6 *
7%+ &.
#
$%&' ( *+&
#
$ %
" -8 &$ +8 / 5
" -8 9
+
" -8 + :
5 4 -8
&
#
'
" +&. /$% -8
&! " +&8 -8
*+&. &4
/$
(
#
,
Morgunblaðið/Þorkell
Tími aðgerða Margrét Georgsdóttir, formaður Félags kvenna í læknastétt á
Íslandi, Erna Bryndís Halldórsdóttir, formaður Félags kvenna í endur-
skoðun, Sif Konráðsdóttir, formaður Félags kvenna í lögmennsku, og Kol-
brún Reinholdsdóttir, formaður Kvennadeildar Verkfræðingafélags Íslands.
● EIMSKIP er ekki til sölu, enda
þótt fjölmargir aðilar hafi lýst áhuga
á að kaupa félagið. Þetta kemur
fram í yfirlýs-
ingu sem
Burðarás,
móðurfélag Eimskips, sendi frá sér
í gær vegna umfjöllunar fjölmiðla
um áhuga tiltekinna einstaklinga og
fyrirtækja á að kaupa Eimskip.
Í yfirlýsingunni segir að stjórn og
starfsmenn Eimskips hafi að und-
anförnu unnið að skipulagsbreyt-
ingum sem hafi að markmiði að
styrkja félagið og gera það betur
fært um að sækja fram í sam-
keppni á mörkuðum, jafnt hérlendis
sem erlendis. „Framangreindum
breytingum verður fylgt eftir og er
ekki áformað að selja Eimskip að
sinni, enda þótt fjölmargir aðilar
hafi látið í ljós áhuga á að kaupa
félagið.“
Í fréttum RÚV í gær var því haldið
fram að Hannes Smárason, stjórn-
arformaður Flugleiða, hefði lýst
áhuga á að kaupa Eimskipafélagið.
Hannes vildi ekki tjá sig um málið
við Morgunblaðið í gær.
Eimskip er
ekki til sölu
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði um 2,5% í gær í 3,8
milljarða króna viðskiptum og er
lokagildi hennar 3867 stig. Hluta-
bréf Landsbankans hækkuðu mest,
eða um 4,2%, en bréf Samherja voru
þau einu sem lækkuðu, en þau
lækkuðu um 0,9%.
Hækkun í
Kauphöllinni 2,5%
)* %+*#
!"
5;&4 <2
4. <2
- $ &$8 5&2
.
"
=
=;
> $- &
*+?-
*&
+
- $ &8
#
+! , +
3 <
3+-
3$% & &8 10 ?$ @ A2
"/$&' -0
B:?-
*
* &
$6 *
*.
+ &. ?$% &?8
7%+ &.
9
&.
12+0
++@*'
- +. */*
5
&
C%-$-
" /+ 7'$'
01
DECF
*/ &
4 84
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
%& $
$% 4 84
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
( ,)
( ,)
( ,)
@
( ,)
( ,)
( ,)
( ,)
( ,)
( ,)
( ,)
( ,)
@
( ,)
( ,)
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
(
,)
@
@
3 4 &
7 2 / 2 G
*
8 8
8
8 8 8
88 8 8
8 8 8 8
8 @
8 @
8
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
9 & / ! 8 8
5738 H 5&?
& -.
4 &
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
@
5738@ I4
+ $+? .
?
&$- 8 5738@ *% & - $+ %$&.
& 2 ?$
&2$ &8
B J
*KL
,
,
7*C
M5N
,
,
E5E >=N
,
,
N
B
,
,
DECN M2O A2
,
,